Morgunblaðið - 23.11.1957, Page 2
2
toORCl'lSBLAÐlÐ
Laugardagur 23. nðv. 1957
Frá aðalfundi L.Í.Ú.
EINS og skýrt var frá í fréttum
í gær, hófst aðalfundur Lands-
sambands ísl. útvegsmanna hér í
bænum kl. 2 í fyrradag (fimmtu-
dag), en hann sitja um 60 full-
trúar auk stjórnar og fram-
kvæmdastjóra.
í fyrrakvöld var kvöldfundur
og stóð hann til miðnættis. Voru
þar lagðar fram nokkrar tillögur,
sem nánar verður skýrt frá síð-
ar. Var þeim að nokkrum um-
ræðum loknum, vísað til nefnda.
Helzta umræðuefnið á kvöld-
fundinum var það mikla vanda-
mál í sjávarútveginum, sem er í
því fólgið, að sífellt gerist nú
torveldara að manna fiskiskipa-
flotann innlendum mönnum, eink
anlega á vetrarvertíðum. Er nán-
ar um það rætt á öðrum stað í
blaðinu.
í gær var fundinum framhaldið
kL 2 síðd., en nefndir sátu að
störfum fram að hádegi. Hófst
hann með því, að Lúðvík Jósefs-
son, sjávarútvegsmálaráðherra
ávarpaði fundinn, og er ræðu
hans getið annars staðar í blað-
inu.
Fundarstjóri, Jón Árnason, og
formaður L.Í.Ú., Sverrir Júlíus-
son þökkuðu ráðherra komu hans
á fundinn og ræðu hans.
Að lokinni ræðu ráðherrans og
kaffihléi, lagði Finnbogi Guð-
mundsson, formaður verðlags-
ráðs, fram skýrslu ráðsins. Fjall-
aði hún aðallega um afkomu-
horfur fiskiskipanna á næsta ári.
Hefir verðlagsráðið gert áætlanir
um rekstrarkostnað og tekjuþörf
skipanna. Byggist hún á víðtæk-
um athugunum, sem ráðið hefir
gert um tilkostnað undanfarinna
ára, aflabrögð og verðlagsþróun-
ina á þessu ári. Skýrsla þessi
mun verða eitt aðalumræðuefni
fundarins og grundvöllur fyrir
viðræðum við ríkisstjórnina um
afko'mu og kjör sjávarútvegsins
á næsta ári.
í>á flutti Ingvar Vilhjálmsson
formaður stjórnar innkaupadeild
ar L.Í.Ú., skýrslu um starfsemi
Leynimelur 13
í Kópavogi
í KVÖLD klukkan átta frumsýn-
ir Leikfélag Kópavogs gamanleik
inn Leynimel 13 í barnaskólanum
á Digraneshálsi. Leikstjóri er
Sigurður Scheving.
Tvær sýningar verða á sunnu-
dag kl. 4 og 8,30.
ENN var fram haldið í gær rann-
sókn í máli skipstjórans á brezka
togaranum Loch frá Hull.
í gær beindist rannsóknin að
radartækjum flugbátsins og tog-
arans, sem einnig er með radar.
Voru dómkvaddir sérfræðingar
kvaddir til og höfðu þeir í gær
kvöldi ekki gert réttinum grein
fyrir niðurstöðum sínum.
deildarinnar á sl. ári. En eins og
kunnugt er, annast deildin veiðar
færainnflutning. Starfsemi henn-
ar er mjög umfangsmikil og hefir
stuðlað mjög að hóflegu verði
veiðarfæra til fiskiskipaflotans.
Framkvæmdastjóri hennar er
Sigurður H. Egilsson, jafnframt
því, sem hann er framkvæmda-
stjóri L.Í.Ú. Að lokinni yfirlits-
skýrslu Ingvars Vilhjálmssonar,
las Sigurður upp reikninga inn-
kaupadeildar og Landssambands-
ins og skýrði þá í einstökum at-
riðum. Var þeim hvorumtveggja
síðan vísað til fjárhagsnefndar til
athugunar.
í fréttum á morgun mun blað-
ið skýra nánar frá störfum fund-
arins.
Búizt er við, að fundinum ljúki
ekki fyrr en á sunnudag. Mun
hann hefjast kl. 10 f.h. í dag og
verður þá fjallað um nefndarálit
og afgreiðslu þeirra lokið.
Fundinum mun ljúka með kosn
ingu sambandsstjórnar, verðlags
ráðs og stjórnar innkaupadeildar.
Loks skal þess getið, að tvær
slæmar villur slæddust inn í setn-
ingarræðu Sverris Júlíussonar,
form. L.Í.Ú., sem birt var hér í
blaðinu í gær.
Fyrst var um að ræða samlagn-
ingarskekkju í töflu um greiðslur
Útflutningssjóðs á þessu ári.
Heildargreiðslurnar til 19. þ.m.
hafa numið kr. 242.709.130,32, en
ekki kr. 239. 709.130,32, eins og
í blaðinu segir, þar af v/Fram-
leiðslusjóðs um kr. 20 millj.
Einnig hafði niður fallið lína og
önnur verið tvítekin í yfirliti um
greiðslur á B skírteinum framl.
1955 og 1956, og verður hún því
[ birt hér að nýju. Er hún rétt svo-
! hljóðandi:
Þekktor þýzkur liljómsveitarstjóri
stjórnar Sinfóníuhljómsveit Islands
Sinfóníufónleikar verða haldnir n.k. þriðjudag
Framl. 1955 Framl. 1956 Samtals
Kr. Kr. Kr.
4/2 ’57 v/Framl.sj. 7.041.608.55 7.041.608.55
21/2 ’57 1.761.460.30 1.761.460.30
23/2 ’57 - 754.737.84 754.737.84
13/3 ’57 438.361.10 2.201.919.54 2.640.280.64
3/5 ’57 880.400.00 880.400.00
24/7 ’57 4.131.278.80 13.476.320.05 17.607.598.85
22/10 ’57 2.200.145.16 2.200.145.16
13/11 ’57 1.320.307.20 1.320.307.20
15/11 '57 422.178.55 8.380.770.42 8.802.948.97
18/11 ’57 5.282.101.80 5.282.101.80
14.675.287.30 33.616.302.01 48.291.589.31
Síbelíus-tónleikar í
háskólanum á morgun
UNDANFARNA vetur hefir einn
sunnudag í hverjum mánuði ver-
ið flutt opinber tónlist í hátíða-
sal háskólans af hljómplötutækj-
um þeim, sem bandaríski fiðlu-
leikarinn Isaac Stern gaf skólan-
um, og hafa þá tónlistarfróðir
menn skýrt verkin. Hefur þessu
verið vel tekið, bæði af stúdent-
um og bæjarbúum, og er ætlun-
in að halda því áfram. Einnig
hefur sá góði stofn að hljóplötu-
safni, er Isaac Stern gaf upphaf-
lega verið aukinn verulega með
fjárveitingum háskólaráðs og
ágætri fyrirgreiðslu menntamála-
ráðneytisins. Hljómplötudeild
Fálkans hefur veitt ríflegan af-
slátt á plötum og gjafir borizt
til safnsins, aðallega frá banda-
ríska sendiráðinu. Öllum þessum
aðilum kann háskólinn beztu
þakkir.
Á morgun (sunnudag) kl. 5 e.
h. stundvíslega hefst tónlistar-
kynningin, sem helguð er einu
mesta tónskáldi Norðurlanda og
einu mesta sinfóníutónskáldi
þessarar aldar, Síbelíusi, er lézt
20. september í haust, 91 árs að
aldri. Flutt verða eftir hann þessi
verk: Söngur Aþenubúa, sunginn
af drengjakór, og Finnlandia,
leikin af Sinfóníusveit Lundúna,
undir stjórn dr. Malcolms Sar-
gents, en bæði þessi verk hafa
Mennfaskóli s Skálholti
BJARNI BENEDIKTSSON og Sigurður Óli Ólafsson flytja svo-
hljóðandi tillögu til þingsályktunar:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að athuga, hvern
kostnað muni leiða af þvi að flytja menntaskólann á Laugarvatni
að Skálholti, og skýra Alþingi frá árangri athugunarinnar."
Í greinargerð segja flutnings-
menn:
Samhljóða tillaga var flutt á
síðasta Alþingi, en varð þá ekki
útrædd. Hver sera niðurstaða
þeirra rannsókna, sem hér er
gerð tillaga um, kann að verða,
geta menn vonandi fallizt á, að
rétt sé, að málið verið rannsak-
að. í því skyni er málið flutt nú
að nýju, og nægir að öðru leyti
að vísa til greinargerðar till. á
síðasta þingi, en hún hljóðaði
svo:
„Menntaskólinn á Laugarvatni
hefur að ýmsu leyti reynzt þar
iila settur. Húsakynni eru ó-
hentug og erfitt úr að bæta nema
með gífurlegum kostnaði. Sam-
býli skólanna á Laugarvatni hef-
ur og ekki að öllu leyti verið
heppilegt. Þann húsakost, sem nú
er ætlaður menntaskólanum, má
vafalítið jafnvel nýta fyrir aðra
skóla á Laugarvatni, sem ella
þarf að byggja yfir.
í Skálholti mundi aftur á móti
unnt að byggja upp skólasetur
eingöngu með þarfir mennta-
skólans fyrir augum. Þar mundi
skólinn eiga hlut að því að tengja
samtíð og framtíð fortíð þjóðar
innar og verða ungum mönnum j
mjög æskilegur dvalarstaður". i
með áhrifamagni sínu haft mikið
sögulegt gildi fyrir Finnland;
Svanurinn frá Túónela, eitt af feg
urstu verkum tónskáldsins og eitt
þeirra, er hann óskaði að flutt
yrði við útför sína; Hljómsveit
danska útvarpsins flytur. Thom-
as Jensen stjórnar. Loks verða
leiknir þættir úr 2. sinfóníu
Síbelíusar af Sinfóníuhljómsveit
Lundúna undir stjórn Antonys
Collins. Þessi sinfónía er einkar
aðgengileg, víða einföld og þjóð-
lagakennd og þó stórfengleg. Hef-
ur hún verið flutt nokkrum sinn-
um af Sinfóníuhljómsveit ís-
lands.
Dr. Páll ísólfsson mun flytja
inngangsorð um tónskáldið og
skýra frá verkum þeim, sem leik-
in verða. — Aðgangur er ókeypis
dnllur
Plöfukynning
Fréttamenn áttu í gær viðtal við
Jón Þórarinsson, framkvæmda-
stjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar
og Wilhelm Schleuning, ríkis-
hljómsveitarstjóra frá Dresden í
Þýzkalandi. Schleuning er hér
gestur Sinfóníuhljómsveitar-
innar, og mun stjórna hér tveim-
ur almennum tónleikum og ein-
um barnatónleikum.
Fyrstu tónleikarnir verða þriðju
daginn 26. nóv. kl. 8,30 í Þjóð-
leikhúsinu. Efnisskráin er viða-
mikil en aðgengileg, sagði Jón
Þórarinsson. Einsöngvari með
hljómsveitinni er Guðrún Á. Sím-
onar. Hún syngur þrjá aríur úr
Brúðkaupi Figaros", eftir Moz-
art. Á efnisskránni er einnig for-
leikur að óperunni „Der Frei-
schútz, og Sinfónía nr. 9 í c-dúr
eftir Schubert.
Barnatónleikarnir.
Barnatónleikarnir verða haldn-
ir föstudaginn 28. nóvember. Eru
þeir ætlaðir fyrir skólabörn og
fara fram í Þjóðleikhúsinu kl. 6
síðdegis. Schleuning stjórnar
þeim einnig. Á þeirri efnisskrá er
„Lítið næturljóð“ eftir Mozart,
og „Pétur og úlfurinn“, ævintýra
saga eftir Prokofief. Þorsteinn
Hannesson, óperusöngvari segir
söguna. Þetta verk, „Pétur og
úlfurinn", hefur verið flutt hér
áður, en það á miklum vinsæld-
um að fagna um allan heim.
Nýtt íslenzkt tónverk.
Þriðju tónleikarnir verða
haldnir 10. desember. Yerður þar
flutt nýtt íslenzkt tónverk, píanó-
konsert eftir Jón Nordal, sem
aldrei hefur verið flutt áður.
Höfundurinn leikur sjálfur ein-
leik á píanó. Þessum tónleikum
stjórnar Schleuning einnig. Lýk-
ur hann miklu lofsorði á
þetta verk Nordals og kveður
það bera vitni um þekkingu og
leikni höfundarins. Hann segir
verkið nýtízkulegt og vill gjarn-
an flytja það í Þýzkalandi. Verk
þetta skrifaði Jón Nordal í Róm
og hefur verið að vinna að því
allt fram að þessu.
Wilhelm Schleuning hefur
komið hér áður. í fyrra kom hann
hingað og stjórnaði þá tónleik-
um í Reykjavík og Yestmanna-
eyjum. Meðal annars stjórnaði
hann hinum fyrstu útitónleikum
Sinfóníuhljómsveitarinnar, sem
haldnir voru á Austurvelli 17.
júní sl. Schleuning er mjög vel
þekktur í Þýzkalandi. Hann er
ríkishljómsveitarstjóri í Dresden.
Hann starfaði lengi við ríkisóper-
una í Berlín og m. a. var hann
fyrsti ríkisóperustjóri í Hamborg
um langt skeið. Hann hefur enn
fremur mjög víða komið fram
sem hljómsveitarstjóri í Þýzka-
landi og víðar, og er hvarvetna
lokið á hann miklu lofsQrði.
Schleuning telur að Sinfóníu-
hljómsveitinni hafi farið fram síð
an í fyrra, sérstaklega hafi blás-
ararnir tekið sig á. Hann kom
hingað sl. sunnudag og mun.
halda heimleiðis skömmu eftir
síðustu tónleikana 10. desember.
Jón Þórarinsson kvað Schleun-
Wilhelm Schleuning
ing hafa unnið mikið heillaríkt
og gott starf fyrir Sinfóníuhljóm-
sveitina er hann var hér fyrir ári.
Jón Þórarinsson sagði, að tón-
leikahald hljómsveitarinnar í
haust og það sem af er vetri hefði
gengið stirðlega, vegna inflúenzu
faraldursins. Hefðu menn í hljóm
sveitinni forfallazt sitt á hvað.
Aflýsa varð tónleikum sem búið
var að auglýsa 29. október sl.,
af þessum sökum. Hann gat þess,
að þeir aðgöngumiðar, sem seldir
hefðu verið á þá tónleika, fengj-
ust nú endurgreiddir og einnig
væri hægt að fá þeim skipt fyrir
aðgöngumiða að þessum tónleik-
um.
KL. 6—7 í dag verður plötukynn-
ing á vegum Heimdallar í Val-
höll.
Þessi verk verða leikin:
Hornkonsert no. 1 eftir Mozart
(Denis Brain og Karajan)
Sónata no. 23 (Apassionata)
eftir Beethoven (Walter Giese-
king).
La Traviata eftir Verdi (kon-
sertversion).
Afmælis minnzt
í TILEFNI af því, að í gær voru
liðin 50 ár frá því að skógræktar
lögin voru staðfest, svo og lögin
um sandgræðslu, hafði Hermann
Jónasson forsætis- og landbún-
aðarráðherra, síðdegisboð í Ráð-
herrabústaðnum fyrir ýmsa af
forustumönnum skógræktar og
sandgræðslu, starfsmenn Skóg-
ræktar ríkisins og nokkra gesti
aðra.
Ráðherra ávarpaði gesti og
minntist stuttlega þess áfanga
Sem náðst hefði og hve mikil-
vægt það væri þjóðinni að áfram
yrði haldið á sömu braut og nýj-
um stærri áföngum náð.
Guðmundur Marteinsson verk-
fræðingur, formaður Skógræktar
fél. Reykjavíkur stjórnaði al-
mennum söng veizlugesta, en
sungin voru ættjarðarljóð. Meðal
gesta voru sendiherrar Danmerk-
ur og Noregs.
RANGÆINGAFÉLAGIÐ
í Reykjavík heldur skemmtifund
í Skátaheimilinu í kvöld kl. 8,30.
Frá Sjálfstœðistélögunum á Akranesi:
Fundur um bæJarmáB Akraness
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi efna til almenns fundar um bæj-
armálin sunnudaginn 24. nóvember kl. 4 e.h. á Hótel Akranesi.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðismanna hafa framsögiu, en síðan eru frjáls-
ar umræður.
Aðalfundur Þórs
verður haldinn mánudaginn 25. nóvember kl. 8,30 á Hótel Akra-
nesi. Nýir félagar geta gengið í félagið á fundinum.
Spilakvóld
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi halda spilakvöld n.k. sunnudag
kl. 8,30 e.h. á Hótel Akranesi. Hefst þá 5 kvölda keppni, og er
nauðsynlegt að þátttakendur séu með frá upphafi. Auk þess eru
sérstök verðlaun veitt hvert kvöld. Allir eru velkomnir á spila-
kvöldið.