Morgunblaðið - 04.10.1957, Síða 15
Föstudagur 4. okt. 1957
MORGUNBLAÐ1Ð
15
Jakobína Jóhannesdóttir
á Álafossi 60 ára
JAKOBÍNA Jóhannesdóttir er
fædd 4. október 1897 á Húsavík.
Foreldrar hennar og fjögurra
annarra systkina voru Jóhanna
Elíasdóttir og Jóhannes Jóhannes
son skipstjóri á Húsavík. Jakob-
ína kom að Álafossi 14. maí, 1921
og hefur því verið rúm 36 ár
í þjónustu Álafossverksmiðjunn-
ar. Störf Jakobínu hjá Álafoss-
verksmiðjunni hafa verið mjög
fjölbreytt og má segja að Jakob-
ína hafi unnið við flestar þær
vélar og flest þau störf, sem kon-
um er falið að gera. Þegar at-
vinnuveitandi gleðst með einum
af sínum starfsmönnum á slíkum
tímamótum, sem 60 ára aldurs-
afmæli og 36 ára starfsafmæli,
þá er helzt að minnast samstarfs-
ins allan þennan tíma, góðæra
og þrenginga, því að þá má með
sanni segja, að það fólk, sem hef-
ur starfað við íslenzkan iðnað á
4 tug ára eða lengur, hefur unn-
ið til þess, að að því sé hlúð og
þeirra.starf metið að verðleikum.
íslenzkur iðnaður er ungur að
árum, en hann á þó styrkar stoð-
ir, sem hægt er að treysta á í
Stuika óskast
nú þegar í eldhús Bæjarspítalans í Heilsuverndar-
stöðinni. — Uppl. hjá ráðskonunni, sími 22414.
einu og öllu, en það er fólkið,
sem kann verkin og trúir á fyrir-
tækin, sem það starfar við. Ála-
foss á því láni að fagna að hafa
haft í sinni þjónustu margt úr-
valsfólk og á vel við í því sam-
bandi, að minnast á verzlunar-
stjórann Sigurjón Sigurðsson,
sem heiur verið 40 ár hjá Ála-
fossi og Guðrúnu Andrésd. og
Egil Sigurðsson sem hafa bæði
verið á 4 tug ára á Álafossi.
Klæðaverksmiðjan Álafoss fær
aldrei fullþakkað þessu ágætis-
fólki fyrir starf þess og trú-
mennsku og vill hér með um
leið og Jakobínu er árnað heilla
með sextugsafmælið, þakka þeim
öllum fyrir giftudrjúgt og ánægju
legt samstarf öll þessi ár og árna
þeim öllum heilla um ókomin ár.
Ásbjörn Sigurjónsson.
Rafvirkjar
Nokkrir rafvirkjar óskast strax. Tilboð sendist MbL
fyrir 10. október merkt: „Rafvirkji — 6847“.
I Sveinspröf í húsasmíði
Þeir húsasmíðameistarar, sem óska eftir að koma nem-
endum í sveinspróf á þessu hausti, sendi umsóknir á
skrifstofu Landssambands iðnaðarmanna, Laufásvegi 8,
fyrir 12. þ. m. Prófnefndin.
Innanhússmálnmg
og lökk
Allir litir lagaðir
Bankastræti 7 — Sími 22135
Laugavegi 62 — Sími 13858
Saumastúlkur
Stúlkur vanar saumaskap óskast nú þegar.
Verksmiðjan Otur hf.
Spítalastíg 10
ÍbúB
Til sölu 6 herbergja glæsileg fokheld íbúð við Sólheima.
íbúðin er á 1 hæð með sér inngangi. Sér þvottahús er
á hæðinni.
Málflutningsskrifstofa Vagns E. Jónssonar
Austurstræti 9 — Sími 14400
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa í mjólkurbúð. — Uppl. í kvöld
milli kl. 6 og 7.
VALBÚÐ, Úthlíð 16, sími 18817
Tvœr stúlkur
geta fengið atvinnu nú þegar. — Uppl. í
verksmiðjunni (ekki í síma).
*
Vinnufatagerð Islands
Þverholt 17
Stúlkur
Getum bætt við stúlkum í verksmiðjuna
IVIathorg hf.
Lindargötu 46