Morgunblaðið - 01.11.1958, Síða 12

Morgunblaðið - 01.11.1958, Síða 12
12 MORCVNBLAÐtÐ L,augardagur 1. nóv. 1958 brúnan blett sem birtist og hvarf eftir því sem öldurnar hækkuðu og hnigu. Ösjálfrátt, af eðlihvöt og sökum skylduvitundar hafði h-ann brotið heilann um það, hvaða persónulegar aðgerðir hann gæti framkvæmt til þess að afstýra þessari ógæfu. — „Það er alltaf hægt að gera eitthvað meira, ein- hverjar auka-framkvæmdir sem hægt er að ráðast í“. — Þannig höíðu yfirvöld Herdeildar S16 fullyrt. 1 fyrsta skipti frá því er hann hafði verið ráðinn til starfs sem þessa, gat Shears ekki látið sér til hugar koma neitt sem hann gæti gert og hann bölvaði sjálfum sér fyrir vanmátt sinn og getu- leysi. Fyrir honum var teningnum kastað. Hann hafði engan mögu- leika til að gjalda líku líkt, frem- ur en Warden, sem hafði nú vafa- laust einnig tekið eftir sviksemi Kwai-fljótsins. Joyce, kannske? En hafði hann þá uppgötvað breytingu þá sem orðin var? Og hver gat sagt nokkuð um það, hvort hann hefði þá hug og hæfi- leika til að bregðast á réttan hátt við þessari óvæntu ógæfu? Shears sem hafði mikla reynslu og þekk- ingu í að meta rétt þá örðugleika sem yfirstíga þurfti í tilfellum sem þessu, iðraðist þess nú beisk- lega að hafa ekki sjálfur tekið að sér hans hlutverk. Tvær endalausar klukkustundir liðu. Frá verustað sínum gat hann séð íbúðarskálana. Hann hafði séð nokkra japanska her- menn á ferli í fullum einkennis- B a by strauvélin BABY er einasta borðstrauvélin, sem stjórnað er með fæti og því hægt að nota báðar hendur við að hagræða þvottinum. með árs ábyrgð. — Verð kr.: 3.850,00 — Tfekla Austurstræti 14 Sími 11687 skrúða. 1 hundrað metra fj'arlægð frá fljótinu var heill hópur af þeim, er beið eftir járnbrautar- lestinni, í skipulagðri röð, til heið urs yfirvöldunum sem opna skyldu brautarlinuna. Kannske myndi undirbúningur þessarar athafnar draga að sér alla athygli þeirra? Shears vonaði það. En japanskur varðmaður hafði komið út úr varð- skýlinu og stefndi nú beint nið- ur að brúnni. Nú gengu mennirnir, undir stjórn undirforingja, eftir brúar- pallinum, i tveimur röðum, beggja megin við gangbrautina. Þeir gengu hægt og rólega með riffl- ana kæruleysislega hagandi við axlir sér. Hlutverk þeirra var ,að framkvæma síðustu rannsóknina áður en lestin kæmi. Öðru hverju staðnæmdist einn og einn í hópn- úm og laut út yfir handriðið. Ber- sýnilega til þess eins að friða sam- vizkuna, og framkvæma þær skip- anir sem þeim höfðu verið gefnar. Shears reyndi að telja sjálfum sér trú um að athygli þeirra væri ekki algerlega bundin við þetta skyldustarf — enda mun svo held- ur ekki hafa verið í raun og veru. Ekkert slys gat hent brúna yfir Kwai-fljótið, sem þeir höfðu sjálf ir séð ríáa upp og fullkomnast í þessum auða og yfirgefna dal. „Sjáandi sjá þeir ekki“, sagði hann við sjálfan sig, meðan hann fylgdist með atferli þeirra. Hvert spor sem þeir stigu, endurómaði innra með honurrt. Hann neyddi sjálfan sig til að horfa stö.ðugt á þá og fylgjast með hverri hreyf- ingu þeirra, meðan hann bað heitt og í hljóði til þess dularfulla mátt arvalds, sem þarna gat einhverju til vegar komið, hvort sém það var guð eða djöfull. Hann fylgdist al- veg ósjálfrátt með gönguhraða þeirra og vegalengdinni sem þeir fóru á hverri sekúndu. Nú voru þeir komnir meira en hálfa leið yfir brúna. Undirforinginn hall- aði sér yfir handriðið og talaði eitthvað við fremsta manninn um leið og hann benti með hendinni út á fljótið. Shears greip með lóf- anum fyrir munninn á sér til þess að stöðva hljóðið sem v."r nærri sloppið af vörum hans. Undirfor- inginn hló. Hann hafði eflaust sagt eitthvað sniðugt viðvíkjandi hinni skyndilegu lækkun vatnsins í farveginum. Aftur héldu þeir af stað. Shears hafði rétt fyrir sér: „Sjáandi sjá þeir ékki“. Nú var síðasti maðurinn kominn hjá. Þeir höfðu ekki tekið eftir neinu. Nú komu þeir aftur til baka. Þeir gengu yfir brúna, í gagn- stæða átt, með sama hraða og sama eftirtektarleysinu. —■ Einn þeir'ra teygði höfuðið og axlirnar út yfir handriðið, en gekk svo aft- ur inn í röðina. Aftur voru þeir farnir hjá. — Shears strauk hendinni yfir sveitt ennið. Þeir smá-fjarlægðust fljót- ið. „Þeir hafa ekki séð neitt“, I hvíslaði hann nær ósjálfrátt, til þess að fullvissa sig enn frekar um það, að kraftaverkið hefði í raun og veru skeð. Hann fylgdi þeim eftir með augunum og leit ekki af þeim, fyrr en þeir höfðu sameinazt flokknum. Jafnframt því sem gleðin blossaði upp í huga hans, fann hann til óljósrar hreykni. „Ef ég hefði verið einn af þeim“, tautaði hann fyrir munni sér — „þá hefði ég ekki verið svona hirðulaus. Hver einasti brezkur hermaður hefði tekið eft- ir skemmdarverkinu. Ah, jæja, nú verður ekki langt þangað til lest- in kemur, vona ég“. Eins og svar við síðustu hugs- unum hans, heyrði hann höstuga rödd sem kallaði skipanir, yfir á óvinabakkanum. Einhver hreyfing komst á mennina. Shears horfði út í fjarskann. Yzt úti við sjóndeild- arhring sléttunnar tilkynnti lítið, dökkt reykjarský komu fyrstu japönsku flutningalestarinnar, um megin fljótsins. Á því augnabliki sem Númer Eitt tók aftur fyrri varðstöðu sína, enn á valdi ákafrar geðs- hræringar og hugsandi einungis um væntanlega sprengingu og al- geran úrslitasigur sinn og sinna manna, steig Nicholson ofursti fyrsta skrefið út á brúna yfir Kwai-fljótið. Með hreina samvizku, í friði við alheiminn við guð, horfandi augum sem voru blárri en hita- beltishimininn að afstöðnum stormi, njótandi unaðar hinnar verðskulduðu hvíldar sem hver starfsmaður öðlast að loknu erfiðu verki, hreykinn yfir því að hafa sigrað allar hindranir og örðug- leika með persónulegum kjarki og þolgæði, glaður af því að hafa sýnt sig fullan jafnoka forfeðra sinna og bætt nýjum og mjög óvenjulegum kafla við goðsagnir Austurlanda um almætti hinna vestrænu þjóða, sannfærður um — hann sá ekki glæsilega, teinrétta liðsforingjann í einkenn- isbúningi brezks ofursta, sem nálgaðist brúna--------- sem fara átti inn í Síam — fyrstu lestarinnar sem hlaðin var her- mönnum, hergögnum og háttsett- um, japönskum herforingjum, og skyldi nú bruna yfir brúna yfir Kwai-fljótið. Tilfinningar Shears milduðust. Þakkartár til hinna dularfullu máttarvalda runnu niður kinnar hans. „Hér eftir getur ekkert stöðv- að okkur eða hindrað", hvíslaði hann. — „Örlögin hafa engin fleiri brögð til að beit-a. Lestin verður komin hingað eftir 20 mínútur". Hann sefaði áhyggjufullt skap sitt og hélt aftur niður að fjalls- rótunum, til þess að taka að sér stjórn hjálparflokksins. Þegar hann klöngraðist hálfboginn nið- ur brattann með allan hugann við það að halda sig í felum, sá hann ekki glæsilega, teinrétta liðsfor- ingjann í einkennisbúningi brezks ofursta, sem nálgaðist brúna hin- a r í U ó i) Andi „Það hlypi heyri ekki lengur 2) „Sjáðu Sirrí! Þarna hleyp- ur fjárhxrðir í áttina til indíána- þorpsins, og það lítur út fyrir að hann sé í uppnámi.“ 3) „Hlustaðu, Markús! Þetta er Andi. Hann hlýtur að vera meiddur“. að enginn hefði getað gert verkið betur, trúaðri en áður á yfirburði síns eigin kynþáttar á öllum at- hafnasviðum, ánægður yfir kost- um og gæðum þessa mikla mann- virkis og til þess að skoða í síð- asta skipti árangurinn af sjálfs- fórn, hetjulund og drengskap brezku fanganna gekk Nicholson ofursti, virðulegur í svip og fasi, eftir brúnni yfir Kwai-fljótið. Flestir fangarnir og allir liðs- foringjarnir höfðu yfirgefið búð- irnar við Kwai-fljótið fyrir tveimur dögum, og farið fót- gangandi t il einhvers ákveð- ins staðar, en þaðan átti svo að senda þá áfram til Malaya, til eyjanna eða til Jap- ailltvarpiö Laugardagur 1. nóvember Fastir liðir eins og venjulega: 12.50 Óskalög sjúklinga (Bryn- dís Sigurjónsdóttir). — 14.00 íþróttafræðsla (Benedikt Jakobs son). — 14.15—16.30 Laugardags- lögin — 16.30 Tónleikar. — 17.15 Skákþáttur (Guðmundur Arn- laugsson). — 18.00 Tómstunda- þáttur barna og unglinga (Jón Pálsson). —- 18.30 Útvarpssaga barnanna: Pabbi, mamma, börn og bíll, eftir önnu C. Vestly, — III. (Stefán Sigurðsson kennari). — 18.55 í kvöldrökkrinu, — tón- leikar af plötum. — 20.30 Leik- rit: Drottningin og uppreisnar- mennirnir eftir Ugo Betti, í þýð- ingu Áslaugar Árnadóttur. Leik- stjóri: Ævar Kvaran. — 22.10 Danslög (pl.). — 24.00 Dagskrár- lok.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.