Morgunblaðið - 13.06.1958, Síða 16

Morgunblaðið - 13.06.1958, Síða 16
VEÐRIÐ A-kaldi eða stinningskaldi ____Dálítil rigning. Eyðiny óþefs Sjá bls. 9. 131. tbl. — Föstudagur 13. júní 1958 Almennir stjórnmála- fundir Sjálfstœðismanna á fjórum stöðum í kvöld SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN heldur fjóra almenna stjórnmála- lundi í kvöld- A Isafirði, Blönduósi, Sigiufirði og Seyðisfirði. Fundurinn á ísafirði verður haldinn í Uppsölum og hefst kl. 8,30 síðd. Frummælendur verða alþingismennirnir Björn Óiafsson, Ólafur Björnsson og Kjartan Jóhannsson. Á Blönduósi hefst fundurinn kl. 8 síðd. Frummælendur á þeim fundi verða alþingismennirnir Jón Páimason og Magnús Jónsson. Fundurinn á Siglufirði verður í Sjómannaheimilinu og máls- hefjei.dur á þeim fundi verða alþingismennirnir Sigurður Bjarna- son og Friðjón Þórðarson. Á Seyðisfirði verða frummælendur Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri og Einar Sigurðsson útgerðarm., og fundurinn þar hefst ki. 8,30. e.h. — Sölnbonn n öli og gosdrykbjnm Deila um greiðsluskilmála 1 DAG fæst ekki Egilsöl í Rvík og ekki heldur Samtasdrykkir. Ástæðan er sú, að skorizt hefur alvarlega í odda með kaup- mönnum og öðrum þeim, sem Kom það bann þegar til fram. annast sölu og dreifingu á öli og gosdrykkjum og Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni og gos- drykkjaverksmiðjunni Sanitas. Eins og kunnugt er, eiga iðn- fyrirtæki í landinu og verzlamr við mikla og sífellt vaxandi örð- ugleika að etja, m. a. vegna rekstrarfjárskorts. Af þeim ástæð um munu ölgerðin og Sanitas hafa tilkynnt öllum viðskipta- vinum sínum, að nú yrði teknir upp nýir viðskiptahættir. Yrðu allir að greiða ölið og gosdrykk- ina með staðgreiðslu — öllum lánsviðskiptum yrði þætt. Kaupmenn brugðu skjótt við því að hér var um að ræða mál, sem mjög snerti hagsmuni verzl- unarstéttarinnar. Það mun vera svo, að ýmsir kaupmenn. greiða öl og gosdrykki frá verksmiðj- um þessum við afhendingu, en margir greiða samkvæmt mánað- arreikningi og hefur svo verið um langt árabil. Félag matvörukaupmanna hér í Reykjavík hélt fund og mot- mælti þessum kröfum verksmiðj- anna eindregið. Taldi það með öllu ógerl. að verða við kröf- um staðgreiðslu. Sama sinnis voru veitingamenn. Þá munu verksmiðjurnar hafa tilkynnt að þeir kaupmenn, veitingamenn og aðrir, sem neituðu staðgreiðslu- viðskiptum yrðu settir í af- greiðslubann. Þessu svaraði Félag matvöru- kaupmanna, Félag söluturnaeig- enda og Veitingamannasamband ið með því að leggja algjört sölu bann á Egilsöl og gosdrykki, svo og á Pepsi Cola og aðra fram- leiðslu Sanitasverksmiðjunnar. kvæmda í gærdag. I gærkvöldi voru framleiðsluvörur verk- smiðjanna ófáanlegar í Reykja- vík eða Hafnarfirði. Þórsmerkurför Heimdallar Ferðadeild Heimdallar efnir til ferðar í Þórsmörk um næstu helgi. Farið verður frá Reykjavík kl. 2 e. h. á laugardag, en komið til baka kl. 10 á sunnudagskvöldið. Farmiðar eru seld- ir * skrifstofu Heimdallar í Valhöll við Suðurgötu. Opið dag- lega kl. 5—7 e. h. — Sími 17102. — Myndin hér að ofan er af Hvannagjá í Þórsmörk, en marg- ar slíkar hrikalegar gjár skerast inn í Mýrdalsjökul. (Ljósm. Óttar Kjartansson). Skerðing lífskjaranna óhjákvœmileg ef sjávaraflinn glœðist ekki sagði Jónas Haralz á Stúdentafundinum i gœr UMRÆÐUFUNDUR Stúdenda- félags Reykjavíkur um „bjarg- ráðafrumvarpið" í gærkvöldi var vel sóttur. Jónas Haralz hagfræð- ingur og dr. Jóhannes Nordal fluttu framsöguræður. Jónas var ekki mjög svartsýnn á framtíð efnahagsmálanna, kvað þar samt enga örugga lausn, en meginskil- yrði fyrir lausn væri hins vegar það, að þjóðin og forystumenn- irnir þyrðu að horfast í augu við veruleikann og hætturnar. Kvað hann draga verða úr fjárfestingu og efla framleiðslu útflutnings- varnings. Verðbólgunni yllu of miklar framkvæmdir og of hátt kaup. Aðgerðir ríkisvaldsins hefðu miðazt við að draga úr af- leiðingum verðbólgunnar, en ekki að stöðva misræmið í pen- ingamálunum. Ræða dr. Jóhannesar Nordal Bridgemótið: sveitir Halls og Hjalta gefa hlotið sigur l NÆSTSÍÐUSTU umferðinni á íslandsmótinu í bridge fóru leik- ar þannig: Ragnar vann Eggrúnu, 56:29; Hallur vann Eystein, 69:23; Hörð- urvann Ásbjörn, 64:50; Karl vann Óla, 57:39; Árni M. vann Ástu, 101:34; Hjalti vannSigurbj., 72:37; Jón jafnt við Hólmar, 50:49. Fyrir síðustu umferð sem spil- uð var í gærkvöldi var sveit Halls efst með 13 stig og næstar sveit Hjalta með 12 stig og sveit ir, Árna M., Ásbjörns og Harðar með 10 stig, svo aðeins var mögu- leiki fyrir sveitir Halls og Hjalta að hreppa íslandsmeistaratitilinn. í síðustu umferðinni, sem iauk í nótt spilaði sveit Halls við sveit Hólmars og sveit Hjalta við sveit Harðar. í kvöld hefst íslandsmótið í tvímenning. Þátttakendur eru 48 pör mjög víða af landinu. Nú- verandi fslandsmeistarar eru þeir feðgar Sigurður Kristjánsson og Vilhjálmur Sigurðsson og hafa þeir fullan hug að halda titlinum enn um sinn. Síðustu fréttir Þegar síðasta umferðin var hálfnuð í gærkvöldi stóðu leikar þannig að Hallur hafði 28 stig gegn 6 stigum Hólmars, og sveit Harðar 38 stig gegn Hjalta. Allt benti því til að sveit Halls hlyti íslandsmeistaratitilinn. var mjög í sama dúr, enn hefði ekki tekizt að marka ákveðna stefnu 1 efnahagsmálunum og landsmenn vildu ekki sætta' sig við að herða sultarólina. Stefnu- leysi væri ríkjandi, bráðabirgða- ráðstafanir væru gerðar, en ekki höggvið við rót meinsins. Settu marki yrði aldrei náð fyrr en Ijóst væri hvert stefnt væri og nú bæri að gera ráðstafanir til þess að efla trú fólks á krónuna. Nú væri hins vegar svo komið, að arðbær avinnurekstur væri almennt talinn brask, en allur hallarekstur væri talinn bera vott um þjóðhollustu. Benedikt Gíslason frá Hofteigi tók til máls og sagði lítið nýtt í ræðum hagfræðinganna og bar fram nokkrar fyrirspurnir. Pétur Benediktsson, banka- stjóri, kvað lítið að græða á orðaleikjum hagfræðinganna. Stefna ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálunum leiddi út í tóma vitleysu, stjórnin hefði ætlað að taka gjána í tveim stökkum, hefði nú lokið fyrra stökkina og hengi í lausu lofti. yfir gjánni. Hún vissi ekki hvort hún ætti að fara aftur á bak eða áfram, en hún kæmist ekkert, því að vitanlega dytti hún beint niður í gjána. Hagkerfið væri falskt og stjórnin þyrði ekki að horfast í augu við sannleikann. Prófessor Ólafur Björnsson flutti stutta ræðu og kvaðst sam- mála hagfræðingunum í megin- atriðum. Bar hann fram fyrir- spurn til þeirra þess efnsi, hvort þeir teldu, að hægt væri að koma á jafnvægi í fjármálunum með minnkandi fjárfestingu einni sam an — án þess að skerða lífsgjör- in. Ingimar Einarsson taldi meg- inógæfuna vera jafnvægisleysi, sem vinna íslendinga á vegum varnarliðsins hefði skapað. Jónas Haralz svaraði síðan fyrirspurnum og játti því, að vísi tölukerfið væri notað til að halda niðri kaupinu á þann hátt, að um væri að ræða fölsun á veru- leikanum „ að sumu leyti“. Spurn ingu Ólafs svaraði hann á þá lund, að skerðing lífskjaranna væri óhjákvæmileg, ef sjávarafl- inn glæddist ekki. Mjög veruleg- ur samdráttur í allri fjárfestingu yrði að verða, ef komast ætti hjá því að skerða lífskjörin að mun. Það væri ekki einungis hið opinbera og bæjarfélögin, sem yrðu að draga saman seglin, held ur og einstaklingar í íbúðarbygg- ingum sínum. Klukkan var lið- lega 11 þegar hér var komið og umræðum að Ijúka. Golfskálinn seldur Á FUNDI bæjarráðs Reykjavikur s. 1. þriðjudag var fallizt á tillögu Jóns Bergsteinssonar og borgar- lögmanns um að bærinn keypti Golfskálann á Öskjuhlíð fyrir 600 þús. kr. Jafnframt gaf bæj- arráð golfklúbbnum fyrirheit um allt að 100 þús. kr. framlagi til að gera nýjan völl hjá Grafar- holti. Bærinn mun nota Golf- skálann fyrir starfsemi æskulýðs- ráðs. Magnús Jónsson syngur á ísafirði ÍSAFIRÐI, 12. júní. — Jón Þór- arinsson, framkvstj. Sinfóníu- hljómsveitarinnar, var á ferð hér um helgina til þess að undirbúa hljómleikaför hljómsveitarinnar um Vestfirði. Mun hljómsveitin leika í Alþýðuhúsinu á ísafirði 1. júlí — og er í ráði, að Magnús Jónsson, óperusöngvari syngi með sveitinni. Hljómleikar munu og verða haldnir í Bolungarvík og suðurfjörðunum. Unnið við háspennu- línu lil Akraness AKRANESI, 12. júní. — Hingað kom Fjallfoss í morgun með 200 staura í háspennulínuna, sem á að leggja hér norðan megin Hval- fjarðar og sem flytja á okkur raf- magn frá Sogsvirkjuninni. Búið er að setja upp alla staurana frá Elliðaárstöðinni og inn með Hval firði að sunnanverðu að þeim stað, þar sem rafstrengurinn i að liggja út í fjörðinn. Rafstreng- úrinn verður tekinn á land rétt utan við Kúludalsá hér norðan fjarðarins. Þangað inn eftir er bú- ið að keyra nokkuð af staurum í línuna, og við þá bætast staur- arnir, sem Fjallfoss losaði i dag. — Oddur. AKRANESI, 12. júní — Hér var í dag danskt skip, Alfa, sem lest- aði fiskimjöl og saltfisk. Litla- fell kom og í morgun og losaði olíu. —Oddur. Vöruvelta ,,Þórs" á Hellu nœr 2j milljónir króna Hellu, 9. júní. — • AÐALFUNDUR Kaupfélagsins „Þórs“, Hellu, var haldinn að Hellu 7. þ. m. Mættir voru stjórn- armenn, endurskoðendur og 21 fulltrúi úr öllum deildum sýsl- unnar, auk margra félagsmanna víðs vegar að úr héraðinu. Form. félagsins, Guðm. Er- lendsson, hreppstjóri, Núpi, setti fundinn og stjórnaði honum. — Fuhdarritari var Páll Björgvins- son, Efra-Hvoli. Framkvæmdastjóri félagsins, Ingólfur Jónsson, alþm., gerði grein fyrir afkomu s.l. árs og lagði fram endurskoðaða reikn- inga. Vöruvelta félagsins hafði auk- izt um rúmlega 3 millj. kr. á árinu og var kr. 24.972.000,00. — Útistandandi skuldir lækkuðu um 1,5 milljónir króna. Skuldir við banka lækkuðu einnig nokk- uð. — Framkvæmdir hafði félagið með höndum á árinu, svo sem: lokið var stækkun bifreiða- og landbúnaðarvélaverkstæðis, stofnsett rafmagnsverkstæði, inn réttuð kjötbúð og keyptar vélar og áhöld í hana, keyptar bók- haldsvélar og komið á vélabók- flutningabifreið af Volvo-gerð, breytt var 8 tonna vörubifreið í olíuflutningabifreið o. fl. Heildar fjárfesting nam kr. 1,1 milljón. Lýstu fundarmenn ánægju sinni yfir framkvæmdum félagsins og traustum hag þess. Lagt var í varasjóð og auk þess í stofnsjóð kr. 114.000,00. Fundarmenn íögnuðu því, að Kaupfélagið Þór skuli ætla að annast sölu á hrossum til Þýzka- lands í sumar og haust. Fram kom á fundinum gagn- rýni á lögum um útflutningssjóð, töldu bændur, að hinir þungu skattar á rekstrarvörur væru ó- skynsamlegir og stefndu fram- leiðslunni og efnahag þjóðarinn- ar í voða. Ákveðið var á fundinum að veita Skógræktarfélagi Rangæ- inga nokkurn styrk á þessu ári. Úr stjórn kaupfélagsins áttu að þessu sinni að ganga þeir Gunnar Runólfsson, Syðri-Rauða- læk og Sigurjón Sigurðsson, Raft- holti, en voru báðir endurkjörn- ir og varamaður var endurkjör- inn Oddur Oddsson, Heiði. Páll Björgvinsson, Efra-Hvoli var end urkosinn endurskoðandi og Guð- mundur JOnsson, Ægissíðu til haldi, keypt 12 tonna dieselvöru- vara. H.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.