Morgunblaðið - 02.08.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.08.1957, Blaðsíða 16
2-24-80 171. tbl. — Föstudagur 2. ágúst 1957- 2-24-80 Vinir og samherjar heiðruðu Bjarna Sigurðsson nírœðan MIKILL fjöldi vina og samherja komu í afmæliskaffið í Sjálf- stæðishúsinu í gær til Bjarna Sigurðssonar á níræðisafmæli hans. Bjarni Benediktsson, varaform. Sjálfstæðisflokksins, hélt ræðu fyrir afmælisbarninu og minntist við það tækifæri á þau miklu og óeigingjörnu störf, sem Bjarni Sigurðsson hefði unnið í þágu Sjálfstæðisflokksins. Hann hefði að loknu löngu og merku starfi á Austurlandi tekið að sér störf fyrir Sjálfstæðisflokkinn hér í Reykjavík og afrekað síðan í hans þágu ómetanlegu, merku og mikilvægu starfi. Bjarni Sigurðs son væri þeim drengskap og mannkostum búinn, sem bezt væri á kosið í jafn veigamiklu starfi og hann hefði gengt. Bjarni Benediktsson afhenti Bjarna Sig- urðssyni heiðursskjal frá Sjálf- stæðisflokknum með þakklæti og viðurkenningu fyrir störf hans, en undir það skjal rituðu miðstjórn, þingflokkur, skipu- lagsnefnd og fjármálaráð flokks- ins og stjórnir fulltrúaráðs og Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. 1 lok ræðunnar hylltu allir við- staddir hinn níræða heiðurs- mann. ir til blessunar fyrir land og lýð. Þorkell Sigurðsson, vélstjóri, flutti hilýja afmæliskveðju til Bjarna og árnaði honum bless- unar frá óteljandi vinum nær og fjær. Hinn níræði heiðursmaður var hress og hugdjarfur að vanda. Honum bárust heillaóskir og blóm frá félagssamtökum Sjálf- stæðismanna og einstaklingum. í þessu hófi hins níræða af- mælisbarns ríkti virðing og þakk lát gleði í garð hins einstæða drengskaparmanns. Bjarni Sigurðsson og Bjarni Benediktsson. Hörmulegur utburður Ungur mabur lætur llfið vegna áverka, er hann hlaut í likamsárás Bjarni Sigurðsson flytur ræðu í afmælishófinu. Þá flutti Þorvaldur Garðar Kristjánsson, form. landsmála- féiagsins Varðar, ræðu og þakk- aði Bjarna sérstaklega í nafni Varðarfélagsins, en hann hefur verið skrifstofustjóri félagsins næstum því frá upphafi, eða fast áð þrem áratugum. í viðurkenningar- og þakklætis skyni færði stjórn félagsins hon- um að gjöf vandað gullúr frá Varðarfélögum. Bjarni Sigurðsson hélt því næst ræðu og þakkaði vináttu og heið ur, sem honum væri sýndur, en mest mundi hann ætíð meta það lán að mega helga krafta sína þeim hugsjónum, sem Sjálfstæðis flokkurinn hefði ætíð barizt fyr- SALEM, Oregon — Tveir dreng- ir, 11 og 16 ára, stálu um helgina lítilli einkaflugvél á flugvelli hér í grennd. Flugu þeir um nágrenn- ið í klukkustund, en lentu síðan slysalaust. —- Reyndu sökudólg- arnir að hlaupast á brott, en þeir komust samt fljótlega undir ! manna hendur. I SlÐASTLIÐINN mánudag, 29. júlí, klukkan að ganga ellefu um morguninn gerðist sá hörmulegi atburður á Tryggvagötu að ung- ur maður, Jón Ingvar Árnason, til heimilis að Njálsgötu 83 hér í bæ, varð fyrir líkamsárás og leiddu áverkar, sem hann hlaut í árásinni, til dauða hans seint á miðvikudagskvöld. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu sakadómara í gær bera sjónarvottar, að sjómaður einn, skipverji á togara, sem litlu eftir atburðinn lét úr höfn til Græn- landsmiða, hafi slegið Jón Ingvar svo í andlitið, að hann féll aftur yfir sig og höfuðið slóst í göí- una. Missti hann þegar meðvit- und og var rænulaus eftir það. Vegna fjarveru sinnar hefur sakborningur ekki verið kvadd- ur fyrir dóm ennþá. Þeir sjónar- vottar, sem enn hafa ekki gefið sig fram, eru beðnir að hafa sam- band við rannsóknarlögregluna sem fyrst. Jón Ingvar var 33 ára að aldri. Hann lætur eftir sig konu og þrjú börn, hið elzta 10 ára, en það yngsta fæddist 28. júlí s.l. Unnið við byggingu læknisbúsfaðar á Akranesi NÚ ER aftur hafin vinna við íbúðarhús yfirlæknisins við sjúkra hús Akraness. Þetta hús stendur rétt fyrir ofan sjúkrahúsið og var byrjað á því snemma á sl. ári og lokið við að gera það fokhelt: Auk yfirlæknisins og fjölskyldu hans á að búa þarna starfsfólk sjúkrahússins, þar á og að vera íbúð fyrir aðstoðarlæknir, geymsl- ur og fleira. Er það vel að nú er hafist handa um að fullgera hús- ið. Frá byrjun hafa verið skráð 25 siúkrarúm í sjúkrahúsinu, en að- sóknin er svo mikil að sjúklingar hafa verið látnir liggja á fæðing- arstofunni og í baðherberginu. Um leið og starfsfólkið flytur í nýja húsið verður hægt að fjölga rúm- um fyrir sjúklinga upp í 40 og um leið er sjúkrahúsinu g-ei't kleift að bæta til mikilla muna úr brýnni þörf þeirra er þurfa lækninga við. 1 vetur barzt sjúkrahúsinu happagjöf frá noklcrum velunnur- um þess. Það er ljósavél 30 kw að stærð. Getur hún bjargað mannslífi ef bráðrar læknisað- gerðar þarf við, t.d. ef háspennu- línan bilar skyndilega sem oft hefur komið fyrir. — Oddur. 4000 mál til Seyðisfjarðar SEYÐISFIRÐI, 1. ágúst. — í gær og í nótt var landað rúm- lega 4000 málum síldar af 29 bát- um. Þar af voru saltaðar rúm- lega 200 tunnur. Verksmiðjan hefur nú fengið rúmlega 12000 mál. í dag er ágætisveður, suðvest- an gola og 15 stiga hiti. — B Afmælissýning opin áfram AFMÆLISSÝNIN GUNNI til heiðurs Lúðvíg Guðmundssyni skólastjóra Handíðaskólans átti að ljúka í fyrrakvöld, en sökum þess að aðsókn þennan síðasta dag var meiri en nokkru sinni áður hefur verið ákveðið að fram lengja sýningunni fram til sunnu dags. Um 900 manns hafa skoð- að sýninguna, þar af um 200 í fyrradag. Tap og sfór sigur ANNAR FLOKKUR knattspyrnu félagsins Vals, sem um þessar mundir er á ferðalagi í Noregi, svo sem kunnugt er, hefur þegar leikið þar þrjá leiki. Fyrsta leiknum lauk með jafn- tefli 0:0, öðrum leiknum töpuðu Valsmenn með 1:2, en í þeim þriðja báru þeir sigur af hólmi, skoruðu 6 mörk gegn 2. Fór sá leikur fram á Lillehammer hinn 30. júlí s. 1. Þá munu Valsmenn leika einn leik í Osló, en heim koma þeir 6. ágúst n. k. KR Gg Akurnes- ingar í kvöld í KVÖLD fer fram næstsíðasti leikur Islandsmótsins, 1. deildar, og eigast þá við K.R. og Akurnes- ingar. Leikurinu fer fram á Mela vellinum og hefst kl. 20,30. Leik- ir þessara aðila hafa löngum ver- ið tvísýnir og skemmtilegir. Báð- um er nú mikils virði að hreppa stig, Akurnesingum til þess að halda jöfnu við Fram í keppninni um Islandsmeistaratitilinn, en K.R. til þess að tryggja sig gegn falli niður í 2. deild. Staðan er nú: L U J T M S Fram ........ 4 3 1 0 6-1 7 Akranes ..... 3 3 0 0 8-1 6 Valur ....... 5221 11-7 6 Hafnarfj..... 5 113 5-9 3 K.R.......... 4 0 2 2 3-6 2 Akureyri .... 5 0 2 3 6-15 2 Blaðamannafélagið mótmælir misferli með úthlutun boða F y rsta síIdin INGÓLFSFIRÐI, 1. ágúst. — Fyrsta síldin á þessu sumri kom til Djúpavíkur s.l. föstudag. Var það Hilmir frá Hólmavík sem kom með 39 tunnur. Yfirleitt var síldin smá og horuð og veiddist þessi síld í reknet. Skipstjóri á Hilmi er Guðmundur Guðmunds- son. — Regína. Á annað þúsund tunnur af síld til Akraness AKRANESI, 1. ágúst. — 1 gær komu allir reknetabátarnir fimm inn með samtals á annað þúsund tunnur síldar. Aflahæstur var Aðalbjörg með 237 tunnur, þá Ásmundur með 204 tunnur og Fylkir með 180 tunnur. Síldin fór í bræðslu. Stormur var í nótt svo að bátarnir fóru ekki út fyrr en í morgun. — Oddur. Friðrik efstur í GÆRKVÖLDI fór fram úrslita keppin á Hraðskákmóti Taflfé- lags Reykjavíkur. Er blaðið fór í prentun laust eftir miðnætti, var mótinu enn ekki lokið, en röð efstu manna þessi: 1. Friðrik Ólafsson, 14 v. af 14. 2. Benkö, 11% vinning af 14. 3. Guðm. S. Guðmundsson, 11% af 14. 4. Guðm. Pálmason, 11% vinn- ing af 14. 5. Pilnik, 11% vinning af 15. 6. Guðm. Ágústsson, 11 vinn- inga af 14. Á FUNDI í Blaðamannafélagi Islands í gær var samþykkt í einu hljóði að ítreka við utanríkisráðu- neytið mótmæli vegna þess, að ráðuneytið hefur að áliti félags- ins misfarið með boð til íslenzkra blaðamanna á vegum Atlantshafs- bandalagsins. Upphaf þessa máls er það, að til þess að auka gagnkvæm kynni milli þjóða þeirra, sem þátt taka í Atlantshafsbandalaginu, hefur það verið siður að efna árlega til nokkurra blaðamannaferða um þátttökuríkin og hefur blaðamönn- um frá Islandi jafnt og öðrum þátttökuríkjum verið boðið í þess- ar ferðir, sem hafa verið gagn- legar í alla staði. Það hefur alltaf verið siður að utanríkisráðuneytið veldi menn úr hópi blaðamanna í þessar ferðir. En sl. vor brá svo við, að í stað þess að ráðuneytið veldi blaða- menn til fararinnar, útnefndi það jafnvel menn sem ekki höfðu ná- lægt blaðamennsku komið og höfðu engin skilyrði uppfyllt til inngöngu í Blaðamannafélag 1 s- lands. Út af þessu var fundur haldinn í Blaðamannafélagi Islands í lok maí, þar sem þessu var mótmælt harðlega og sendi stjórn Blaða- mannafélagsins bréf til ríkisstjórn arinnar, þar sem því var mótmælt, að aðrir en blaðamenn yrðu vald- ir í boðsferðir, sem ætlaðar eru blaðamönnum einum. Auk þess var óskað eftir að ríkisstjórnin hefði samréð við Blaðamannafélagið um boð þessi. Fyrir nokkru svaraði utanríkis- ráðuneytið þessu bréfi. Segir þar m.a.: „Ráðuneytinu er ekki ljóst, hvað fundarmenn eigi við með orðunum „sem ætluð eru blaða- mönnum einum“ og „velja aðra en blaðamenn", nema skilja beri hugtakið „blaðamenn" ein- göngu sem félaga í Blaða- mannafélagi Islands . . . . Sé þetta rétt skilið, getur ráðu- neytið ekki fallizt á þá skoðun. Blaðamenn, sem ekki eru fé- lagsbundnir í Blaðamannafélag inu geta í ýmsum tilvikum ver ið fullkomlega hæfir og verð- ugir þátttakendur í boðsferð- um Atlantshafsbandalagsins og verður að meta slíkt hverju sinni eftir atvikum". Á fundi Blaðamannafélagsins í gær var mál þetta tekið til um- ræðu á ný og stjórn félagsins falið, að mótmæla við ríkisstjórnina skil greiningu hennar á hugtakinu blaðamaður. Undir það gæti ekki fallið menn, sem ekki uppfylltu skilyrði til inngöngu í Blaðamanna félagið og þar með til inngöngu í alþjóðleg blaðamannasamtök. Enda mun það alls ekki vera ætl- un yfirstjórnar Atlantshafsbanda lagsins, að aðrir en viðurkenndir blaðamenn taki þátt í þessum ferð- um. Noröurlanda- meistaramótið skák hafið NORÐURLANDAMÓTIÐ í skák var sett í Helsníki í fyrradag. Alls eru þar 67 þátttakendur, þar af fimm Islendingar, en Friðrik Ólafsson tekur ekki þátt í mót- inu að þessu sinni. Úrslitin í fyrstu umferð lands- liðsflokks í þeim skákum sem ís- lendingarnir tefldu voru þau að Ingvar Ásmundsson gerði jafn- tefli við Böök, Finnlandi og Ingi R. Jóhannsson gerði jafntefli við Korning, Danmörku. Sú skák sem mesta athygli vakti í þessum flokki var annars skák þeirra St&lbergs og Sterners landa hans. Stálberg tapaði skak- inni. Sterner hefur teflt á Norð- urlandamótum að undanförnu, en aldrei komizt mjög ofarlega. 1 fyrra meistaraflokki sigraði Hellström Lárus Johnsen. Kara sigraði Eggert Gilfer en Óli Valdemarsson á biðskák við Honkanen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.