Morgunblaðið - 14.11.1958, Side 19

Morgunblaðið - 14.11.1958, Side 19
Föstudagur 14. nóv. 1958 MORCVJSBL4Ð1Ð 19 Myndin er af einum námumannanna í Kanada, sem björguðust úr námugöngum eftir að þeir taöfðu verið lokaðir inni í námunni 6 daga. Það eru sonur hans og dóttir sem samfanga honum. Húsmœðrafélag Reykja v'tkur ,Þorlákur þreytti' á Hellu og i Vík í Mýrdal um l helgina HÚSMÆÐRAFÉLAG Reykja- víkur hélt nýlega fund í Borgar- túni 7. — Formaður félagsins, frú Jón- ína Guðmundsdóttir, ræddi vetr- arstarfsemina. Skýrði hún frá því að hin vinsælu mánaðar saumanámskeið hefðu byrjað að venju í september og verið full- setin. Svo væri einnig um sýni- kennsluna í matreiðslu tvö kvöld og mánaðarnámskeið í matreiðslu er nú stæði fyrir dyrum. Þá drap hún á það að á næsta fundi yrði gerð tilraun með bastvinnu. — Einnig fór hún nokkrum orðum um jólafund féiagsins og kvað stjórnina hafa fullan hug á að + KVIKMYNDIR ■> Bœjarbíó: Prófessorinn fer i fri iTALIR standa framarlega í kvik myndagerð og hafa margar kvik myndir þeirra hlotið verðlaun á hinum miklu kvikmyndahátíð- um sem efnt er til áirlega. Svo er einnig um myndina „Prófessor- inn fer í frí“, sem sýnd er nú í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Mynd- in er á yfirborðinu gamanmynd, en býr þó yfir dýpri merkingu. þegar að er gáð. Heimsfrægur prófessor í atomfræðum, Georg Hamilton er horfinn og enginn veit hvað um hann hefur orðið. Bandaríkjamenn eru slegnir ógn og láta leita hans, en árangurs- laust. — En prófessorinn hefur bara tekið sér frí, — frí frá her- væðingaræðinu og hatrinu, sem hvarvetna í löndum hinnar svo- kölluðu hámenningar, eitrar and rúmsloftið og skapar mönnum ótta og öryggisleysi. — Prófess- orinn leitar athvarfs í litlu, ítölsku sjávarþorpi og unir þar vel hag sínum innan um glað- værð og áhyggjulaust fólk, sem hfir í friði og sátt hvert við ann- að, með Iéttu lífsviðhorfi, sem er lífshamingjan sjálf eða að minnsta kosti eitthvað í ætt við hana. Mynd þessi er ekki löng og heldur ekki stórbrotin, en boð- skapur hennar og sanleikur er mikilvægur og því má mikið af henni læra. Hún er líka vel gerð og vel leikin og má þá einkum nefna frábæran ieik Edmund Gwenn's í hlutverki prófessors- ins. — Mynd þessa ættu sem flestir að sjá. Til þess að fylla tímann sýnir Bæjarbíó jafnframt myndina Rauðu blöðruna, sem Albert Lanouisse hefur gert. Er mynd- in hreint listaverk, enda hlaut hún gullpálmana í Cannes og frönsku gullmedalíuna 1956. Hún er nútíma ævintýri og minnir jafnvei, í því sem á bak við felst, á Aladdin og lampann. — Ego. fá stærra húsnæði fyrir hann, þar eð reynslan hefði sýnt að það er við hefðum væri alltof lít- ið. Ennfremur væri 1 ráði að hafa hann með meira nýtizku sniði og fjölbreyttari. Þá tók við að ræða um hina ört vakandi dýrtíð er engin sæi fyrir endann á og hver áhrif slikt öfugstreymi hefði á afkomu heimilanna. Voru fundarkonur á einu máli um það að í slikt óefni væri komið þeim málum, að mörgum, ekki sízt þeim efna- minni mundi um megn að standa undir þeim þunga og hætta á að þau gætu ekki veitt sér brýnustu nauðþurftir, væri þegar farið að brydda á því að t. d. einstæðings- mæður með börn þyrftu að leita hjálpar til að fá rönd við reist. Einnig var rætt nokkuð um vöruvöndun, gæðaval og hag- sýnni vörukaup, t. a. m. væri vörur í pökkum miklu dýrari en í lausri vigt. — í þessu sambandi var eftirfarandi tillaga sam- þykkt: 1. Að kaupmenn vandi meira til innkaupa á vörum, t. d. græn- metis og flokkun matvæla sé greinilegri og verð sett á hverja þá vöru sem er til sýnis fyrir kaupendur. Að tómatar séu ekki seldir í 1. fl., þegar um 2. eða 3. fl. vöru er að ræða. Einnig að gulrófur séu ekki hafðar til sölu nema því aðeins að það sé góð vara. 2. Að kjötkaupmenn hafi kjöt greinilega flokkað og að verð sé við hvern flokk, sem sett er í bakka í sýningarborði til hag- ræðis fyrir kaupendur. Þar eð reynsla er fengin fyrir því að MBL. sneri sér í gær til Aðal- bjargar Sigurðardóttur, form. Bandalags kvenna £ Reykjavík, í tilefni þess að frétzt hefur að bandalagið hefði í hyggju að gefa ofið veggteppi í væntanlegt ráð- hús höfuðstaðarins. Kvað Aðal- björg málið allt á byrjunarstigi, og að ekki hefði verið ætlunin að hafa það í hámæli á þessu stigi málsins. Hugmyndin að þessari gjöf er gömul. Fyrir nokkrum árum stakk frú Ragnhildur Pétursdótt- ir á Háteigi upp á því að Banda- lag kvenna byggi sig undir að gefa þessa gjöf. Var Jóhann Briem, listmálari, fenginn til að gera uppdrátt að teppinu, og var því verki lokið fyrir ca. tveim- ur árum. Sýnir myndin Ingólf Arnarson, landnámsmann, Hall- veigu Fróðadóttur og Þorstein- son þeirra, en Esjan og sundin eru í baksýn. Var um þetta mál fjallað á ný- afstöðnum aðalfundi Bandalags kvenna í Reykjavík, en í þvi eru um 20 félög. Var kosin 9 manna nefnd, til að hrinda því í fram- kvæmd og er Ragnhildur Péturs- hafi t. d. hryggleitar fylgt súpu- kjöti hefur það verið selt á 34.50 pr. kg. og því nauðsynlegt að slíkt kjöt sé aðgreint svo að hús- mæður geti betur fylgzt með hvað þær eru að kaupa. 3. Að Mjólkursamsölu Reykja- víkur verði gert að skyldu að hafa í útsölum sínum spjöld með verði mjólkurafurða, eins og það er á hverjum tíma og að spjöldin séu þannig staðsett að kaupendur hafi greiðan aðgang að. 4. Að fisksölubúðum verði einnig gert að skyldu, að hafa prentað spjald með verði fiskaf- urða á þeim stað í búðum sín- um, svo neytendur geti haft gát á því, hvað þeir þurfa að greiða fyrir hvert kg., sem þeir kaupa. Einnig kom fram tillaga er varðar rúgbrauðin og hljóðar svo: Fundur í Húsmæðrafélagi Reykjavíkur 28/10 '58 lýsir mik- illi óánægju sinni yfir hve rúg- brauð eru bæði vond og illa bökuð. Harmar fundurinn að jafn holl og mikið notuð fæða sé ekki betur úr garði gerð til neytend- ans. Að lokum var rætt um rjóma- söluna í bænum, að enn sæti við það sama að selja ekki minni skammt en 1 pela, þrátt fyrir óánægju neytenda með þá ráð- stöfun og þrátt fyrir eindregin tilmæli félagsins í vor að fá þessu breytt til betri vegar fyrir heim- ilin og þeim gert kleift að fá hann í smærri umbúðum er um svo dýra vöru er að ræða og rjómi er. Upplýstist það á fundinum að Mjólkursamsalan hefur gert sitt tU að fá innflutningsleyfi fyrir minni umbúðum en ekkert orðið ágengt í þeim efnum ennþá. dóttir formaður hennar. Eru kon umar rétt að fara af stað með söfnun í þessu skyni, og hefur eitt félag og ein kona þegar gef- ið í sjóð, sem nota á til þessara framkvæmda. Reiknað er með að teppið muni ekki kosta minna en 100 þús. kr. fullgert. Bandalagið hefur ákveðið að ráða Vigdísi Kristjánsdóttur, vefnaðarkonu, til að vefa tepp- ið, sem verður meira en 2 metr- ar á hæð, en ekki hefur þó enn verið gengið frá samningum við hana. Útvegað hefur verið band í 20 litum í teppið og er það spunnið í Álafossverksmiðjunni. Aðalbjörg tók það sérstaklega fram, að máhð væri á ákaflega miklu byrjunarstigi, og að ekki hefði enn verið leitað um fjár- framlög til kvenfélaga sambands ins, en í því eru ekki nærri öll kvennasamtök í Reykjavík. Cólfslípunin Barmahlíð 33. — Súni 13657 UNGMENNAFÉLAGIÐ „Baldur“ í Hvolhreppi, Rangárvallasýslu, hefur að undanförnu sýnt gaman- leikinn „Þorlákur þreytti" eftir Neal og Farmer, í þýðingu Emils Thoroddsen. Gamanleikur þcssi er að góðu kunnur, sprenghlægi- legur og hnittinn. Atburðarásin er jafnframt mjög spennandi og forvitnileg. Nú þegar hafa farið fram 5 sýningar og ávallt fyrir yfirfuilu húsi áhorfenda, er óspart hafa lát ið ánægju sína í ljós. Með aðal- hlutverk fara þau Anna Margrét Jafetsdóttir og Einar Benedikts- son. Bæði gera þau hlutverkum sínum hin beztu skil. Jósep Hrís- eying leikur Bjarni Helgason Allur leikur hans vekur innilega kátínu áhorfenda. Ólafur Ólafs- son skilar af sér tveim hlutverk- um mcð prýði. Jón Fúss tónsnill- ing lei' ar Hreinn Árnason. Hér er ein „ s'nan“ enn á ferðinni er kítlar áhorfendur mjög. Leik- ur Hreins ei afbragðs góður og skemmtilegur á köflum. Með önnur hlutverk fara þau Erla Matthíasdóttir, Ragnheiður B. Guðnadóttir, Helga ísleifs- dóttir, Herdís Einarsdóttir, Gísli Lárusson, Erlingur Ólafsson og Grétar Björnsson, er leikur „éi- lifðarstúdentinn", með miklum heimsborgarabrag. Sem sagt, gamanleikur þessi er með þvl bezta af þessu tagi og er sannar- lega mikil upplyfting frá hinu daglega striti. Ungmennafélagið „Baldur" mun sýna leik þennan á Hellu nk. laugardagskvöld og í Vík í Mýrdal á sunnudaginn. Mun sýn- ingin á Hellu verða síðasta sýn- ingin í Rangárþingi og v, Jr vafalaust húsfyllir þar sem og annars staðar. Leikstjórn annað- ist frú Ingibjörg Steinsdóttir. •— Gessam. Kaupmannahöfn. — I Reutersi- fregnum segir, að það sé ljóst orð ið að deilurnar um „endurskoð- unarstefnuna" á þingi kommún- istaflokksins danska í síðasta mánuði hafi valdið klofningi í flokksdeildunum víðs vegar um landið. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu á fimmtugs- afmæli mínu. i Theódóra Sigurjónsdóttir. Innilegar þakkir til a’lra þeirra sem mundu mig á 60 ára afmælinu 2. nóv. s.l. Lifið öll heil. Sigurlaug Guðmundsdóttir, Sólbakka. Hugheilar þakkir sendi ég öllum þeim, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á afmælis- daginn 4. nóv. 1958. Sæmundur Sæmundsson. Ég þakka af alhug öllum mínum vinum og kunningjum svo og félagssamtökum, sem glöddu mig á margan hátt á 50 ára afmælinu mínu 3. nóv. s.l. og erðu mér daginn ógleymanlegan. Guðjón Sigurðsson, Sauðárkróki. Hjartans þakkir til allra vina og vandamanna nær og fjær er glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og heilla- skeytum á áttræðisafmæli mínu 1. nóvember s.l. Guð blessi ykkur öll. Kristín Ásgeirsdóttir frá Kirkjuskógi. BALDUK HELGI BJÖRNSSON skósmiður, andaðist á Landakotsspítala 13. nóvember. Fyrir hönd vandamanna. Reynir Berndsen. Maðurinn minn og faðir okkar MAGNÚS MAGNÚSSON verkstj. Ægisgötu 26, andaðist 13. þ.m. Ragnheiður Jónasdóttir og dætur. Jarðarför eiginkonu minnar JÓNÍNU JÓNSDÓTTUR fer fram frá heimili hinnar látnu Hellukoti, Stokkseyri laugardaginn 15. þ.m. kl. 1 e.h. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Andrés Ingimundarson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát og jarðarför móður minnar ÞURlÐAR ÞORSTEINSDÓTTUR frá Ytra-Lóni. Fyrir hönd vandamanna. Þorsteinn Jóhannesson. Bondaiag kvenna hyggst geia veggteppi í væntanlegt rdðhús

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.