Morgunblaðið - 01.08.1957, Síða 13
Fiinmtudagur 1. ágúst 1957
MORCVNBLÁÐIÐ
13
Afmælishátíð Búnaðar-
sambands Vestfjarða
Þúfum, 4. júlí 1957:
DAGANA 22.
aðalfundur Búnaðarsambands, ti sýslumaður
Vestfjarða haldinn á ísafirði,' t ^_________,
sótti hann 22 fulltrúar eða því
nær allir fulltrúar frá félags-
deildum á sambandssvæðinu. Á
þessu ári eru liðin 50 ár frá stofn-
un Búnaðarsambandsins.
Helztu gerðir aðalfundarins
voru afgreiðsla reikninga og fjár-
hagsáætíunar fyrir sambandið,
svo og önnur mál er fram voru
borin. Helzta nýmæli á störfum
aðalfundarins voru þau að sam-
þykkt var einróma að fela félags-
stjórninni að ráðá fastan starfs-
mann fyrir sambandið, en það
hefur ekki haft slíkan fastan
starfsmann fyrr nú um langt
skeið.
Fjárhagur þess er fremur erf-
iður sökum hinna miklu vé'a-
kaupa ræktunarsambandanna á
sambandssvæðinu, þar sem sam-
bandið hefur styrkt slík véla-
kaup að Vt, og er því erfiður
baggi viðfangs að standa við þær
skuldbindingar, og ver samband-
ið á þessu ári 95 þús. kr. til
þessara hluta til ræktunarsam-
bandanna. Að öðru leyti fór aðal-
fundurinn vel fram, sem venja
er.
Á Jónsmessudag, 24. júní,
minntist sambandið 50 ára af-
mælis síns, með skemmtiferð til
Onundarfjarðar og samsæti.
Allir þeir er aðalfundinn sátu
voru í þeirri ferð, svo höfðu ýms-
ir konur sínar með sér. Auk þess
voru nokkrir boðsgestir aðrir í
ferðinni. Lagt var af stað frá
ísafirði kl. 10.30 í átta bílurn
áleiðis vestur yfir Breiðadals-
heiði, stanzað var á háheiðinni og
litast um. Er þaðan hið fegursta
útsýni, einkum til ísafjarðar og
ytri hluta ísafjarðardjúps. Var
síðan haldið viðstöðulítið að
Holti í Önundarfirði. Þar bætt-
ust við í hópinn nokkrir Ön-
firðingar, hreppsnefndarmenn,
stjórn Búnaðarfélags og fleiri.
Nokkrar húsfreyjur votu þar
með bændum sínum. Á Holti var
setzt að borðum og voru þar
rúmlega 60 manns er settust
heimavistarbarnaskólanum t
boði Búnaðarsambands Vest-
fjarða, og var þar hangikjöt á
borðum og aðrar vistir hinar
ágætustu og raunsarlegustu.
Formaður sambandsins, Guðm.
Ingi Kristjánssön á Kirkjubóli,
setti hófið og bauð menn- vel-
komna, og flutti ræðu i tilefni
afmælisins og um starfsemi og
tilgang Búnaðarsambandsins.
Gunnar Þórðarson frá Grænu-
mýrartungu mætti þar af hálfu
Búnaðarfélags íslands. Hann
flutti ávarp yfir borðum og af-
henti Búnaðarsambandi Vest-
fjarða gjöf frá Búnaðarfélagi ís-
lands. Það var fundaklukka, hinn
íegursti gripur. Klukkan er úr
silfri, en stendur á fagurlega
gerðum skornum fæti úr birki.
Undir borðum fluttu ræður
og 23. júní varjjóh. Gunnar Ólafsson, bæjarfó-
ísafirði.
Þakkaði hann Búnaðarsamband-
inu heillaríkt starf á genginni
hálfri öld. Las hann merka og
gagnorða lýsingu á lifnaðarhátt-
um manna í Önundarfirði kring-
um 1860, skráða af Guðmundi
Eiríkssyni, fyrrum hreppstjóra
á Þorfinnsstöðum. Sýndi þessi
lýsing glögglega hvilík breyting
væri nú orðin. Þá töluðu undir
borðum Jóhannes Davíðsson í
Hjarðardal, Ragnar Guðmunds-
son á Hrafnabjörgum, Guðrnund-
ur Bernharðsson í Ástúni og Hall
dór Kristjánsson á Kirkjubóli.
Voru ræður þessar allar hinar
fróðlegustu og minnzt var ým-
issa atriða og þátta úr starfsemi
sambandsins. Milli þess að ræður
voru fluttar var sungið. Að mál-
tíð lokinni skýrði Guðm. Ingi frá
því hvernig deginum yrði varið.
Fyrst var ekið út með firði og
stanzað fyrir neðan Þórustaði og
Hjarðardal. Gat þar að líta mikl-
ar og fagrar nýræktir, vel sprottn
ar. Eru þarna sérlega falleg býli
og auðsjáanlega vel þúið. Því
næst var haldið áfram út með
firði, út I Valþjóísdal að Kirkju-
bóli. Gat þar að líta nýbyggt f jár-
hús Björgmundar Guðmundsson-
ar bónda. í húsinu eru 4 armar,
sem hvor um sig rúmar 30 ær á
jötu og á bak við fóðurgangur
og síðan 1 votheyshlaða, 4x5 m
að flatarmáli. í henni var á sið-
asta hausti 100 rúmmetrar. Þur-
heyshlaða var engin við þetta
hús. Tjáði Björgmundur gestum
þeim er þarna voru, að 10 ára
reynsla sín væri sú að bezt væri
að fóðra á tómu votheyL Þótti
okkur þetta merkilegt og athyglis
vert. Fagurt er í Valþjófsdal, um-
hverfið vinalegt og hlýlegt og
auðsjáanlega vel búið. — Við
kvöddum þennan fjöllumlukta
dal og fólkið, sem þar býr. Var
síðan haldið aftur að Holti, og
kirkjan skoðuð og sunginn sálm-
ur. Er kirkjan lagleg og vel hirt,
og hin snyrtilegasta. í Valþjófs-
dal er einnig kirkja lítil, því að
1 söfnuðurinn er þar fámenr.ur, en
lagleg er hún og vel við haldið,
svo og kirkjugarðurinn sömu-
leiðis.
Frá Holti var haldið að Vöðlum
og skoðað þar tún og byggingar
þeirra bræðra er þar búa, Arn-
órs og Brynjólfs Árnasona. — Á
síðustu 10 árum hafa þeir byggt
upp öll hús á jörðinni, og sáum
við vandað fjós, sem aðeins var
eftir að innrétta. Byggt hafa þeir
og rafstöð á heimilinu er nægir
til allra þarfa. Þessar byggingar
allar hafa þeir sjálfir gert, því að
þeir eru smiðir góðir. Gat þar að
líta hinar vönduðustu smíðar
innanhúss, borð, stóla og fleiri
húsmuni, allt fagurlega gert. Á
hlaði stóðu þrjár dráttarvélar er
þeir höfðu til eftírlits fyrir ná-
granna sína. Var harla athyglis-
vert að ganga um garða þessara
bræðra.
Frá Vöðlum var haldið að
Kirkjubóli, heimili þeirra oræðra
Guðm. Inga og Halldórs, og lit-
ast þar um nokkra stund. Er þar
víðlend ræktun og mikil trjárækt
heima við bæinn og umhverfið
hið fegursta. Þar var leiddur úr
fjósi 12 ára gamall boli, kyn-
bótanaut þeirra Önfirðinga. Eiga
þeir kýr ágætar, er þeir þakka
bola þessum mest, enda er hann
kynborinn af hinu landskunna
,,Klufhkyni“. Þótti bola þessum
gott að koma út í sólskinið, og
tók hinum forvitnu áhorfenda-
hóp með hinni mestu hæversku.
Frá Kirkjúbóli var aftur ekið
til skólahússins að Holti. Var þar
aftur setzt að borðum, vistum
hlöðnum, í boði Búnaðarfélags
Mosvallahrepps. Formaður þess,
Hagalín Guðmundsson, bóndi i
Hjarðardal. Ávarpaði hann menn
með ræðu og bað menn neyta
þess er fram væri borið, og þakk-
aði Búnaðarsambandinu og
stjórn þess störf sín og árnaði því
allra heilla. Yfir hinu vistum-
hlaðna kaffiborði, voru margar
ræður fluttar. Ásgeir Guðmunds-
son í Æðey, Kristján Jónsson frá
Garðsstöðum, Páll Pálsson í
Þúfum, Þórður Halldórsson
Laugalandi, Gunnar Ólafsson
Reykjarfirði, Egill Ólafsson á
Hnjóti, Bjarni Sigurðsson, Vigur,
Bjarni H. Finnbogason í Hnífs-
dal og Hallgrímur Jónsson á Sæ-
túni töluðu.
Margt kom fram í ræSum
manna, sem vert væri að minn-
ast, og harla athyglisvert.
Öllum fannst sveitin fögur er
þeir höfðu litið um daginn, og
búnaðarhættir allir hinir mynd-
arlegustu og athyglisverðustu. —
Gætu margar sveitir lært mikið
af Önfirðingum, ekki sízt vot-
heysverkun og fóðrun búfjár á
því sem þeir og aðrir Vestfirð-
ingar standa framar flestum eða
öllum byggðarlögum með þessa
heyverkun.
Margt mætti nefna um starf-
semi sambandsins, er kom fram
í ræðum marnia. Þrír hafa verið
formenn Búnaðarsambandsins.
Fyrst séra Sigurður Stefánsson,
prestur í Vigur og alþingismað-
ur, 12 ár, síðan Kristinn Guð-
laugsson á Núpi í 28 ár og Guð-
mundur Ingi í 10 ár.
Véku flestir ræðumanna að
störfum þessara forvígismanna
sambandsins og þökkuðu störf
þeirra. Allmargir fulltrúar er hóf
þetta sátu minntust sérstaklega
Kristins á Núpi, þessa hógværa
manns, er valdist til • forystu
þessarar starfsemi um langt
skeið, og var jafnframt ráðunaut
ur sambandsins þó ólaunaður
væri um langt skeið, óþreytandi
að skrifa félögunum bréf og
sækja fundi þeirra oft, til hvatn-
ingar, uppörvunar og fræðslu,
oft yfir erfiða fjallvegi um há-
vetur, síðast háaldraður.
Ásgeir í Æðey er sannur um
fleiri hluti en góðan búskap.
Hann felldi vel og skemmtilega
saman í þessu hófi tilefni þessa
dags og kvæði Einars Benedikts-
sonar skálds, en hann kann mjög
mikið af kvæðum Éinars og fer
sérlega vel með, og hefur ætið á
takteinum viðeigandi ljóð frá
þessum skáldjöfri við hvað sem
að höndum ber. Bað hann eir.k-
um hina yngri menn að læra
kvæði Guðm. Inga, er hann taldi
fegurst hafa kveðið um íslenzk-
an landbúnað og sveitalíf.
Við, sem í ferð þessa fórum og
áttum þess kost að vera með Ön-
firðingum þennan dag og þiggja
af þeim og Búnaðarsambandinu
rausnarlegar veitingar og skoða
þeirra fögru sveit og hinn mynd-
arlega búskap þeirra, þökkum
þeim. Við óskum Búnaðarsam-
bandinu og búskap þeirra allra
heilla.
P. P.
Vélritari
með kunnátlu í bókfærslu og tungumálum, óskast
allan eða hálfan daginn. Góð laun. Tilboð merkt:
„Beethoven — 5919“ sendist afgr. blaðsins fyrir
helgina.
Stúlka óskast til
afgreiðslustarfa
Upplýsingar ekki í síma.
Kjötbúð Vesturbæjar
Bræðraborgarstíg 43.
Framkvœmdastióri
óskast að verzlunar- og útgerðarfyrirtæki á stað
í námunda við Reykjavík. Umsóknir, ásamt upp-
lýsingum um fyrri störf, sendist Mbl. fyrir 6. ágúst
n.k. merkt: „Framtíðarstarf — 5»69“. Reglumaður
kemur aðeins til greina.
Skrifstofustúlka
M'
óskast strax. Eiginhandarumsókn sendist Morgun-
blaðinu^fyrir föstudagskvöld merkt: 33 — 5977.
IJtsala
Nú eru aðeins 3 dagar eftir af útsölunni.
Hattar frá kr. 50,00, hanzkar, slæður og fl.
Hattaverzlunin „lijá Báru“
Austurstræti 14.
Skatfar 1957
Hið árlega manntalsþing í Reykjavík verður
haldið í lollstjóraskrifstofunni í Arnarhvoli fimmtu
daginn 1. ágúst n.k. kl. 4 e.h. Falla þá í fyrsta gjald-
daga skattar og önnur þinggjöld ársins 1957, sem
ekki eru áður i gjalddaga fallin.
Reykjavík 29. júlí 1957.
Tollstjóraskrifstofan,
Arnarhvoli.
Canary Bananar
Ný sending kom með Es. Uraguay. Tilbúin til afgreiðslu
Kaupmenn, kaupiélög, sendið pantanir yðar sem fyrst. Frídagur verzlunarmanna um næstu helgi.
MJÖLNISHOLTI 12 SÍMI.' I 98 90