Morgunblaðið - 21.02.1958, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.02.1958, Qupperneq 2
MORCVNBLAÐIÐ Föstudagur 21. febrúar 1958 Miklur iramkvæmdir fyrir dyrum í vutnsveitumúlum Frá umræðum í bæjurstjdm í gær BÆJARFULLTRÚAR kommún- ista lögðu fram á bæjarstjórnar- fundi í gær tillögu í 5 liðum í vatnsveitumálunum og var aðal- efni þeirra að ráða skyldi sér- stakan vatnsveitustjóra, hraða ráðstöfunum til flutnings á auknu vatnsmagni til bæjarins, um bygg ingu á vatnsgeymum og dælu- stöð; um aukna starfskrafta til handa hitaveitunni og rannsókn á vatnsveitukerfi gamla bæjar- hlutans. óuðmundur Vigfússon (K) flutti alllanga framsöguræðu fyr- ir þessu máli. Borgarritari, sem sat fundinn í forföllum borgarstjóra, sagði að Jón Sigurðsson, slökkviliðs- stjóri hefði verið til þess valinn að gegna embætti vatnsveitu- stjóra eftir að Helgi Sigurðsson hitaveitustjóri, hefði, vegna anna í sínu embætti beiðst undan því að sinna því starfi, en ráðning slökkviliðsstjórans til þessa starfs væri einungis til bráða- birgða og gæti bæjarráð og bæj- arstjórn auðvitað hvenær sem er gert aðra skipun á því máli. Út af öðrum atriðum tillögunnar sagði hann, að það væri alkunn- ugt af fyrri umræðum í bæjar- stjórninni að ýmist væri búið að gera margþættar ráðstafanir til að tryggja bæjarbúum neyzlu- vatn og vatn til atvinnmrekstrar eða að verið væri að undirbúa nýjar framkvæmdir í vatnsveitu- málunum með langa framtið í huga. Kvað hann rétt að rifja upp í aðalatriðum hvaða ráð- stafanir og framkvæmdir væri um að ræða. I fyrsta lagi minnti hann á að ákveðið hefði verið að byggja dælustöð við Gvendarbrunna til að auka vatnsrennsli til bæjar- ins og myndi þessi dælustöð taka til starfa fyrrihluta næsta sum- ars. Mundi þá vatnsrennsli til bæjarins aukast um 150 lítra á sekúndu, en það er aukning að 14, eða jafnvel 16, miðað við það sem nú er. í þessu skyni var keypt dæla frá Austur-Þýzkalandi og gengið frá þeim kaupum í nóvember 1956 en vegna mikilla afgreiðslutafa kom hún fyrst til landsins nú eftir áramótin og vantar enn stjórntæki fyrir hana. Nú er ver- ið að byggja dælustöðvarhús við Gvendarbrunna og mun ekki standa á þeirri framkvæmd og éru allar vonir til, að dælustöð- in geti tekið til sarfa snemma í sumar. í öðru lagi minnti borgarritari á þær ráðstafanir, sem gerðar hefðu verið til sparnaðar í vatns- notkun. Hér væri vatnseyðsla miklu meiri en tíðkaðist í ná- grannalöndum okkar þar sem vatn væri selt eftir mæli. Nú væri farið að selja eftir mæli vatn til atvinnurekt og hefði sú ráðstöfun .n sparnað í för með Þá hefur vatns. í gangi nllsherjarathu _ ^uam húsum í bænum í því Si.yiii að koma í veg fyrir sírennsli í hrein- lætistækjum, og aðstoðar vatns- veitan einnig almenning við við- gerð á slíkum tækjum. Þessar ráðstafanir hafa í för með sér mikinn sparnað. í yfirferð sinni um bæinn er vinnuflokkur vatns- veitunnar nú kominn austur fyr- ir Rauðarárstíg en byrjaði at- huganir sínar vestast í bænum. Nú er verið að vinna að reglu- gerð fyrir vatnsveituna þar sem verður kveðið á um aukið eftir- lit með vatnsnotkun og er í því sambandi til athugunar að beita viðurlögum ef uppvíst verður að vatn er látið renna að óþörfu. Heildaráætlun um dreifiæðar vatnsveitunnar og byggingu vatnsgeyma er þegar undirbúin í aðalatriðum. Staðsetning vatns- geyma hefur þegar verið ákveð- in og telur vatnsveitan að bygg- ing geyma og vatnsæða í sam- bandi við þá geti hafizt þegar á næsta ári og munu framkvæmd- ir, ef nauðsynlegt fjármagn og leyfi fæst, ekki þurfa að taka nema eitt ár. Ráðstafanir hafa verið gerðar til að auka starfskrafta í skrif- stofu vatnsveitustjóra og verða þá þrír verkfræðingar starfandi hjá vatnsveitunni. Benti borgar- ritari á fleiri atriði í þessu sam- bandi svo sem endurbætur á dreifikerfi vatnsveitunnar í eldri bæjarhlutum, sem nú er verið að vinna að og eins nýjar vatns- leiðslur til nýrra hverfa. Guðmundur H. Guðmundsson bæjarftr. (S) tók til máls og rakti allýtarlega störf vatnsveitu nefndar en hún hefur ásamt vatnsveitustjóra haft umsjón með framkvæmdum í vatnsveitu- málum bæjarins á undanförnum árum. G. H. G. sagði að ekkert nýtt væri í tillögu kommúnista og þeim væri vel kunnugt um það öllum frá fyrri umræðum í bæjarstjórn að allt það, sem í tillögunni fælist um verklegar framkvæmdir, væri ýmist í framkvæmd eða verklegum und- irbúningi, nú þegar. Þessi tillaga væri eitt dæmi enn um það, að bæjarfulltrúar minnihlutaflokk- anna hafa þá aðferð að flytja tillögu um að koma í framkvæmd mál<um sem ýmsar stofnanir bæj- arins þegar eru farnar að vinna að en tilgangurinn er sá að geta í auglýsingaskyni tileinkað sér þessi verk á eftir, þegar þau eru komin í framkvæmd. Sagði G. H. G. að þessi tillaga í vatns- veitumálunum væri auglýsinga- tillaga og ekkert annað. Vísaði G. H. G. til greinargerðar borg- arritara sem sýndi ljóslega að miklar framkvæmdir væru nú á vegum vatnsveitunnar. í sambandi við framkvæmdir á síðasta kjörtímabili benti G. H. G. á að í árslok 1957 hefðu æðar vatnsveitunnar verið samtals 174,40 km og þær hefðu verið auknar á kjörtímabilinu um 19,66 km. og væri hér um mikla aukningu að ræða. Sá vatnsskort- ur sem gert hefði vart við sig á s. 1. 4 árum stafaði að mestu af breyttum atvinnuháttum, sem kæmu meðal annars af þvi að mikill meiri hluti fiskafurða er fullunninn hér í bæ og þarfnast sú vinnsla nú mikils vatns. Minnti hann í því sambandi á þær ráðstafanir sem vatns- veitan hefði gert varðandi það að selja vatn til slíkra stofnana skv. mælum sem hefði haft mik- inn sparnað í för með sér. Þá benti hann einnig á að vatnsveit- an hefði á síðustu árum tekið upp þjónustu við almenning í sambandi við viðgerðir og hafin hefði verið víðtæk leit að bil- unum í vatnsæðum og jafnóðum gert við þær og fundizt hafa. A næstu árum mundi vatnsveit- an vinna að eftirtöldum verk- efnum: 1. Dæla verður sett á aðal- vatnsæðar til bæjarins, eins og borgarritari lýsti. 2. Gerðar verða áætlanir um framtíðarskipulag dreifingar vatns í bænum og haldið áfram frekari endurbótum á dreifi- kerfi. 3. Áætlanir verða gerðar um byggingu geyma og síðan hafizt handa um byggingu þeirra. Verð- ur byggingu vatnsgeyma vænt- anlega lokið innan tveggja ára. 4. Rannsókn á möguleikum á auknu vatnsaðrennsli að Gvend- arbrunnum og athugaðir aðrir möguleikar á auknu neyzluvatni fyrir bæinn. Bar G. H. G. fram þá tillögu að vísa skyldi tillögu kommún- ista til bæjarráðs og vatnsveitu- nefndar, þar sem upplýst væri, að unnið væri að öllum þeim málum, sem tillagan fjallaði um. Var sú tillaga að lokum sam- þykkt með 10 atkvæðum gegn 5. Fjórveiting ekki leyfð til kaupa d ilugvél til óburSardreiiingar Á FUNDI með blaðamönnum í gær, skýrði Páll Sveinsson, sand- græðslustjóri, frá því, að fjár- veitinganefnd Alþingis hefði ekki sinnt beiðni um framlag til kaupa á flugvél, sem nota skal í því skyni að dreifa áburði yfir afrétti. Kvað, hann þetta hin alvarlegustu tíðindi því hér sé um að ræða mál sem um margt megi líkja við baráttu íslendinga í landhelgismálinu. Var farið fram á rúmlega 300,000 kr. til kaupanna. Á fundi þessum þar sem Stein- grímur Steinþórsson, búnaðar- málastjóri var einnig viðstadd- ur, var rætt nokkuð um sandgræðslumálin á breiðum grundvelli. Kvað búnaðarmála- stjóri endurskoðun 'pá. sem nú er lokið á sandgræðsluiögunum m.a. miða að því að taka upp nýjar aðferðir til uppgræðslu landsins. í stað þess að loka alveg sandgræðslusvæðunum verði svæðin hagnýtt jafnframt að svo miklu leyti, sem slíku verður við komið með beit eða heyöflun. Páll Sveinsson var ekki myrk- ur í máli er hann ræddi um sand græðslumálin. Kvað hann nauð- syn bera til að hefta stórfellda uppgræðslu afréttanna, því menn hafi gjörsamlega gleymt beitar- löndum en leggi alla áherzlu á öflun heyja. Kvaðst hann þora að spá því að eftir 10—12 ár að óbreyttum aðstæðum, myndi rík ið þurfa að kosta til stórkost- legra fóðurkaupa yfir sumarmán uðina er beitilöndin væru komm í örtröð. Land það, sem við auð- veldlega getum ræktað upp aft- ur með áburðardreifingu úr lofti, er upp í 400 m hæðarlínu, sagði hann. Björn Kristjánsson, fyrrum al- þingismaður formaður nefndar- innar sem endurskoðaði sand- græðslulögin kvað nefndina hafa ferðazt um sandgræðslu- svæðin um land allt. Fyrir þá, sem lítil kynni hafa haft af þess um málum, opnast nýr heimur við slíka yfirferð. Þeir, sem skoðað hafa sandinn sem óvið- ráðanlegt fyrirbrigði, sjá stórar grasspildur vaxa upp úr auðn- inni, en þær hljóta aftur að minna íslendinga á hið mikla og aðkallandi starf, sem hér er að vinna. Erlendur sérfræðingur, sem hingað kom, skýrði frá því að á afréttarlöndum landsins mætti beita 750,000 fjár, en umfram það r. ,’ndi landið ekki þola. Nú erum við búnir að ná þessari tölu. Björn ræddi einnig um dreifingu áburðar yfir afréttarlöndin og lagði áherzlu, hve auðvelt það væri að græða þau upp aftur á fáum árum, þegar beitt væri nýj ustu tækni, þ.e.a.s. að dreifa úburðinum úr loftinu. Var á þessum fundi lengi rætt um þessi mál og kom þar ýmis- legt fleira fróðlegt fram. I gæraag vildi það til inni við Lækjarhvamm við Suðurlands- braut, en þar er nú verið að grafa fyrir miklu holræsl, að bíll stakkst ofan í skurðinn. Hafði billinn, sem er sunnan úr Kópa- vogi, verið á leið til bæjarins, en er hann kom þar sem „útskot* hefur verið sett vegna þessara framkvæmda, varð bílstjórina þess var að bremsurnar voru óvirkar. Umferðin var mikll þarna. Bílstjórinn óttaðist að hann myndi lenda í árekstrl. Vonaðl hann að billinn myndi stöðvast við að hann stýrði honum í ruðning við skurðinn. Bíllinn rann yfir ruðninginn og stakkst niður í skurðinn. Bílstjórann sakaði ekki. — „Draumurinn" draum sinn, svo að þetta fer ekki milli mála. Honum þótti Bjarni Framh. aí bls. 1 Ef draumurinn yrði veruleiki Síðar í þessari sömu grein spyr Helgi Sæmundsson: „En hvað tæki við ef draumurinn yrði að veruleika? Ég spái því ekki að Bjarni Benediktsson gerist ein- ræðisherra á íslandi og feti í fót- spor Adolfs sáluga Hitlers“. í sjálfri forystugrein Alþýðu- blaðsins þennan sama dag er þó Helgi Sæmundsson á annarri skoðun. Þar kemst hann m.a. að orði á þesssr leið, er hann gerir Sjálfstæðisflokkinn og Morgun- blaðið að umtalsefni: „Innan flokksins er nazista- kjarni, sem er engu betri en þeir Moskvukommar. Komi einræðis- klíka íhaldsins ár sinni fyrir borð eru vinnubrögð hennar líkust störfum kommúnista. Er höfund- ur umræddrar forystugreinar (í Mbl. í fyrradag. Innskot Mbl.) þar ekki undanskilinn". Formyrkvað hugarfar Helgi Sæmundsson hefur þann- ig tekið upp sama þráðinn og Tíminn og „Þjóðviljinn“, sem undanfarið hafa hamrað á naz- istagrýlunni og jafnvel líkt leið- togum Sjálfstæðisflokksins við þau hjón Evu sálugu og Peron í Argentínu. En ritstjóri Alþýðu- blaðsins hefur þó gengið lengst ailra. Hann lætur mann í draum- heimum miða byssu á þá Bjarna Benediktsson og Hitler. Og þá er spurningin: „Hvorn á ég að skjóta fyrst?“ Svona formyrkvað er hugarfar vesalings mannsins orðið af því starfi hans að verja vinstri stjórn en draumurinn". ina og samstarf flokks hans við kommúnista. Mbl. telur rétt að lesendur þess eigi þess kost að sjá í heild þann kafla greinar Helga Sæmunds- sonar, sem fjallar um drauminn. Fer hann hér á eftir: „Draumurinn um Bjarna og Adolf Hitler Kunningja minn dreymdi þenn an draum. Hann hefur fengizt nokkuð við stjórnmál, óskar vinstri stefnu sigurs á íslandi og kvíðir þeirri óheillaþróun, að öfgadraumar íhaldsins rætist. Maðurinn sagði mér sjálfur Benediktsson vera einræðisherra á ísiandi. Hafði hann bækistöð í tvílyftri höll á berangri niðri við sjó í Reykjavík. Neðri hæðin var salur einn mikill úr gleri. Var sögumaðurinn staddur á hæð skammt frá aðsetri einræðisherr- ans og sá þaðan inn í glersalinn. Dagur virtist að kvöldi kominn, en vor í lofti, og lagðist eins og aðkenning af rökkri yfir bæinn og landið. Margt manna var sam an komið þarna á hæðinni og fannst sögumanni mínum hann foringi hópsins, en bar ekki kennsl á lið sitt. Varð honum starsýnt á einræðisherrann, sem gekk um gólf í glersalnum og hafði skrýtna tilburði í frammi, æfði sig í handasiætti og reigingi fyrir framan spegil, stefndi fólki á fund sinn og rak það svo brott, öskraði valdboð í síma og leit út eins og hamstola væri. Allt í einu gekk sendiboði að sögu- manni mínum og mælti: „Nú kemur hann í heimsókn til Bjarna". Ætlaði sá sem drauminn dreymdi að inna eftir nánari skýringu, en kom í sömu andrá auga á svartan bíl er ók upp að bækistöð einræðisherrans. Út úr honum steig Adolf Hitler og gekk inn í glersalinn. Bjarni rann til móts við hann, féll um háls gestinum og fagnaði honum ákaf- lega og dansaði siðan kringum Hitler, sem var gamallegur orð- inn, lotinn í herðum og tekinn í andliti. Fannst þá sögumanninum hann snúa sér að hópnum, sem honum fylgdi, og skipa: „Fáið mér byssuna". Vissi hann ekki fyrri til en í höndum hans var forláta riffill, kjörgripur að allri smíð og vandlega fægður. Bar hann vopnið upp að vanga sínum og miðaði á Hitler og Bjarna, þar sem þeir létu vel hvor að öðrum inni í glersalnum. Þóttist hann eiga alls kostar við þá félaga, enda skotfærið ákjósanlegt. En sem hér var komið sögunni og ekki annað eftir en hleypa af sneri sögumaðurinn sér að föru- nautunum og spurði: „Hvorn á ég að skjóta fyrst?“ Svar við spurningunni nam hann ekki, en vaknaði í rúmi sínu og vissi þeg- ar, að veruleikinn var allt annar en draumurinn."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.