Morgunblaðið - 12.09.1958, Side 1
20 siður
*
Bandaríkin munu ekki sýna
neina undanlátssemi
sagbi Eisenhower forseti i útvarpsræðu
um ástandið á Formósusundi
WASHINGTON, 11. sgpt. — NTB — Reuter. — Eisenhower Banda-
ííkjaforseti lýsti yfir því í útvarps- og sjónvarpsræðu tii banda-
rísku þjóðarinnar í nótt, að Bandaríkin myndu ekki sýna neina
undanlátssemi í átökum þeim, sem nú standa yfir í Austur-Asíu.
Ástandið í Austur-Asíu er al-
varlegt, en engan veginn háska-
legt eða vonlaust, og ég held
ekki, að úr því verði styrjöld,
sagði forsetinn. Eisenhower lýsti
yfir því, að Bandaríkin muni
ekki víkja fyrir hótun um vopn-
aða árás í AusturAsíu. Hann
lagði samt áherzlu á, að Banda-
ríkin myndu fagna því, að samn-
ingar hæfust, er gætu orðið til
þess að varðveita friðinn á For-
mósusundi.
Sagðist forsetinn telja víst, að
viðræður sendiherra Bandaríkj-
anna og kínverska alþýðulýð-
veldisins myndu hefjast aftur,
þegar sendiherra Kína, Wang
Ping-Nan kemur aftur til Var-
sjár eftir að hafa ráðfært sig
við Pekingstjórnina. Bandaríkja-
stjórn vonar innilega, að tillaga
Bandaríkjamanna um, að við-
ræður sendiherranna hefjist að
nýju, muni bera árangur, bætti
forsetinn við.
— ♦ —
Eisenhower hvatti kínverska
alþýðulýðveldið til að taka þátt
í slíkum viðræðum í þeim til-
gangi að finna lausn, sem allir
aðilar geta sætt sig við — að
sjálfsögðu einnig bandamenn
Bandaríkjanna, þjóðernissinnar á
Pormósu.
Ef viðræður sendiherranna
bera ekkj árangur, er ennþá sá
möguleiki fyrir hendi, að SÞ geti
beitt áhrifum sinum til að skapa
frið á Formósusvæðinu. Stað-
reynd er, að yfirgangur kín-
verskra kommúnista á Formósu-
Sandys heimsækir
Bandaríkin
LUNDÚNUM, 11. sept. — Reuter.
— Brezki varnarmálaráðherrann
Duncan Sandys mun fara í heim-
sókn til Bandaríkjanna dagana
22. sept. til 4. okt. Segir í tilkynn
ingunni um væntanlega för
Sandys, að hann muni eiga mikil-
vægar viðræður við forráða-
menn varnarmála í Bandaríkjun-
um. Sandys mun dveljast þrjá
daga í Washington og ræða þar
við varnarmálaráðherrann Mc
Elroy. Síðar mun hann m.a.
skoða tilraunasvæðið á Canaveral
höfða og heimsækja yfirmann At
lantshafsbandalagsins, Jerauld
Wright, í aðalbækistöðvum hans
í Norfolk.
Hammarskjöld
fer til New York
ídag
BEIRUT, 11. sept. — Reuter. —
Dag Hammarskjöld, aðalritari
SÞ ræddi í dag við Fuad Chehab,
sem tekur við forsetaembættinu
i Líbanon síðar í þessum mánuði.
Á morgun fer Hammarskjöld til
New York að lokinai för um Mið-
austurlönd.
svæðinu, stofnar friðnum í heim-
inum í voða, en ég held ekki, að
nokkur stjórn, hversu árásar-
sinnuð, sem hún kann að vera,
muni hafna tilraun til að koma
á friði, hvort sem slíkt er reynt
með beinum samningum eða fyrir
milligöngu SÞ.
- ♦ -
Forsetinn lýsti yfir því, að
Bandaríkin myndu aldrei hverfa
að því ráði að beita valdi til að
leysa ágreiningsefni, nema ef ráð
izt yrði á þau, þannig að vernda
yrði lífsnauðsynlega hagsmuni
þjóðarinnar. Þetta merkir, að við
mundum aldrei hætta við samn-
inga eða sáttatilraunir til þess að
beita valdi.
Minnti forsetinn á þá undan-
látsstefnu, sem fylgt var á árun-
um fyrir heimsstyrjöldina síð-
ari. Enn stendur heimurinn aug-
liti til auglitis við það vanda-
mál, sem vopnuð árás er. Vold-
ugt einræðisríki ræðst á varn-
arlaust, en frjálst land. Eigum
við við slíkar aðstæður að láta
undan ógnunum og sleppa hend-
inni af frjálsu landi í von, að
þetta muni seðja hungur árásar-
aðilans. Munum við ekki, að nafn
ið Miinchen er táknrænt fyrir
árangurslausa tilraun til að sætt
ast við einræðisherra.
Setjum svo, að kínverskir kom
múnistar leggi undir sig Quemoy.
Myndu það verða sögulok, sagði
forsetinn. Nei, við vitum, að svo
mundi ekki fara. Það er öruggt,
að tilgangurinn með skothríðinni
á Quemoy er ekki aðeins að
leggja undir sig eyna.
Það er aðeins þáttur í umfangs-
mikilli landvinningaáætlun. Og
svo virðist, sem Sovétríkin og
Kína haldist í þessu efni í hendur.
En heldur Krúsjeff,að við höfum
Framhald á bls. 2
Friðrik Ólafsson
skákborðið.
Friðrik Ólafsson tryggði sér þátt-
töku á kandidatamótinu næsta ár
Varð / 5. sæti ásamt Fischer
FRIÐRIK ÓLAFSSYNI, hin-
um nýbakaða stórmeistara
íslendinga í skák, tókst í síð-
ustu umferðinni á skákmót-
inu í Portoroz að tryggja sér
sæti meðal hinna sex efstu
SKÁKMÓTINU í Portoroz í Júgó
slavíu er nú lokið og heyrir það
nú skáksögunni til. Er þar með
lokið fjórðu millisvæða-
keppninni til undirbúnings
□-
-□
Boeing 707
UM kl. 1 í nótt lenti á Kefla-
víkurflugvelli hin nýja banda
ríska farþegaþota, Boeing
707. Þessi risaflugvél, sem á
að geta flutt 160 farþega, er
í eigu Pan-American Airlines
flugfélagsins. Um leið og flug-
vélar af þessari gerð verða
teknar í notkun, munu verða
þáttaskil í farþegaflugi yfir
Atlantshafið.
□-
-□
og þar með rétt til þátttöku , heimsmeistarakePPninni> eftir
að þetta keppnisfyrirkomulag var
tekið upp eftir stríðið. 1948 í
i kandidatamótinu, þar sem
átta fræknustu skákmenn
heimsins keppa um, hver
heyja skuli einvígi við heims-
meistarann. Hefir Friðrik
með þessu orðið landi sínu til
hins mesta sóma.
Hér heima var fylgzt með
skákmótinu af gífurlegum áhuga,
og úrslitin voru kunn var þeim
fagnað mjög.
Blaðið sneri sér í gær til
Baldurs Möllers í tilefni þessa
skáksigurs Friðriks, og fer frá-
sögn hans hér á eftir:
Saltsjöbaden 1952 í Stokkhólmi
1955 í Gautaborg og nú 1958 í
Portoroz. í öllum mótunum hefir
Rússi orðið í efsta sæti og einnig
nú, en nú í fyrsta sinni er ekki
um yfirburðasigur Rússanna að
ræða og er það ekki sízt hinum
ungu skákstjörnum Vesturlanda,
Friðriki Ólafssyni og Bobby
Fischer, að þakka en ásamt Júgó
slavanum Gligoric og landflótta
Ungverjanum Pal Benkö veittu
þeir stórveldi skákarinnar hörð-
ustu mótstöðu sem því hefir um
langt árabil verið veitt.
Síðasta umferðin
Svo sem skýrt var frá í blað-
inu í gær voru miklir erfiðleik-
ar á öflum frétta um úrslit í síð-
ustu umferðinni, vegna óveðurs
við Adríahafið. Úrslit í gær-
kvöldi urðu þessi: Rossetto 1 —
Framh. á bls. 2
Bretar sprengja
vetnisvopn
LUNDÚNUM, 11. sept. — Reuter.
— Bretar sprengdu í dag vetnis-
vopn hátt í lofti yfir Jólaeyju.
Hófu Bretar tilraunir með kjarn-
orkuvopn 22. ágúst s.l., og er
þetta þriðja vopnið, sem reynt er,
síðan þær hófust. f tilkynningu
brezka birgðamálaráðuneytisins
segir, að tilraunin hafi tekizt vel.
Bolialeggingar í London
um afstöðu þings S.þ.
í landhelgismálinu
í SKEYTI frá NTB í gærkvöld
segir, að tilkynningin um, að ís
lenzka sendinefndin hjá SÞ muni
fara fram á, að allsherjarþing SÞ
viðurkenni nýju 12 mílna fisk-
veiðilögsöguna, valdi brezku
stjórninni áhyggjum, þar sem tal-
ið er mögulegt, að íslendingar
fái samþykki meirihluta Alls-
herjarþingsins. Er þetta haft eftir
góðum heimildum í Lundúnum.
Skothríðin
i
en
gær
Birgðaskip þjóðernissinna urðu að hverfa
írá vegna skothríðarinnar
á Quemoy harðari
nokkru sinni áður
TAIPEI og WASHINGTON, 11.
sept. —Reuter-NTB— Skothríðin
á Quemoyeyju var í dag öflugri
en nokkru sinni áður. Var skot-
hríðinni aðallega beint að soiður-
strönd eyjarinnar, þar sem skip
þjóðernissinna voru að setja
birgðir á land. Varð skothriðin
svo hörð, að eftir nokkra hríð
urðu birgðaskipin að hverfa frá
og leita verndar herskipa þjóð-
ernissinna og Bandarikjamanna.
Ekkert skipanna laskaðist þó í
skothríðinni segir í fréttatilkynn-
ingu frá þjóðernissinnastjórninni
á Formósu. Alls var tæplega 60
þús. kúlum skotið á eyna í dag
og eru þetta fleiri kúlur en
nokkru sinni hefur verið skotið á
eyna á einum degi síðan viðsjár
hófust á Formósusundi, sagði tals-
maður þjóðernissinnastjórnarinn-
ar í dag.
Bandaríski varnarmálaráðherr-
ann, Neil McElroy, lýsti yfir því
í Washington í dag, að Banda-
ríkin myndu halda áfram að að-
stoða þjóðernissinna við að setja
á land birgðir á Quemoy þrátt
fyrir tilraunir kínverska alþýðu-
lýðveldisins til að setja hafn-
bann á eyna með sífelldri skot-
hríð. Skýrði varnarmálaráðherr-
ann frá þessu, eftir að hann hafði
rætt við Foster Dulles utanríkis-
ráðherra, ásamt nokkrum her-
málasérfræðingum.
- ♦ -
Samtímis varaði kínverska al-
þýðulýðveldið Bandaríkjamenn í
fjórða sinn við því aff halda
áfram að virffa að vettugi kín-
verska loft- og sjóhelgi. Frétta-
stofan Nýja Kína tilkynnti, að
fjögur bandarísk herskip hefðu
Framh. á bls. 19
Ennfremur segir í skeytinu, að
það sé ekki talið ósennilegt, að
endanlega verði samþykkt á Alls-
herjarþinginu sex mílna land-
helgi og að auki sex mílna fisk-
viðilögsaga þar fyrir utan.
Á ráðstefnunni um réttarreglur
á hafinu fyrr á þessu ári hlaut
tillagan um 12 mílna mörk 35 at-
kvæði gegn 30, en fulltrúar 20
þjóða sátu hjá. í Genf var krafizt
% hluta atkvæðamagnsins.
Aftur á móti er búizt við, aff
einfaldur meirihluti verði nægur
á Allsherjarþinginu.
★ ★ ★
En Bretar tóku að líta
bjartari augum á ástandið, er
þeim tom í hug, að það myndi
valda íslendingum nokkrum erf-
iðleikum í SÞ, að kínverska al-
þýðulýðveldið hefir lýst yfir 12
mílna landhelgi, segir í skeytinu.
Búizt er við því, að Bandaríkin
muni vegna ástandsins á For-
mósusundi beita sér gegn því, að
landhelgi ríkja verði færð færð
út í 12 mílur. Með því að láta
bandarísk herskip sigla inn hina
nýju landhelgi Kína hafi Banda-
rkjastjórn ótvírætt sýnt, að hún
muni ekki viðurkenna 12 mílna
landhelgi. Hefir því verið bent
á það í Lundúnum, að banda-
ríska sendinefndin hjá SÞ muni
sennilega mælast til þess við
vestræn ríki, að þau leggist gegn
víkkun landhelginnar út í 12 míl-
ur, er Allsherjarþingið kemur
saman í næstu viku.