Morgunblaðið - 04.01.1958, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.01.1958, Blaðsíða 15
Laugardagur 4. janúar 1958 MORCUNBLAÐIÐ 15 Foot vitl Makarios ' LONDON, 3. jan. — Kýpurmálið er rætt innan brezku stjórnar- innar þessa dagana. Hinn ný- skipaði landsstjóri Breta á Kýp- ur, Foot, hefur lagt fram til- lögur, sem miða að því að leysa deiluna. Enn hafa þessar tillög- ur ekki verið birtar, en stjórnin hefur rætt þær. Hins vegar þyk- ir fullvíst, að Foot hafi gert það að tillögu sinni, að hafnar verði viðræður við Makarios erki- biskup í London um framtíð eyjarinnar. Sem kunnugt er er erkibiskup- inn formælandi grískumælandi eyjarskeggja, sem vilja samein- ingu eyjarinnar og Grikklands. Tyrkneski minnihlutinn á eyj- unni vill hins vegar að eyjunni verði skipt milli þjóðabrotanna tveggja. Brezka stjórnin mun ekki hafa talið vænlegt að fara að ráðum Foots, venda kvæði semja við sínu skyndilega í kross — og hefja viðræður við Makarios. — Skyndileg breyting á afstöðu Breta í málinu er talin geta aukið mótspyrnuna á Kýpur að áliti stjórnarinnar. Er almennt talið innan stjórnarinnar, að fyrst beri að leita fyrir sér um lausn málsins með viðræðum yið grísku og tyrknesku stjórnirnar Ólíklegt er talið að nokkuð verði aðhafzt næstu daga. Mac- millan fer á þriðjudag í mánað- arferðalag um samveldislöndin og kynnir sér afstöðu stjórnmála- foringja þeirra, jafnframt því sem hann gerir þeim grein fyrir við ræðum hans við Eisenhower og Parísarfundinum. Þá er ekki geit ráð fyrir að svar hans við bréfi Bulganins verði fullbúið áður en hann heldur af stað. Mun stjórn- in hafa samráð við stjórnir NATO landanna um svarið til Búlgan- ins. Vnnið af kappi í öllum kennslustofum. Hluti af annarri álmu Béttarholtsskólans. Sparnaður brezku sfjórn- arinnar ilta séður á Möltu LA VALETTA, 3. jan. — Enn skarst í odda með Bretum og Möltubúum í dag, er 12 þús. verkamenn, sem vinna í skipa- smíðastöð brezka flotans á eyj- unni, lögðu niður vinnu vegna uppsagnar 30 verkamanna. Tóku verkamennirnir upp vinnu síðar í dag, er brezka herstjórnin á eyj- unni hafði lofað að sjá hinum 30 fyrir annarri vinnu. Ástæða til versnandi sambúðar Breta og eyjarskeggja á Möltu þessa dag- ana er sú, að mikils ótta gætir á eyjunni vegna þess að brezka stjórnin hefur ákveðið að skera niður fjárveitingu til fram- kvæmda á vegum flotans. Óttast eyjarskeggjar að þetta komi nið- ur á þeim, en efnahagslífið á Möltu byggist að mestu leyti á skipasmíðastöð flotans þar. Þetta hefur meira að segja gengið það langt, að Mintoff forsætisráð- herra á Möltu hefur hótað því að eyjarskeggjar slíti öllu-sambandi við Bretland. nema Bretar tryggi þeim að atvinnuleysi ríði ekki yfir eyjuna vegna ákvarð- ana brezku stjórnarinnar í sam- bandi við fjárveitingar til flot- ans. í dag var 30 sagt upp vinnu og jafnframt tilkynnt, að 100 manns yrði sagt upp vinnu við skipasmíðastöðina einhvern Adenauer hugleiðir svar lil Bulganins BONN 3. janúar. — Tilkynnt var í Bonn í dag, að 1. janúar sl. hefði NATO bætzt tvö brynvarin her- fylki og hefði V-Þýzkaland þar með lagt bandalaginu fimm her- íylki til sameiginlegra varna NATO. Jafnframt hafa V-Þjóð- verjar lagt fram deild tundur- skeytabáta við Norðursjó. Síðar á þessu ári verður herfylkjum V-Þjóðverja enn fjölgað um þrjú. Adenauer og stjórn hans undir- búa nú svar við bréfi Bulganins frá fyrra mánuði. Talið er, að Adenauer vilji ræða við fulltrúa Ráðstjórnarinnar um friðarmál- in, ef tryggt sé að kommúnistar notuðu ekki slíkan fund í áróðurs skyni. Fullvíst er og talið, að Adenauer athugi gaumgæfilega hina pólsku tillögu um belti í Ev- rópu þar sem ekki verði staðsett kjarnorkuvopn. Það mun og vera með hliðsjón af þessari tillögu að V-Þjóðverjar leyfa ekki að svo komnu máli staðsetningu eld- flaugastöðva austan Rínar. KAIRO 3. jan. Á þingi fulltrúa frá ýmsum Afríku og Asíuríkj- um auk kommúnistaríkjanna, sem hér er haldið, var í dag ákveðið að 1. marz yrði fram- vegis „baráttudagur" fyrir banni á kjarnorkuvopnum. næstu daga. Yfirstjórn brezka flotans á eyjunni hefur hins veg- ar skýrt svo frá, að ekki þurfi þessir menn að óttast atvinnu- leysi. Bretar ætli að fara að byggja geysimikla neðanjraðar- eldsneytisgeyma á eyjunni — og þær framkvæmdir taki allt að þrjú ár. Knldnlegt svnr LONDON, 3. jan. — Brezka stjórnin hefur svarað kuldalega hótunum Mintofís, forsætisráð- herra Möltu um að rjúfa tengsl- in við Bretland. Segir í svari Breta, sem Lennox Boyd nýlendu málaráðhcrra skrifar undir, að slík framkomu forsætisráðherra Möltu geti haft spillandi áhrif á ákvörðun brezku stjórnarinnar u mað veita eyjunni 500 millj. punda efnaliagsaðstoð næstu fimm árin. Þetta er í fyrsta sinn sem opinberlega er skýrt frá upp hæð efnahagsaðstoðarinnar. — RéftarhoSfsskóli Framh. af bls. 9 í haust, segir skólastjórinn, Ragn ar Georgsson. Tæplega 300 nemendur stunda nám í þessum skóla í vetur. o—O—o Ýmislegt athyglisvert ber fyr- ir augu. Gluggarnir eru stórir, og gangarnir breiðir. Loftið er alls staðar lagt mjóum samsíða óhefluðum borðum. Þessi frá- gangur er ódýr og gefur mjög góða raun, hvað hljóðburð varð- ar, samkvæmt upplýsingum frá Skarphéðni J óhannssyni arki- tekt, sem teiknaði skólann. Nokk urt bil er á milli borðanna, og verður það til þess, að hljóðið deyfist. Ekki er þörf á neinu viðhaldi á slíkum loftum, segir Skarphéðinn. Þetta mun vera í fyrsta skipti, sem slíkur frágang- ur er hafður hérlendis. Sjálfvirk loftræsing Þó að gluggarnir séu stórir, mun ekki vera ætlunin að nota þá mikið til loftræsingar í fram- tíðinni, þar sem sjálfvirk loft- ræsing á að koma í skólahúsið. Er það algjör nýjung að nota slíkt í skólahúsum hérlendis. o—O—o Áformað er að nota svæðið milli álmanna í sambandi við skólastarfsemina, þannig að þar verði komið fyrir garði, sem nota Hreinsunin gengur hœgt VARSJA 3. janúar — 31,500 manns hafa verið reknir úr kommúnistafloklcnum pólska síð an í október s.l. að Gomulka boð- aði hreinsun í flokknum. Tölur þessar eru hafðar eftir tilkynn- ingu frá pólsku stjórninni — og fylgir það með, að hreinsunin sé aðeins skammt á veg komin. Af 1,267,000 meðlimum flokksins hefur ferill einungis 140,000 verið rannsakaður. Er hreinsúninni að að sögn kommúnistaleiðtoganna mestmegnis beint gegn stalinist- um, lýðræðissinnuðum flokks- Rokossovsky á baksíðu MOSKVU 3. janúar — Moskvu- blöðin skýrðu frá því á baksíðu í dag, að Rokossovsky marskálk- ur hefði verið skipaður aðstoðar- varnarmálaráðherra. Fregnin barst fyrst út er Krúsjeff sendi tyrkneska forsætisráðherranum nýjársóskir. Sem kunnugt er var Rokossovsky sendur til Kákasus um sama leyti og Zhukov var útskúfaður — og til tíðinda dró í sambúð Tyrklands og Sýrlands. Löngum hefur verið talið að Rokossovsky hefði verið sendur þangað í hálfgerða útlegð, en síðar hefur hann snúizt á sveif með þeim, sem íordæmt hafa Zhukov svo að ekki er Ijóst hvort hann hefur verið fjandmaður hans eða ekki. Hins vegar telja margir, að heimköllun Roskossov skys bendi til þess að afstaða Krúsjeffs til Tyrkja hafi breytzt. rsa mönnum, óvirkum og andlega spilltum flokksmönnum. Auk þess er tekin upp barátta, gegn ævintýramönnum og drykkju rútum samk., tilkynningu þar að lútandi. — Reuter. Nýtt ríki — Veshu-Indíiir LONDON 3. janúar. — Nýtt ríki var formlega stofnsett í dag. Það var Vestur-Indía eyjasambandið, eins og það nefnist. Brezki lands stjórinn, Hailes lávarður, sór í dag embættiseið sinn í höfuð- stöðvum sínum í Port of Spain á Trinidad. Þetta nýja ríki er myndað af 10 eyjum, en íbúatala þeirra er samtals 4 milljónir, .— Bahamaeyjar, Bermuda, Brezka Honduras og Brezka Guiana tóku ekki þátt í stofnun Vestur-Indía eyjasambandsins. Fyrstu al- mennu kosningarnar í hinu ný- stofnaða ríki verða haldnar 25. marz nk. og munu íbúar allra eyjanna 10, þá kjósa fulltrúa á eitt sameiginlegt þing. Fyrstu fimm árin mun Bret- land veita Vestur-Indíum hálfrar milljónar punda fjárhagsstuðn- ing árlega. Brezka landssjóranum var mjög vel fagnað í Port of Spain í dag og við það tækifæri lét forsætisráðherrann á Jamaica svo um mælt í ræðu, að hann byggist við því, að Vestur-Indíur yrðu innan fárra ára fullgildur meðlimur brezka samveldisins. má við náttúrufræðikennslu. f þessum grasgarði yrði gróður- sett sem allra mest af þeim plönt- um og trjám, sem þrifizt geta hér á landi, sagði skólastjórinn. Slík framkvæmd mundi verða nýlunda hér á landi, og mun gert ráð fyrir að koma einnig upp hliðstæðum garði við Hagaskól- ann, sem þó yrði að öllum lík- indum helgaður einhverju öðru sviði náttúrufræðinnar t.d. steina ríkinu. I. O. G. T. Unglingastúkan Unnur nr. 38. Fundur á mor.gun sunnudag kl. 10 f.h. í G.T.-húsinu. — Gæzlumaður. Barnastúkan Diana nr. 54 Fundur á morgun kl. 10,15. Kosning embættismanna. Ymis skemmtiatriði. — Mætið öll og komið með nýja félaga. — Gæzlumenn. Móðir okkar ARNFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR andaðist í Elliheimilinu Grund 2. janúar 1958. Marselía Jónsdóttir, Sigurður Berndsen. VILHJALMUR sveinsson prentari, Óðinsgötu 7, lézt í Landakotsspítala föstudaginn 3. þ.m. Dagmar Gunnarsdóttir, Ásgeir Ólafsson. Fósturfaðir minn ÞORGEIR JÖNSSON andaðist 2. janúar á heimili mínu í Siglufirði. Jarðarförin sem fram fer frá Hafnarfjarðarkirkju verður nánar aug- lýst síðar. Helgi Vilhjálrasson. Móðir okkar og tengdamóðir ÓLÖF ANDRÉSDÖTTIR Bárugötu 8, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni mánu- daginn 6. janúar kl. 2. Blóm og kransar vinsamlegast afbeðið. Elín Guðnadóttir, Þórdís og Alexander Bridde. Jarðarför móður minnar HELGU GÍSLADÖTTUR fer fram frá heimili hennar Njarðargötu 1, Keflavík, þriðjudaginn 7. þ.m. og hefst með bæn að heimili hennar ld. 1. Fyrir hönd vandamanna. Helgi G. Eyjólfsson. Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu JÓNFRlÐAR G. HELGADÓTTUR, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. janúar kl. 2 e. h. — Hefst með bæn frá heimili hinnar látnu Grettis- götu 31, klukkan 1,15. Athöfninni verður útvarpað. Inga Gestsdóttir, Bjarni Gestsson, Ásta Gestsdóttir, Helena Gestsdóttir, Gústaf Gestsson, Jóhanna Ásgeirsdóttir, og barnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarð- arför unnusta míns og bróður okkar ÁRNA INGIMUNDARSONAR Snorrabraut 42 Ásta Guðbjörnsdóttir og systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.