Morgunblaðið - 23.08.1957, Síða 6

Morgunblaðið - 23.08.1957, Síða 6
6 MORCVNBLAÐIÐ Föstudagur 23. ágúst 1957 JAFNAÐARMANNAFLOKKURINN í VESTUR-ÞÝZKALANDI KOSNINGABARÁTTAN í Vestur-Þýzkalandi harðn ar með hverjum degi. — Þar ber mest á tveimur hinum stóru flokkum, flokki Adenauers annars vegar, sem nefnir sig kristilega demókrata og jafnaðar- mannaflokknum hins vegar. Jafnaðarmannaflokkurinn í Þýzkalandi á sér langa sögu. — Hann hefur á liðnum árum orðið eins konar fyrirmynd annarra jafnaðarmannaflokka. Fyrir fyrri heimsstyrjöldina voru þýzkir jafn aðarmenn mjög í fararbroddi fyr- ir flokksbræðrum sínum í Ev- rópu og má segja, að jafnaðar- mannaflokkarnir á Norðurlönd- um séu að nokkru eins konar af- kvæmi hans. Þegar styrjöldin 1914 brauzt út, stóðu jafnaðar- menn að mestu óskiptir með stjórninni og samþykktu meðal annars þær fjárveitingar, sem til styrjaldarinnar þurfti. Eftir styrjöldina tóku jafnaðarmenn völdin og réðu um hríð að kalla einir í landinu. Þeim tókst að berja niður með harðri hendi, uppreistir kommúnista rétt eftir stríðslokin og fyrsti forseti lýð- veldisins var kosinn úr þeirra hópi. En mjög bráðlega misstu jafnaðarmenn tökin. Það kom ekki sízt af því, að þeim tókst ekki að koma efnahagskerfi lands ins í rétt horf. Peningarnir urðu að engu, hin mikla verðfallsalda, sem Þjóðverjum er enn í fersku minni, skall yfir og gerði flest verðmæti að engu. Það er eitt hið mesta gjaldeyrishrun, sem síðari tíma saga kann frá að greina. Þetta varð til þess að jafnaðar- menn misstu m áhrif sín. Btjórnmálaflokkarnir urðu marg ir í landinu og stjórnarfarið am margt mjög á reiki og er ýmis- legt í sögu Þjóðverja frá þeim tímum ekki alveg ólíkt því, sem gerzt hefur í stjórnmálum Frakka eftir styrjöldina síðari. Þegar Hitler komst til valda, var flokk- ur jafnaðarmanna bannaður, eins og aðrir flokkar, en flokksmenn- irnir héldu uppi nokkurri neðan- jarðarstarfsemi, eins og það er kallað og margir forystumenn flýðu land og héldu þar uppi eins konar flokksstarfsemi í út- legðinni. Þegar styrjöldinni lauk, endurskipulögðu þýzkir jafnað- armenn flokk sinn undir forystu dr. Kurt Schumacher. Schu- macher var um margt mjög mik- ill hæfileikamaður. Hann var áróðursmaður svo af bar og er viðbrugðið þeim eldmóði, sem skein út úr ræðum hans. Hann var mjög fatlaður maður eftir veru í fangabúðum og sjúkdóma, vantaði hann bæði annan fót og handlegg. Schumacher var jafn- an heilsulítill maður og andað- ist árið 1952. ★ Þegar styrjöldinni lauk og Þjóðverjar fengu nokkru þar á eftir rétt til að taka mál sín í eigin hendur, bjuggust margir við að jafnaðarmenn mundu taka forystuna. Þegar styrjöld- inni lauk, höfðu Englendingar varpað frá sér forystu Chur- chills og jafnaðarmenn tóku við völdum. Ýmsir bjuggust við að Þjóðverjar mundu nú leita á náðir jafnaðarmanna og fela þeim forustuna í endurreisn landsins. Þetta fór ekki þannig. Ástæðurnar til þess eru margar. Þjóðverjar hafa fyrir augum sögu hins gamla jafnaðarmanna- flokks og hversu honum mistókst eftir heimsstyrjöldina fyrri. Al- menningur treysti þeim ekki til þess að takast á hendur hina erfiðu endurreisn eftir rústir og hrun styrjaldarinnar. Þó varð flokkurinn mjög sterkur en það var samsteypa flokks Adenauers og tveggja smærri flokka, sem sigraði. Það er kunnugt, hve stjórn Adenauers tókst með af- brigðum vel að reisa hag lands- ins við. Því skyldi þó ekki gleymt í þessu sambandi, að jafn- aðarmannaflokkurinn á þar sinn hlut að, vegna þess að hann gætti hófs í stjórnarandstöðunni og studdi jafnan stjórnina til þess, sem flokkurinn taldi góð mál. Jafnaðarmenn fóru heldur aldrei út á þá braut, að misnota þau tök, sem þeir höfðu á verka- lýðshreyfingunni í landinu en þau eru mikil. Að þessu leyti má segja, að jafnaðarmahnaflokk urinn þýzki eigi sinn góða hlut að endurreisn landsins, jafnvel þó að hann hafi ekki haft bein áhrif á stjórn sambandslýðveldis- ins, síðan heimsstyrjöldinni lauk. ★ í annað skipti fóru kosningar í landinu fram í september 1953 og vann samsteypa Adenauers þá aftur mikinn sigur. Fékk hún hreinan meirihluta í þinginu, en þó munaði aðeins 1 atkvæði. Við þessar kosningar hafði það eink- um mikil áhrif hve vel hafði gengið að koma efnahagsmálum landsins í gott horf. „Hið þýzka undur“, sem svo er kallað, hafði gerzt og almenningur þakkaði það framar öllu hinni viturlegu fjármála- og viðskiptamálastjórn Adenauerstjórnarinnar. Kjósend urnir voru því ekki á því að skipta um og sýna atkvæðatöl- urnar að munurinn var allmikill á milli samsteypu Adenauers og jafnaðarmanna þar sem Adenau- er-flokkurinn, CDU/CSU, fékk 244 þingmenn, en jafnaðarmanna flokkurinn aðeins 151. Við kosningarnar sem nú fara í hönd, gera jafnaðarmenn sér nokkrar vonir um að vinna meiri hluta og takist þeim það ekki einum, hafa þeir nokkra von um að samsteypa geti ,tekizt með þeim og hinum svonefnda FDP- flokki, eða frjálsum lýðræðissinn um, eins og þeir kalla sig. Þéssi flokkur var í fyrstu í samste.ypu Adenauers, en klofnaði og gekk nokkur hluti hans þá úr sam- steypunni. Jafnaðarmenn gera sér vonir um að þessi flokkur eflist nú nokkuð og það mikið að nægi til þess, að samband við hann gæti veitt þeim öruggan meirihluta. Þegar litið er á kosningastefnu- skrá jafnaðarmanna nú við þess- ar kosningar, verður ekki sagt að hún beri mikinn svip af sósíal- isma. í stefnuskránni eða stefnu- yfirlýsingunni segir meðal ann- ars: „Stjórn jafnaðarmanna mundi tryggja gildi peninganna og sjá fyrir jafnvægi í verðlag- inu. Hún mundi halda uppi frjálsri viðskiptalegri þróun og frjálsri samkeppni." Þjóðnýting er hvergi nefnd á nafn. Við fyrri kosningar hafa jafnaðarmenn þó haft þjóðnýtingu á vissum svið- um á stefnuskrá sinni, en nú hafa þeir talið hyggilegast að fella allt tal um það niður. Mörgum jafn- aðarmönnum þykir sem stefnu- yfirlýsingin sé nokkuð loðin og óákveðin, hún greini flokkinn ekki nægilega skýrt frá öðrum, og beri um of svip af því, að um sé að ræða samkeppni við hina frjálslyndu stefnu Adenauers. Foringi jafnaðarmanna nú heit- ir Erich Ollenhauer. Hann tók við forystu flokksins eftir að Schu- macher leið. Ollenhauer er fædd- ur 27. marz 1901 í Magdeburg og varð þegar 'á unga aldri framar- lega í flokksstarfseminni. — Snemma á árinu 1933 varð hann miðstjórnarmaður flokksins en flýði land, þegar Hitler tók við völdum og fór fyrst til Prag en síðan til París og London og var þar um styrjaldarárin. Árið 1946 kom hann aftur heim og tók þá þegar til starfa í flokknum og komst þar í fremstu röð. Því er ekki að leyna að allmikil óá- nægja er með forystu Ollenhau- ers innan flokksins. Margir telja að hann sé alltof mildur og svip- laus og samanborið við Adenau- er sé alls ekki eftir honum tekið. Hann sé góðmenni og hinn lipri flokksmaður en standist ekki bar áttuhug og krafti Adenauers nokkurn snúning. 1 kosningabar- áttunni hefur þetta óneitanlega þótt nokkuð koma fram. Aden- auer hefur haldið uppi mjög harðvítugum áróðri gegn jafn- aðarmönnum og komið þeim í varnarstöðu. Flokksmennirnir setja það líka út á Ollenhauer að hann snúist til varnar í stað sókn ar og láti „þann gamla“, eins og Adenauer oft er kallaður, snúa á sig í áróðrinum. Adenauer hef- ur tekið upp þann hátt, sem amerísk forsetaefni hafa, að fara í einkalest um landið og halda ræður á mörgum stöðum, þar sem lestin nemur staðar. Ollenhauer notar hins vegar litla flugvél og flýgur stað úr stað og heldur Ollenhauer ræður sínar. Ollenhauer er góður ræðumaður, kjarnyrtur og flytur mál sitt mjög skörulega. Sá, er þetta ritar hefur eitt sinn hlust- að á Ollenhauer, að vísu ekki á stjórnmálafundi, og er maðurinn allur hinn skörulegasti í ræðu- stól. Jafnaðarmönnum í Þýzkalandi hefur þótt það hinn mesti ó- greiði, hvernig Rússar og stjórn- in í Austur-Þýzkalandi hafa snú- izt við þýzku kosningunum. Það hefur komið áberandi í ljós, að Rússum er mjög illa við Aden- auer og er þess að minnast að Krúsjeff hélt harða ræðu gegn Allmörg orð um simann ENN tala ekki aðeins í sím- ann, heldur líka um símann. Breytingarnar, sem nýlega urðu á símakerfi Reykjavíkur, hafa valdið því, að símamálin liggja fólki þungt á hjarta, og hefur Velvakandi fengið allmargar at- hugasemdir um þau að undan- förnu. Skulu nokkrar þeirra raktar hér: 1. Um leið og fólk fær nýjan síma greiðir það í eitt skipti fyrir öll svokallað stofngjald. Gjald þetta hækkaði fyrr á þessu ári úr 1400 í 1800 krónur. Þessi hækkun er gömlum viðskiptavinum sím- ans auðvitað óviðkomandi. En það virðast ekki allir á einu máli um, hverjir teljast gamlir við- skiptamenn í þessu sambandi. — Einum 400 eða 500 mönnum var veitt bráðabirgðaúrlausn á síma- leysisárunum á þann hátt, að þeir fengu millisamband frá öðr- um símum. Þeir borguðu sitt fulla stofngjald og töldu sig þar með orðna símnotendur. Nú hafa þeir fengið sjálfstæð númer, en í kjölfar þeirrar ánægjulegu breyt ingar kom reikningur: gerið svo vel að greiða 400 kr. vegna hækk- unar á stofngjaldi. Kunpingi Vel- vakanda fékk þessa sendingu og varð bálreiður. Velvakandi bar málið und- ir Bjarna Forberg bæjar- símastjóra. Hann sagði, að milli- samböndin hefðu verið neyðar- úrræði og til leiðinda bæði fyrir símann og viðskiptavini hans. Þau voru dýr í uppsetningu, ekki sízt ef sá, er millisambandið fékk, og sá, er númerið hafði, bjuggu hvor í sínu bæjarhverfi. Einnig kvað bæjarsímastjóri all- ar viðgerðir hafa verið erfiðar og kostnaðarsamar. Taldi hann milli sambandsmennina því ekki geta kvartað yfir því, að ekkert hefði Adenauer, þegar hann kom til Austur-Þýzkalands nú fyrir skömmu. En einmitt þetta þykir mörgum Þjóðverjum bera vott um að Adenauer sé nú á réttri leið. Jafnaðarmenn hafa tekið mjög skarpa aðstöðu gegn því sem þeir kalla íhlutun Rússa og austur-þýzku leppstjórnarinnar í þýzku kosningabaráttuna. ★ Að undanförnu hafa miklar skoðanakannanir farið fram í Vestur-Þýzkalandi, því eftir- væntingin í sambandi við kosn- ingarnar er mjög mikil og eru þær taldar hinar þýðingarmestu, sem farið hafa fram í Evrópu eftir að styrjöldinni lauk. Það hefur komið í ljós í þessum skoð- Bogasal Þjóðminjasafnsins um miðjan september. Nú eru senn liðin þrjú ár síðan félagið hélt fyrstu sýningu sína og var þá tala félagsmanna um 100. Síðan hefur tala þejrra nær þrefaldazt. Má vænta þess að margir hafi í fórum sínum mynd- ir til sýningar. Það skal tekið fram, að þátttaka er heimil utan- félagsmönnum. Myndir á sýninguna þurfa skil- yrðislaust að berast fyrir 1. sept- ember. Boðsbréf með reglum um þátttöku liggja frammi í öllum ljósmyndaverzlunum í bænum. Að síðustu má geta þess að stjórn félagsins hefur unnið að því að fá úrval mynda á sýning- una frá áhugaljósmyndurum í Feneyjum og standa vonir til að það megi takast. Væntanlega verða einnig sýndar vérðlauna- myndir úr ljósmyndakeppni tóm- stundaþáttar útvarpsins. (Frá Félagi áhugaljósmyndara). verið fyrir þá gert, og aðalatriðið væri, að millisamband og venju- legur fullgildur sími, væri tvennt ólíkt frá sínum bæjardyrum séð. 2. Maður nokkur segist alloft þurfa áð hringja í síma 1 10 00 eins og fleiri, en það er hið al- menna númer pósts og síma í Reykjavík. Hann telur það mikið mein, hve seint er svarað, og um daginn segist hann hafa hringt tvisvar sinnum árangurslaust — hélt hann á tístandi tólinu í full- ar 50 sekúndur í hvort skipti, en þá hættu hringingarnar, og ekki var um annað að ræða en velja númerið að nýju og taka á þolin- mæðinni. 3. Maðurinn kvartaði einnig yfir því, að á sumum tímum dags ins heyrðist illa, hvað ungfrú klukka segir. — Bæjarsímastjóri sagði í þessu sambandi, að tæki þau, sem notuð eru við þessa símaþjónustu, væru orðin gömul, og hefðí fyrir alllöngu verið tekið að vinna að því að fá þau end- urnýjuð. Tekst það væntanlega, áður en langt um líður. 4. Og svo eru menn alltaf að tala um það, að ómögulegt sé að þekkja sundur sóninn, sem gefur til kynna, að hringingar séu i fullum gangi, og sóninn, sem seg- ir, að númerið sé á tali. Og menn segja líka, að nýja símaskráin sé óhandhæg og þeir verði blindir á stuttum tíma af að rýna í hana. Þetta síðara er bara nöldur, en bæjarsímastjórinn var spurður um fyrra atriðið. — Sagði hann, að unnið væri að því að kippa þessu í lag. Að réttu lagi eiga að heyrast sónmerki með stuttu millibili — tvö merki á sekúndu — þegar númerið er á tali, en löng merki sjöttu hverja sek- úndu, þegar hringir. Á þessu geta 'menn ekki villzt, en gallinn anakönnunum að síðan um ára- mót hefur fylgi Adenauers farið mjög vaxandi. Einkum virðist það þó hafa vaxið síðan í vor og segja skoðanakannanir, að flokkurinn hafi nú á bak við sig 46% kjósenda en jafnaðarmenn aðeins 35%. Sýna skoðanakann- anirnar að fylgi jafnaðarmanna hefur farið allmjög hrakandi á sama tíma sem fylgi Adenauers hefur vaxið. Þó skoðanakannan- ir séu aldrei áreiðanlegar, eins og reyndar hefur sýnt sig, geta þær þó gefið nokkra vísbendingu og eins og nú stendur er það al- mennt álit manna, sem þekkja til í Vestur-Þýzkalandi, að sam- steypa Adenauers muni vinna sigur. Vafnsskorfur í Árneshreppi GJÖGRI, Strandasýslu, 21. ág. — Tíðarfar hefur verið gott hér í Árneshreppi, það sem af er ágústmánuði. Þó rigndi af og til og var talsverð rigning seinni- hluta ’ síðustu viku. Síðan á sunnudag hafa þurrkar vetið góðir. Bændur eru farnir að slá hána og er hún vel sprottin. Engjar eru víðast illa sþrottnar og er þurrkunum í vor og sumar kennt um. Talsvert hefur borið á vatns- skorti í hreppnum undanfarið og eru þess nokkúr dæmi, að fólk hefur þurft að fara marga kíló- metra til að ná í neyzluvatn og þvo þvotta. — Regína. er sá, að hringingarsóninum fylg- ir nú aukatónn. Verkfræðingar símans herja á þetta aðskotadýr, en það er torsótt og telja þeir sig ekki geta lofað öðru en því, að það muni að velli lagt einhvern tíma á næsta vetri. 5. Og svo eru það símatækin sjálf. Við erum sjálfsagt öll á einu máli um það, að lífið sé notalegra, ef hlutirnir, sem við höfum handa á milli í daglega lífinu, eru fagurlega gerðir. All- ur iðriaður ætti að vera listiðnað- ur, og við reynum, eftir því sem smekkur og auraráð leyfa, að velja okkur smekkleg föt, borð- búnað og húsgögn, en síma — guð hjálpi okkur. Við veljum okkur ekki símatæki. Eina valið, sem þar er um að ræða, er á milli þess að vera símalaus eða taka inn á heimili sitt stórt, þungt og svart tæki. Hvers vegna megum við ekki velja á milli nokkurra gerða í mismunandi formum? Og í þessu sambandi má minna á, hve erfitt er að flytja símatækin úr stað. Vafa- laust væri hægt að fá tæki með handfangi, svo að óhætt mætti teljast að láta krakkana halda á símanum nokkra metra án þess að eiga á hættu, að þeir misstu hann ofan á tærnar á sér. — Þetta atriði var einnig þorið undir Forberg. Hann kvað rétt vera, að fá mætti erlendis síma- tæki í ýmsum litum og formum. Hins vegar þyrfti að stórauka varahlutabirgðir símans, ef tekið væri að flytja þau inn, og til þess skorti fé. Lausnin virðist þá vera sú ein, að leigja þessi tæki fyrir hærra verð en hin. Við símnot- endur höfum nóg við peningana okkar að gera ekki síður en sím- inn, en hvernig lízt mönnum á hugmyndina? shrifar úr 1 daglega lífinu J Ljósmyndasýning áhuga- Ijésmyndara í sepfemher FÉLAG áhugaljósmyndara ætlar®---------- að halda ljósmyndasýningu í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.