Morgunblaðið - 31.03.1957, Side 12
12
MORCUNBLAÐ1Ð
Sunnud. 31. marz 1957
Edens
eftir
John
Steinbeck
2.
Og þetta var hinn langi Salinas-
dalur. Saga hans var eins og saga
Californíu allrar. 1 upphafi
bjuggu þar Indíánar af mjög
frumstæðum og ósiðuðum uppruna,
sem skorti allt framtak, hugvit-
semi og menningu. Þjóðflokkur,
sem lifði á sveppum, engisprettum
og skeldýrum, alltof duglaus til
þess að stunda veiðar, eða fiska
sér til viðurværis. Þeir átu það,
sem þeir fundu og sáðu hvorki né
uppskáru. Jafnvel herferðir þeirra
voru einungis vesælustu látbragðs
leikir.
Eftir Indiánana komu hinir
harðgerðu, ruddafengnu Spánverj
ar og fóru rannsóknar- og land-
námsferðir um dalinn, óseðjandi
og raunsæir. Hugsun þeirra öll
snerist einungis um gull og Guð«
Þeir söfnuðu sálum jafnt sem gim
steinum og lögðu undir sig fjöll
og dali, ár og akra, eins og menn
okkar aldar tryggja sér lóðir und-
ir hús sín.
Þessir harðhuga, tilfinninga-
köldu menn ferðuðust hvíldar-
laust, fram og aftur, með strönd-
unum. Nokkrir þeirra slógu eign
sin'ni á lönd, sem stærri voru
hverju greifadæmi.
Þessir fyrstu frumbyggjar
lifðu við fátækleg frumbýlingskjör
lénstímabilsins, en kvikfénaður
þeirra þreifzt vel og jók kyn sitt
á hinum víðlendu útengjum. öðru
hverju slátruðu eigendurnir dýr-
unum vegna húðanna og mörsins,
en létu kjötið liggja eftir til átu,
fyrir gamma og villidýr.
Þegar Spánverjar komu á þess-
ar slóðir, urðu þeir að skíra allt
SUlItvarpiö
Sunnudagur 31. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
11,00 Messa í Fossvogskirkju. —
(Prectur: 3ára Gunnar Árnason.
Organleikari: Jón G. Þórarins-
son). 13,15 Erindi: Siðgæðið í
deiglunni; II: Þróunarkenning og
helgisagnir (Séra Jóhann Hannes-
son þjóðgarðsvörður). 15,00 Mið-
degistónleikar. (plötur). — 16,30
Veðurfregnir. — Færeysk guðs-
þjónusta (Hljóðrituð í Þórshöfn).
17,30 Barnatími (Baldur Pálma-
son). 18,30 Hljómplötuklúbburinn.
Gunnar Guðmundsson við grammó
fóninn. 20,20 Um helgina. — Um-
sjónarmenn: Björn Th. Björnsson
og Gestur Þorgrímsson. 21,20 Is-
lenzku dægurlögin: Síðari marz-
þáttur S.K.T. — Hljómsveit Jans
Moravek leikur. Söngvarar: Adda
örnólfsdóttir, Ingibjöig Þorbergs
og Alfreð Clausen. Kynnir þáttar-
ins: Gunnar Pálsson. 22,05 Dans-
lög: Ólafur Stephensen kynnir
plöturnar. 23,30 Dagskrárlok.
□--------------------□
Þýðing:
Sverrir Haraldsson
□--------------------□
sem þeir sáu. Það er fyrsta skylda
hvers landkönnuðar, skylda og for
réttindi í senn. Maður verður að
gefa hverjum stað nafn, áður en
hann er settur á upprhætti og
kort. Að sjálfsögðu voru þetta trú
aðir menn og það voru hinir harð
gerðu, óþreytandi prestar þeirra,
sem rituðu frásagnirnar og gerðu
uppdrættina, enda læsir og skrif-
andi, einir manna.
Af þeim sökum voru þeir stað-
ir, sem fyrstir hlutu skírn, nefnd-
ir eftir dýrlingum eða trúarlegum
hátíðisdögum, sem haldnir voru
hátíðlegir, meðan þar var dvalið.
Dýrlingar eru að vísu fjölmarg
ir, en óteljandi eru þeir ekki og
þess vegna kom það fyrir að
fyrstu nöfnin voru endurtekin síð
ar. Þannig höfum við t. d. San
Miguel, St. Michael, San Ardo,
San Bernardo, San Benito, San
Lorenzo, San Carlos, San Fran-
cisquito Og helgidagarnir: Na-
tividad og Naciamente, báðir til
minningar um fæðingu Krists. Og
Soledad: einveran.
En líka hlutu staðir nöfn eftir
því, hvernig leiðangursmönnunum
leið í hvert skipti: Buena Esper-
enza: góð von, Buena Vista: fög-
ur útsýn og Chualar: Fagur stað
ur. Svo komu lýsingarnöfnin:
Paso de los Robles eftir eikar-
trjánum, Los Laui’eles, eftir lár-
berjatrjánum, Tularcitos, eftir
sefi tjarnanna og Salinas vegna
hins mikla kalíums, sem var eins
hvítt og salt. Og loks voru staðir
heitnir eftir dýrum og fuglum,
sem þar höfðu sézt: Gabilanes eft
ir haukunum, sem sveimuðu á
milli fjallanna. Topo eftir mold-
vörpunum. Los Gatos eftir villi-
köttunum. Stundum var það nátt-
úran sjálf, er hugmyndirnar gaf:
Tassajara: Fjall með skál. Laguna
Seca: Þornað stöðuvatn. Corral de
Tierra eftir torfgarði. Paraiso af
því að þar var fagurt, sem í sjálfri
Paradís.
Svo komu Ameríkumennirnir.
Þeir slógu aign sinni á landið og
hagræddu eftir vild lögunum, til
þess að tryggja sér eignarréttinn.
Og bændabýlin ri.<u upp hvert af
öðru, fyrst í dölunum og síðan
uppi í hlíðum þeirra, lítil bjálka-
hús, lögð rauðviðarborðum og um-
girt með stauragirðingu. Hvergi
var svo lítill gróðurblettur, að þar
risi ekki upp eitt slíkt hús, með
fjölskyldu innan veggja, sem sett-
ist þar að og jók kyn sitt í sveita
síns andlits. Rauðar geraníur og
rósir voru gróðursettar framan
við kofaveggina. Hjólför eftir
stórar kerrur tóku við af gömlu
troðningunum og akrar með mais
og byggi leystu gula mustarðinn
af hólmi. Víðs vegar meðfram ak-
veginum risu upp búðarkytrur og
verkstæði, sem síðar urðu fyrsti
grundvöllurinn að smáþorpum,
svo sem Bradley, King City,
Greenfield o. fl. sl.
Ameríkumennirnir lögðu það
^neira í vana sinn, að nefna staði
eftir mönnum. Eftir að dalirnir
byggðust, vísa staðanöfnin oft til
margs, er þar var og gerðist og
í mínum augum eru þau nöfn mest
hrífandi allra nafna, því að þau
minna á sögu, sem nú er fallin í
gleymsku. Ég minnist Bolsa Nu-
eva: Ný pyngja. Morocojo: haltur
Mári (Hver var hann og hvemig
kom hann þangað?) Mustang
Grade: brött hlíð. Wilde Horse
Canyon, Shirt Tail Canyon o. m.
fleira.
Staðanöfnin vitna um þá menn,
sem fundu þau upp, virðingarfull
eða óvirðuleg, lýsandi, annað
hvort skáldleg eða niðrandi. Það
er hægt að nefna hvaða stað sem
er San Lorenzo, en um nafn eins
og: Hinn halti Mári, gegnir allt
öðru máli.
Síðari hluta dags næddi storm-
urinn um byggðir og býli frum-
byggjanna og bændumir tóku að
gróðursetja langar raðir af evka-
lyptustrjám til skjóls, svo að hin
plægða jörð skyldi ekki blása upp.
Og þannig var Salinas-dalurinn,
þegar afi minn vitjaði hans, ásamt
konu sinni og tók sér bólfestu á
milli ásanna, fyrir austan King
City.
2. KAFLI.
1.
Ég verð að styðjast við munn-
mæli, gamlar ljósmyndir, sögur
sem ég hef heyrt og endurminning-
ar sem eru óljósar og sveipaðar
ævintýraijóma æskuáranna, þegar
ég freista þess að segja nokkuð
frá Hamilton-fólkinu. Það voru
alls ekki neitt framúrskarandi
manneskjur að neinu leyti og um
þær finnst fátt fært í letur ann-
að, en hinar venjulegu upplýsing-
ar: Fæðingarár, nokkur helztu
æviatriðin og andlátsárin.
Hinn ungi Samúel Hamilton
kom frá norður-írlandi og sömu-
leiðis eiginkona hans. Hann var af
smábændum kominn, hvorki rik-
um né fátækum, sem höfðu búið á
sömu jörðinni, í sama steinhúsinu,
í mörg hundruð ár. Hamiltonarnir
höfðu aflað sér talsverðrar bók-
legrar menntunar og eins og oft
vill verða, umgengust þeir og
voru í ætt við bæði ríka og snauða,
þannig að eiiin frændinn gat verið
aðalborinn stóreignamaður og ann
ar réttur og sléttur beiningamað-
ur, eða því sem næst. Og að sjálf-
sögðu áttu þeir ættir að rekja til
VORTÍZKAN 1957
DRAGTIR,
! glæsilegt úrval
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 5
^&ömur
Höfum opnað aftur að
Skólavörðustíg 13 A
Nýjar sendingar af
VOR-HÖTTUM
OG HÚFUM
, \Jerzlunín ^J/enny
Skólavörðustíg 13 A
RAFGEYMAR
Hlaðnir og óhlaðnir
6 volta 90 — 105 — 125 — 150 — 225 ampertíma.
12 volta 60 — 75 — 90 ampertíma.
Rafgeyma-sambönd, allar stærðir.
SMIRILL, Húsi Sameinaða, sími 6439
Vz virði!
Nokkrir REGNFRAKKAR
ullarefni og poplin, seljast
næstu daga fyrir hálfvirði.
Notið þetta sérstaka
tækifæri.
I. H. Muller
Austurstræti 17
Mánudagur 1. apríl:
Fastir liðir eins og venjulega.
13,15 Búnaðarþáttur: Úr sveitinni
XVIII. (Hermóður Guðmundsson,
bóndi á Sandi í Aðaldal). 18,00
Fomsögulestur fyrir böm (Helgi
Hjörvar). 18,30 Skákþáttur (Guð
mundur Amlaugsson). 19,10 Þing
fréttir. — Lög úr kvikmyndum.
20,30 Útvarpshljómsveitin; Þórar
inn Guðmundsson stjórnar: Itölsk
lög. 20,50 Um daginn og veginn
(Sveinn K. Sveinsson verkfræð-
ingur). 21,10 Einsöngur: Kristinn
Hallsson syngur; Fritz Weiss-
happel leikur undir á pía.ió. 21,30
Útvarpssagan: „Synir trúboð-
anna“ eftir Pearl S. Buck; IX. —
• ♦> ❖ •> •> ♦> *> •> *> *> ♦> *> ♦> í‘ •> ♦> •> t
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd
Whils mark AND JOHNNy
ARE CELEBKATINS
THéiR LLICK IN PINDINS
THB P®I2S MONEy...
Lucbee has returnécT
UNSEEN TO KILBURN'S TRADING
POST AND STEALTHILy
LISTENS THCOUSH AWINDOW
rBUT X CGV.E BACK AND
TELL TRAIL... SO
TRAIL AND MALOTTE )
©O AFTER. HIM/ JflKL,
XLL CONTACT TTHAT NO GOOD INDIAN
HEADQUARTERS, I TRAMP...X SHOULDA
W AND OUR PATROLSSSWOT HIM GOOD...NOW
WILL BE ON THE VtE'S GOT THE POLICE
UDOKDUT FOR LUCREE/i AFTER ME TOO/ -
(Séra Sveinn Víkingur). — 22,10
Passíusálmur (37). 22,20 íþróttir
(Sigurður Sigurðsson). — 22,35
Kammertónleikar (plötur). 23,15
Dagskrárlok.
1) Meðan Markús og Jonni
fagna því að þeir fundu verð-
launaféð....
2) .... hefur Láki snúið aftur
til þorpsins. Hann hefur læðzt að
glugga einum og hlerar eftir hvað
sagt er inni.
— Láki hélt, að hann hefði
drepið mig.
3) — Én ég v»r ekki dauður.
Eg gat skriðið til þorpsins og
sagt Markúsi frá þessu.
— Eg mun hafa samband við
bækistöðvar lögreglunnar og lög-
reglusveitir verða gerðar út til að
hafa hendur í hári Láka.
4) — Svona hafði hann það þá,
Indíánaþrjóturinn. Hann hefur
ljóstrað upp um allt og nú er lög-
reglan á hælum mínum.