Morgunblaðið - 04.01.1958, Qupperneq 3
Laugardagur '4. janúar 1958
MORCVNBLAÐIÐ
3
íbúðarhúsið á Draghálsi
hrann á gamlárskvold
AKRANESI, 3. jan. — Á gaml-
árskvöld brann íbúðarhúsið á
Draghálsi í Svínadal í Hvalfjarð-
arstrandarhreppi á þremur klst.
Jóni Péturssyni bónda á Geita-
bergi, sem er næsti bær við Drag
háls, sagðist svo frá í dag, að
eldurinn hefði komið upp kl. 8
um kvöldið. Þarna var rafmagn-
ið ekki komið, og er talið, að
kviknað hafi í út frá olíulampa.
Menn af næstu bæjum komu
fljótt til hjálpar. Tókst að bjarga
næstum öllu af aðalhæð húss-
ins og munum úr geymsluskúr,
sem var áfastur við húsið, en
engu var bjargað af innanstokks
munum úr rishæðinni og engu
tókst heldur að bjarga úr kjall-
aranum. Vindur var hægur af
norðan, kalt og bjartviðri. Er 3
stundir voru liðnar, frá því að
eldurinn kom upp, var húsið gjör
fallið.
Húsið var lágt vátryggt, en inn
búið tiltölulega hærra tryggt.
Enginn meiddist við bruna þenn
an, svo að teljandi sé. Penings-
hús standa það fjarri íbúðar-
húsinu, sem brann, að þau sakaði
ekki. Ekki var nú fleira fólk í
húsinu en hjón með eitt barn, og
dveljast þau nú á Þórustöðum.
Húsið á Draghálsi var reist 1899
af Pétri Jónssyni, sem þar bjó
ásamt Halldóru konu sinni
myndarbúi um 37 ára bil. — O.
Gamall maður missir
kindur sínar í bruna
KL. 6,20 í gærkvöldi var slökkvi-
liðinu tilkynnt, að eldur væri í
kofa í holtinu ofan við Berg við
Suðurlandsbraut, skammt austur
af félagsheimili Fram og Sjó-
mannaskólanum. í kofa þessum
voru 15 kindur, sem aldraður
maður, Símon Sveinsson að nafni,
átti. Einnig geymdi hann þarna
nokkur net. —
Síðdegis í gær kom Símon
í kofann og kveikti þar á gas-
lukt. Skildi hann luktina eftir er
hann brá sér frá til að sækja
vatn. Dvaldist honum nokkuð,
þar sem hann hitti kunningja
sinn á leiðinni og tók hann tali.
Meðan hann var burtu, kviknaði
í kofanum, og tókst Símoni ekki
að bjarga út nema 2 kindum.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang, var kofinn að mestu brunn
inn.
Símon varð fyrir tilfinnanlegu
tjóni í þessum hörmulega elds-
voða. Kindurnar voru svo til það
eina, sem hann átti, en fullorðnar
kindur á fæti munu nú seldar á
um það bil 750 kr. hver.
Á nýjársdag voru bornir fram í Þjóðleikhúsinu nýstárlegir réttir
og mjög ljúffengir. Voru þeir franskir og þykja hæfa betri
veitingahúsum í Parísarborg. Mynd þessi er af matsveininum
er hann var að skera eina af hinum ljúffengu steikum fyrir
gestina. (Ljósm. Mbl. Ól. K. Magnúss.)
Djúpháturinn Baldur
hœil kominn í gœr
Gólíteppngerð skemmist nl eldi
DJÚPBÁTURINN Baldur frá Stykkishólmi var í gærmorgun hætt
kominn á leið til Reykjavíkur er skyndilega kom að honum
mikill leki.
SEINT í fyrrinótt varð elds vart^
í braggaþyrpingu inn við Baróns-
stíg. Þar er ýmiss konar ið.naður
starfræktur. Eldurinn kom upp
í húsnæði Gólfteppagerðarinnar
h.f. Nálægir braggar voru í hættu
um skeið, m.a. Hafnarbíó, en
slökkviliðinu tókst að hefta út-
breiðslu eldsins, svo að ekki urðu
skemmdir nema hjá Gólfteppa-
gerðinni. Braggar hennar, þrír
að tölu, brunnu allir að innan,
og það, sem í þeim var, er ónýtt
eða mjög skemmt. í bröggunum
voru tveir vefstólar, ýmsar smá-
vélar aðrar til gólfteppagerðar,
hráefni og teppi. Að sjálfsögðu
var þetta allt vátryggt, sennilega
fyrir um 1 millj. kr. en tjón fyrir-
tækisins mun þó vera töluvert.
Gólfteppagerðin hefur á leigu
nokkurt húsrými í byggingu Sjó-
klæðagerðar íslands. Hyggjast
forráðamenn fyrirtækisins flytja
starfsemi þess þangað svo fljótt
sem því verður við komið.
Fannfengi
fyrir norðan
AKUREYRI 3 jan. — Um ára-
mótin gerði mikla fannkomu hér
um norðanvert landið, og var ó-
fært um nærsveitir Akureyrar
fyrstu daga ársins. Mikil fönn er
hér í bænum og hefur verið unn-
ið að því linnulaust að hreinsa
snjó af götunum. Fjallvegir hér
í nágrenninu eru allir ófærir.
Annars hafði tíðarfar verið gott
og snjóþyngsli lítil sem engin.
Mjög mikið frost hefur verið und
anfarna daga, og varð í gær 18
stig. I dag er milt veður og úr-
komulaust, og frost lítið. — vig.
Leiðrétting
Á 9. SÍÐU Mbl. í gær er birt
mynd frá fréttaþjónustu Samein
uðu þjóðanna. Sýnir hún Thor
Thors sendiráðherra spjalla við
mann, sem sagður er vera Hans
Engen, fastafulltrúi Noregs hjá
S.Þ. Hér er um mistök að ræða.
Maðurinn er Alsing Ai.dersen,
danski þingmaðurinn, sem var
formaður Ungverjalandsnefndar
Sameinuðu þjóðanna.
380 farþegu
á einum degi
ÞAÐ var mikið að gera hjá Flug-
félagi fslands í fyrradag. Vaðla-
heiði var ófær og fóru Douglas-
vélar tvívegis með farþega frá
Húsavík til Akureyrar, en þar
stigu þeir flestir upp í Gullfaxa
og flugu til Reykjavíkur. Einnig
var farin ein ferð með Douglas-
vél beint frá Húsavík til Reykja-
víkur.' Gullfaxi fór alls þrjár
ferðir til Akureyrar og Douglas-
vélar fóru þangað tvær ferðir.
Sólfaxi fór til Sauðárkróks og
Egilsstaða, og auk þess var flog-
ið til Vestmannaeyja. Þennan
dag voru alls fluttir 380 farþeg-
ar í innanlandsfluginu.
í gær var m.a. flogið tvisvar
til Vestfjarða.
SVO MIKIL ófærð var í Hval-
firði í gær og skafrenningur, að
2 bílar er voru á leið til Reykja-
víkur, annar úr Stykkishólmi en
hinn úr Borgarnesi, sneru við.
Hafði Stykkishólmsbílinn þá
verið um 30 klukkustundir á leið-
inni vestan úr Stykkishólmi með
15—20 farþega. Lagði bílinn af
stað klukkan 1 á fimmtudaginn
og lenti þegar í hinni mestu ó-
Skólameistari
slasast
AKUREYRI 3 jan. — Það slys
varð síðari hluta dags í dag, að
Þórarinn Björnsson skólameistari
menntaskólans hér í bænum féll
á götuna framan við aðalskrif-
stofu KEA. Hlaut hann allmikið
höfuðhögg og féll í öngvit. Hann
komst þó brátt til nokkurrar með
vitundar og var fluttur í sjúkra-
hús. Liggur hann þar nú og fer
fram nánari rannsókn á meiðsl-
um hans. Talið er, að skólameist-
ari hafi fengið heilahristing.
— vig.
Baldur var staddur á móts við
Þormóðssker út af Mýrunum, er
mikils leka varð vart. A
Akranesi var brugðið skjótt við
til hjálpar. Tveir skipstjórar,
Einar Árnason á mb. Sigrúnu og
Valdimar Ágústsson á mb. Skipa-
skaga, héldu þegar á vettvang.
Frá Akranesi að Þormóðsskeri
er um klukkustundarsigling fyr-
ir þessa báta.
Þegar þeir komu var vél Bald-
urs enn í gangi. Veður var sæmi-
lega gott og dauður sjór. Vélin
í djúpbátnum er lokuð, þannig
að hún getur gengið jafnvel þó
talsverður sjór komist í vélarúm-
ið. Það kom ekki til þess að
Akranesbátarnir þyrftu að taka
menn af Baldri, eða setja drátt-
artaug í bátinn. Hann komst inn
í Akraneshöfn, en Akranesbát-
arnir voru þá sinn hvorum megin
við hann og skipsmenn til taks
ef út af bæri.
færð að því er fréttaritari blaðs-
ins í Stykkishólmi símaði í gær
kvöldi. Er mjög þung færð milli
Vegamóta og Borgarness. Hafði
bílinn komizt þangað klukkan 5
í gærmorgun.
í gærkvöldi klukkan 5 hafði
bíllinn snúið við í Hvalfirði,
var kominn aftur í olíustöðina
þar og hafði samflot með Borgar-
ness-bíl, sem einnig hafði snúið
við og ætluðu báðir að aka aftur
til Borgarness.
Verzlunum lokað
kl. 1 í dag
I dag verður verzlunum lokað kl.
1 e. h. Mun svo verða á laugar-
dögum það sem eftir er vetrar.
Hins vegar verður opið til kl. 7
á föstudögum.
HAAG 3. jan. — Ferja, sem
flutti 100 manns milli eyja í
Indonesíu á gamlárdag, fórst —
og samkv. siðustu fréttum kom-
ust 40 manns af.
upp að bryggju var sett í hann
öflug brunadæla, en mikill sjór
var kominn í hann. Ekkert varð
að skipshöfn eða tveim farþeg-
um, konum, sem með bátnum
voru.
Baldur mun ekki halda áfram
ferðinni til Rvikur fyrr en að
lokinni viðgerð í slippnum á
Akranesi. Þetta er í annað skipti,
sem bátnum hlekkist á í vetur og
var hann einnig hætt kominn í
fyrra skiptið er brotsjór reið yfir
hann.
335 vist-
menn á
Grund
GÍSLI SIGURBJÖRNSSON, for-
stjóri, hefur skýrt blaðinu svo
frá, að nú um áramótin hafi vist-
menn á Elli- og hjúkrunarheim-
ilinu Grund í Reykjavík verið
335. Þar af voru 249 konur og 86
karlar. Á sl. ári komu 116 vist-
menn (71 kona og 45 karlar), en
50 fóru (31 kona og 19 karlar).
Á árinu dóu 75 vistmenn (39 kon
ur og 36 karlar).
Á elli og avalarheimilinu Ási
í Hveragerði voru nú um áramót-
in 28 vistmenn (15 konur og 13
karlar).
Nýjárskveðjur
lil forsefa íslands
AUK þeirra árnaðaróska, sem
getið hefur verið, hefur forseta
íslands borizt bréf frá Eisen-
hower forseta Bandaríkjanna
með jóla- og nýjársóskum. í
bréfinu þakkar Eisenhower As-
geiri Ásgeirssyni forseta sérstak-
lega fyrir vinsamlegar móttökur
á Keflavikurflugvelli, en eins og
kunnugt er hafði flugvél Eisen-
howers þar stutta viðdvöl á leið
til Ameríku fyrir jólin.
Þá hafa forseta íslands einn-
ig borizt jóla- og nýjársóskir frá
Aramburu hershöfðingja, forseta
Argentínu.
Strax og báturinn var kominn
Eftir 30 klst. ferð var snóið við
STAKSTEINAR
Tvísöngur um gengis-
lækkun
Nú um áramótin hefur glögg-
lega komið fram sá tvískinnung-
ur, sem ríkir í stjórnarherhúð-
unum. í gær hefur Þjóðviljinn
það fyrir aðalfyrirsögn á fyrstu
síðu blaðsins að „forsætisráð-
herra staðfestir að sterk öfl inn-
an Framsóknar- og Alþýðuflokks
vilja gengislækkun“. Á eftir er
svo bætt við: „Aðeins styrkur
Alþýðubandalagsins kemur í veg
fyrir að verðgildi krónunnar
verði stórlega skert“. Segir síð-
an í grein Þjóðviljans að ræða
forsætisráðherrans sýni „að enn
er ætlunin að knýja fram gengis-
lækkunina og fer það einvörð-
ungu eftir styrk Alþýðubanda-
lagsins innan verkalýðshreyf-
ingarinnar og utan hvort tekst
að koma í veg fyrir það“.
Hér bregður Þjóðviljinn enn
einu sinni upp myndinni af vondu
mönnunum í Framsókn og Al-
þýðuflokknum, sem vilji gengis-
lækkun og góða fólkinu í AI-
þýðubandalaginu, s«m ekki vilji
hana!
Nú er það svo, að í tíð núver-
andi ríkisstjórnar hefur verð-
gildi krónunnar verið stórlega
skert, þó á dulbúinn hátt væri
og stóð ekki á Alþýðubandalag-
inu að samþykkja það. Vísital-
an hefur líka verið fölsuð á hinn
grófasta hátt og Alþýðubanda-
lagið samþykkt það allt saman
og barist fyrir því. Enginn efast
um að á meðan kommúnistar
vilja vera í stjórn, muni þeir
vinna það til að framkvæma
nýja gengislækkun eftir kosning-
arnar í janúar. Hér skiftir
„styrkur AIþýðubandalagsins“
engu máli heldur aðeins nauðsyn
kommúnista á að hafa menn í
stjórn á íslandi.
Tvísöngur um hlutleysi
Þegar Hermann Jónasson var
í París undirritaði hann yfirlýs-
ingu allra fulltrúa NATO-þjóð-
anna, þar sem þeir lýstu yfir,
að „við helgum okkur sjálfa og
þjóðir okkar reglum og takmarki
Atlantshafsbandalagsins“. f yfir-
lýsingunni var síst af öllu hvatt
til þess að tekin væri upp hin
gamla hlutleysisstefna. f for-
ustugrein Þjóðviljans í gær er
hlutleysisstefnan hins vegar
hafin í hásætið og sveigt að for-
seta íslands vegna ummæla
hans í nýjársávarpinu um lilut-
leysi, sem var mjög í sama anda
og Atlantshafsþjóðirnar liafa
haldið fram.
Hér kemur enn fram tvískinn-
ingurinn í ríkisstjórninni, þar
eru hafðar uppi tvær gagnólíkar
stefnur í innanlands- og utan-
ríkismálum. En „Þjóðviljann“ er
farið að gruna að fólkiff sé hætt
áð trúa staðhæfingum kommún-
ista. Og stórar fyrirsagnir, eins
og nú, ná skammt til að bæta
þar úr.
Þögnin
Næst síðasti fundurinn, sem
bæjarstjórn heldur fyrir kosn-
ingarnar, stóð í aðeins hálftima.
Minnihlutinn hafði engin mál
fram að bera og enga gagnrýni.
Hinir 6 flokkar og flokksbrot
minnililutans höfðu ekkert að
segja. Ekkert, sem einu sinni var
nothæft í blaðafyrirsagnir dag-
inn eftir! Hvort er rétt að kalla
þetta þögn glundroðans eða
glundroða þagnarinnar? Hvort
tveggja getur vafalaust átt við.
Þjóðviljinn segir í morgun, að
þessi stutti fundur beri vott um
„kosningafum“ Sjálfstæðis-
manna!
Vandræðalegri útskýringu var
ekki unnt að finna, því ekki geta
gliundroðaflokkarnir kennt
„fumi“ annarra um sitt eigið
málefnaleysi.