Morgunblaðið - 01.11.1958, Blaðsíða 3
Laugardagur 1. nóv. 1958
MORGVNBLAÐIÐ
3
Sjötta sinfónía
Beethovens
flutt í hátíðasal Háskól-
ans á mc<rgun
TÓNLISTARNEFND Háskólans
efnir til tónlistarkynningar í há-
tíðasal Háskólans á morgun,
sunnudag 2. nóv., kl. 17. Þar
verður flutt af hljómplötutækj-
um Háskólans sjötta sinfónía
Beethovens (Pastoralsinfónían),
og mun dr. Páll ísólfsson lýsa
verkinu og skýra það fyrir
áheyrendum.
Á síðastliðnum vetri voru
fluttar á sama hátt fimm fyrstu
sinfóníur Beethovens, eins og
marga mun reka minni til; var þá
svo ráð fyrir gert, að hinar fjór-
ar yrðu fluttar í vetur, og verð-
ur nú tekið til þar sem frá var
horfið.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Sýning Guð-
Á þriðja hundrað íslenzkra
hesta fluttir til Þýzkalands
Hestarnir koma fram i sjónvarpi
i Hamborg
ÞEIK, sem fóru niður að höfn í
gær, sáu að menn voru önnum
kafnir við að flytja hross út í
skip. í nótt hélt skip þetta til
Þýzkalands með íslenzku hest-
ana.
Fyrr á árum var talsvert flutt
út af íslenzkum hestum til Bret-
lands og Danmerkur. Bretar not-
uðu hestana í námum og mun
ævi þeirra hafa verið misjöfn
þar. Síðan hefur hrossaútflutn-
ingur að mestu legið niðri, þar
til nú, að árangur er að koma í
ljós fyrir starfsemi Gunnars
Bjarnasonar hrossaræktarráðu-
nauts, sem hefur gert mikið til
að kynna íslenzka hestinn er-
lendis. í Þýzkalandi eru ýmsir,
sem hafa mikinn áhuga á íslenzka
hestinum. Má þar sérstaklega
nefna skáldkonuna Ursulu Bruun
og frú Ursulu Schaumburg, en sú
síðarnefnda var hér í haust ásamt
þýzkum kaupmanni, Ulrik Mart,
til þess að velja þau hross, sem
flutt eru út að þessu sinni.
Eins og fyrr segir, var statt
hér danskt gripaflutningaskip,
Clara Clausen, sem er sérstaklega
og vel innréttað til gripaflutninga
á milli landa. Það hefur einnig
mikla kosti, að slíkt skip hefur
ekki fasta áætlun og getur hag-
að siglingunni eftir veðri, og fer
þannig miklum mun betur um
hrossin en í venjulegum flutn-
ingaskipum. f nótt sigldi skipið
frá Reykjavík með hátt á þriðja
hundrað hross, til Vestur-Þýzka-
lands, þar sem þau verða til sölu.
Flest hrossin eru keypt austur
í Rangárvallasýslu á vegum Kaup
félagsins Þórs á Hellu, en fáein
eru frá hrossaræktarbúinu í
Kirkjubæ.
Ulrik Mart kaupmaður, vonast
til þess, að hann geti komið
næsta ár og keypt áfram hross til
útflutnings. Það er vissulega
mikils virði, ef markaður getur
fengizt erlendis fyrir íslenzku
hrossin og unnt væri að létta
þannig á kjötmarkaðinum inn-
anlands og afla erlends gjald-
eyris. Bændum hafa verið greidd-
ar fyrir folöld 850—900 krónur
og fyrir eldri hross 2—3 þús. kr.
Segja má, að erfitt sé fyrir ís-
lendinga að fást við sölu hross-
anna erlendis, og að þetta tekst
nú í svo stórum stíl, sem raun
ber vitni, er hægt að þakka dugn-
aði hins þýzka kaupmanns, sem
fyrr er nefndur, en hann virðist
hafa sérstakan áhuga á viðskipt-
um milli íslands og Vestur-Þýzka
lands og lítur á hrossaútflutn-
ing sem sérstaka íþrótt, m. a.
vegna þess hve erfitt er við slík
viðskipti að fást, enda gerir hann
ekki ráð fyrir hagnaði af við-
skiptunum.
fslenzk lög um útflutning
hrossa heimila ekki útflutning
eftir 1. nóvember, nema sérstök
undanþága sé veitt. Það verður
því að teljast heppni, að skipið
skyldi sigla fyrir 1. nóv. Geta
má þess, að neðri deild Alþingis
hefur nú þegar samþykkt frum-
varp Ingólfs Jónssonar o. fl. um
það, að útflutningsheimildin
verði látin gilda til 1. des.
Vonandi fá íslenzku hrossin
góða ferð til Þýzkalands og ekki
er að efa, að viðtökurnar verða
góðar, þegar þangað kemur. Nú
eru hrossin ekki lengur notuð í
námur, heldur aðeins til skemmt-
unar, og samkvæmt fréttum, sem
borizt hafa frá Þýzkalandi af
þeim hrossum, sem þangað hafa
verið flutt frá íslandi, eru þau
alin og fóstruð eins vel og á verð-
ur kosið. Þá er einnig vonandi,
að framhald verði á hrossaút-
flutningi héðan, og sú nýbreytni
að leigja sérstaklega innréttað
skip til flutninganna er til mikilla
framfara á þessu sviði, enda hafa
fulltrúar Dýraverndunarfélags-
ins lýst ánægju sinni yfir þessari
nýbreytni.
Þess má svo að lokum geta,
að hrossin verða seld strax er til
Þýzkalands kemur, og í ráði er að
auglýsa þau í sjónvarpi í Ham-
borg. Vilja margir fá íslenzka
hesta sér til yndis og ánægju.
mumlar frá Mið-
dal framlengd
MÁLVERKASÝNING Guðmund-
ar frá Miðdal að Skólavörðustíg
43 verður framlengd til sunnu-
dagskvölds, nokkuð breytt. Nú
þegar hafa sótt sýninguna rúm-
lega 1 þúsund manns. Sýningin
verður opin frá kl. 14—22, og á
sunndag frá kl. 10—22.
Stjarni leggur upp í sjóferð
Demokratar
sigurstranglegri
Þingkosningar i Bandarikjunum
4. nóvember
ÞINGKOSNINGAR fara fram í.
Bandaríkjunum 4. nóvember og
kosningabaráttan er að ná há-
marki. Demokratar þykja mjög
sigurstranglegir og samkv. Gall-
up-skoðanakönnunum hafa þeir
að undanförnu verið í miklum
uppgangi. Þykja skoðanakann-
anir Gallup-stofnunarinnar á-
vallt gefa góða mynd af fylgi
stjórnmálaflokkanna. Samkv.
síðustu tölum, sem birtar voru í
vikunni, og eru samkv. könnun
meðal kjósenda í öllum fylkjum
Bandaríkjanna hafa demokratar
58% fylgi, en republikanar 42%,
Síðustu vikurnar hefur fylgi
demokrata vaxið jafnt og þétt. í
september var það 56%, í byrjun
olíóber 57% og nú 58%. í þing-
kosningunum 1956 var það 51%,
júní 1957 53% og í febrúar í vet-
ur 55%. Fylgi republikana hefur
að sama skapi farið minnkandi.
Ef fer sem horfir munu demo
kratar hljóta jafnmikið fylgi í
væntanlegum kosningum og þeir
hafa hlotið mest áður. Það var
árið 1936, þá hlutu demokratar
59% greiadra atkvæða.
Enn er samt ekki Ijóst hvaða
árangur tilraunir Eisenhowers til
þess að létta republikönum róð-
urinn á síðustu mínútu bera, en
hins vegar er margra álit, að
republikanar hafi byrjað einu
og hálfu ári of seint á kosninga-
undirbúningnum og demokratar
hafi skákað þeim algerlega að
því leyti.
En baráttan kemur nú eins og
endra nær til þess að standa um
atkvæði hinna „óákveðnu“,
þeirra, sem hvorki eru bundnir
á flokksklafa republikana eða
demokrata. Meira en fimmti
hluti kjósenda er flokkaður und
ir hina „óákveðnu" — og fullvíst
er, að sigrar Eisenhowers byggð-
ust að mestu leyti á þessu fólki,
sem margt studdi þó demokrata
í þingkosningum.
Nú benda skoðanakannanir
Gallup til þess, að meirihluti
hinna „óákveðnu“ fylgi demo-
krötum og þykir þá mörgum sem
björninn sé Unninn.
STAKSTEINHR
,,ByIting í Sósíalista-
félagi Reykjavíkur“
Undir þessari fyrirsögn birtl
Alþýðublaðið í fyrradag frásögn
af aðalfundi Sósíalistafélags
Reykjavíkur, sem er uppistaðan
í kommúnistadeildinni á íslandi
og þar með Alþýðubandlaginu.
Frásögn Alþýðublaðsins hefst
svo:
„Einlitt Moskvulið „hertók" f
fyrrakvöld Sósíalistafélag Reykja
víkur. Gömlu stjórninni var
sópað út og Brynjólfur Bjarna-
son hafinn til valda að nýju. Er
stjórnin þá að mestu eða ölln
leyti skipuð mönnum úr gamla
kommúnistaflokknum.
--------má slá því föstu, að
hér hafa gerzt mikil pólitísk tíð-
indi, sem nærri áreiðanlega ern
fyrirboði stærri atburða. Valda-
baráttan innan Sósíalistaflokks-
ins — og þar með Alþýðubanda-
i lagsins — fer harðnandi.
Meðal nýju stjórnarmann-
anna i Sósíalistafélagi Reykja-
víkur eru auk Brynjólfs — sem
nú tók við formannsstöðunni —
þessir: Hendrik Ottósson, Stefán
Ögmundsson, Gísli Ásmundsson
varaformaður--------“
„Mikið áfall fyrir
kommúnistaráðherrana“
Alþýðublaðið heldur áfram:
„Stjórnarkjörið er mikið áfall
fyrir kommúnistaráðherrana —
Lúðvík og Hannibal. Valdataka
Brynjólfs — sem nú er reyndar
staddur austur í Moskvu — gæti
reynzt undanfari hreinsunar i
Sósíalistaflokknum, kynni jafn-
vel að riða Alþýðubandalaginu
að fullu. Brynjólfur hugsar Lúð-
vík og Hannibal þegjandi þörf-
ina. Hann hefur frá upphafi verið
sáróánægður með stefnu þeirra
og athafnir. Og hann veit full-
vel, að það var Lúðvík, sem beitti
sér fyrir því, að honum — Brynj-
ólfi — var bolað frá þingsetu“.
Þjóðviljinn gerir í gær enga
athugasemd við frásögn Alþýðu-
blaðsins, en ekki getur það dul-
izt neinum lesendum Þjóðviljans,
að skrif hans hafa að undanförnu
verið með ólíku móti og engin
fastmótuð stefna ráðið.
„Pólitískur dauði eða
knéfall til fulls“
Hannes á horninu gerir þetta
mál að umræðuefni í dálkum sín-
um í gær, og segir:
„Alþýðubandalagsmennirnir
hafa unnið sitt hlutverk og meira
fá þeir ekki að gert. Þá er þeim
vísað á dyr. Nú býður þeirra
pólitískur dauði eða knéfall til
fulls — — —.
Þessi örlög eru kunn frá fyrri
tímuin----—.
Moskvukommúnistarnir hafa
tekið völdin í félaginu undir for-
ustu páfans vegna þess að endur-
skoðunarstefnan sundrar nú
hverjum kommúnistaflokknum á
fætur öðrum úti í heimi og hér
er verið að undirbúa átökin.
Þetta mun hafa víðtækar afleið-
ingar í pólitík kommúnistaflokks
ins — og mun á næstunni koma
ýmsum á óvart, en ekki þó þcim,
sem þekkja kommúnistaflokkana
að innanverðu.
--------Línurnar verða skýr-
ari og það er öllum fyrir beztu.
— Erfiðara verður líka fyrir
ýmsa meðhlaupara að villa á sér
heimildir“.
Hver sem skýring þessara at-
burða kann að vera í raun og
veru, þá sýna þeir og skrií AI-
þýðublaðsins hina miklu ókyrrð,
sem nú í stjórnarliðinu. Henni
veldur fyrst og iremst andúð al-
mennings á öllu atferli V-stjórn-
arinnar.