Morgunblaðið - 04.10.1957, Síða 1

Morgunblaðið - 04.10.1957, Síða 1
20 siður 44. árgangur. 224. tbl. — Föstudagur 4- október 1957. Prentsmiðja Morgunblaðsins* Alvarlegasta stjórnarkreppa Frakka eftir stríð PARÍS, 3. okt. — Stjórn Bourges- Maunourys, sem var 23. ríkis- stjórn Frakklands eftir strið, er fallin, og standa Frakkar nú gagnvart alvarlegustu stjórnar- kreppu sinni síðan fyrir stríð. Baráttan stendur ekki milli franskra stjórnmálamanna, held- ur milli Frakka og hins frjálsa heims. Á mánudag hélt stjórnin, að hún mundi fá meirihluta at- kvæða, þegar stjórnarfrumvarpið um takmarkaða heimastjórn í Alsír var lagt fyrir þingið. En hún tapaði með 26 atkvæða mis- mun. Munurinn var minni en venju- legt er, þegar stjórn er felld, ef hægt er að tala um „venjulegt" í frönskum stjórnmálum. Stjórn- in hafði gert Alsír-frumvarpið að skilyrði fyrir áframhaldandi setu, og féll með því. Hefði fallið hvort sem var Fallið kom á versta tima sem hugsazt gat fyrir Frakkland. — Pólitískt og efnahagslegt ástand maður de Gaulles, lagðist mjög gegn stjórnarfrumvarpinu, sem hann taldi alltof djarft. Hin er sú, að Túnis mun i náinni fram- tíð. fá vopn frá Bandaríkjunum, Ítalíu, Norðurlöndum og öðrum samherjum Frakka í NATO, og þessi vopn verða notuð gegn Frökkum í Alsír að áliti franskra stjórnmálamanna. Framh. á bls 2 Táragas í Varsjá VARSJÁ, 3. okt. — Lögregían k Varsjá greip í dag til íáragass til að dreifa 2000 stúdentum, sem voru í mótmælagöngu gegn þeirri ákvörðun stjórnarinnar að stöðva útgáfu stúdentablaðsins „Po Prostu." Mótmælafundurinn var haldinn á Nakutowicza-torginu, um 2 km frá hjarta borgarinnar. Stúdentasamtökin höfðu fyrr í Bevan vinnur stórsigur de Gaulle — fær hann völdin? í landinu er mjög slæmt, en það er kannski nokkur huggun, að stjórnin hefði hvort eð er fallið eftir viku eða svo, þegar efna- hagslöggjöfin, sem hinn ungi fjár málaráðherra Gaillard hafði lagt fram, átti að koma til umræðu. Tvær staðreyndir eru mikil- vægar í þessu sambandi. Sú fyrri er, að fyrrverandi landsstjóri í Alsír, Soustelle, sem er fylgis- Víbtækar njósnir Rússa í Danmörku Kaupmannahöfn, 3. okt. Einkaskeyti til Mbl. NJÓSNATILRAUNIR rússneska hermálafulltrúans í Kaupmanna- höfn Sergei Smirnovs, sem vísað hefur verið úr landi, eru taldar mjög alvarlegar. En með tilliti til annarra ríkja vegna gagn- njósnanna er alger leynd yfir eðli og víðtæki þessara njósna. „Ekstrabladet" í morgun segir, að Smirnov hafi reynt að afla sér ákveðinna tæknilegra upp- lýsinga, sem hefðu getað stofnað vörnum vestrænna ríkja í hættu, ef þær hefðu komizt í hendur rangra manna. Tilraunir Smirnovs til njósna báru lítinn árangur. Rannsókn- arlögregla hersins heldur áfram rannsóknum sínum á málinu, og telur „Ekstrabladet“, að yfirmað- ur rússnesku hermálafulltrúanna Jakovlev ofursti, verði sennilega einnig rekinn úr landi, þar sem hann hafi án alls efa vitað um njósnatilraunir Smirnovs og að líkindum verið potturinn og pann an í málinu. Þetta er í þriðja sinn, sem Dan- ir hafa orðið að vísa rússnesk- um erindrekum úr landi. Hinn 2. febrúar s. 1. var Rogov hermála- fulltrúa vísað úr landi fyrir njósn ir um flugherinn, og 28. febrúar var Rouditchev hermálafulltrúa sömuleiðis vísað úr landi fyrir njósnir um flotann. —Páll. BRIGHTON, 3. okt. — Anuerin Bevan vann einn stærsta stjórn- málasigur sinn í dag á landsþingi brezka Verkamannaflokksins, er hann kom því til leiðar, að felld var ályktun um að skuldbinda næstu ríkisstjórn Verkamanna- flokksins í Bretlandi til að hætta framleiðslu kjarnorkuvopna án tillits til þess, hvað hin stórveld- in gera. Bevan tókst að snúa þing inu til fylgis við sjónarmið flokks stjórnarinnar ,en varð að þola hæðnishróp frá mörgum fyrrver andi stuðningsmönnum sínum i vinstra armi flokksins. Bevan sagði, að með slíkri skuldbind- ingu yrðu Bretar að ganga á samninga sína við önnur ríki, auk þess sem þeir mundu koma á alþjóðaráðstefnu alisnaktir, eins og hann orðaði það. Ályktunin var felld með 3,5 milljónum at- kvæða gegn 800.000. Hins vegar voru tvær ályktanir samþykktar um kjarnorkumál, önnur þess efnis, að stjórnin gerði ekki fleiri tilraunir með kjarnorku- vopn, hin að Bretar beiti sér fyr- ir algera banni við kjarnorku- vopnum og framleiðslu þeirra í heiminum. Rithöfundurinn, blaðamaður- inn og útvarpsmaðurinn Tom Briberg var í dag kosinn formað ur brezka Verkamannaflokksins á fyrsta fundi hinnar nýju flokks stjórnar. Briberg er 52 ára gam- all og var um skeið þingmaður flokksins í neðri málstofunni. Tvær stjórnir í San Marino SAN MARINO, 3. okt. — Hamm- arskjöld framkvæmdastjóra S. Þ. hafa borizt tilmæli frá komm- únistastjórninni í San Marino, sem missti þingmeirihluta ný- lega og hrifsaði völdin, um að skerast í leikinn og koma á friði og ró í landinu. Verða þessi til- mæli lögð fyrir AHsherjarþingið. Ekki er útilokað, að Öryggisráð- ið verði kvatt saman til að ræða málið. Kommúnistastjórnin tók í dag fyrsta skrefið í samkomulagsátt með því að fara fram á það við ítalska stjórnmálaleiðtoga, að þeir sendu sáttanefnd til lýð- veldisins. Var þessi umleitun send til Gronchi forseta Ítalíu, Zoli forsætisráðherra og annarra leiðtoga stjórnmálaflokkanna. Utanríkisráðherrann í kommún- istastjórninni í San Marino, Gino Giacomini, sagði, að stjórn hans mundi að sjálfsögðu beygja sig undir úrskurð væntanlegrar sátta nefndar. Bandarikin viðurkenndu í kvöld hina andkommúnísku stjórn í San Marino, sem hefur þingmeirihlutann á bak við sig. Stjórnin var mynduð fyrir 2 dög- um og ætlar að ná völdunum úr höndum kommúnista og vinstri- sósíalista, sem stjórnað hafa lýð- veldinu síðustu 12 árin. Tveir af ráðherrum stjórnarinnar létu í ljós vonir um, að Bretland, Frakk land og Belgía mundu líka við- urkenna hana, þvi það mundi styrkja stjórnina í þeim ásetn- ingi að fara til höfuðborgarinn- ar og ná ráðhúsinu úr höndum kommúnista. And-kommúníska stjórnin er sem stendur í litlu húsi við ítölsku landamærin, en kommúnistar hafa borgina á valdi sínu. Sagt er, að hinir 14 þús. íbúar lýðveldisins séu nú farnir að þola nokkurn skort á matvælum og lyfjum, en ítalsk- ir lögregluþjónar hafa lokað landamærunum. Eigi að síður komst ítalska kommúnistablaðið „l’Unita“ til landsins í dag. Fréttir i stuttu máli TOULON, 3. okt. — Þeir tveir fimmburanna, sem fæddust i Toulon í gær og voru í hættu staddir, eru enn á lífi, en lækn arnir telja, að lífsmöguleikar þeirra séu ekki miklir. — Þeir reikna með að líða muni nokkrar vikur, áður en þeir eru úr allri hættu. Móðir fimmburanna, frú Laurence Christophe, bað um að fá myndir af þeim, þegar hún var ljósmynduð og spurð spjör- unum úr af fréttamönnum i kvöld. „Ég er varla farin að sjá þá ennþá“, sagði hún. Læknarnir sögðu, að móðurinni liði bæri lega, en þetta var fyrsta fæðing hennar, og fimmburarnir fædd- ust þremur mánuðum fyrir tím- ann. LITTLE ROCK, 3. okt. — Hvítir menntaskólanemar hæddust að hinum níu blökkumannabörnum í dag, þegar þau komu til gagn fræðaskólans í Little Rock í fylgd 30 vopnaðra hermanna. — Hafa börnin aldrei haft jafnsterkan vörð um sig, síðan þau tóku að sækja skólann. Ástæðan er talin vera sú, að í gær réðust nokkrir hvítir unglingar á svertingja börnin á lóð skólans. Hermenn- irnir frá Washington hafa nú aft- ur tekið að sér gæzlu á skólalóð inni, en hermenn fylkishersins létu árásina í gær afskiptalausa. Xfirvöld skólans tilkynntu í dag, að hver sá nemandi, sem færi úr skólanum meðan á kennslu stæði. yrði að taka afleiðingunum. — Orðrómur gekk um það, að hvítir nemendur ætluðu að fara heim í mótmælaskyni við veru blökku- mannabarnanna í skólanum. Um 75 nemendur fóru heim skömmu síðar. Sögðust þeir hafa fengið leyfi heima hjá sér til að mót- mæla með þessum hætti. Foreldr- arnir höfðu sagt, að ef nógu marg ir tækju sig saman, gæti skólinn ekki gert neitt. Ilins vegar sögðu þeir, að mótmæli þeirra hefðu verið gagnslaus. STOKKHÓLMI, 3. okt. — Aftaka veður hefur geisað í Mið- og Suður-Svíþjóð. Öli skip undan ströndum Svíþjóðar hafa leitað vars í fjörðum og víkum með- fram endilangri ströndinni frá landamærum Noregs og langt upp í Botníska-flóann. dag sett upp veggspjöld, har sem skorað var á stúdenta að fjöá- menna. „Lýðræðið i PÓU... JÍ er í hættu, ef stjórnin heldur fast við þá ákvörðun að stöðva út- gáfu „Po Prostu,“ stóð á spjöld- unum. Stúdentarnir voru um- kringdir af um 100 lögreglu ján- um, sem voru búnir gasgrímum og táragassprengjum. Meðal þeirra manna, sem urðu fyrir gúmmíkylfum lögreglunnar. var Ijósmyndari frá „Times“ í Lund- únum. AP skýrir svo frá. að mót- mælagangan hafi verið skipulögð af deild sósialísku æskulýo. -im- takanna við tækniháskólann i Varsjá. „Po Prostu“ er vikublað og út- breiddasta stúdentablað Póllands. Sagt er, að hörð gagnrýnj blaðs- ins á stalinismanum hafi átt rik- an þátt i að ryðja veginn að valdastólnum fyrir Gómúlka aðal ritara kommúnistaflokksins. Til- skipunin um að stöðva útgáfu blaðsins kom samkvæmt áreið- anlegum heimildum frá mið- stjórn pólska kommúnistaflokks- ins. Stúdentarnir tóku þetta sem árás á prentfrelsið í landinu og boðuðu til mótmælafundar á stúd entaheimili við Nakut.... icza- torgið. Þegar stúdentarnir komu á staðinn var funda... inn læstur, sennilega samkvæmt skip un frá rektori Varsjár-há...óla. Smám saman f jölgaði stúdentun- um á torginu fyrir utan stúdenta heimilið, og um sjöleytið aöfðu safnazt þar um 2000 stúdemar. Þá komu herflutningabílar hlaðnir lögregluþjónum á vettvang. Voru þeir klæddir stálhjálmum. Jafn- skjótt kom til átaka, og gnpu þá lögreglumennirnir til táragassins til að dreifa stúdentunum. Eisenhower: Faubus veður reyk WASHINGTON, 3. okt. — Á fundi sínum við fréttamenn í dag sagðj Eisenhower Bandaríkjafor- seti, að fylkisstjórar í suður- fylkjum Bandaríkjanna væru enn að reyna að leysa vandamálið um brottför sambandshersins frá Little Rock. Hins vegar vildi for- setinn ekki ræða um það, hvaða orsakir gætu legið til þess. að Faubus fylkisstjóri í Arkansas Eisenhower forseti talar við fréttamenn vill ekki gefa þær yfirlýsingar, sem Eisenhower gerir að skilyrði fyrir heimköllun hersins frá Little Rock. „Faubus fylkisstjóri hefur á röngu að standa og gerir Little Rock og Arkansas-fylki bjarnargreiða með framferði sínu“ sagði forsetinn. Þetta var fyrsti fundur forset- ans við fréttamenn síðan de.il- urnar í Arkansas hófust. Hann kvaðst ekki hafa ákveðið, til hvaða ráða hann gripi, eí deilan við Faubus heldur áfram. „Fylkis stjórarnir fjórir, sem áttu fund við mig á þriðjudaginn, urðu fyr- ir vonbrigðum, en þeir álíta ástandið ekki vonlaust og halda áfram sáttatilraunum sínum“, sagði Eisenhower. Ástandið í Sýrlandi betra Forsetinn ræddi einnig ástand- ið í Sýrlandj og kvaðst halda, að þar væri nú að komast á ro. Ótt- inn, sem írak, Líbanon, Jórdanía og Saudi-Arabía létu í ljós- vegna atburðanna í Sýrlandi, virðist nú horfinn, og stafar það sennilega af því, að þau hafa fengið nánari fregnir af ástandinu í nágranna- landinu. Hann kvað Badaríkin hafa leitazt við að sýna öllum ríkjum við austanvert Miðjarðar- haf vinfengi. Arabar kenna fsrael flesta erfiðleika sína, og í þeirri deilu reyna Bandaríkin að vera hlutlaus, sagði forsetinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.