Morgunblaðið - 11.09.1957, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.09.1957, Blaðsíða 8
MORGUMU. AÐIÐ Miðvikudagur 11. sept. 1957 « Ctg.: H.t. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjami Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Öla, sími 33045 Auglýsmgar: Ami Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. STJÖRNARLIÐAR VERJA GJALD- EYRISÖNGÞVEITIÐ EIN peirra afleiðinga af öngþveitinu, sem vinstri stjórnin hefur leitt yfir Islendinga, er almenningur hef- ur einna fyrst fundið til, er til- finnanlegur skortur á gjaldeyri. Undanfarna mánuði hefur þessi gjaldeyrisskortur bitnað á þjóð- inni í ýmsum myndum. Bændur hafa orðið að bíða vikur og mán- uði eftir vélum og tækjum, sem þeir höfðu pantað og áttu að vera komin í tæka tíð til þess að þau yrði notuð í sumar. Skortur á byggingarefni hefur valdið mikl- um fjölda fólks í sveitum og kaupstöðum miklum erfiðleikum. Bifreiðaeigendur hafa um lang- an tíma ekki fengið hjólbarða undir bifreiðir sínar. Þannig væri hægt að halda áfram að telja upp fjölda vörutegunda, sem almenning- ur hefur ekki getað fengið vegna skorts á gjaldeyri. Sum- ar vörurnar hafa jafnvel ver- ið komnar á hafnarbakkan hér í Reykjavík. En þar hafa þær stöðvazt svo vikum skipti vegna þess að ekki hefur ver- ið hægt að yfirfæra gjaldeyri fyrir andvirði þeirra. Stangast við staðreyndir Allt eru þetta staðreyndir, sem allur almenningur í landinu þekkir, mikill fjöldi fólks af eig- in reynslu. Engu að síður hafa málgögn stjórnarflokkanna brugðizt þannig við upplýsingum Morgunblaðsins um hina stór- versnandi gjaldeyrisaðstöðu þjóð arinnar, að þau hafa talið upp- lýsingarnar rangar. Þannig hafa bæði „Alþýðublaðið" og „Þjóð- viljinn" haldið því fram að gjald- eyrisástandið sé nú ekki verra en í fyrra. En þessi blöð hafa ekki getað svarað þeirri fyrir- spurn,' hvernig standi þá á því, að almenningur verði nú fyrir margvíslegum óþægindum vegna gjaldeyrisskorts. En eins og kunnugt er varð þeirra erfiðleika ekki vart á sl. sumri. Sannleikurinn í málinu er auð- vitað sá, að blöð stjórnarflokk- anna eru hér að st^ngast við staðreyndir, sem ekki verða snið- gengnar. Tölurnar tala sínu máli Þær upplýsingar, sem sannast- ar eru og réttastar um gjald- eyrisaðstöðuna við útlönd um þessar mundir eru þessar: í lok júlímánaðar í sumar var nettóskuld bankanna við útlönd um 75 millj. kr. en var 36 millj. kr. á sama tíma í fyrra. Aðrar skuldbindingar bankanna við úx- lönd munu vera um 5 millj. kr. hærri nú en á sama tíma í fyrra og óinnheimtar kröf- ur erlendis eru um 9 millj. kr. lægri nú en þá. Að- staða bankanna er því nú að þessu leyti 53 millj. kr. óhag- stæðari en fyrir ári síðan. Þá kemur það til athugunar að í árslokin 1956 lækkaði greiðslu- halli bankanna við útlönd með lántöku ríkissjóðs hjá Export- Importbankanum um 65 millj. kr. Að sjálfsögðu ber að leggja þá upphæð við halla bankanna til þess að gera sér rétta grein fyrir hinu raunverulega ástandi nú. Útflutningsbirgðir munu hafa verið áætlaðar um 110 millj. kr. lægri 31. júlí í sumar en þær voru á sama tíma í fyrra. Mun því verða mun minna að flytja út á næstu mánuðum. Af þessum upplýsingum verður það ljóst að þeir 3 lið- ir, sem hér hafa verið taldir gera gjaldeyrisaðstöðuna 228 millj. kr. lakari en hún var fyrir ári síðan. Loks mó á það minna að vöru- birgðir í landinu eru nú miklu minni en þær voru-um sama leyti í fyrra. Er það álit kunnugra manna að áætla megi mun vöru- birgðanna nú og í fyrra allt að 100 millj. kr. að verðmæti. Lokaniðurstaðan verður því sú að heildargjaldeyrisaðstaðao hafi ó einu ári, sem vinstri stjórn in hefur setið, versnað um yfir 300 millj. kr. Alþýðublaðið játar þetta líka í raun og veru í gær, þeg- ar það skýrir frá því, að vöru- skiptajöfnuðurinn hafi á fyrstu 7 mánuðum þessa árs orðið óhagstæður um tæpar 200 millj. kr. Þegar við þá staðreynd hætist, að ríkis- stjórnin tók við síðustu ára- mót stórfellt eyðslulán í er- lendum gjaldeyri og ennfrem- ur að gengið hefur stórlega 4 birgðir innfluttra vara verður auðsætt að upplýsingar Mbl. um 300 millj. kr. versnandi gjaldeyrisaðstöðu eru sann- leikanum samkvæmar. Krefjast meiri varnarliðsframkvæmda! Það sætir vissulega engri furðu, þótt stjórnarflokkarnir séu orðnir alluggandi yfir þessu ástandi. Enda er nú svo komið að Frámsóknarmenn og sumir kommúnistar eru farnir að krefj- ast meiri framkvæmda á vegum varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli. Eygja þeir í slíkum fram- kvæmdum einu leiðina til þess að draga úr gjaldeyrisskortinum og bæta aðstöðuna út á við. Sýnir vinstri stjórnin með þessu enn einu sinni að hún er trú þeirri heitstrengingu sinni að kveða niður allt „hermang“ þar sem betra sé að „skorta brauð“ en að lifa á slíkum ó- sómaM Kjarnl málsins er auðvitað sá að verðbólgu- og hafta- stefna stjórnarinnar á megin- sökina á þeim tilfinnanlega gjaldeyrisskorti og versnandi gjaldeyrisaðstöðu, sem nú blas ir við þjóðinni. Stjórnarstefn- an er að lama allt framtak í landinu með skattaráni, höft- um og ofurvaldi nefnda og ráða. I UTAN UR HEIMI Úr ýmsum áttum PIERRE Poujade, pappírskaup- maðurinn, sem kom sér upp póli- tískum flokki í Frakklandi með því að safna saman öllum þeim, Poujade ætlar að gefa út blað sem neituðu að greiða skatta, hef ur iátið lítið á sér bera undan- farið í kosningunum 1956 fékk flokkur hans 214 milljón at- kvæða, en síðan sundraðist hann af innbyrðis deilum og togstreitu og beið mikinn ósigur við auka- kosningar í París. Nú hugsar Paujade sér aftur gott til glóð- arinnar. Ástæðan er auðvitað sú, að smákaupmenn og bændur hafa látið í ljós megna óánægju með stefnu stjórnarinnar í verðlags- máium, og fjölmennir hópar í Frakklandi fordæma „eftirgjafa stefnu" stjórnarinnar í Alsírmál- inu. Poujade ætlar ekki aðeins að hefja „stórsókn“ í frönskum stjórnmálum í næsta mánuði, heldur hefur hann líka tilkynnt, að hann muni hefja útgáfu dag- blaðs. Þetta síðasta fyrirtæki get- ur orðið honum dýrkeypt, því að síðustu tvö árin hafa m.a. blað Mendes-Firance, „l’Express" og blað fjármálajöfranna „Les Temps de Paris“ liðið undir lok, og allir vita, að aðeins fjögur blöð í Frakklandi eru á sæmileg- um efnahagsgrundvelli („France Soir“ með 1,3 millj. eintök, „Le Parisien Liberté" með 650.000, „Le Figaro" með 600.000 og „I’Aurore" með 450.000 eintök). Hins vegar hefur hið fræga og virta blað „Le Monde“ aðeins 200.000 kaupendur og er í stöð- ugum efnahagskröggum. Fyrir bölsýnismenn í London hefur verið stofnaður kiúbbur fyrir bölsýnismenn. Með .imum hans er kennt, hvernig lifa eigi í nellum, hvernig veiða eigi villidvr með boga og crvum, hvernig kveikja skuli eid með því að lemja saman steinum og hvernig gera megi flíkur úr trjá berki. . Dagar hans taldir Dagar Vilhelms Pieck sem for- :ta Austur-Þýzkalands eru tald- '. Hann mun ekki „bjóða sig fram“ aftur, þar sem síðasta slag hans hefur að nokkru leyti lamað hann. Hann getur varla hreyft sig lengur og á mjög erfitt með að tala. Dægurlagahet j a Ein af mest seldu grammófón- plötum í Bandaríkjunum núna er platan þar sem dægurlagasöng- konan Carol Burnett syngur nýj- an „slagara": I am in love with Foster Dulles" (Ég er ástfangin af Foster Dulles). 1-icck lici.ur af störíum Dulles er dægurlagahetja Staðgengill Bandaríski stjórnmálamaður- inn Sidney Yates sendir kjósend- um sínum fréttabréf við og við. í síðasta bréfi segir hann skemmtilega sögu af Wilson Bandaríkjaforseta. Nokkrum tím um eftir að einn af ráðgjöfum hans lézt, fékk hann heimsókn frá manni nokkrum, sem í upp- hafi tilkynnti honum hátíðlega, að hann hefði ætíð verið ötull og einlægur stuðningsmaður forset- ans, og spurði hann síðan, hvort hann gæti ekki komið í stað hins látna ráðgjafa. „Tja“, svaraði forsetinn, „mín vegna megið þér það gjarna, ef líkmaðurinn hefur ekkert á móti því.“ # Sanngjarnt skilyrði Margmilljónerinn í Brazilíu, Francisco de Assis Chateáubri- and, sem á 32 dagblöð, 27 út- várpsstöðvar og 5 sjónvarps- stöðvar, hefur verið skipaður sendiherra lands síns í Lundún- um. Hann setti það skilyrði, þeg- ar hann tók við embættinu, að hann gæti flogið heim til Brasil- íu hálfsmánaðarlega um helgar til að sinna fyrirtækjum sínum — auðvitað á eigin reikning. Viðkvæm mál Hankey lávarður, sem nú er áttræður, var ritari brezku stjórn arinnar 1919—1938 og komst þá í náin kynni við stjórnmálalífið bak við tjöldin. Hann hefur nú i þriðja sinn sent Maemillan for- sætisráðherra umsókn um leyíi til að gefa út endurminningar sínar. Þar sem í endurminning- unum er m.a. fjallað um efni, sem ennþá er að nokkru leyti stimplað „leynilegt", er slíkt leyfi nauðsynlegt. Tvisvar hefur honum verið synjað um leyfið. Götusóparar í Indónesíu er nú komin upp „Hreyfing betra lífernis". Hún hóf starf sitt með því að Sukarno forseti, sem nú er 56 ára, ásamt mörgum ráðherrum og eiginkon um þeirra, sópaði óhreinasta torg ið í höfuðborginni Djakarta í hálfan annan tíma. Sukarno er götusópari Kvikmyndir: „Fjórar fjaðrir'' i Bæjarbiói MYND ÞESSI, sem er enska cine mascope-mynd, er tekin sumpart í Súdan og sumpart í London. — Atburðirnir gerast á seinni hluta aldarinnar sem leið. Englend- ingár hafa sent herlið til Súdan til þess að hefna þess að Gordon hershöíðingi var veginn við Khartum 1885. — Krímstríðið (1854—56) var enn í fersku minni og gamlir uppgjafa-hers- höfðingjar enskir sitja að borð- haldi og gorta hver sem betur get ur af afrekum sínum og her- deildar sinnar í því stríði. Þeim finnst ekkert til hermennsku nútímans koma og hermennirnir huglausir á móts við það sem var á þeirra tímum. — Ungur dreng ur um 14 ára, sonur Harry Favers ham hershöfðigj a, situr við borð- ið þar sem þessar umræður fara fram. Hann hefur andstyggð á stríði, en hugur hans hneigist að skáldskap og öðrum fögrum bók- menntum. Föður hans finnst drengurinn veikgeðja og ekki líklegur til mikilla manndáða. Drengurinn er orðinn liðlega tví- tugur maður þegar herferðin til Súdan hefst. — Hann innritast í berinn, þá nýtrúlofaður ungri og fallegri stúlku, Mary, dóttur Burroughs hershöfðingja. — En dagirin sem herdeildin á að leggja af stað frá London fer Harry til yfirmanns herdeilclar sinnar og segir sig úr hernum. — Þetta verða vinum hans og unnustu mikil vonbrigði. — Vin irnir þrír, þeirra á meðal Peter bróðir Mary, senda honum bréf, sem í eru þrjár hvítar fjaðrir og unnustan réttir honum fjórðu fjöðrina. — En þessar fjaðrir tákna það, að sendandi álítur viðtalcandann heigul. — Harry verður sár og hryggur og ákveð ur að halda til Súdan einn síns liðs og dulbúinn. Hann klæðist gervi innfæddra og tekst að vinna mörg afrek Englendingum í hag, — þar á meðal að bjarga lífi vin- anna þriggja, með því að þola miklar þrautir og leggja líf sitt í hættu. — Þannig skilaði hann vinunum aftur fjöðrunum, sem þeir höfðu sent honum. — Nán- ar verður efni myndarinnar ekki rakið hér. — Mynd þessi er stór brotin og prýðilega gerð og sett á svið og ágætlega leikin. — Ant hony Steel leikur aðalhlutverkið, Harry Faversham af miklum til- þrifum og hann er fríður maður, karlmannlegur. Mary Ure leikur unnustuna. Hún er fögur kona og fer laglega með hlutverk sitt en þó án verulegra tilþrifa. En skemmtilegasta týpan í þessari mynd sem oft endranær er Jam- es Robertson Justice í hlutverki Burroughs, og leikur hans er af- bragðsgóður. Spenna þessarar myndar er geysimikil Ego.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.