Morgunblaðið - 02.11.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.11.1957, Blaðsíða 2
3 MORGVNBLAÐ1Ð Laugardagur 2. nðv. 1957 Fyrslu lög þessa þings afgreidd í gær Eru um skafffrelsi vinninga í símahappdrættinu FUNDIR voru á Alþingi í gær. í efri deild var atkvæðagreiðslu um frumv. um aðflutningsgjöld af jarðborum frestað vegna for- falla þingdeildarmanna. Afgreitt var til neðri deildar frumv. um áframhaldandi álög á tolla. Frumv. Alfreðs Gíslasonar um að frímerki límd á pósteyðublöð skuli verða eign viðtakenda var til 1. umr. Eftir ræðu flutnings- manns fór frumv. til 2. umr. og samgöngumálanefndar í neðri deild var frumv. um skattfrelsi vinninga i símahapp- drætti lamaðra og fatlaðra tekið fyrir á 3 fundum og afgreitt sem lög. Eru það fyrstu iögin, sem þetta Alþingi gengur frá. í>á var tekið til 1. umr. laga- frumvarp um staðfestingu á bráðabirgðalögum þeim, er sett voru 26. sept. s.1. um að yfir- Handíða- og mynd- listaskólanum lokað KENNSLA fellur niður í Hand- íða- og myndlistaskólanum í dag og næstu daga vegna inflúenz- unnar. Inflúenzan skæð á Selfossi SELFOSSI, 1. nóv. — Mikil brögð eru nú að inflúenzunni hér á Selfossi og raunar víðar í nær- liggjandi sveitum. Mikið af fólki vantar á vinnustaði og einnig hafa verið talsverð veikindi í skólum. Skólum hér hefur þó ekki verið lokað ennþá vegna veikinnar. Talið er að veikin sé nú á hástigi hér. Hún hefur ekki lagzt þungt á fólk yfirleitt, að- eins i einstaka tilfellum. —Guðmundur. Einn bátur sfundar ýsuveiðar irá Þor- lákshöfn SELFOSSI, 1. nóv. — Aðeins einn bátur stundar nú sjó frá Þor- lákshöfn með línu. Er það heima- bátur. Afli hefur verið allgóður, aðallega ýsa og fer báturinn ekki langt á mið. Frá Stokkseyri hefur ekkert verið róið í langan tíma, enda stöðug brim um þetta leyti. Frá Eyrarbakka hefur einn trillubát- ur róið tvisvar eða þrisvar í síð- asta mánuði, eða þegar hann hef- ur komizt fram, vegna brims. Hefur hann fengið dágóðan afla þegar hefur gefið. —Guðmundur. skattanefndir og ríkisskatta- nefnd megi breyta útsvörum, ef þær telja þau a.m.k. 3% of há eða lág ( í stað 10% áður). Hannibal Valdimarsson fylgdi frumvarp- inu úr hlaði, en síðan urðu u n það nokkrar umræður milli hans og Ólafs Björnssonar. Taldi Ólafur eftirtektarvert, að breyt- ingarheimildin væri nú miðuð við 3%, en stjórnarliðið hefði einmitt í haust klifað á því, að útsvör í Reykjavík væru 3,7% of há. Mætti því ætla, að ráðherrann hefði nú í hyggju að fá ríkis- skattanefnd vald til að breyta skattstigum sveitarfélaga í stað þess að leiðrétta aðeins misræmí milli einstaklinga eins og hingað til. Myndi þetta geta gerbreytt fjárhagslegri aðstöðu sveitarfé- laganna á landinu. Félagsmálaráð herra taldi þetta ekki tilgang laganna. í gær var lýst á Alþingi þeim 2 þingskjölum, sem útbýtt var í fyrrad. Er annað um rannsóknir varðandi efnaiðnaðarverksmiðju í Hveragerði (þingsályktunartill. flutt af þingmönnum Arnesinga). Hitt er lagfrumv. flutt af land- búnaðarnefnd efri deildar um að forðagæzlumenn skuli kosair af sveitarstjórnum í upphafi hvers kjörtímabils. 120.000 rússneskir her- menn í Ungverjalandi BERLÍN, 1. nóv. — Kiraly hers- höfðingi, ein af frelsishetjunum frá Búdapest, dvelst um þessar mundir i Berlín. I dag var hann spurður um ástandið í Ungverja- landi og sagði hann, að það færi síversnandi. Nú væru 100 þús. rússneskir hermenn í landinu og a. m. k. 20 þús. öryggislögreglu- menn og svaraði það til þess, að 1 Rússi gætti 100 Ungverja. Gætu allir menn séð, að Ungverjar mættu sig ekki hræra án þess tekið væri eftir því. Auk þess væri öflugt lið ungverskra ör- yggislögreglumanna Rauða hern- um til aðstoðar.—Þá sagði Kirlay loks, að Rússar hefðu komið upp öftaigum eldflaugnastöðvum í Ungverjalandi. Stavangerfjord OSLO, 1. nóv. — Hafskipið Stavangerfjord, sem er á leið til New York lenti í ofviðri í gær- kvöldi fyrir utan Skotlands- strönd. Þar voru miklir sjóar og ofsarok. Ekkert hafði heyrzt til skipsins í gærkvöldi, en álitið er, að» radió-sambandið hafi slitnað vegna trnflana. Skókmótið í Hollondi Frá 2. umferS • í ANNARI umferð tefldi Friðrik Ólafsson með hvítu gegn Teschn- er frá Vestur-Þýzkalandi. Byrjun in, Sikileyjarvörn var hin sama fram í 11. leik og í skák Donners og Orbaan í 1. umferð, en fram- haldið tefldi Teschner betur en Orbaan og var staðan jöfn lengi vel. Smátt og smátt hnikaði þó Friðrik stöðunni sér í hag með laglegri liðsskipan og vann síðan peð með óvæntri biskupsfórn. í tapaðri stöðu tapaði Teschner síð- an á tíma, eftir fallega teflda skák frá Friðriks hendi. — Lars- en hafði betur gegn Ivkov, sem þó tókst áð halda jafntefli þrátt fyrir mikið tímahrak. Szabo tefldi vel gegn Clarke, sem lenti í mikl- um erfiðleikum í tímahraki og tapaði. Alster lék hollenzka vörn gegn Orbaan, sem lék mjög hæg- i fara og brauzt Alster í gegn á j b-línunni og sigraði á þeim stöðu I yfirburðum. Diickstein hafði I svart og vann Lindblom með (kóngsárás. Jafnteflisskákir Niep- haus — Stáhlbergs (frönsk vörn) og Troianescu — Trifunovic (venjulegt drottningarbragð) voru talsvert spennandi þótt jafn- vægi raskaðist ekki endanlega. Sama má segja um jafntefli Kol- arovs og Hanninen (drottningar- indversk vörn) Donner lék af sér skiptamun gegn Uhlmann, sem átti nokkru betri stöðu og tapaði biðskákinni. GEæpahöiöintfinn Mnasiasia myrtur EINN voldugasti glæpahöfðingi New Yorkborgar, Umberto (Al- bert) Anastasia, var skotinn til bana föstudaginn 25. okt. Kl. 7 að morgni þess dags hafði hann ekið í bifreið sinni frá stórhýsi sínu í Fort Lee í New Jersey til eftirlætisrakarastofunnar sinnar í Park Sheratongistihúsinu á Man- hattan. „Klipping“, sagði hann við rakarann. Skömmu síðar stikuðu tveir þreknir menn inn í rakarastof- una. Höfðu þeir bundið fyrir and lit sér. Umsvifalaust skutu þeir á Anastasia, sem lézt þegar. Lögreglan hefur hafið umfangs miklar rannsóknir í morðmáli þessu og þegar handtekið einka- bílstjóra glæpahöfðingjans. ★ Höfðingjar undirheimanna í New York skulfu, er nafn Ana- stasia var nefnt. Hann hafði verið handtekinn fimm sinnum fyrir morð, en alltaf sloppið við refs- ingu, þar sem ekki voru nægar sannanir fyrir sekt hans. Sagt er, að hann hafi orðið 30 mönnum að bana með eigin hendi. Hann sat í stjórn félagsins Morð hf., sem óð uppi á árunum 1930—40, og var stofnað til að gæta hagsmuna glæpahöfðingja Þjórsárdalsmynd eftir Ásgrím á 18209 kr. SIGURÐUR Benediktsson hélt uppboð í gær og seldi 39 málverk og nokkra aðra listmuni. Hæsta boð var í málverk úr Þjórsárdal eftir Ásgrím Jónsson (málað 1921). Seldist það á kr. 18.200,00. Vatnslitamynd úr Borg arfirði eftir Ásgrím (máluð 1918) seldist á 10.600,00 kr. Smámynd frá Þingvöllum eftir Kjarval var slegin fyrir 6000 kr., gömul mynd eftir Gunnlaug Blöndal á 5600 kr., málverk eftir Kristínu Jóns- dóttur á 3800 kr. og 5 myndir eftir Þórarin B. Þorláksson fóru á um 4000 kr. hver. Þá var seldur göngustafur Jóns Þorkelssonar, þjóðskjalavarðar. Voru boðnar í hann 2400 kr. Aðfarir Olíutélagsins á Akranesi AKRANESI, 1. nóv. — Eftir að síldin gekk í Hvalfjörð um árið, lét Síldar- og fiskimjölsverk- smiðja Akraness byggja jþúðar- stóran lýsisgeymi, sem rúmað gat 2700 lestir og stóð geymir- inn upp við Akurstún. Árið 1955 seldi svo verksmiðjan þennan geymi olíufélaginu Esso h.f. í Reykjavík, og ætlar félagið að nota hann undir hráolíu til skipa. Vegna ákvarðana brunaeftirlits- ins þurfti olíufélagið að flytja geyminn til. Gáfu eigendur Akurs og Teigakots, sem landið eiga þarna, leyfi til flutningsins. Hefur Jóhann Gunnar Stefáns- son verið meðalgöngumaður milli þeirra og olíufélagsins um þessi mál. Var svo byggður nýr þess tíma. Sjö stjórnarmeðlimir, - _ . . enduðu ævi sína í rafmagnsstóln- i grrmnur ne ar og aus ar í g um, nokkrir voru handteknir, enjvor 1 su“ar’ ®eyrri,lrinn S1, an alltaf slapp Anastasia. Það voru'fluttur a hanu °S tokst pryðx- starfsbræður hans, sem gerðu að ’ leSa- >egar undan er tekið leyfi lokum upp sakirnar við hann. ★ Tilgátur eru uppi um, að yngri kynslóðin í undirheimum New Yoikborgar vilji ná völdunum í sinar hendur og koma gömlu til flutningsins er þetta stóra og sterka olíufélag, sem er dóttur- félag SÍS, algjörlega réttlaust með geyminn þarna, því að það hefur enn hvorki gert leigusamn- ing, eins og lofað var, né keypt höfuðpaurunum fyrir kattarnef. i landið. —Oddur. Alykfanir l&nþingsins: Iðnlánasjóður - Iðnaðarbankinn Innflutningur efnisvara HÉR fara á eftir 3 af ályktunum þeim, sem gerðar voru á Iðnþingi íslendinga á fundí þess í fyrra- dag: Iðnlánasjóffur 19. Iðnþing íslendingá þakkar Alþingi og ríkisstjórn fyrir þá aukningu er veitt var á fjárlög- um 1956 og 1957 að upþhæð 1000.000.00 kr. til Iðnlánasjóðs. En þar sem mjög skortir á að að- gangur sé að nokkurri lánastofn- un sem veitir lán til iðnaðarhús- næðis skorar iðnþingið á Alþingi og ríkisstjórn að hlutast til um að Iðnlánasjóður verði efldur svo að hann geti veitt svipaða fyrir- greiðslu til iðnaðarhúsnæðis og Fiskveiðisjóður gerir þegar um er að ræða húsnæði vegna sjáv- arútvegs. Iffnaffarbankinn 19. Iðnþing Islendinga haldið í Hafnarfirði dagana 29. okt. til 2. nóv. 1957 samþykkir að ítreka óskir fyrri þinga til ríkisstjórn- arinnar um að útvega hið fyrsta lán það, 15 millj. króna, sem Al- þingi heimilaði ríkisstjórninni 1953 að taka vegna Iðnaðarbanka Islands, en sem ekki hefur enn fengizt. — Vill Iðnþingið benda á, að stofnanir sem á sama tíma fengu hliðstæðar heimildir, hafa íengið hin umtöluðu lán og fram- lög og jafnvel meira, en Iðnaðar- bankinn ekki fengið neitt. Verð- ur varla við slíkt misrétti unað og væntir Iðnþingið að úr þessu verði bætt nú á þessu ári. Innflutningur efnisvara 19. Iðnþing íslendinga ályktar að skora á ríkisstjórnina og inn- flutningsyfirvöldin að sjá svo um að jafnan verði veitt í tæka tið nauðsynleg innflutningsleyfi fyr- ir erlendri efnisvöru til iðnaðar. Iðnþingið vill í þessu sambandi leggja áherzlu á, að afkastageta íslenzka iðnaðarins verði fullnýtt, til þess að auka atvinnujafnvægi og spara dýrmætan gjaldeyri. Jafnframt skorar þingið á rík- isstjórnina að gæta þess, að öll þau vandamál þjóðarinnar, er iðnaðinn varða, verði leyst I fullu samráði við heildarsamtök iðnaðarins. Leikarar í söluferð NÚ líður senn að því að dregið verði um það hvaða lukkuseðlar Leikfélags Reykjavíkur hljóta vinningana, en vinningar eru Fiat-fólksbifreið og ferðir með skipum og flugvélum milli landa. 1 dag og á morgun fara leik- arar um allan bæ klæddir ýms- um leikgervum og bjóða miða sína til sölu. Má búast við að margir hafi gaman af að sjá það skrautbúna fólk, og leikararnir vonast til þess að margir verði til að fá sér lukkuseðil, því með því vinna þeir m. a. að því að Leikfélagið fái nýtt og betra hús- næði. SELFOSSI, 1. nóv. — í ótíðar- kaflanum sem gerði um síðast- liðna helgi, gerði jarðbönn víða og álls staðar í uppsveitum. Flest- ir bændur urðu þá að taka fé á gjöf. Nú hefur snjó tekið upp aftur og sæmileg beit komin. Eru flestir farnir að beita fénu aftur. —Guðmundur. AKRANESI, 1. nóv. — Búið er nú að loka sundlauginni hér, Bjarnarlaug, fyrir börnum, vegna inflúenzunnar. Unglingaskóla- nemendur fá ennþá aðgang að lauginni, en þar mun veikin ekki vera eins mögnuð og meðal yngri barnanna. Bamaskólinn starfar þó ennþá. —Oddur. Oþefurinn frá yerksmiðjunni á Kletti Á BÆJAR'STJÓRNARFLNDI á fimmtudag var rætt um ráðstaf- anir til að eyða óþef frá fiski- mjölsverksmiðjunni á Kletti í Reykjavík. Dr. Sigurður Sigurðsson flutti ræðu um málið., og sagði m. a., að ekki yrði lengur við það unað, að óþef frá verk-aniðjunni legði yfir íbúðahverfin í bænum. Han ; kvaðst hins veg^r ekki geta fall- izt á tillögu Guðmundar bæjar- fulltrúa Vigfú-sonar, sem fram ko. á fundi bæjarstjórnar í októ berbyrjun. Er hún þess efnis, að heilbrigðisnefr.d og borgurlæknir geri ráðstafanir á kostnað verk- smiðj . hann á, aö ár- angur af ráðstöfunum á þessu sviði væri óviss og ekki rétt, að bærinn skapaði sér skaðabóta- skyldu, sem til _ -. komið, -f starfsmenn hans stæðu að ráð- stöfunum, er yrðu á-_ugurslaus- ar. Lagði dr. álgurður til, að önn- ur leið yrði farin. Lagði hann fram tillögu í málinu, sem var samþykkt samhljóða, eftir að Guðmundur Vigfússon hafði iýst sig samþykkan henni: „Bæjars.Jl- telur eigi fært að framlengja lóðarleigusamnmg við Síldar- og fiskimjölsverksmiðj- una á Kletti nc verksmiðjan framkvæi . áður, að dómi heil- brigðisnefndar, fullnægjandi ráð stafani. á óþer þeira. er frá verksmiðjunni leggur yfir íbúðahverfi Læjarins. Samþykkir bæjarstjórn að veita verksmiðjunni 6 mánaða frest til fullnaðarframkvæmda á verkinu. Hali því þá eigi venð lokið, fellur samningurinn úr gildi." SPAAK: Of mikið lagt upp úr máli Zhukovs SAN FRANCISCO, 1. nóv. — Aðalritari Atlantshafsbandalagsins, Paul Henri Spaak, telur, að of mikið hafi verið lagt upp úr því, að Zhukov marskálki hefur verið vikið úr embætti varnarmálaráð- herra Ráðstjórnarríkjanna. A blaðamannafundi í San Francisco í gær komst Spaak svo að orði: „Við gefum óþarflega mikinn gaum að þessu. Krúsjeff er sama sinnis og Stalín, Gromy- ko sama sinnis og Molotov. Komi annar hershöfðingi í stað Zhu- kovs sem varnarmálaráðherra, er ekki um neina breytingu að ræða frá okkar sjónarmiði...... Utanríkisstefna Ráðstjórnarríkj- anna er eftir sem áður á sömu línunni". ★ Spaak gaf til kynna, að hann teldi ástandið í Sýrlandi hættu- legra. „Það er vissulega ekki álitlegt að sjá Rússa verða sér Úti um herstöð fyrir botni Mið- jarðarhafs", sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.