Morgunblaðið - 07.12.1957, Síða 2

Morgunblaðið - 07.12.1957, Síða 2
MORCVNBl 4 ÐIÐ Laugardagnr 7. des. 1957 Tveir þióðkannir menn tnko við nýjnm embættum I GÆR var tilkynnt opinberlega um skipan tveggja þjóðkunnra manna í opinber embætti, sem „slegið var upp“ á síðastliðnu hausti, prófessorsembætti við Há skólann og embætti þjóðskjala- varðar. Forseti íslands skipaði dr. Guðna Jónsson skólastjóra Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar, prófess- or í sögu við heimspekideild Há- skólans og skal hann taka við em bættinu hinn 1. janúar 1958. Guðni Jónsson er fyrir löngu orðinn þjóðkunnur maður fyrir ritstörf sín og fræðimennsku. Hann hefur m.a. verið ritstjóri ís- lendingasagnaútgáfunnar og unn- ið þar mikið starf og merkilegt. Meðal annarra ritstarfa hans má nefna útgáfu forn-islenzkrar lestrarbókar, fjölda margra þjóð sagnahefta og ýmissa fornsagna á vegum Fornritafélagsins. Hinn nýskipaði prófessor er fæddur að Gamla-Hrauni á Eyr- arbakka 22. júlí 1901. Hann varð stúdent 1924 og lauk meistara- prófi frá heimspekideild háskól- ans 1930. Árið 1928 hóf hann kennslu við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga, sem nú nefnist Gagnfræðaskóli Vesturbæjar og hefur hann starfað við hann æ síðan. Hann varð skólastjóri í árs- lok 1945. Árið^ 1953 varði hann við Háskóla íslands doktorsrit félaganna í Hafn- arfirði SJÁLFSTÆmSFÉLÖGlN Hafn- arfirði halda í kvöld árshátíð sína og verður hún í Góðtempl- arahúsinu og liefst kl. 20,30. Sér staklega verður ininnzt 20 ára af- mælis „Vorboðans“, Sjálfstæðis- kvennafélagsins, en félagið var stofnað 23. apríl 1937. Mjög hef- ■ur verið vandað til dagskrárinnar og mun in.a. Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, flytja ræðu. Ekki er að efa að Sjálfstæðisfólk í Hafnarfirði niuni fjölmenua á árshátiðina. sitt sem nefnist: Bólstaðir og bú- endur í Stokkseyrarhreppi. (t • »■■■; Stefán Pétursson er kunnastur fyrir afskipti sín af landsmálum, er hann var ritstjóri Alþýðublaðs ins. Hann er fæddur að Núpum við Skjálfanda 23. sept. 1898. Hann varð stúdent frá menntaskólan- um hér í Reykjavík 1920. Hann lauk árið eftir prófi í forspjalla- vísindum við háskólann hér, en hélt síðan til Berlínar. Þar las hann sagnfræði, félagsfræði og heimspeki á árunum 1921—’30. Árið 1934 gerðist hann blaðamað- ur við Alþýðublaðið, og tók við ritstjórn þess 1939 og gegndi því starfi til ársloka 1952. Árið eftir varð hann starfsmaður þjóðskjala safnsins, þar sem hann hefur starfað síðan og áunnið sér traust allra þeirra sem þar þekkja gjörst. Rætt um vöru- merki á Alþingi Á fundi neðri deildar Alþingis í gær fylgdi Páll Þorsteinsson, þingmaður Austur-Skaftfellinga, úr hlaði frumvarpi um breytingu á vörumerkjalögunum frá 1903, en það er flutt af honum og Gísla Guðmundssyni, þingmanni Norð ur-Þingeyinga. Ræðumaður sagði, að frum- varpið miðaði m.a. að því að færa ýmis ákvæði laganna til samræmis við aðstæður nú, en auk þess væri þar svo fyrir mælt, að heiti sem notuð eru sem vörumerki af íslenzkum framleiðendum skuli vera rétt mynduð af lögum íslenzkrar tungu, að dómi heimspekideildar háskólans. í ræðu sinni minnti Páll Þor- steinsson á, gildi þess, að tung- unni væri haldið hreinni, og nefndi ýmis dæmi þess, að ís- lenzkir framleiðendur hafa að þarflausu tekið upp erlend orð sem vörumerki. Taldi hann nauð synlegt, að stemma stigu við því. Frumvarpinu var vísað til 2. umr. og nefndar. minkar STYKKISHÓLMI, 6. desember. 1 SUMAR óem leið var mikið veitt af minkum við Breiðafjörð. Til dæmis hefur Skógastrandarhrepp ur einn greitt fyrir unnin dýr 26 þúsund krónur. Alls hafa í hreppnum s.l. átta ár verið unnir rúmir 600 minkar. Það eru aðallega tveii menn, sem stunda minkaveiðar í hreppn um þeir Jakob Jónsson bóndi Rif- girði og Þórður Indriðason á Keisbakka. — Árni. Vann Friðrik Larsen? SAMKVÆMT frétt Kaupmanna- hafnarútvarpsins af skákmótinu í Dallas eru þeir Larsen og Szabo nú efstir með 3% vinning og bið skák. Þeir áttust við í sjöttu um- ferð — og fór sú skák í bið. Áður hafði Szabo unnið biðskák sína við Evans. Friðrik tefldi við Gligoric í sjöttu umferð, og segir útvarpið, að sú skák hafi farið í bið. Jafnframt segir, að Friðrik liafi nú 3 vinninga og sé ásamt Yanofsky í 3.—4. sæti og séu þeir jafnir að vinningatölu. Samkvæmt því átti Friðrik að hafa unnið biðskákina við Lar- sen og gert jafntefli við Gligoric. Þeir Reshevsky og Gligoric eru sagðir hafa ZYt vinning hvor. Blaðið hafði ekki fengið neina staðfestingu á frétt þessari laust eftir miðnætti. Fulltrúar minnihlutaflokkanna segja: Tillagan um stœkkun Reykiavíkurhafnar ber vott um stórhug og framsýni EINS og frá var sagt i Morgun- blaðinu i gær báru bæjarfulltrú- ar Sjálfstæðisflokksins fram 2 til lögur varðandi Reykjavikurhöfn á bæjarstjómarfundi í fyrra- kvöld. Fjallar fyrri tillagan um stækkun hafnarinnar. Er gert ráð fyrir, að hún takmarkist af garði milli Örfiriseyjar og Engeyj ar og tveimur görðum út frá Eng- ey og Lauganesi. Á innsiglingin að verða á milli þessara tveggja garða. Síðari tillagan er um ýms- ar ráðstafanir til að nýta núver- andi höfn. f blaðinu í gær var sagt frá ræð um þeirra Gunnars Thoroddsen borgarstjóra og Einars Thorodd- sen bæjarfulltrúa, en þeir höfðu framsögu fyrir tillögum Sjálf- stæðismanna. Að ræðum þeirra loknum töluðu m.a. Ingi R. Helga son (K), Gils Guðmundsson (Þ) Ingi sagði m.a., að hann áliti til- löguna um stækkun hafnarinnar vera þannig, að síðari kynslóðir myndu telja hana lýsa miklum mundsson kvað tillöguna „býsna myndarlega og bera vott um stór hug“. Að umræðum loknum var tillögunni vísað til 2. umræðu og hafnarnefndar, skipulagsnefndar og umferðarnefntjar. Sclilenning hljómsveitarstjóri og hið unga tónskáld Jón Nordal. (Ljósm. Mbl.) Þridju tónleikar Sinfómu- hiiómsveifarinnar n. k. þriðjud agskvöld Flutt verður nýtt verk eftir Jón Nordal SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT IS- sína á vetrinum n. k. þriðju- dagskvöld kl. 20:30 í Þjóðleikhús- inu. Hljómsveitarstjóri er Wil- LANDS heldur 3. alm. tónleika Slúdentafélagið geitgst fyrir Græniandsfundi NÆSTKOMANDI þriðjudags- .kvöld gengst Stúdentafélag Reykjavíkur fyrir almennum fé- lagsfundi um réttarstöðu Græn- lands. Frummælandi verður dr. Jón Dúason, sem allra manna mest veit um þau mál, og um áratugi hefir barizt fyrir rétti Islendinga til Grænlands. Ýmsum baráttumönnum í Græn landsmálinu verður boðið sérstak lega að sitja fundinn. Fundurinn verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu, og hefst kl. 8,30. Kðsið í yfirkjörsVjórn fyrir bæjarstjórnarkosn- ingar í Reykjavík Á FUNDI bæjarstjórnar Reykja- víkur í fyrrakvöld fór fram kosn- ing manna í yfirkjörstjórn skv. lögunum um sveitarstjórnarkosn ingar. Þessir hlutu kosningu sem að- almenn: Einar B. Guðmundsson hrl., Torfi Hjartarson tollstjóri og Steinþór Guðmundsson kenn- ari. Varamenn: Guðmundur Pét- urssson hdl., Páll Líndal skrif- stofustjóri og Þorvaldur Þórarins son hdl. Fjérðn skólnténleiknr Sinfénín- Mjómsveitnriimnf í gmrkvöldi Ákveðið að halda tvenna skólatónleika í viðbót. FJÓRÐU skólatónleikar Sinfóníu hljómsveitar íslands voru haldnir í Þjóðleikhúsinu í gærltvöld. Að- sókn að tónleikum þessum hefir verið svo mikil, að ákveðið hefir verið að halda tvenna tónleika til viðbótar. Verða þeir haldnir i Austurbæjarbíói á mongun kl. 13.30 og á mánud. kl. 19.15 Hljóm sveitarstjóri á þessum skólatón- stórhug og framsýni, Gils Guð- , leikum er Wilhelm Schleuning. Jón Þórarinsson, framkvæmda- tjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, telur, að á þessum sex tónleikum hafi alls um 4 þús. börnum, aðal- lega á aldrinum 10—12 ára, gef- izt kostur á að hlýða á leik Sin- fóníuhljómsveitarinnar. Telja for ráðamenn hljómsveitarinnar, að börnin hafi haft mikla ánægju af tónleikunum, og í ráði er, að slík- ir tónleikar verði endurteknir síð ar í vetur. helm Schleuning. Fluttur verður nýr píanókonsert eftir Jón Nor- dal, og er höfundur einleikari með hljómsveitinni. Á efnisskránni eru þrjú verk: Sinfónia nr. 92 eftir Haydn, Ox- fordsinfónían svokallaða, píanó- konsert eftir Jón Nordal og Sin- fónía nr. 4 í D-moll eftir Robert 'Sohumann. Eru þetta síðari alm. tónl. Sinfóníuhljómsveitarinnar, sem Wilhelm Schleuning stjórnar, en hann hefir að auki stjórnað 4 skólatónleikum hljómsveitar- innar. Schleuning fer héðan n.k. miðvikudagskvöld. í ráði að flylja píanókonsertinn tvisvar H1 jómsveitarstjórinn lauk miklu lofsorði á hið nýja tónverk Jóns Nordals og kvaðst hlakka mjög til að flytja það opinberlega, en verkið væri með nýstárlegu sniði, erfitt til flutnings og á-heyrnar. Væri því í ráði að flytja píanó- konsertinn tvisvar á þessum tón- leikum til að gefa áheyrendum kost á að kynnast verkinu og njóta þess betur. Gat Schleuning þess, að hann vildd gjarna koma þessu nýja verki Jóns Nordals á framfæri í Þýzkalandi. ★ Píanókonsert Jóns er í einum kafla, og samdi Jón verkið fyrir rúmlega ári í Rómaborg. Forráða í lenn Sinfóníuhljómsveitarmnar telja það mikið fagnaðarefni, að hljómsveitin flytur á þessum tón- leikum íslenzkt verk, sem boðlegt væri, hvar sem er í heiminum. — Hefir hljómsveitin áður flutt eitt verk eftir Jón Nordal. Enn vantar vitni að slysi EKKI er lokið rannsókn á slysi því er varð við strætisvagn á Hverfisgötu við Frakkastígs-bið- stöðina þar í fyrradag. í gær gáfu sig fram nokkur vitni, svo sem maðurinn sem hjálpaði konunni, vagnstjóri strætisvagnsins og enn einn mað- ur annar. Konan, sem er 66 ára, er nú komin í sjúkrahús. Hún hafði haft fótavist frá því í fyrravor, er hún kom af spítala eftir að hafa geng- ið undir aðgerð á mjöðm. Er með „staurmjöðm" síðan vinstra meg- in. Nú er konan beinbrotin um vinstra hné. Enn eru þeir beðnir að gefa sig fram, við rannsóknarlögregluna, sem gefið gætu upplýsingar mál- ið varðandi, t.d. farþegar í vagn- inum í umrætt skipti eða fólk á biðstöðinni. Þetta var Klepps- vagn sem fór af Lækjartorgi kL 2,50 á fimmtudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.