Morgunblaðið - 07.06.1958, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.06.1958, Blaðsíða 3
Laugardagur 7. júní 1958 M O P r r' ” r * n F f) 3 Kristileg œskulýðsmáf haldin um helgina UM ÞESSA helgi munu á áttunda hundrað unglinga sækja kristileg æskulýðsmót á 6 stöðum víðs vegar um land. Munu flestir þátt takendurnir vera fermingarbörn, sem fermzt hafa á þessu vori. Mótin fara fram á þessum stöð- um: Laugum í S.-Þingeyjarsýslu, Hólum í Hjaltadal, Bifröst í Borg arfirði og Vatnaskógi, Laugar- vatni og Skógaskóla. Síðar í vor verða mót að Núpi í Dýrafirði og á Eiðum eystra, en hentara þótti, að mótin þar yrðu ekki fyrr en 5.-6. júlí. Mótin eru haldin að tilhlutan æskulýðsnefndar þjóðkirkjunnar (form. sr. Bragi Friðriksson) í nánu samstarfi við biskup lands- ins, herra Ásmund Guðmunds- sno, sem stutt hefir málið með ráðum og dáð. Skipaði hann nefndir til að undirbúa mótin á Ferming í Árnes- kirkj u SUNNUDAGINN 8. júni verða eftirtalin börn fermd í Árnes- kirkju á Ströndum: Guðrún Björg Steingrímsdótt- ir, Veiðileysu; Hildur Eyjólfsdótt ir, Krossnesi; Hrafnhildur Jóns- dóttir, Stóruávík; Ingveldur Kiist jánsdóttir, Nautsvík; Vilborg Jóns dóttir, Munaðarnesi; Haukur Guð jónsson, Kjörvogi; Jón Kristjáns- son, Dröngum; Páll Jónsson, Ing- ólfsfirði; Pétur Guðmundsson, Ó- feigsfirði; Rúnar Norðqvist, GrænhólpSveinbjörn Sveinbjörns son Litluávík. Séra Andrés Ólafsson prófast- ur á Hólmavík fermir. hverjum stað, en formenn nefnd- anna eru: Séra Erlendur Sig- mundsson, Seyðisfirði; séra Pét- ur Sigurgeirsson, Akureyri; séra Birgir Snæbjörnsson, Æsustöð- um; séra Jón ísfeld, Bíldudal; séra Leó Júlíusson, Borg; séra Magnús Runólfsson, Reykjavík; séra Ingólfur Ástmarsson, Mos- felli; séra Sigurður Einarsson, Holti. Mótin fara fram á líkan hátt á öllum mótsstöðum, enda hefir verið gefin út sameiginleg dag- skrá fyrir þau öll og er þar prftnt- að ávarp biskups til mótsgesla. Mótin hefjast um kl. 4 á laug- ardag. Um kvöldið verður kvöld- vaka, en á sunnudagsmorgun verða morgunbænir og Biblíulest ur. Ríflegur tími er ætlaður til útivistar, íþrótta og leika. Mót- unum verður slitið síðdegis á sunnudag að aflokihni messu, sem hefst kl. 2. Á mótsstöðunum er séð fyrir fæði að öllu leyti og selt vægu verði. Hér er um að ræða nýjung í æskulýðsstarfi þjóðkirkjunnar og er það von allra þeirra, sem að mótunum standa, að þau megi verða þátttakendum ölium til gleði og blessunar. Mikið und’. búningsstarf hefir verið unmð á hverjum stað. Öii- um þeim, sem það starf hafa unn- ið og styðja að góðum árangri þessara móta á einhvern hátt, vill æskulýðsnefndin tjá þakkir sín- ar. Sérstakar þakkir eiga þeir skildar, sem opna unglingunum hús sín til þessara móta og með því sýna skilning a málum kirkj- unnar og áhuga á því, að starf hennar beri ríkulega ávexti með- al æskufólkstns i landinu. STAKSTEIHAR Fréttabréf úr Breiðdal: Knldar — Hreindýr nærgöngnl — Tóíniaraldnr — Breiðdulsaeiði opnuð BREIÐDAL, 1. júnf. — Nú loks við þessi mánaðamót virðist ætla að slota hinum þrálátu kuldum, sem hindrað hafa gjörsamlega gróður allan maímánuð. Jörðin er þó mjög þurr, en útlit fyrir náttfall, sem að visu verður héla vegna hins mikla loftkulda. Það er mikii raun öllum þeim, sem við sauðfjárbúskap fást, þegar vorkuldar gerast svona langvinn- ir, en það hefur löngum þjakað bændur þessa lands, og þeirra eina vörn í því stríði er að reikna með því að þurfa að gefa fénaði til fardaga, en á þá fyrirhyggju hefur löngum viljað bresta. — Flestum mun þó hafa farnast sæmilega að þessu sinni. í vetur var talið að hér hefðu verið allt að 70 hreindýr. Voru þau svo nærgöngul á næsta bæ við Breiðdalsheiði, Þorgrímsstöð- um, að, þau gengu heim að túni með fénaði. Einnig sóttu þau mjög í nýrækt, sem er nokkuð frá bænum og er hún þó vel girt. Þau settu það ekki fyrir sig og stukku yfir girðinguna. Hafa þau vafalaust gengið vel undan vetri í þetta sinn. Tófufaraldur er hér mjög mikill. Hafa þrjár hlaupatófur verið drepnar, þar af komu tvær heim á tún á Skjöldólfsstöðum, en aðra þeirra varð þó að elta langa leið áður en hún féll fyrir skoti veiðimannsins. Grenjaleit- ir eru að jiefjast, og hafa tveir menn verið ráðnir tófuskyttur hér í Breiðdalnum. Fyrir nOkkru var Breiðdals- heiði opnuð og var þess mikil þörf, t. d. vegna sjúklinga, sem komast þá til lækna, en hérað þetta er læknislaust og hefur svo lengi verið. Er það uggvænlegt ef ekki tekst að fá lækna í hin afskekktari héruð. Viðgerðir á vegum eru að hefj- ast, enda mikil nauðsyn. Útlit með byggingar er mjög slæmt, svo og vélakaup bænda, og er hætt við að mörgum bónd- anum þyki verða þröngt fyrir dyrum, eftir hina síðustu tilburði stjórnarvalda í verðlagsmálum. P. G. Líkan af húsi Byggingarsamvinnufélags prentara við Sóiheima. SéS framan á suðurálmuna, en hinar tvær koma til hiiðar. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) 14 hæZir - £ 2 íbúhir Likan at vœntanlsgu stórhýsi Byggingar- suinvmnureiags prentara í sýnin&n.&i~gga Morgunblaðsins UNDANFARNA daga hefur verið stillt út í sýningarglugga Morg- unblaðsins líkani af stórhýsi því, er Byggingarsamvinnufélag prent ara reisir í sumar að Sólheimum 25. — — Byrjað er að stilla upp skrið- mótum á öðrum helmingi grunns- ins, sagði Guðbjörn Guðmunds- son, formaður félagsins, er blaðið ræddi við hann um bygginguna, en húsið verður steypt upp í tvennu lagi. Hefst steypa á fyrri helmingnum síðast í þessum mán- uði, en fullsteypt verður húsið snemma í ágúst. Húsið verður 14 hæðir með kjallara og þakhæð, rúmlega 38 metrar að hæð. Það verður byggt stjörnulaga, þrjár álmur með sameiginlegum kjarna, þar sem i verða tvær lyftur rúmgóður skáli eða forsalur og stigahús, en Kirkja Óháða safnaðar- ins veraur vígð í haust ÓHÁÐI fund sinn í inu, Kirkjubæ, 27. fyrra mánað- ar. Prestur safnaðarins, séra Emil Björnsson minntist safnað- armeðlima er látizt höfðu á liðnu ári. Formaður safnaðarins, Andrés Andrésson, sagði frá starfinu í söfnuðinum sl. ár, og gat þess að útlit væri fyrir að kirkja safn aðarins verði skemur í byggingu en allar aðrar kirkjur, sem reist- ar hafa verið í höfuðstaðnum. Eru allar horfur á að kirkjan verði vígð og tekin í notkun í haust með lausum sætum, en föstum sætum komið fyrir í henni síðar. Kirkjusalurinn var steyptur upp fyrir seinustu ára- mót og komst undir þak, og eftir að fjárfestingarleyfi var fengiö í vor fyrir innréttingu, var haf- ut handa af kappi. Kirkja þessi er lítil, mun rúma um 200 manns i sæti. Hún er mjög nýtízkuleg ot björt, og verður einkar hent ug fyrir þá starfsemi sem þar á að fara fram. Söfnuðurinn hefur nú guðs- þjónustuhald og alla starfsemi söfnuðurinn hélt aðal- j sína nema fermingar í félags- nýja félagsheimil- | heimilinc. sem er áíast vtð kirkj- una og var vígt síðastliðið haust. Fermingar fóru í vor fram í Nes- kirkju. Söfnuðurinn hefur nú starfað i 8 ár með miklum blóma og fund- ir og aðrar samkomur verið mjög fjölsótt. Nýlega var hleypt af stokkun- um happdrætti til ágóðu fyrir kirkj ubyggingarsjóðinn. Allir starfsmenn og trúnaðar- menn safnaðarins voru emróma endurkjörnir. Form. er Andrés Andrésson og aðrir í safnaðar- stjórn eru Jóhann Ármann Jónas- son varaformaður, Tryggvi Gísla son ritari, Bogi Sigurðsson gjald- keri, Einar Einarsson, Ingibjörg Isaksdóttir, ísleifur Þorsteinsson, Rannveig Einarsdóttir, Sigurjón Guðmundsson og Stefán Árnason. í varastjórn eru Jóhanna Egils- dóttir, Jón Arason, Marteinn Halldórsson og Þórarinn Jónsson. Kirkjubyggingarnefnd skipa séra Emil Björnsson formaður Einar Einarsson, sem hefir eftirlit með byggingarframkvæmdum, Gestur Gíslason, Ólafur Pálsson og Þor- finnur Guðbrandsson. íbúðarálmur koma þar útfrá 1 þrjár áttir. í kjallara verða geymslur, frystihólf fyrir hverja íbúð, tvö vélaþvottahús, geymslur fyrir reiðhjól og barnavagna, sorp- geymsla o. fi. Á hverri iiæð, 1 —12., verða tvær 4ra, ein fimm, ein þriggja og ein tveggja herbergja íbúðir, auk eldhúss, baðs og geymslu. — Þakhæðin verður dregin inn um tæpa tvo metra, sagði Guð- björn, — og verða þar því rúm- góðar göngusvalir. 1 einni álm- unni þar verður 60 íermetra sal- ur, auk eldhúss, snyrtiherbergja og fatageymslu til afnota fyrir íbúðareigendur hússins. í hinum tveimur álmunum verður sín fimm herbergja íbúðin í hvorri, m. a. með dyrum úr hverju her- bergi út á svaiir þeirrar íbúðar. Alls verða því í húsinu 62 íbúðir, en eina af þeim á öll blokkin handa húsverði, sem sér um hirð- ingu á öllum almenningi, þar á meðal ytri forstofum, göngum og kjallara, annast viðgerðir og við- hald og sér um að allar um- gengnisreglur séu haldnar. í húsinu verður geisalhitun frá sameiginlegri kyndistöð fyrir ca. 270 íbúðir í Hálogalandshverfinu. Á hverri hæð verður sjálfvirkur sorpbrennsluofn, dyrasími í hverri íbúð og sjálfvirkt loftnet fyrir útvarp og sjónvarp. Tveir þriðju hlutar íbúanna geta haft bílskúr en allir bílstæði. Er það eins og bezt þekkist erlendis við fjölbýlishús. — Mjög eru íbúðir þessar áætlaðar ódýrar. Verð tveggja herbergja íbúðanna 190 þús. kr. tilbúnar, 3ja herbergja 225 þús., 4ra herbergja 275 og 285 þús. og 5 herbergja 310 þús. Stærðirnar eru frá 71—-123 ferm. íbúðirnar á þakhæðinni verða nokkuð dýr- ari. Verðútreikningar þessir eru miðaðir við maí sl., og hækkun verður að sjálfsögðu einhver vegna hinna nýju skatta og tolla og hækkaðs kaups. Húsið stendur hátt og þaðan verður víðsýnt þar sem uppi á efstn svölum er komið 8—10 m upp fyrir Öskjuhlíðina. — íbúðirnar eru flestar seldar, sagði Guðbjörn Guðmundsson, að eins fáar 4ra og 5 herbergja eftir ! og ein tveggja herbergja. Líkanið verður enn til sýnis í glugga Morgunblaðsins í nokkra i daga. Sovét og landhti-gís- málið Utanríkisráðuneytið hefur til- kynnt að ambassador Sovétríkj- anna hér á landi hafi gengið á fund utanríkisráðherra og tjáð honum, að rússneska stjórnin myndi viðurkenna útfærslu ís- lenzkra fiskviðitakmarka i 12 sjó mílur. fslendingar telja mikilsvirði hverskonar stuðning við aðgerðir þeirra í friðunarmálunum. Þess- ari fregn um væntanlega viður- kenningu Rússa mun því fagnað. En ekki er samt óeðlilegt að i sambandi við hana rif jist það upp, að Rússar beittu sér mjög gegn tillögu íslenzku sendinefndarinn- ar á Genfarráðstefnunni um sér- staka heimild til handa strand- ríki, sem á efnahagsafkomu sina gersamlega komna undir fisk- veiðum, til þess að færa út fisk- veiðitakmörk sín. Mun þessi and- staða Rússa gegn íslenzku tillög- unni hafa komiö mörgum á óvart. Fjármálaráðherra og „bjairgráðin“ f útvarpsumræðunum frá Al- þingi á mánudags- og þriðju- dagskvöld kom það greinilega í ljós, að fjármálaráðherrann var einn þeirra fáu manna, sem trúa því raunverulega að „bjargráð“ vinstri stjórnarinnar í efnahags- málunum komi að einhverju gagni. Flestir aðrir gera sér ljóst, að í kjölfar þeirra hljóta að renna stórfelldar verðhækkanir, kaupgjaldshækkanir og mjög auk in dýrtíð og verðbólga. f eldhús- dagsræðu sinni talaði fjármáia- ráðherrann um að sumir stjórn- málamenn „sjái ekki nema niður fyrir fætur sér“ í þessu sambandi er rétt að minnast nokkuð á framsýni fjár- málaráðherrans. Hann hélt því hiklaust fram í eldhúsdagsræð- um sínum veturinn 1956 meðan hann sat enn í rikisstjórn með Sjálfstæðismönnum, að aðaierf- iðleikarnir í islenzkum efnahags- málum þá væru fyrst og fremst kommúnistum að kenna. Þeir hefðu sett á stað nýtt kapphlaup milli kaupgjalds og verðlags með hinum pólitisku verkföllum árið 1955. Þetta var skoðun Eysteins Jóns sonar í febrúar 1956. Hin mikla kollsteypa En nokkrum mánuðum siðar framkvæmdi þessi sami fjár- málaráðherra einhverja þá mestu kollsteypu, sem sm getur í ís- lenzkum stjórnmálum. Hann hélt því þá fram, að efnahagserfið- leikarnir væru alls ekki aðallega kommúnistum að kenna heldur Sjálfstæðismönnum, sem hann hafði setiö með í ríkisstjórn sl. 9 ár og sem fjármálaráðherra á árunum 1950—1956. Og nú sá Eysteinn Jónsson það úrræði skynsamlegast að fá kommúnista í stjórn meö sér. Án þeirra væri ekki hægt að leysa vanda efnahagsmálanna. Við Sjálfstæðismenn væri hins vegar alls ekki hægt að tala um slik mál. Nú talar Eysteinn Jónsson með mikilli fyrirlitningu um þá menn, sem „sjái ekki nema niður fyrir fætur sér“. En í hverju birtist framsýni hans sjálfs? f samvinnu hans við kommúnista um Iausn efnahagsvandamálanna? Hvernig hefur sú samvinna gefizt? Hvern- ig gengur með „varanlegu úrræð in“, sem Framsókn lofaði og sagð ist eiga í pokahorninu með komm úr'stum?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.