Morgunblaðið - 07.06.1957, Síða 16
S.U.S -síða
Sjá bls. 9.
126. tbl. — Föstudagur 7. júní 1957.
Reynt að koma fleiri
Reykjavíkurbörnum
fyrir í sveit
Málið rœtt á bœiarstjórnarfundi í gœr
AFUNDI bæjarstjórnar í gær bar Óskar Hallgrímsson upp tillögu
um að Reykjavíkurbaer greiddi fyrir því að fleiri sumardvalar-
heimili verði starfrækt í sumar en nú er ætlað, en neitað mun
hafa orðið um 200 börnum um sumardvöl á heimilum Vorboðans
og Rauða krossins. Frú Auður Auðuns tók til máls um tillöguna
og kvaðst vera henni fyllilega samþykk. Hér væri um mikið
hagsmunamál fyrir foreldra að ræða og mikil nauðsyn á að þau
heimili sem þess óskuðu ættu kost á að koma börnum sínum til
sumardvalar í sveit.
Var tillagan samþykkt sam-
hljóða. Er hún svohljóðandi:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkir að fela borgarstjóra og
bæjarráði að ræða við þau fé-
lagssamtök í bænum, sem gang-
ast fyrir sumardvöl barna í sveit,
og kanna hvort bærinn geti með
einum eða öðrum hætti greitt
fyrir því að fleiri sumardvalar-
heimili verði starfrækt í sumar,
eða hvort unnt sé að gera ein-
hverjar þær ráðstafanir, sem leiði
til þess að sumardvalarheimili
þessara samtaka geti veitt fleiri
börnum viðtöku á þessu sumri,
en nú eru horfur á. Jafnframt
verði athugað hvort eigi sé unnt,
að færa aldurstakmarkið upp frá
því sem nú er.
Bæjarstjórnin heimilar borg-
arstjóra og bæjarráði að ganga
frá samningum við Rauða kross
íslands og barnaheimilisnefnd
Vorboðans um stuðning bæjar-
ins við þessi samtök, ef unnt
reynist með viðeigandi kjörum að
bæta úr því ástandi sem nú rík-
ir í þessum efnum.“
Bæjarstjórn skoror á fjóríest-
ingaryfirvöldin að veita leyfi
tii oð byggja nmferðarmiðstöð
Á FUNDI Bæjarstjórnar í gær
var samþykkt samhljóða tillaga,
þar sem bæjaryfirvöldin skoruðu
á fjárfestingaryfirvöldin að veita
leyfi til að byrja á framkvæmd-
um við umferðarmiðstöð, sem
þegar hefir verið ákveðinn stað-
ur.
Flutningsmaður tillögunnar var
Þórður Björnsson bæjarfulitrúi.
í umræðunum sem urðu um til-
löguna komst Geir Hailgrímsson
þannig að orði, að það væri
ánægjulegt að fulltrúar vinstri
flokkanna gerðu nú tilraunir til
að bæta úr aðgerðarleysi sinna
eigin manna, en framkvæmdir við
umferðarmiðstöðina hafa ekki
getað hafizt vegna skorts á fjár-
festingarleyfinu Sagði Geir, að
þessi hugarfarsbreyting hjá
Þórði Björnssyni og vinstri flokk-
unum í bæjarstjórn væri gleðileg,
og tímanna tákn að þeir skyldu
hafa gert sér ijost á hverju málið
hefði strandað tram að þessu.
Tillagan, sem samþ. var., var
svohlj óðandi:
Bæjarstjórn lítur svo á að það
sé ekki einungis til verulegra
þæginda fyrir íerðafólk og stórt
spor í átt til að leysa úr um-
ferðarvandamálum miðbæjarins
heldur sé það hreint menningar-
mál höfuðstaðarins, að komið
verði upp umferðarmiðstöð í bæn
um. Telur bæjarstj. framkvæmd
þessa vera eitt af þeim framfara-
Cankaráð Fram*
málum í bænum, sem ekki þola
bið.
Þess vegna og í framhaldi af því
að bæjaryfirvóldin hafa þegar
ákveðið umferðarmiðstöð stað
við Hringbraut gegnt Sóleyjar-
götu, ályktar bæjarstjórn að
skora á fjárfestingaryfirvöldin
að veita leyfi til að byrja á fram-
kvæmdum þessum og felur borg-
arstjóra að hefja viðræður við
yfirvöld þessi um málið.
Enn verður siys af
um felguhrings
ENN hefur orðið slys á manni,
sem var að dæla lofti í bílgúmmí
á gamalli felgu, þar sem felgu-
hringurinn þeyttist af og slas-
aði manninn. Varð þetta slys í
fyrrakvöld um 5 klst. síðar en
sams konar slys varð hér í Rvík,
en í Hrísey var það skólastjórinn
þar, Sæmundur Bjarnason, sem
slasaðist.
Um kl. 7 í fyrrakvöld var Sæ-
mundur skólastjóri með gamlan
bíl sinn niður við hraðfrystihús-
ið og var hann að dæla lofti í
hjól. Þegar átakið kom á felgu-
hring þann sem heldur gúmmíinu
á hjólinu, hrökk hann af með
afli miklu, kom í framhandlegg
skólastjórans og braut hann, en
við þetta féll Sæmundur aftur
á bak á steinsteyptu plani og við
það brotnaði höfuðkúpan.
Þorsteinn Valdemarsson sím-
stöðvarstjóri, flutti Sæmund þeg-
ar til Dalvíkur á báti, en síðan
Hvítasunnuför Heimdallar
I DAG eru allra síðustu for-1
vöð að tilkynna þátttöku í
hvítasunnuferðinni. Skrifstofa 1
félagsins verður opin í dag
frá kl. 10—7. — Sími 7103.
BrauðleysÍð veldur óþægindum
og auknum h.eLmil'L$kostnaði
I í hádegisbilinu við Vesturver. —
I Úti á gangstétti, í sólinni og góð-
i viðrinu. Þar sat m.a. og horfði á
götulífið Vilhjálmur skáld frá
| Skáholti, situr lengst til vinstri.
með bíl í sjúkrahús Akureyrar.
í gær var líðan hans talin vonura
betri. -— Læknar sjúkrahússins
voru yfir honum á skurðborðinu
í fyrrakvöld í látlaust 4 klst.
‘uikaiís
fiilískipaS
BANKARÁÐ Framkvæmda-
bankans hefur haldið fyrsta fund
sinn síðan bankat’um varpið kom
til framkvæmda og var Sigtrygg
ur Klemenzson ráðuneytisstjóri,
kjörinn formaður, en varafor-
maður Jón ívarsson. Aðrir banka
ráðsmenn eru valdir af Alþingi
og eru: Jóhann Hafstein, Ey-
steinn Jónsson, Karl Guðjónsson
og Gylfi Þ. Gíslason.
Ekkert gert til oð leysa bakaraverkfallið
¥ DAG eru liðnir 7 dagar frá því að bakarasveinar í brauðgerðar-
húsum bæjarins hófu verkfall sitt og hefur bærinn verið
brauðlaus síðan. Af opinberri hálfu hefur ekkert verið gert til
þess að reyna að leysa mál þetta svo vitað sé, annað en það að
sáttasemjari ríkisins í vinnudeilum Torfi Hjartarson, hefur verið
beðinn að taka málið í sínar hendur. Á heimilum eru því bökuð
brauð, sem eðlilega hefur í för með sér mikil óþægindi og kosnaðar-
auka fyrir heimilin en sumir kaupa brauðsnúða sem fáanlegir
eru á einstaka stað. Ekki er slík brauðaframleiðsla reiknuð með
í vísitölunni.
Forsaga'máls þessa er ekki ein-
ast bundin við þær kaupkröfur
sem bakarasveinar nú gera.
Um síðustu áramót var hækk-
aður söluskattur og framleiðslu-
sjóðsgjald, sem nú heitir útflutn-
ingssjóðsgjald. Nam þessi hækk-
un 3% og-fór upp í 9%. Bakarar
voru einustu iðnaðarmennirnir,
sem ekki fengu leyfi stjórnar-
valdanna til þess að leggja þessa
skatthækkun á vöru sína. Skarst
í odda með bökurum og verð-
lagsyfirvöldunum og ætluðu bak
arar að hætta brauðaframleiðslu,
en þá féllst ríkisstjórnin á að
fella niður áðurnefnda skatta-
hækkun, — þrjú prósentin.
Frá því um síðustu áramót hef-
ur hráefni til brauðgerðarhús-
anna hækkað allverulega, og
nemur sú hækkun 5—11% á hin-
um ýmsu brauðtegundum. Frá
því að brauðverð var síðast á-
kveðið en það var í ársbyrjun
1956 hafa vinnulaun hækkað um
i rúm 6% og loks hefur hitunar-
kostnaður hækkað um 12%.
LAUNAKRÖFUR OG
VERKFAUL
Ofaná þennan kostnaðarauka
brauðgerðarhúsanna bætist svo
það, að hinn 1. maí sögðu bakara-
sveinar upp samningum sínum og
boðuðu til verkfalls þá þegar, sem
hófst á tilsettum tíma 1. júní,
sem kunnugt er. Ef teknar yrðu
til greina allar kröfur bakara-
sveinanna þá er þar um að ræða
um 28% kauphækkun.
Bakarameistarar hafa viður-
kennt að sveinar eigi rétt til ein-
hverrar kauphækkunar, í saman-
burði við aðrar iðnaðarmanna-
stéttir, en bakararnir hafa skýrt
sveinunum frá því að þeir telji
sér ekki fært að koma til móts
við kröfur þeirra eins og nú
standa sakir, nema að leiðrétt-
ing fáist á brauðverði. Þannig
stendur bakaraverkfallið, sem nú
hefur staðið yfir í vikutíma og
í gærkvöldi hafði ekki verið boð-
aður sáttafundur hjá sáttasemj-
ara.
Skálimi risinn
á Vatnajökli
LEIÐANGURSMENN i Vatna-
jökulsleiðangri Jöklarann-
sóknarfélagsins sendu Mbl.
síðdegis í gær skeyti, þar sem
m.a. segir aff lokið sé bygg-
ingu skálans á Grímsf jalli við
Grímsvötn. Þar sátu leiðang-
ursmenn á miðvikudagskvöld-
ið og lásu Mbl. frá þriðjudegin
um, en því var varpað niður úr
flugvél er flaug yfir söðvar
þeirra.
í gærkvöldi hélt leiðangur-
inn af stað austur um jökul
Þá segir í skeytinu að veður
hafi verið fremur hart á jökl-
inum, en þess á milli hið dá-
samlegasta veður og í gærdag
er skeytið var sent heiðskírt
og skyggni eíns langt og auga
eygði í allar áttir. Leiðangurs-
menn báðu fyrir kveðjur heim.
Skeytið var sent frá snjóbíl
Guðmundar Jónassonar R-345
um Vestmannaeyjaradíó og
var frá tíðindamanni Mbl. í
förinni, Magnúsi Jóhannssyni
radíóvirkja.
AKRANESI, 6. júní. — Togarinn
Bjarni Ólafsson er væntanlegur
hingað til Akraness í fyrramál-
ið af miðunum við Austur-Græn
land með 280—300 lestir af karfa.
Á morgun er áttundi dagurinn
síðan Bjarni fór út á veiðar.
Farntanna- og iiskimannnsnm-
band íslands boðor verkiall
Enn ósamið við 13 stéttarfélag
FARMANNA OG FISKIMANNASAMBAND íslands hefir
boðað verkfall sem kemur til framkvæmda á miðnætti
aðfaranótt 16. júní, hafi samningar ekki tekizt fyrir þann
tírna. Að þessari verkfallsákvörðun standa Vélstjórafélag
íslands, Stýrimannafélag íslands og Félag íslenzkra loft-
skeytamanna.
Sáttaumleitanir við Stéttarfélag verkfræðinga og fulltrúa
yfirmanna á farskipunum standa nú yfir.
Enn er ósamið við 13 stéttarfélög.