Morgunblaðið - 07.06.1957, Qupperneq 2
1
HfnwcrjnrnrápjQ
FBstudagur T. Jðnf 1957
Aldrei meira byggt en nú í Reykjavík:
Á þriðja þúsund íbúðir verðo
væntanlega i smíðum í sumar
Lóðamálin rœdd á bœjarstjórnarfundi i gœr
%
AFundi baejarstjórnar í gær urðu allmiklar umræður um lóða-
málin og sérstaklega um úthlutun lóða. Komu fram athyglis-
verðar upplýsingar í ræðum bæjarfulltrúanna á fundinum, sem
sýndu að aldrei hefir verið eins mikið byggt í Reykjavík sem
einmitt nú og eru allar horfur á að á þriðja þús. íbúða verði
í smíðum í sumar. Umræðumar spruttu út af tillögu sem Guð-
mundur Vigfússon bar fram um að skýrsla yrði fengin frá bæjar-
verkfræðingi og skipulagsstjóra um lóðaúthlutunina og henni hrað-
að í Hálogalandshverfinu en þar á eftir að úthluta um 30 lóðum.
Jóhann Hafstein flutti greinar-
góða ræðu um lóðaúthlutunina og
komst m.a. svo að orði, að hún
hefði ávallt verið mikið vanda-
mál, og æskilegt væri að unnt
væri að veita þar sem bezta úr-
lausn. Kvað hann það koma til
athugunar varðandi lóðaumsókn-
irnar, sem nú lægju fyrir hjá bæn
um að framkvæma raunhæft mat
á því hverjir hefðu þörf á lóðum
eins og sakir stæðu því vitað væri
að sumir af þeim sem fyrr á árum
hefðu sótt um lóð hefðu nú leyst
vanda sinn á annan hátt.
Óvenjulegur fjöldi íbúða væri
nú í smíðum. Væri tala þeirra
íbúða það há, að e? þeim yrði
lokið á eðlilegum tíma þá myndi
mjög draga úr húsnæðisskortin-
um hér í bænum. Um 1800 íbúðir
væru nú í smíðum hér í bænum
og á síðasta ári hefði verið lokið
við 700 íbúðir. Ef gert væri ráð
fyrir að jafnmargar íbúðir yrðu
fullgerðar 1957 og 1958 að við-
bættum 400 íbúðum að auki sem
nú er ráð fyrir gert myndu rísa
þannig 2,500 nýjar íbúðir á þrem-
ur árum, sem hýst gætu um 10,000
manns. Á tímabilinu 1950—1955
hefði fólksfjölgunin hér í bænum
verið um 1300 manns á ári.
Ljóst væri því, að þá gengju
af íbúðir fyrir um 6000 manns,
þótt gert væri ráð fyrir íbúafjölg
uninni, og yrðu þær þá notaðar
m.a. til þess að leysa vanda hús-
næðislauss fólks og til þess að
útrýma heilsuspillandi húsnæði.
MISRÆMI í MÁLFLUTNINGI
í>á vék Jóhann að því að at-
hugandi væri að bærinn tæki að
sér byggingu svonefndra hahúsa,
þar sem vafi væri á því að ein-
staklingar hefðu bolmagn til
slíkra bygginga, en léti þeim þess
í stað í té lóðir, t.d. inn við Elliða
vog sem ætlaðar hafa verið fyrir
einnar hæðar raðhús.
t>á benti hann á það hvílíks
misræmis gætti' í málflutningi
Guðmundar Vigfússonar og orða
hans um lóðamálin því hann
segði þar í öðru orðinu að lóðir
skorti undir 3000 íbúðir en í hinu
að lóðir skorti undir 6—7000
íbúðir eða fyrir 30.0000 manns og
sæu allir hvílík fjarstæða það
væri. Sjálfstæðismenn í bæjar-
stjórn hefðu gert það sem í þeirra
valdi hefði staðið til þess að leysa
lóðamálin, en hafa yrði hinar
erfiðu aðstæður í huga, hinn
mikla straum fólks til bæjarins.
Borgarritari Gunnlaugur Pét-
ursson gaf þær upplýsingar við
Allri saltfiskframleiðsfu
þessa árs ráðstafað
Mikill einhugi rikjandi á aðalfundi SÍF
4ÐALFUNDI
lokið hér
Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda er
í bænum, og sátu hann um 80 fiskfram-
leiðendur víðs vegar að af landinu. — Lögð var fram skýrsla yfir
starfsemi félagssamtakanna fyrir sl. ár. Samkvæmt þeirri skýrslu
nam útflutningur ársins 1956 alls 41.585 tonnum, að verðmæti f.o.b.
um 179 millj. króna. Voru til ráðstöfunar á aðalfundi eftirstöðvar af
andvirði fiskframleiðslunnar árið 1956, tæpar 12 millj. króna, og
ákvað fundurinn lokagreiðslur til fiskeigenda eftir fisktegundum
á sama hátt og undanfarin ár.
Þá voru einnig lagðir fram
reikningar félagsins fyrir árið
1956, og voru þeir samþykktir í
einu hljóði.
Formaður félagsstjórnarinnar,
Richard Thors, flutti skýrslu um
starfsemi félagssamtakanna, það,
sem af er þessu ári, og upplýsti,
að því nær öllum stórfiski, sem
seljast á og flytjast úr landi ó-
verkaður, væri nú þegar ráðstaf-
að. Sömuleiðis hefðu verið gerð-
ir samningar um sölu á smáfiski,
og mætti því heita, að allri salt-
fiskframleiðslu landsmanna til
þessa hefði nú þegar verið ráð-
stafað.
Á fundinum var gerð sú breyt-
ing á lögum félagsins, að verk-
svið þess var nokkuð víkkað,
þannig að framvegis er ætlunin,
að það láti til sín taka, auk salt-
fisksölunnar, félagsmál og
önnur hagsmunamál félags-
manna, ásamt sölu annarra sjáv-
arafurða, eftir því sem félags-
menn kunna að óska.
Mjög mikil eining og samhugur
ríkti á fundinum um starfsemi
félagssamtakanna, og voru stjórn
og endurskoðendur endurkosin.
Fundi var slitið kl. 5 e.h.
Stjórn SIF skipa nú þessir
menn:
Richard Thors, Jón G. Marias- |
son, Jóhann Þ. Jósefsson, Helgi
Pétursson, Hafsteinn Bergþórs-
son, Jón Gíslason og Tryggvi
Ófeigsson.
Framkvæmdarstjórar eru:
Kristján Einarsson og Helgi
Þórarinsson.
umræðurnar að bráðlega yrði
unnt að úthluta lóðum fyrir 60
íbúðir í raðhúsunum sem byggja
á við Sundlaugarnar, fyrir 340
íbúðir í háhúsunum á Laugarásn-
um og fyrir 250 íbúðir í EUiða-
vogshverfinu. Alls eru það 650
íbúðir. Nú væri líka unnið að því
að skipuleggja mikið íbúðarsvæði
á Háaleiti fyrir um 2.500 íbúðir
og yrði því úthlutað lóðum fyr-
ir um 3150 íbúðum samkvæmt
því.
Gísli Halldórsson gat þess í
ræðu sinni að af þeim tæplega
2000 íbúðum sem í smíðum hefðu
verið sl. ár hefði verið lokið við
700. Með úthlutuninni í Háloga-
landshverfinu sem nú er senn
lokið hefðu lóðir undir 700 nýjar
íbúðir bætzt þar við. Yrðu því í
smíðum 18—1900 íbúðir í sumar.
Auk þess yrði lóðum fyrir um
Guðmundur Pétursson
gömul mynd.
650 íbúðum úthlutað i næstunni
eins og borgarritari hefði skýrt
frá og yrðu þá í sumar í smíðum
á þriðja þúsund íbúðir. Myndu
aldrei jafn margar íbúðir hafa
verið í smíðum hér í Reykjavík
sem einmitt nú, og benti allt til
þess að þetta ár yrði umfangs-
mesta ár bygginga til þessa.
Guðmundur H. Guðmundsson
rifjaði upp að nú væru 5 blakkir
með 120 íbúðum í byggingu &
vegum bæjarins auk 144 raðhúsa
og myndu þessar framkvæmdir
leysa vanda margra þeirra sem
sótt hefðu um lóðir undir eigin
hús til bygginga.
Kom það fram í ræðunum, eins
og áðurnefndar tölur sýna, að
miklu hefir verið úthlutað af lóð-
um, að undanförnu, þótt enn
I hafi ekki nær allir fengið úrlausn.
Vinstri flokkarnir skora á borg-
arstjóra að bæta úr vanrækslu-
syndum ríkisstjúmarinnar
ABÆJARSTJÓRNARFUNDI í gær ítrekaði Þórður Björnsson
tillögu nefndar, sem skilaði áliti um gistihúsamálin í desem-
ber í vetur. Geir Hallgrímsson bæjarfulltrúi var formaður þeirrar
nefndar og Þórður Björnsson ritari. í þessari tillögu sinni átelur
Þórður Björnsson aðgerðarleysi síns eigin flokks og annarra stjórn-
arflokka í fjárfestingarmálunum, en hvorki fjárfestingaryfirvöldin
né ríkisstjórnin urðu við samhljóða tillögu bæjarstjórnarinnar um
fjárfestingarleyfi fyrir nýju gistihúsi frá því í desember í vetur.
Geir Hallgrímsson bar fram
viðbótartillögu við aðaltillöguna
og var tillagan þannig breytt
samþykkt samhljóða. Með sam-
þykkt tillögurinar víttu vinstri
flokkarnir sína eigin fulltrúa,
fjárfestingaryfirvöldin og ríkis-
stjórnina, og fólu borgarstjóra að
reyna að hrinda þessum málum
í framkvæmd.
Tillagan með breytingartillögu
Geirs Hallgrímssonar fer hér á
eftir:
Bæjarstjórn telur að skortur
á gistiherbergjum hér í bænum
hafi um langt skeið verið svo
mikill að óumflýjenleg nauðsyn
sé á því, að þegar verði hafizt
handa um byggingu nýrra gisti-
húsa í bænum.
Bæjarstjórn vill því ítreka
TÝNDUR
UM þennan mann, Pétur Guð-
mundsson, hefur ekki spurzt svo
vitað sé í tæpt hálft ár. Móðir
hans bað rannsóknarlögregluna
fyrir nokkrum dögum, að reyna
að grennslast fyrir inn hvar hans
væri niður kominn. Lýst var þá
eftir manninum í útvarpinu, en
þær tilk. hafa ekki enn borið
neinn árangur. Þegar hann kom
síðast til móður sinnar, um mán-
aðarmótin nóv.—des., kvaðst
hann ef til vill fara til sjós. Pétur
sem er 35 ára að aldri, var einn
þeirra manna, sem ekki stundaði
neina fasta atvinnu, og átti hér
hvergi neinn samastað. Síðast er
vitað örugglega um ferðir hans
15. desember, en þá var hann hér
í Reykjavík. Hann var ekki kom-
inn í neitt skiprúm svo vitað
væri þá. Hann hefur áður horfið
langtímum saman, en ekki áður
svona lengi án þess að hafa nokk-
urt samband við ættingja sína.
Þessi mynd er sú eina sem til
er af Pétri og er hún orðin nokk-
uð gömul og hann sagður breytt-
Silungsveiði
SILUNGSVEIBIN er nú orðin
góð austur við Kaldárhöfða, en
það er einn fjölsóttasti veiði-
staðurinn hér í nærsveitum
Reykjavíkur. Fram á miðvikudag' ur mjög. Er hann hvarf var hann
hafði lítið veiðzt, en þá kom
ganga og var góð veiði þann dag-
inn. Veiddist þá allmikið
af smærri silungi, en einnig
nokkrir vænir. í gær var þar góð
veiði og voru nokkrir að veiða
af bakkanum í góða veðrinu.
í gráum jakka, grænum nankins-
buxum, í blárri peysu og á brún-
um skóm.
Rannsóknarlögreglan vill biðja
þá er einhverjar uppl. gætu gefið
um Pétur að gera strax viðvart.
Þó ekki sé loku skotið fyrir það
að Pétur hafi ráðist á erlent skip
hér, þá telur rannsóknarlögreglan
það mjög ólíklegt.
samþykkt sína frá 20. desember
f. á. um að hún heitir því fyrir
sitt leyti, að veita ábyrgð fyrir
láni, sem varið sé til að byggja
gistihús, allt að 25% stofnkostn-
aðar, enda sé baktrygging til bæj
arins fyrir hendi og beinir því
til löggjafarvaldsins að það veiti
ríkisábyrgð fyrir láni, sem nemi
allt að 50% stofnkostnaðar gisti-
húsa í Reykjavík.
Einnig ítrekar bæjarstjórn fyr-
irheit að láta í té leigulóðir fyrir
gistihús og beinir því til sam-
vinnunefndar um skipulagsmál
að hún hraði staðsetningu gisti-
húsa í bænum.
Jafnframt ítrekar bæjarstjórn
fyrri áskorun sína frá 20. des.
f. á. til Ríkisstjórnar íslands og
fjárfestingaryfirvaldanna um að
veita leyfi til að hefja byggingu
200 gistiherbergja hér í bænum.
Harmar bæjarstjórn, að engin
fjárfestingarleyfi til gistihús.
byggingar hafa enn verið veitt,
og felur því borgarstjóra að fá
því framgengt við ríkisstjórn og
fjárfestingaryfirvöld, að leyfi
í þessu skyni verði veitt nú þegar.
Gagnfræðaskólanum
á ísafirði slitið
Dregið í hoppdrætti
Sjólistæðisílokksins
eftir fda daga
Vinsamlegast .gerið skil. Dregið eftir fáa daga. Afgreiðsl-
an í Sjálfstæðishúsinu er opin til kl. tíu í kvöld.
G AGNFRÆÐASKÓL ANUM á
Isafirði var slitið þriðjud. 21.
maí í húsakynnum skólans að
viðstöddum allmörgum gestum.
Skólastjórinn, Guðjón Kristins-
son, gaf yfirlit um vetrarstarfið.
í skólanum voru um 140 nemend-
ur. 12 nemendur luku gagnfræða-
prófi, en landspróf miðskóla
stendur nú yfir, og þreyta það
próf 12 nemendur.
40 nemendur tóku unglinga-
próf og 22 miðskólapróf upp úr
3. verknámsdeild.
Félagslíf nemenda var fjöl-
breytt að vanda. M. a. gengust
nemendur fyrir árshátíð í marz-
mánuði. Var vel til hennar vand-
að, og sýndu nemendur sex sinn-
um við ágæta aðsókn í Alþýðu-
húsinu.
Hæstu einkunn yfir skólann
hlaut Leó Kristjánsson í 2. bók-
námsdeild 1. ágætiseinkunn 9,29.
Hæstu einkunn við gagnfræða-
próf fékk Agnes Óskarsdóttir frá
Bolungarvík, 1. ágætiseinkunn,
9.23.
Veitt voru verðlaun fyrir vel
unnin trúnaðarstörf og einnig
þeim nemendum, er fram úr
sköruðu í námi.
Að lokum afhenti skólastjóri
gagnfræðingum skírteini og
kvaddi þá með stuttri ræðu. —
Minnti hann þá á að halda tryggð
við bernskustöðvarnar og helga
þeim krafta sína.
Við skólaslitin var mættur
Arngr. Fr. Bjarnason, kaupmað-
ur, og afhenti hann nokkrum
nemendum viðurkenningu fyrir
ritgerðir um bindindismál frá
Umdæmisstúkunni nr. 6.
I lokin var sungið undir stjórn
söngkennararans, Ragnars H.
Ragnars.
— J.
Finaakeppnin
í golfi
4 FIRMU standa nú eftir ósigruð
í firmakeppni Golfklúbbsins.
Eru það Byggir h.f. sem Sveinn
Snorrason leikur fyrir, Ólafur
Gíslason & Co. sem Ingólfur
Isebarn leikur fyrir, Verzlimar-
sparisjóðurinn sem Helgi Jakobs-
son leikur^ fyrir og Hjalti Lýðs-
son sem Óttar Yngvason leikur
fyrir.
í dag keppa saman Byggir og
Verzlunarsparisjóðurinn og Ól.
Gíslason gegn Hjalta Lýðssyni.
Spenningurinn er nú mikilll, og
ógerlegt að spá um úrslitin. Ing-
ólfur er reyndastur golfmann-
anna sem eftir eru, en hinir hafa
forgjöf, svo sigurvonir þeirra
eru engu minni. Nú eru allir og
ekki sízt forráðamenn fyrirtækj-
anna hvattir til að fylgjast með
keppninni.