Morgunblaðið - 31.03.1957, Blaðsíða 16
Veðrið
S.-A. kaldi. Skúrir.
76. tbl. — Sunnudagur 31. marz 195^
Reykjavíkurbréf
er á bls. 9.
Þjófar stela peningaskáp
meS 300 kr í peningum
Sá nokkur grunsamlega mannaferðir
á Hlemmtorgi ?
T FYRRINÓTT námu innbrotsþjófar heilan peningaskáp allstór-
an á brott með sér ofan af þriðju hæð í verzlunar- og skrif-
stofuhúsi Sveins Egilssonar við Hverfisgötu, er þeir frömdu inn-
brotsþjófnað í skrifstofu Feldsins h.f., sem þar er til húsa. —
f skápnum var ekki mikið fé, aftur á móti ýmiss konar verzlunar-
bækur og skjöl fyrirtækisins.
í gær hafði hvorki fundizt
tangur né tetur af skápnum og
málið enn óupplýst.
INN UM GLUGGA
Innbrotsþjófarnir hafa komizt
upp á vinnupalla sem standa við
húsið. Af þeim hafa þeir komizt
ian um glugga á skrifstofunni.
Það verður að telja fullvíst, að
þeir hafi síðan dregið peninga-
skápinn út úr skrifstofunni, fram
á stigagang, og farið með skáp-
inn út um hurð er snýr að Hlemm
torgi. Þar hefur vafalítið beðið
bíll ,sem skápurinn hefur verið
fluttur á brott L
KLUKKAN STANZAÐI
Það er vitað um hvert leyti
þjófarnir voru þarna á ferðinni.
Á vegg við gluggann sem þeir
í dag:
Stúdentaráð
kynnir verk dr.
Helga Péturss
STÚDENTARÁÐ Háskóla ís-
lands gengst fyrir bókmennta-
kynningu í hátíðasal háskólans
í dag kl. 3 e.h. — í fréttatilkynn-
ingu frá Stúdentaráði segir:
„Það altítt um þá menn, sem
styr hefur staðið um í lifanda
lífi, að þögn ríkir um þá fyrstu
árin eða jafnvel áratugina eftir
lát þeirra. Stúdentaráði þykir ó-
hæfileg þögn hafa ríkt um minn-
ingu dr. Helga Pjeturss. Að vísu
hefur félag verið stofnað um
heimspekikenningar hans, en
Stúdentaráði þykir samt ástæða
til að minnast hans nokkuð.
Því hefur Stúdentaráð ákveð-
ið að minnast dr. Helga Pjeturss
á 85 ára afmælisdegi hans 31.
marz með því að halda kynningu
á heimspekikenningum hans og
vísindastörfum. Hefur Jóhannes
Áskelsson jarðfræðingur tekið
að sér að tala um vísinda-
mennsku dr. Helga á sviði nátt-
úrufræði og einkum jarðfræði, en
Gunnar Ragnarsson, magister í
heimspeki, mun gera grein fyrir
heimspekikenningum hans. Þá
munu stúdentar lesa upp úr
verkum dr. Helga“.
Bókmenntakynning þessi er
öllum opin og er aðgangur ó-
keypis.
skriðu inn um er rafmagnsklukka
og hefur verið komið við snúruna
að henni, svo hún hefur fanð
úr sambandi og stóð klukkan á
1,40 er að var komið í gærmorg-
un. Það er aftur á móti ekki vit-
að hve langa viðdvöl þeir hafa
haft í húsinu.
1 ! !
Rannsóknarlögreglan hóf þeg-
ar í gærmorgun rannsókn í máli
þessu. Er heitið á alla þá er
einhverjar uppl. gætu gefið, t.d.
um mannaferðir við húsið, í
fyrrinótt eða grunsamlegan bíl,
að hafa samband við rannsóknar
lögregluna hið fyrsta.
LÍTIÐ AF PENINGUM
Þess er svo að lokum að geta,
að í peningaskápnum, sem vó
milli 100 og 200 kg voru aðeins ,. . , , ... ..
um 300 kr. í peningúrn Þar voru Það fferlsí nu æ algengara að togarar fai tundurdufl i vorpuna, en
ýmiss konar skjöl og verzlunar- slíkt setur að sjálfsögðu verið stórhættulegt. Mynd þessi er af
bækur, sem mjög er tilfinnanlegt tundurdufii á þilfari Norðfjarðartogarans Gerpis, en duflið fékk
fyrir fyrirtækið að missa, en er I skipið 20. þ.m. Togarinn sigldi til Akureyrar með duflið þar sem
verðlaust með öllu í höndum kunnáttumaður gerði það óvirkt. — Myndina tók Magnús Her-
þjófanna. I mannsson, véistjóri á Gerpi.
Stal úrum - vant-
aði gjaldmiðil
fyrir víni
ÞAB var komið fram undir morg
un, í gær kl. um 5, er maður nokk
ur í Hafnarstræti heyrði brot-
hljóð og sá rétt á eftir hvar mað-
ur hraðaði för sinni frá úra- og
skartgripaverzlun Sigurþórs Jóns
sonar, Hafnarstr. 4. Sá sem sjón-
arvottur varð að þessu, gerði lög-
reglunni þegar aðvart. Það kom
í ljós að sá, sem rúðuna braut
í búðinni, hafði hrifsað úr glugg-
anum nokkur armbandsúr og
hófst nú leit að manninum.
Tveim tímum síðar fann lög-
reglan hann. Var hann með úrin
öll í fórum sínum, sex talsins og
tvö úrarmbönd.
Maður þessi var undir áhrif-
um áfengis og sagðist hafa gert
þetta í þeim tilgangi að ná sér
í gjaldmiðil til þess að geta feng-
ið sér meira vín. Hann var þó
ekki búinn að ráðast í vínkaupin
er hann var tekinn. Maður þessi
hefir áður komizt í kast við lög-
regluna.
Belgískur togari í
„skipakirkjugarðinn”
Kirkjubæjarklaustri, 30. marz:
INÓTT fóru bændur í Meðallandi enn af stað til hinnar svörtu
sendnu strandar Meðallandsfjöru, „Skipakirkjugarðsins".
Belgiskur togari hafði strandað og sent út neyðarkall. — Bænd-
urnir fundu skipið brátt og á skömmum tíma hafði þeim tekizt að
bjarga 15 af 19 manna áhöfn. — Fjórir yfirmenn togarans óskuðu
ekki eftir að fara í land og eru enn í skipinu.
Þessi belgiski togari er mjög
stór 6600 tonna skip og heitir
Vander Wende og er frá Ostende.
Hann er sagður vera með um
200 tonn af fiski innanborðs. Skip
brotsmenn hafa frá því skýrt, að
þeir hafi staðið í fiskaðgerð er
skipið strandaði í mikilli þoku
og dimmviðri. Sjólaust var og
flóð.
Togarinn strandaði nokkrum
mílum fyrir austan selfangarann
Polar Quest, skammt frá skip-
brotsmannaskýlinu austan Kúða-
foss.
Þegar Meðallendingar voru
búnir að bjarga hásetum og
nokkrum af yfirmönnum, sagðist
skipstjórinn vilja vera um kyrrt
í skipinu ásamt fyrsta stýrimanni,
fyrsta vélstjóra og loftskeyta-
manni, þar til hann (skipstjór-
inn) hefði gert tilraun til að ná
skipinu út aftur með aðstoð
skips, en það er væntanlegt á
morgun, sunnudag frá Vest-
mannaeyjum. Stækkandi straum-
ur er og þarna er aðdýpi nokk-
urt og sjávarkamburinn brattur
fram.
Voru þessir fjórir yfirmenn
skipsins um borð í því í gær-
kvöldi, en þá var brimiítið við
skipið. Skipbrotsmenn eru á bæj-
um Meðallandsbænda. — G.B.
Freuchen kemur
á miðvikudagiim
HINN FRÆGI danski landkönn-
uður, Peter Freuchen, er vænt-
anlegur hingað til lands 3. apríl
í boði Stúdentafélags Reykja-
víkur. Mun hann halda hér tvo
fyrirlestra um Grænland. Peter
Freuchen verður kynntur fyrir
stúdentum á kvöldvöku félags-
ins, sem haldin verður í Sjálf-
stæðishúsinu föstudaginn 5. apríl.
Sfúlkan fundin
13 ÁRA stúlkan, sem skýrt var
frá að farið hefði að heiman
frá sér á þriðjudagskvöldið,
kom fram hér í bænum síðdegis
í gær, lseil á húfi.
Kort af Reyk javík
HLUTAFÉLAGIÐ Forvérk, sem
fyrir nokkru var stofnað hér í
Reykjavík, hefur sent bæjarráði
bréf, varðandi kortagerð af
Reykj avík.
Hér er um að ræða kort sem
gerð eru eftir ljósmyndum sem
teknar eru úr lofti og sýna með
fullkominni nákvæmni allar hæð
arlínur landslagsins. Mjög er að
sjálfsögðu áríðandi fyrir bæinn
að hafa slíkt heildarkort í sam-
bandi við hvers konar fram-
kvæmdir svo sem gatnagerð, hol-
ræsalögn og skipulag svæða og
fleira.
Bæjarráð ákvað á fundi sín-
um á föstudaginn að senda þetta
erindi til umsagnar skipulags-
stjóra bæjarins og ríkisins.
Barn stórslasast er það
hleypur á olíubíl
SKÖMMU fyrir hádegi í gær,
varð fimm ára stúlkubarn fyrir
bíl á Suðurlandsbrautinni. Yar
það flutt nær dauða en lífi í
Landspítalann.
Gerðist slys þetta inni við Múla
búðir. Stór olíuflutningabíll frá
Skeljungi hf. var á leið til bæj-
arins. Er hann nálgaðist Múla-
búðir, sá bílstjórini) hvar tvær
litlar telpur voru við hægri veg-
arbrún, en hann ók eftir þeirri
vinstri.
Rétt í það mund, cem bíllinn
kom að þeim, stökk önnur telpan,
Margrét Gunnarsdóttir, Suður-
landsbraut 40, út á götuna, og
hljóp hún á bílinn. Kom höfuð
hennar á olíugeyminn og stór-
slasaðist barnið.
Telpan litla var flutt í Land-
spítalann. Yoru læknar spítalans
með telpuna til aðgerðar lengi
Bænutn boðið mesta einkabókasafn landsins til kaups
GUNNAR HALL kaupmaður,
sem mun eiga mesta bókasafn
hér á landi, sem er í einkaeign,
hefur skrifað bæjarráði bréf, þar
sem hann, þ. e. a, s. lögfræðing-
ur hans, býður Reykjavíkurbæ
þetta mikla bókasafn til kaups.
• • • í vetur er leið tók
Gunnar Hall saman mikla bóka-
skrá sem byggð var á þessu bóka-
safni hans. í því eru meðal ann-
ars, svo fágætar bækur að þær
munu ekki til í öðrum bóka-
söfnum hér á landi, hvort heldur
í opinberri eign eða einkaeign.
9 0 9 Á fundi bæjarráðs er
haldinn var á föstudaginn, var
bréf þetta um tilboðið lagt fram.
Bæjarráðsmenn tóku ekki af-
stöðu til erindisins á þeim fundi
aðra en þá, að óska umsagnar
skjalavarðar þæjarins og for-
stöðumanna Bæjarbókasafnsins.
• • • Safn þetta telja kunn-
ugir ákaflega erfitt að meta til
fjár, en aldrei geti það þó farið
undir 2—3 millj. kr., en um það
eru þó skoðanir nokkuð á reiki
meðal bókamanna. í bréfinu
til bæjarráðsins er ekkert verð
nefnt.
dags í gær, og það frétti blaðið
síðast, að hún væri komin af
skurðarborðinu. Ógerlegt var að
fullyrða nokkuð um hvernig
barninu myndi reiða af.
Sjónarvottar hafa gefið sig
fram, en rannsóknarlögreglan
þarf nauðsynleg'a að ná tali af
manni í bíl, sem kom á móti
olíubílnum, og öðrum sjónar-
vottum er upplýst gætu aðdrag-
anda þessa slyss. Bílstjórinn tel-
ur sig hafa ekið með um 40 km
hraða og var bílinn um hálf-
fermdur, en þetta mun hafa verið
10 tonna bíll. Hemlaförin eftir
hann voru mjög löng. Leiksystur
Margrétar sakaði ekki, enda mun
hún hafa staðið kyrr, er Margrét
hljóp út á götuna.
Barnaheíinili við
Fornhaga
Á FUNDI sínum á föstudaginn
samþ. bæjarráð fyrir sitt leyti í
meginatriðum uppdrætti að nýju
barnaheimili, sem reist verður
vestur við Fornhaga—Fjallhaga.
Þetta heimili á að koma í stað
barnaheimilisins Suðurborgar
sem nú er í gömlu timburhúsi
við Tjörnina, en það er eign
Barnavinafél. Sumargjöf. Hug-
myndin er að bærinn fái það húa
í staðinn fyrir þessa nýju „borg"
sem nú verður reist