Morgunblaðið - 12.09.1958, Blaðsíða 2
r
z.
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 12. sept. 1958
— Friðrik
Framh. af bls. 1
Fiister 0, Neikirk Vz —Benkö Vz,
Gligoric % — Fischer Vs, Filip
Vz — Averbach Vz, Pachman %
— Sanguinetti '/2, Sherwin Vz —
Tal %.
Biðskákirnar voru svo tefldar
í dag og urðu úrslit þessi: Car-
doso 1 — Bronstein 0, Friðrik
Ólafsson 1 — De Greiff 0, Matano
vic 1 — Larsen 0. Szabo Vi —
Panno Vz.
Niðurstaðan hefir þá orðið sú,
svo óvænt sem það var að Bron-
stein hefur ekki tekizt að rétta
sig úr kútnum frá því í gær-
kvöldi, en svo sem áður var frá
skýrt stóð hann lakar, hins
vegar tókst Szabo að ná jafntefli
með lakara tafl gegn Panno, en
Gligoric hefur ekki tekizt að nýta
sigurhorfur sínar gegn Bobby
Fischer og Sherwin orðið að
sleppa takinu af Thal, sem er
manna harðvítugastur að bjarga
sér úr erfiðum stöðum.
Loka vinningastaðan í mótinu
varð þá þessi:
X. Mikhail Tal, Rússl..... 13v.
2. Gligoric, Júgóslavíu .. 13
3. Benkö, Ungv. (landfl.) .... 12>/2 -
Petrosjan. Rússl....... 12',i -
5. Friðrik Ólafsson ....... 12
Fischer, Bandar......... 12
7. Averbach, Rússl........ ll>/2 -
Bronstein, Rússl........ llVz -
Matanovic, Júgóslavíu .... 111. -
Pachman, Tékkóslóv...... U*/2 -
Szabo, Ungvjerjal....... ll*/2 -
12. Filip, Tékkóslóvakíu .. 11
Panno, Argentínu ....... 11
14. Sanguinetti, Argentínu .... 10
15. Neykirk, Búlgaríu ..... 9>/2 -
16. Bent Larsen, Danm...... 8*,i -
17. Sherwin, Bandar........ 7*/2 -
18. Rossetto, Argentínu ... 7
19. Cardoso, Filippseyjum .... 6
20. de Greiff, Kólumbíu ... 4*2 -
21. Fúster, Kanada ........ 2
Kandidatarnir.
Sex þeir fyrstu Michael Thal,
Svetozar Gligoric, Tigran Pet-
rosjan, Pal Benkö, Friðrik Ólafs-
son og Robert Fischer, hafa þar
með unnið sér rétt til þess að
keppa á næsta ári um það, ásamt
þeim Vasili Smyslov og Paul
Keres, hver skuli heyja næsta ein
vígi um heismeistaratignina í
skák við heimsmeistarann Mic-
hael Botvinnink.
Afarhörð keppni.
Keppnin á þessu móti í Porto-
roz hefur verið afar höi'ð. Fram
til hins síðasta, já, fram í síðusíu
umferð hafa um helmingi fleiri
haft möguleika á að ná sigur-
sætunum en hreppt gætu þau.
Og þegar athugað er að munur-
inn á 1. og 13. manni er aðeins
2V2 vinninigur, sést bezt hve
hörð keppnin var milli stórmeist-
aranna 12 (að Bent Larsen und-
anskildum) og jafnoka þeirra,
Benkö og Fischer. í upphafi móts-
ins var Thal í fararbroddi, síðan
tók Petrosjan við forystunni meg
inhluta mótsins, en þegar kempan
Bent Larsen lagði hann að velli
komst Thal aftur fram úr hon-
um. Thal hélt svo forystunni til
enda mótsins, þótt litlu munaði
imdir lokin, og stríðsgæfan yrði
að koma honum til hjálpar svo
að Gligoric færi ekki fram úr
honum á síðasta augnabliki.
„Endcisprettur“ Gligoric var ævin
týralegur, hann fékk 6 vinninga
og 5 jafntefli í síðustu 11 skák-
unum. Mest kemur á óvart í
mótinu frammistaða þeirra
Bobby Fischer, undrabarnsins 15
ára, og vinar okkar frá því fyrir
ári síðan Pal Benkö, og er lítill
vafi á því að þeir verða sæmdir
stórmeistaranafnbót fyrir afrek
sín. — Að vissu leyti kemur þó
jafnvel ennþá meira á óvart ósig-
ur Bronsteins, yfirburðasigurveg-
arans frá tveimur fyrri milli-
svæðakeppnum, sem hann hefur
tekið þátt í og það átti auk þess
fyrir honum að liggja að verða
jafnteflakóngur með 15 jafntefli,
hann sem hefir jafnan verið harð
vítugasti og vogaðasti bardaga-
maður meðal skákmanna, og loks,
taplaus fram í síðustu umíerð,
einn allra, taoar hann fyrir þeim
þriðja lægsta og missir af stræt-
isvagninum.
Hinn ánægjulegi sigur Frið-
riks Ólafssonar, kórónan, að svo
stöddu, á hinurn glæsilega skák-
ferli hins unga iagastúdents, sem
á undanförnum árum hefir ver-
ið að vinna sér æ meira álit
meðal skákunnenda um allan
heim, er auðvitað það sem mesta
gleði vekur hér heima, og við
samlandar hans samfögnum hon-
um og foreldrum hans með
þennan árangur. Alit og vin-
sældir Friðriks um þann víða
heim, byggjast ekki eingöngu á
taflmennsku hans, sem þó hefir
frá upphafi vakið athygli vegna
glæsibragða þeirra, sem honum
hafa ávallt verið svo lagin. Ein-
mitt þessir hæfileikar hans í
skákinni hafa farið svo sérstak-
lega vel við hina mannlegu kosti
hans, látleysi og hógværð, sem
hefur unnið huga manna engu
síður en snilld hans. — Margur
hefur misst jafnvægið af minna
tilefni á sigurbraut sinni en
Friðrik, sem nú 23 ára gamall,
með fleiri skáksigra að baki en
hægt er að muna svo að nærri
lagi sé, er sami prúði pilturinn
og þegar hann 11 ára gamall
tefldi sitt fyrsta skákmót í Al-
þýðubrauðgerðarsalnum haustið
1946. Þar vakti hinn fullorðins-
legi skákstíll hans, sem var þó
svo greinilega á barnsaldri að
öllu öðru leyti, þegar mikla at-
hygli. Sigra hans síðan er næsta
tilgangslítið að telja. Þátttaka í
heimsmeistarakeppnum unglinga
í Englandi og Kaupmannahöfn.
Sigur með yfirburðum í meist-
araflokki á Skákþingi Norður-
landa 1950 15 ára gamall. íslands
meistari 1952 17 ára. Skákmeist-
ari Norðurlanda 1953. Glæsileg
frammistaða í Hastings um
næstu áramót. Sigur á þar næsta
Hastingsmóti. Næsta sæti við
sigursætin á svæðiskeppni í Prag
1954, aftur mjög góð frammi-
staða á mótinu í Hastings. Sigur
yfir Pilnik í tveim einvígum. Sig-
ur á skákmótum með Taimarov
og Ilividsky með Benkö, Stáhl-
berg og Pilnik; auk margra sigra
á alþjóðamótum F.I.D.E. Viður-
kenning sem alþjóðlegur meist-
ari 1956 og hin glæsilega
frammistaða á svæðismótinu í
Waageningen, sem enn er í
fersku minni, þótt nær ár sé
liðið og þá skákmótið í Dallas,
þar sem hann um tíma var í
fararbroddi, þótt skákþreytan
keyrði hann niður. Og nú í miðj-
um átökunum í Portoroz, viður-
kenning sem stórmeistari í skák,
sem hann vissulega hefði verð-
skuldað tveim árum fyrr, en all-
an slíkan heiður er vissulega
betra að hljóta of seint en of
snemma.
Gegn þeim sterkustu.
Ef athugað er hin að vissu
leyti ójafna frammistaða Frið-
riks í hinu nýafstaðna skákmóti
vekur það athygli að það má að
sumu leyti telja frammistöðu
hans enn betri en vinningastaðan
sýnir. Ef skoðaðir eru vinningar
sigurvegaranna 6 sín á milli,
kemur í ljós að Friðrik er þar
efstur með 3%, Thal með 3,
Petrosjan og Benkö 2Vs, Fischer
IVz. Sama er uppi á teningnum
ef skoðuð er útkoma „verðlauna-
mannanna", þ. e. 13 fyrstu
manna (12 verðlaun voru veitt).
Þar verða þeir Friðrik og Thal
efstir með IVz vinning af 12 mögu
legum en Petrosjan með 7, Gligo-
ric og Benkö 6V2, Fischer 5. —
Heilum vinning hærri er Friðrik
ef aðeins eru taldir 11 þeir efstu.
— En hvað þá með tapskákirnar
3 með hvítu á mennina í neðsta
þriðjungnum? Það verður fróð-
legt að rekja gang þeirra síðar,
en ætla má að sigurvilji Frið-
riks hafi þar hlaupið með hann
í gönur.
Að lokum er ástæða til að vekja
athygli á því, að full þörf er að að
hugleiða með hverjum hætti sé
ástæða tii að þakka hinum unga
afreksmanni sóma þann, sem
hann vinnur þjóð sinni. Sigurinn
og erfiðið bera vissulega launin
í sjálfu sér, en þó er full ástæða
til þess að gleyma ekki þessum
afrekum, heldur þakka þau að
minnsta kosti með því, að gæta
þess að veita honum áfram tæki-
færi til nýrra afreka.
Þeim, sem stutt hafa Friðrik
Ólafsson til þessa, er vissulega
veglega þakkað með afrekum
hans.
Fjögra manna dönsk
sendinefnd komin til
Lundúna
KAUPMANNAHÖFN, 11. sept. —
Reuter — NTB — Danskí fjár-
málaráðherrann Viggo Kamp-
mann fór héðan í dag flugleiðis
til Lundúna. Hann er formaður
fjögurra manna danskrar sendi-
nefndar, sem á morgun mun hefja
í Lundúnum viðræður um kröfur
Færeyinga til 12 milna fiskveiði-
lögsögu. í fiskveiðisamningi
Breta og Dana frá 1955, er gert
ráð fyrir 3 mílna mörkum við
Færeyjar. í utanríkisráðuneytinu
danska ríkti í dag bjartsýni á góð
an árangur af viðræðunum í
Lundúnum. Akvörðun íslendir.ga
um að færa mörkin út í 12 rr.íl-
ur er einhliða, en danska stjórnin
getur haldið því fram, að afieið-
inganna gæti beinlínis í Færeyj-
um, þar sem erlendir togarar
kunna að flykkjast að, er þeir
eru útilokaðir frá öðrum miðum.
★
að fordæmi íslendinga. Ekki er
þó búizt við því, að Færeyingar
muni þegar í stað fá 12 mílna
fiskveiðilogsögu, einkum þar sem
nú stendur fyrir dyrum, að S. Þ.
fjalli um málið. Allsherjarþingið
kemur saman n. k. þriðjudag.
Danir búast ekki við því, að
Bretar muni verða við óskum
þeirra í þessu máli, þar sem
Bretar hafa ekki látið sig í deil-
unni við íslendinga.
★
Óvenjulega fá brezk fiskiskip
eru við Færeyjar, ef til vill, af
því að Bretar vilja komast hjá
því að aðstaða þeirra versni þar.
Rúmlega 300 rússnesk síldveiði-
skip, sem voru að veiðum aust-
an ‘við Island, virðast nálgast
miðin við Færeyjar. Og Færey-
ingar velta því fyrir sér, hvort
rússnesk fiskveiðiskip mundu
virða 12 mílna mörk við Fær-
eyjar.
— Eisenhower
Framh. af bls. 1
þegar gleymt Kóreu? spurði
Eisenhower.
Sumir, sem ekki vita betur,
hafa sagt, að Quemoy sé ekkert
til þess að æsa sig upp út af,
sagði forsetinn. En þeir hafa sagt
það sama um Suður-Kóreu, um
Vietnam og <um Líbanon. Ég full-
yrði, að aldrei mun ég biðja
nokkurn bandarískan hermann
um að berjast fyrir Quemoyeyju
eina. En ég held, að allir banda-
rískir hermenn — og ég held
einnig bandaríska þjóðin — eru
reiðubúin til að verja þá megin-
reglu, að vopnuðu ofbeldi á ekki
að beita til að koma málum sín-
um fram.
MOSKVU, 11. sept. — NTB. —
Reuter. — Deildir úr sovézka
flotanum, búnar fullkomroustu
nýtizku vopnum, munu þann 20.
sept. hefja æfingar á Berentshaf-
inu, segir í tilkynningu frá varn-
armálaráðuneytinu, sem birt er í
Izvestia. Æfingar munu standa
yfir til 25. okt.
Fiskimálaráðherra lofar
„skapstillingu og þolin-
mœði" brezkra togara-
sjómanna
GRIMSBY, 11. sept. — Einka-
skeyti til Mbl. frá Reuter —
Brezki fiskimálaráðherrann, John
Hare, fór í kvöld lofsamlegum
orðum um þá „skapstillingu og
þolinmæði", sem áhafnir brezkra
togara hefðu sýnt að undanförnu
í þeim erfiðleikum, sem þeir
hefðu átt við að etja. Komst Hare
svo að orði í miðdegisverðarboði,
sem samtök brezkra togaraeig-
enda hélt í Grimsby.
Sagði Hare, að forráðamenn
fiskiðnaðarins sýndu ábyrgðartil-
finningu og héldu uppi aga af
fúsum vilja. Svo lengi . sem
ástandið héldist óbreytt myndi
verða mikil þörf á þessum eigin-
leikum. Við munum halda áfram
að leita lausna, þar sem höfð er
hliðsjón af þörfum og hagsmun-
um allra þeirra landa, sem stunda
fiskveiðar í Norður-Atlantshaf-
inu, sagði Hare ennfremur. Eng-
in ástæða er til að ætla, að við
myndum ekki geta gert þetta, ef
öll löndin leggðust á eitt og
ákvæðu að fjalla skynsamlega
um fiskveiðivandamálin á raun-
hæfum grundvelli og að tryggja
lífsafkomu fiskimanna alls stað-
ar.
Dauðadómurinn
yfir Wilson
staðfestur
MONTGOMERY, 11. sept. —
Reuter — NTB — Hæstiréttur-
inn í Alabamafylki staðfesti í
dag dauðadóm yfir negranum
Jimmy Wilson og ákvað, að
hann skyldi tekinn af lífi 24.
okt. Wilson var dæmdur til
dauða fyrir að hafa stolið 1 dal
og 95 centum frá hvítri konu.
Foster Dulles utanríkisráðherra
sendi í sl. viku fylkitstjóranum
símskeyti um öll þau mótmæli,
sem bandarískum sendiherrum
víða í heiminum hafa borizt
vegna dauðadómsins yfir Wilson.
Skömmu eftir komuna til
Lundúna sagði Kampmann, að
Danir myndu ekki með ánægju
fallast á málamiðlun í viðræð-
unum um víkkun færeysku fisk-
veiðilögsögunnar. Ef hagstæð
málamiðlun býðst, munum við
íhuga hana, sagði Kampmann,
sem annars lagði áherzlu á, að
það væri skoðun dönsku stjórn-
arinnar, að fiskveiðitakmörk
landanna, sem liggja að Atlants-
hafi ættu að vera eins. Kamp-
mann var spurður að því, hvort
Danmörk og Færeyjar mundu
fallast á úrskurð S. Þ. í deil-
unni um fiskveiðilögsöguna, og
hann svaraði: Já, ég held það.
Landbúnaðar- og fiskimálaráð-
herrann, John Hare, verður for-
maður brezku nefndarinnar, er
ræðir við Danina.
★
í einkaskeyti frá Kaupmanna-
höfn segir, að þess sé vænzt, að
Danir muni fara fram á, að samn-
ingurinn frá 1955 verði numinn
úr gildi, svo að mögulegt verði
að færa út mörkin við Færeyjar
r
Agætur aíli hjá
togurunum
UNDANFARIÐ hefir verið ágæt
veiði hjá togurunum. Það sem af
er mánuðinum hafa allir togar-
arnir, sem lagt hafa upp afla,
verið með karfa, nema Jón Þor-
láksson, sem í fyrradag losaði 277
tonn af saltfiski.
Þessir togarar hafa komið í
höfn með karfa síðan um mán-
aðamót, samkvæmt upplýsingum
frá Togaraafgreiðslunni: Neptún-
us með 344 tonn 30. gúst. Geir
með 294 tonn, 31., Hvalfell með
276 tonn 1. sept., Askur með 288
tonn 2. sept., Ingólfur Arnarson
með 298 tonn 3. sept., Hallveig
Fróðadóttir með 331 tonn 4 sept.
og Marz með 305 tonn 8. sept.
í gær var verið að landa karfa
úr Karlsefni og Agli Skallagríms
syni, og var áætlað að hvor værj
með um 300 tonn. Og í dag er
Skúli Magnússon og Neptúnus
væntanlegir í höfn.
Þannig var staðan í skák
Friðriks við deGreiff, er hún fór
í bið:
Svart: Friðrik Ólafsson.
ABCDEFGH
Hvítt: de Greiff.
Kynþáttavanda-
málið fyrir
hæstarétt
WASHINGTON, 11. sept. —NTB-
Reuter—Hæstiréttur Bandaríkj-
anna fjallaði I dag um kynþátta-
vandamálið í gagnfræðaskólan-
um í Little Rock í Arkansas.
Áhorfendabekkirnir voru þétt
setnir, er hæstiréttur kom sam-
an til að fjalla um, hvort blökku-
börn fá áfram að sækja gagn-
fræðaskólann í Little Rock.
Veiddir 474hvalir
AKRANESI, 11. sept. — 474 hval-
ir voru veiddir og á land komnir
í Hvalstöðinni á þessari vertíð
kl. 5 í dag. Sumarið hefur á köfl-
um verið stormasamt og torveld-
að veiði úti á Halamiðunum, en
síðasta hálfan mánuðinn hafa
hvalbátarnir aflað ágætlega. Þó
er þess að gæta, að mikið hefur
verið um sandreyði upp á sið-
kastið og er það minni gerð
hvala. —Oddur.
VESTMANNAEYJUM, 11. sept,—
Nú eru farnir til reknetjaveiða í
Faxaflóa, 10 bátar héðan frá
Vestmannaeyjum og er gert ráð
fyrir að alls muni 16—20 bátar
fara, ef á annað borð tekst að
manna þá. Hefur það gengið erfið
lega. —Bj. Guðm.
Hæstiréttur í Alabama staðfesti
fyrst dauðadóminn 12. júlí sl.,
en Wilson fór fram á, að málið
yrði tekið upp að nýju, en því
var neitað í dag. Taka átti Wil-
son af lífi í sl. viku en því var
frestað, þar sem beðið var eftir
endanlegum úrskurði hæstarétt-
ar. Eina von Wilsons nú er, að
hann verði náðaður.
Fjalla um stjórn-
arskrá de Gaulles
PARÍS, 11. sept. — Reuter —
Franski Jafnaðarmannaflokkur-
inn og róttæki flokkurinn tóku
í dag að þinga um afstöðuna til
stjórnarskrár de Gaulles for-
sætisráðherra. Hófust í dag þing
beggja flokkanna, er munu
standa í fjóra daga. Nú eru að-
eins 17 dagar, þar til þjóðarat-
kvæðagreiðsla fer fram um stjórn
arskrárfrumvarp de Gaulles. Báð
ir flokkarnir eru klofnir um mál-
ið.
Guy Mollet, framkvæmdastjóri
Jafnaöarmannaflokksins, hvatti í
dag flokksbræður sína til að
greiða atkvæði með stjórnar-
skránni, en Chrisian Pineau, sem
var utanríkisráðherra í stjórn
Mollets á sínum tíma, hefir þeg-
ar lýst yfir, að hann muni greiða
atkvæði gegn henni.
Varði Mollet á þinginu í dag
stefnu flokksins gegn árásum
vinstrisinnaðra flokksbræðra
sinna og vann mikinn sigur.