Morgunblaðið - 13.06.1958, Page 15

Morgunblaðið - 13.06.1958, Page 15
Föstudagur 13. júní 1958 MORC.UNnr. 4ÐVÐ 15 ísl. /fð/ð lék vel í einn stund- arfjórðung, Englendingar í sex Í GÆKKVÖLDi sigraði Bury úr- valslið landsliðsnefndar með 3 markutn gegu 0. Er þá lokið heim sókn þessa 3. deildar liðs frá Englandi. Islenzkir knattspyrnu- menn hafa litlum sigrum að fagna úr viðureign við þá. Bury heidur heimleiðis með f jóra sigra og 1 tap, með 13 rnörk skoruð gegn 2. Leikurinn i gærkvöldi var sami einstefnuaksfcurinn af hálfu Bret- anna eins og hinna fjögurra. Þó átti is.I liðið ágætan ieikkafla síðasta þriðjung fyrri hálfleiks. Utan örfárra skyndiupphlaupa í síðari hálfleik má heita að þar með sé talinn tíminn er isl. Iiðið sýndi samleik svo að i járnum stóð við brezka liðið. Veðrið var leiðinlegt til leiks, rigning lengst af, kalt og völl- urinn háll. Slíku eru enskir van- ir en að því kom undir lok að þeir áttu jafn erfitt með að fóta sig og-landar vorir. ★ Fyrsta mark Bury kom er 2 mín. voru af leik. Gaf Munro út- herji, sem kominn var upp að endamörkum vel fyrir. ísl. vörn- inni mistókst að „hreinsa", Dar- byshire miðherji skaut, Heimir varði en missti og Parker fékk knöttinn og skoraði af stuttu faeri. Eftir það þyngdist sókn Bury mikið og þeir komust ótal sinn- um í færi. Átti Parker t. d. hörku skot í stöng og í þrjú önnur skipti tókst naumlega að bjarga við ísl. markið. Allan þennan tíma átti ísl. liðið ekki nema eina tilraun til marks sem teljandi er. Gaf Þórður Þórð ar fram. Ríkarður brunaði á eftir knettinum og var nálægt því að vera brotlega hindraður, en hon- um tókst að skjóta og það var varið í horn, sem ekkert fékkst úr. Skömmu síðar eða um miðbik hálfleiksins vék hann af velli eft- ir meiðsli í læri. ★ Siðustu 15 mín. hálfleiksins tókst ísl. liðinu vel upp og það var eini samfelldi kafli leiks- ins, sem það átti í fullu »ré við Bury og leikurinn var spenn- andi — tvö jafngóð lið á vell- inum. Á þessum leikkafla voru tækifærin íslendinganna. — Sveinn gaf vel inn til Þórðar, sem skallaði að marki. Það var naumlega varið en Mc- Laren hélt ekki knettinum. Guðm. Óskarsson kom aðvíf- Félagslíl Fariuglar! Um helgina verður farið til Þingvalla. Gengið á Botnsúlur eða Hrafnabjörg. Upplýsingar í skrifstofunni í kvöldkl. 8,30—10. Sxmi 15937, Ferðafélag íslands efnir tii þriggja skemmtiferða um helgina. Kl. 2 á laugardag er ferð í Þórsmörk og önnur í Brú- arárskörð, í þeirri ferð verður ef til vill gengið á Högnhöfða. — A sunnudagsmorgun kl. 9 er göngu- ferð á Botnsúlur. Farmiðar eru seldir í skrif- stofu félagsins, Túngötu 5, sími 19533. Handnkattieiksstúlkur Ármanns! Áríðandi að allar mæti á æf- ingu kl. 8 I kvöid. Armenmngar. Yngri og eldri flokkar. Mætið öll á gönguæfingu vegna 17. júni, » félagssvæðinu í kvöld kl. 8. andi og skaut en bakverðirnir voru komnir í markið og skot Guðm. var því miðnr lágt svo þeir fengu varið í horn. Þar hefði skot dugað til að jafna metin í Ieiknum. Mínútu síðar gaf Þórður fallega í eyðu fram. Guðmundur Óskarsson komst inn fyrir og var einn gegn markverði, en skotið fór fram hjá. ★ Er leikur hófst f síðari hálf- leik léku Bretar upp miðjuna. Parker var með knöttinn um 20 m frá marki og engin kom til móts við hann, hann skaut glæsi- legu skoti upp í markhornið. Staðan var 2:0 fyrir Bury. Enn náðu Bretar öllum tökum Sv/jb/oð í úrslitum í GÆRKVÖLD sigraði Svíþjóð Ungverjaland í leik í heimsmeist arakeppninni, skoruðu 2 mörk gegn 1. Svíar hafa forystu í 1. riðli og eru öruggir að komast í 8 þjóða úrsiit. á leiknum og það lá mjög á úr- valsliðinu þó allri hættu væri bjargað frá, þar til á 35 mín. að Parker skoraði sitt þriðja mark í leiknum upp úr samleik innan vítateigs úrvalsins eftir horn- spyrnu. í síðari hálfleik áttu íslending- ar aðeins eitt og eitt upphlaup. Það bezta um miðjan hálfleik er Þórður Þórðarson komst upp hægri kant, gaf fyrir þar sem Helgi Björgvinsson (sem kom inn fyrir Ríkharð) var í færi, en skaut yfir. Hættulegt var einnig síðasta upphlaupið er Grétar Sig- urðssoa komst í gegn á hægri kanti, gaf vel fyrir og Ellert skaut vel — en McLaren tókst snilldarlega að bjarga. ★ Leikur ísl. liðsins virtist æði tilviljanakenndur. Það er ekki gott að finna fullnægjandi skýr- ingu á því að úrslitaliðið náði ágætu spili einn stundarfjórðung af 6 en hvorki áður né síðar. Langtímum lagðist liðið í vörn og var Halldór Halldórsson ákaf- astur í að breyta um og fara í Iðnaðarhúsnæði 400—600 fermetrar til leigu á góðum stað í austur- bænum. Húsnæðið leigist í einu eða mörgu lagi. Til- boð sendist Morgunblaðinu fyrir n.k. þriðjudag merkt: „Götuhæð —6152“. Ferðatöskur há Prafjofxnort íjölbreytt úrval íásl í næstu búð II nimiupiM nm □L p* sókn, en tókst misjafnlega. Aft- asta vörnin verður ekki sökuð um hvernig fór, nema þá fyrsta markið. Parker virtist leika full- lausum hala og verður það að skrifast hjá Sveini að mestu. Út- herjainir voru aldrei notaðir að heitið gæti — stundum vanrækt- ir. Slíkt leiðir aldrei til árang- urs. Miðtríó Bury fengi ekki unnið marga leiki án aðstoðar útherjanna. Til þess eru 5 menn í framlínu að allir spili og reyni að aðstoða hver ánnan. Hörður, Hreiðar og Heimir skiluðu sínu vel í vörn, Jón var heldur inn- arlega, Halldór byggði vel upp og gefur góðar sendingar. Að því leyti er hann liði meiri styrkur sem hliðarframvörður en mið- vörður. I framlínu skilaði Þórður Þórðarson sínu bezt og Guðm. Óskarsson, en gallinn var hve lítið þeir notuðu kantana. Ellert sýndi oft lagleg tilþrif en var alltof sjaldan hafður með. Grét ar var stórlega vanræktur. Enska liðið sýndi enn hvernig knattspyrna á að vera, þó er Bury 3. deildar lið. Hraðinn, leiknin, dreifing leiksins og uppbyggiiig er höfð í fyrirrúmi, þar við bæt- ist krafturinn sem virðist óend- anlega miklu meiri hjá þeim en okkar mönnum, sem stundum eins og lippuðust niður í návígi, það vantar neistann sem gerir útslagið á návigið eða á upphlaup ið. Bretarnir voru vel að sigri komnir, en úrslit leiksins hefðu mátt gera 4:1 eða 5:2 eftir gangi hans. Mergurinn málsins er að ís- lendingarnir spiluðu í einn stund arfjórðung, Bretar í sex. Ég þakka öllum þeim sem glöddu mig með heimsókn- um og heillaskeytum á 85 ára afmælisdegi mínum 7. þ.m. Guð blessi ykkur öll. Hólmavík, 9. júní 1958. Guðrún Árnadóttir, Hellu, Hólmavík. Þökkum hjartanlega öllum sem glöddu okkur á fjöru- tíuára hjúskaparafmæli okkar. Helga og Ormur Ormsson, Borgarnesi. HELGA JÓNSDÓTTIR frá Höfn í Reykjavík andaðist að Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund 10. þ.m. Hún var fædd að Hrísakoti í Kjós 9. sept. 1866. Útförin tilkynnt síðar. Nokkrir vinir liinnar látnu. Móðir okkar GUNNÞÓRA GÍSLADÓTTIR andaðist að heimili sinu Blönduhlíð 29 12. þ.m. Systkinin. Hjartkær eiginmaður minn GUÐMUNDUR GISSURARSON bæjarfulltrúi, sem andaðist 6. júní s.l. verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði laugardaginn 14. júní kl. 2 e.h. Athöfnin hefst með húskveðju heima að Tjarnar- braut 15 kl. 1.15 e.h. Blóm vinsamlegast afbeðin, en þeim sem vildu minnast hans er bent á sjóð þann sem stofnaður hefur verið til minningar um hann við Elli- og hjúkrunarheimilið Sól- vang. Minningarspjöldin fást í bókabúðum bæjarins og Blómaverzluninni Sóley. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpau. Fyrir hönd vandamanna. Ingveldur Gísladóttir. Okkar innilegustu þakkir færum við öllum nær og fjær, fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu KRISTÍNAR RÓSU JÓNASDÓTTUR Guðmundur Andrésson, Jóiiina Jónsdóttir, Guðni Þórðarson, Kristín R. Guðnadóttir. Innilegar þakkir til allra sem auðsýnt hafa okkur samúð við andlát og útför móður okkar og tengdamóður GUDRÚNAR GUÐJÓNSDÖTTUR Selvogsgötu 5, Hafnarfirði. Börn og tengdabörn. Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför móður okkar RÖGNU JÓNSSON Ellen Eyjólfsdóttir og Jón Eyjólfsson. Hjartanlegar þakkir sendum við öllum þeim, sem auð- sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og út- för STEFANS BJARNASONAR skipaeftirlitsmanns frá Isafirði. Guðrún Helgadóttir, dætur og tengdasynir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.