Morgunblaðið - 07.06.1957, Side 4
4
MÓRGU\m4Ð1Ð
Föstudagur 7. júní 1957
1 dag er 15i>. dagur ársins.
Annar fardagur.
Föstudagurinn 7. júnt.
ÁrdegisflæSi kl. 1,36.
SíSdegisflæiji kl. 14,21.
Slysavarðstof.i Revkjavíkur í
Heilsuvemdarotöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R. (fyrir vitjanir) er á uma stað
frá kl. 18—8. Sími 5030.
NæturvörSur er í Laugavegs
apóteki, sími 1618. — Ennfremur
eru Holts-apótek, Apótek Austur-
bæjar og Vesturbæjar-apótek op-
in daglega til kl. 8, nema á laug-
ardögum til kl. 4. Þrjú síðasttal-
in apótek eru öll opin á sunnudög-
um milli kl. 1 og 4.
Garðs-apótek, Hólmgarði 34, er
opið daglega kl. 9—20 nema á
laugardögum 9—16 og á sunnudög
um 13—16. Sími 82006.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20 nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. Sími 4759.
Hafnarfjarðar-npótek er opið
alla virka daga kl. 9—21. Laug-
ardaga kl. 9—16 og 19—21. Helga
daga kl. 13—16 og 19—21.
Keflavíkur-anótek er opið alla
virka daga frá kl. 9—19, laugar-
daga frá kl. 9—16 og helga daga
frá kl. 13—16.
Hafnarfjörður: — Næturlæknir
er Eiríkur Björnsson, sími 9235.
Akureyri: — Næturvörður er í
Stjörnu-apóteki, sími 1718. Nætur
læknir er Sigurður Ólason.
Brúðkaup
1 dag verða gefin saman í hjóna
band í Háskólakapellunni ungfrú
Helga Jónsdóttir, Laufásvegi 79,
og stud. theol. Oddur Thoraren-
sen, Fjölnisvegi 1. Heimili ungu
hjónanna verður á Leifsgötu 14.
Faðir brúðarinnar, séra Jón Pét-
ursson, fyrrum prófastur, fram-
kvæmir hjónavígsluna.
Sunnudaginn 2. júní voru gefin
saman í hjónaband í Neskirkju, af
séra Jóni Thorarensen Herdís
Óskarsdóttir, Sunnuhvoli, Sel-
tjarnamesi og Guðmundur Magn-
ússon, Sæbóli, Seltjarnarnesi. —
Heimili þeirra er að Sæbóli, Sel-
tjarnamesi.
Nýlega hafa verið gefin saman
í hjónaband ungfrú .Þórunn ÓI-
afsdcttir, Ásvallagötu 20, Sveins-
sonar frá Mælifelli í Skagafirði og
Gylfi Eldjárn Sigurlinnason,
Miklubraut 42, Péturssonar, bygg
ingarmanns. Heimili þeirra er að
Ásvallagötu 20.
Þriðjudaginn 4. júní voru gefin
saman í hjonaband, að Breiðabóls-
stað í Fljótshlíð, Guðrún Sigurð-
ardóttir, Sólheimakoti í Mýrdal og
William Möller, kennari í Skóga-
skóla. Föðurbróðir bri^ðarinnar,
séra Svenbjöm Högnason, prófast
ur, gaf brúðhjónin saman.
Gefin verða saman í dag af séra
Jóni Auðuns TJngfrú Áslaug Só'-
veig Stefánsdóttir og Leifur Hann
esson, verkfr. — Heimili þeirra
verður á Nýlendugötu 27.
SS Skipin
Eimskipafélag Islands h.f.: —
Brúarfoss er í Kaupmannahöfn.
Dettifoss fór írá Akranesi í gær-
dag til Keflavíkur. Fjallíoss fér
frá Reykjavík kl. 13,00 í dag til
Þessi skírnarfontur er gjöf til Húsavíkurkirkju frá Kvenfélagi
Húsavíkur, í tilefni af fimmtíu ára afmæli kirkjunnar hinn 2. júní sl.
Skírnarfonturinn er geröur af Jóhanni Björnssyni, myndskera frá
Húsavík, og er lokið miklu lofsorði á þetta listaverk.
Framan á skírnarfontinn er grafin þessi ritningargrein: „Leyfið
börnunum að koma til mín og bannið þeiin það ekki, því að slíkra
er guðsríki".
Antwerpen og Hull. Goðafoss fer
frá New York 13. þ.m. til Rvíkur.
Gullfoss kom til Kaupmannahafn-
ai í gærmorgun frá Leith. Lagar-
foss fór frá Leningrad í gærdag
til Gdynia, Kaupmannahafnar, —
Gautaborgar og Reykjavíkur. —
Reykjafoss fór frá Gautaborg 4.
þ.m. til Ventspils, Hamina og Is-
lands. Tröllafoss fór frá Sandi
28. f.m. til New York. Tungufoss
fór frá Þingeyri í gærdag til Norð
ur- og Austurlandsins og þaðan til
London og Rotterdam.
Eimskipafélag Rvíkur h.f.: M.s.
Katla fór frá Reykjavík í gær á-
leiðis til Riga.
Skipaúlgerð ríkisins: — Hekla
fer frá Reykjavík kl. 18 á morgun
til Norðurlanda. Esja var vænt-
anleg til Reykjavíkur í nótt að
austan. Herðulreið er á Austfjörð
um á suðurleið. Skjaldbreið fór
frá Reykjavík í gær til Snæfells-
ness- og Breiðafjarðar. Þyrill er
á Húnaflóa. Sigrún fór frá Rvík
í gær til Vestn.annaeyja.
Flugvélar
Flugfélag íslands h.f.: — Milli-
landaflug: Hrímfaxi er væntanleg
ur til Reykjavíkur kl. 20,55 í kvöld
frá London. Flugvélin fer til Glas
gow og Kaupmannahafnar kl.
08,00 í fyrramálið. Gullfaxi fer til
Glasgow og Kaupmannahafnar kl.
08,00 í da'g. Væntanlegur aftur til
Reykjavíkur kl. 22,50 í kvöld. —
Flugvélin fer til Kaupmannahafn-
ar og Hamborgar kj. 09,00 í fyrra-
málið. — Innanlandsflug: 1 dag
er áætlað að fljúga til Akureyrar
(3 ferðir), Egilsstaða, Fagurhóls-
n.ýrar, Flateyrar, Hólmavikur,
Hornaf jarðar, ísafjarðar, Vest-
mannaeyja (2 ferðir) og Þingeyr-
ar. — Á morgun er áætlað að
fljúga til Ákureyrar (3 ferðir),
Blönduóss, Egilsstaða, Isafjarðar,
Sauðárkróks, Skógasands, Vest-
mannaeyja (2 ferðir) og Þors-
hafnar.
Loftleiðir h.f.: — Leiguflugvél
Loftleiða h.f., er væntanleg kl.
08,15 árdegis í dag frá New York.
Heldur áfram kl. 09,45 áleiðis til
Osló og Stafangurs. — Hekla er
væntanleg kl. 19,00 frá Hamborg,
Kaupmannahöfn og Gautaborg. —
Heldur áfram kl. 20,30 áleiðis til
New York.
I§!jj Ymisleg'
Frá Verkakvennaiéiaginu r ram-
sókn. — Að gefnu tilefni vill
Verkakvennafélagið Framsókn
brýna það fyrir félagskonum, að ef
þær leita sér atvinnu utan Rvíkur,
er nauðsynlegt að þær hafi með
sér félagsskírteini eða kvittun
fyrir árgjaldi þessa árs. — Einnig
er skorað á verkakonur að láta
sl rá sig á Ráðningarstofu Reykja
víkurbæjar, ef þær eru atvinnu-
lausar, hvort sem um lengri eða
skemmri tíma er að ræða, annars
missa þær rétt til feóta úr atvinnu
leysistryggingasjóði félagsins, fyr
ir þann tíma, sem þær ekki láta
skrá sig atvinnulausar.
Stúdentar frá M.R., vorið '952. —-
Fundur í Iþöku í kvöld kl. 8.
Kapteinn Odd Tellefsen kveður
ísiand. — Á morgun fer héðan
kapt. Odd Tellefsen, með m»s.
Heklu, áleiðis til Noregs, en hann
hefur verið flokksstjóri Hjálpræð-
ishersins í Reykjavík um tveggja
ára skeið, en áður hafði hann ver-
ið aðstoðarforingi við Reykjavík-
urflokk fyrir nokkrum árum. —
Kapteinninn hefur því dvalið
tvisvar hér á landi. — Hann er
kvæntur enskri konu, og hafa þau
hjón áunnið sér miklar vinsældir
fyrir Ijúfmannlega framkomu og
hjálpfýsi við þá sem bágt eiga,
sjúka og sorgmædda, og verða
þeir margir sem sakna þeirra. —
Kapteinninn er einn bezti lúðra-
þeytari Hjálpræðishersins í Noregi
og hefir hann oft töfrað Islend-
inga og aðra i-.eð snilli sinni, auk
þess sem hann hefur miðlað félög
um sínum af mikilli þekkingu
sinni á sviði tónlistarinnar. — ís-
land og íslenzka þjóðin á djúpar
rætur í hjarta kapt. Tellefsen og
konu hans og er leitt að þau eru
kvödd svo snemma héðan. — Vin-
ir þeirra og félagar þakka þeim
blessunarríka viðkynningu og
óska þeim og litlu dóttur þeirra,
sem þau hafa eignazt hér, gæfu
og gengis og blessunar Guðs í
framtíðinni. — B. Þ.
Happdrælli HíÁóla Tilands. —
Dregið verður í 6. flokki n.k.
þriðiudag. Virningar eru 737
samtals kr. 945.000.00. Athygli
sltal vakin á því að allri endur-
nýjun verður að vera lokið fyrir
hvítasunnu.
Orð lí/sint: Og til einskis dýrka
þeir mig, er þeir kenna lærdóma,
sem eru manna boðorö. Þér skeyt-
ið ekki boðum Guðs, en lialdið fast
við erfikenning manna. (Mark. 7,
7—8).
Áfengið veldur fleiri slysum en
flest annað. — Umdæmisstúkan.
Skaftfellsku bændurnir: Nafn
fararstjóra skaftfellsku bæna-
anna misritaðist hér í blaðinu í
gær. Hann var Steinþói bóndi
Þórðarson á Hala, en í fréttinni
stóð Steingrímur á Hemlu. Þá
misritaðist bæjarnafnið Stóra-Lág
og stóð Stóra-Mörk.
Félagsstörf
Bræðrafélag Oháða safnaðarins.
Fundur í Eddu-Kúsinu við Lindar
götu í kvöld kl. 8,30.
jggAheit&samskot
Súlheiinadreiigurinn, afh. Mbl..
K og M kr. 150,00; áheit N N
50,00. —
Fjölskyldan, sem brann hjá í
Selási, afh. Mbl.: N N kr. 50,00.
Gisli-kvli drykkjumanna, afh.
Mbl. af séra Óskari J. Þorlákssyni
St. J. Lindarg. 52 kr. 150,00. E Ó.
kr. 200,00.
Söfn
Bæjarbókasafnið. —— Lesstofan
er opin kl. 10—12 og 1—10 virka
daga, nema laugardaga kl. 10—12
og 1—4. Útlánsdeildin er opin
virka daga kl. 2—10, nema laug-
ardaga kl. 1—4. Lokað á sunnud.
yfir sumarmánuðina. Útibúið Hofs
vallagötu 16. opið virka daga
nema laugard. kl. 6—7. Útibúið
Efstasundi 26: opið mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kL 5,30
—7.30, Útibúið Hólmgarði 34:
opið mánudága, miðvikudaga og
föstudaga kl. 5—7.
Listasafn ríkisins er til húsa í
Þjóðminjasafninu. Þjóðminjasafn
ið: Opið á surnudögum kl. 13—16
og á þriðjudögum, fimmtudögum
og laugardögum kl. 13—15.
Guðbjartur Megniís
Björnsson, baðvörður
F. 22. júlí 1903. D. 31. maí 1957.
VINARKVEÐJA
Hljótt er í sinni því harmafregn
slær,
horfinn er vinur sem okkur var
kær.
Astvinir sárast hans sakna.
Hann var þeim svo mikið og
veitti þeim skjól,
vafði þá hlýju og kærleikans sól.
Viðkvæmar minningar vakna.
Á hamingjustundu þú byggðir
þitt bú,
og bættir það ávallt í lifandi trú.
A fegurstu framtíðar drauma.
Konuna dáðir og dóttirin ein,
djúpstæð var ástin, göfug og
hrein.
Samstilling lifandi strauma.
Á heimili þínu var hamingjuró,
hljóðlát og fögur í æðunum sló.
Ástin sem yljar og gleður.
ISIú syrgir þig konan og dóttirin
dáð
dapurt er lífið og þverrandi ráð.
Þú húsbóndinn heimilið kveður.
Horfinn er kvíði og kvalarfullt
bál,
hverfur til himna þín göfuga sál.
Eilífðartími upp runninn.
Svo vaknarðu frískur á friðsælli
strönd,
friðarins alvaldur réttir þér
hönd.
Til sigurs er sjúkdómur unninn.
Eg þakka svo vinur öllvináttuhót,
þú veittir að gleði kærleikans rót.
Margs er frá liðnu að minnast.
Nú starfar ei lengur þín hjálp-
andi hönd,
hér eru slitin þau jarðnesku
bönd.
En göfgandi er góðum að
kynnast.
Svo kveð ég þig hljóður við
kveðjum þig öll,
það kveðja þig dalir, hlíðar og
fjöll.
Frá æskunnar átthaga slóðum.
Lífið er eilíft þó lokið sé hér
lausnara alheimsins treystum vér.
Og felum þig guðunum góðum.
Jóhannes Sigurðssen.