Morgunblaðið - 28.11.1958, Blaðsíða 22
2
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 28. nóv. 1958
Eyjólfsson, Rvk; Guðjón Sigurðsson,
Rvk og Guðmundur Björnsson, Stöðv-
arfirði.
Skipulags- og laganefnd: Snorri Jóns
son, Rvk; Einar Ögmundsson, Rvk;
Guðrún Guðvarðardóttir, Akureyri,
Óskar Hallgrímsson, Rvk; Torfi Vil-
hjálmsson, Akureyri; Knútur Jóns-
son, Siglufirði og Gunnar A. Jónsson,
Selfossi.
Fræðslunefnd: Árni Ágústsson, Rvk;
Tryggvi Emilsson, Rvk; Gunnar Jó-
hannsson, Siglufirði; Ingimundur Er-
lendsson, Rvk; Jóhann Möller, Sigluf.;
Einar Jónsson, Rvk; Snorri Þorsteins-
son, Borgarnesi.
Fjárhagsnefnd: Hannes Stephensen,
Rvk; Jón Rögnvaldsson, Akuryri; Sig-
finnur Karlsson, Norðfirði; Svavar
Árnason, Grindavík; Hilmar Jónsson,
Rvk; Pétur Guðfinnsson, Rvk; Sigfús
Jónsson, Húsavík.
Trygginga- og öryggismálanfnd: Her
mann Guðmundsson, Hafnarfirði; Guð
mundur J. Guðmundsson, Rvk; Krist-
inn Eiríksson, Rvk; Jóhanna Egils-
dóttir, Rvk; Ólafur Björnsson, Kefla-
vík; Kristjón Guðmundsson, Rvk;
Árni Jóhannesson Rvk.
Allsherjarnefnd: Björgvin Sigurðs-
son, Stokkseyri; Jón Ingimundarson,
Akureyri; Jón Rafnsson, Rvk; Pétur
Pétursson, ísaf.; Guðrún Gunnars-
dóttir, Húsavik; Marías Þ. Guðmunds-
son, ísafirði; Hálfdán Sveinsson, Akra-
nesi; Jóna Guðjónsdóttir, Rvk; Björg-
vin Brynjólfsson, Skagaströnd; Þor-
valdur Ólafsson, Rvk; Andrés Sverris-
son, Rvk.
Kjörnefnd sambandsstjórnar: Tryggvi
Helgason, Akureyri; Óskar Hallgríms-
son, Rvk; Eðvarð Sigurðsson, Rvk;
Ragnar Guðleifsson, Keflavík; Sigurð-
ur Stefánsson, Vestmannaeyjum og
Sveinbjörn Oddsson, Akranesi.
Svipmyndir frá Alþýðusambandsþinginu, sem nú stendur yfir. -
Sókn og Trésmiðafélaginu, en þeir síðarnefndu voru samþykktir
dei Iur
— Þing ASÍ
Frh. af bls 3
máttur vinnulaunanna væri
tryggður.
Hann taldi að stjórninni hefði
tekizt að framkvæma fyrri lið-
inn á mjög ákjósanlegan hátt.
Nú væri það úr sögunni, að hung
urnefndir svonefndar þyrftu að
fara til Reykjavíkur til að biðja
um aðstoð. Nú væri vandamálið
meira, hvar ætti að fá fólk til
framleiðslustarfanna.
Hitt að tryggja kaupmátt laun
anna hefði ekki tekizt eins vel.
Kvaðst Björgvin aðeins vilja
segja að þótt dýrtíð væri slæm,
væri atvinnuleysið þó miklu
verra.
Guðni H. Árnason, formaður
Trésmiðafélagsins tók til máls
og kvað það hafa verið óviður-
kvæmilegt, þegar kommúnistinn
Eðvarð Sigurðsson hefði farið að
kalla stóran hóp þingfulltrúa ann
arlega og að einhverju leyti verri
en aðra fulltrúa, þótt þeir væru
Sjálfstæðismenn. Kvaðst Guðni
ekkert telja sjálfan sig verri full-
trúa verkalýðsins en suma
kommúnista. Hann hefði í byrjun
verið starfandi sjómaður og siglt
undir Hræðslupeningunum, sem
Framsóknarmenn eða Jónas Jón-
as Jónsson hefðu svo kallað. Þrír
aðrir fulltrúar Trésmiðafélagsins
á þinginu hefðu einnig verið sjó-
menn áður fyrr, en svo hefðu
þeir leyft sér að læra trésmíðar.
Taldi Guðni það móðgun við
verkalýðssamtökin í heild, þeg-
ar Eðvarð reyndi að draga full-
trúa í dilka, þannig að sumir
væru góðir en aðrir vondir.
Jón Bjarnason frá Selfossi
kvaðst nú mæta á Alþýðusam-
bandsþingi í fyrsta skipti. Hann
hefði ekki ímyndað sér er hann
lagði af stað á þingið, að hér
yrði eytt.heilum degi í að karpa
um stjórnmál. Ætti ekki að eyða
svo löngum tíma í þessar til-
gangslausu deilur.
En hvers vegna hafa deilur
þessar orðið svo miklar- Er það
ekki einmitt vegna þess að
stjórn ASÍ hefur verið of veik.
Hún hefur ekki haft nógan meiri
hluta. Taldi Jón, að hægt væri að
forðast slíkar deilur með því að
mynda nýja sambandsstjórn á
sem breiðustum grundvelli.
Jóhann G. Möller frá Siglu-
firði ítrekaði það að á Siglufirði
væri atvinnuástandið ekki eins
gott og Hannibal Valdimarsson
vildi vera látá. Benti hann á að
tveir fulltrúar Siglfirðinga á
þinginu hefðu farið úr atvinnu
til að geta sótt þingfundi, en
þegar þeir sneru heim ættu þeir
enga vinnu vísa. Hann kvaðst
líka vita að á Ólafsfirði hefði sl.
vetur verið borgað í atvinnuleys-
istryggingar 200 þús. kr. Enn-
fremur sagði hann að enn flytti
unga fólkið frá Siglufirði.
Snorri Jónsson frá Járnsmiða-
félaginu hermdi það upp á
Guðna H. Árnason, að hann hefði
efazt um heiðarleika félaga
sinna í Trésmiðafélaginu. Sagði
hann að þetta væri lúalegt af
Guðna. Síðan lýsti hann því
hvernig Guðni og félagar hans
í stjórn Trésmiðafélagsins hefðu
hegðað sér. Þeir hefðu neitað að
hlýða löglegri áskorun um að
halda þrjá félagsfundi og hefði
miðstjórn Alþýðusambandsins
vítt þá fyrir þetta.
Guðni H. Árnason svaraði þess
um ásökunum Snorra og sagðist
ekkert hafa mælt um það, að
félagar hans væru óheiðarlegir.
Þar gerði Snorri honum fullkom
lega upp orð og væri hann ósann
indamaður að þeim.
Fyrst Snorri hefði minnzt á
kæru félaga sinna á stjórn Tré-
smiðafélagsins, kvaðst Guðni
vilja rekja það mál nokkuð.
Þar var um að ræða þrjár
áskoranir til félagsstjórnar um
að halda félagsfundi. En ýmis-
legt var við þessar áskoranir að
athuga. Sú fyrsta var sett fram
í febrúar sl. með þriggja daga
fyrirvara, en ekki hægt að fá
nægilegt húsnæði með svo
skömmum fyrirvara. Áskorendur
bentu þá á húsnæði til félags-
fundar í Trésmiðafélaginu, sem
hefur 50*0 félaga, en þetta hús-
næði tók aðeins 100 manns.
Hins vegar var haldinn fundur
nokkrum dögum síðar í stærra
húsnæði.
Önnur áskorun var um að
haldinn yrði fundur í júní sl. og
tiltekinn fundartími eftir að
stjórn félagsins hafði setið að
samningafundum nótt með degi
og m. a. langt fram á nótt kvöld-
ið áður en fundinn ætti að halda.
Þassi fundur var haldinn tveim
dögum seinna.
Þriðja áskorun kom fram nú
fyrir nokkru, þegar undirbúnar
voru kosningar fulltrúa á Al-
þýðusambandsþing. í þeirri
áskorun var sagt, að fund skyldi
halda til að „ræða félagsmál“.
En í lögum Trésmiðafélagsins er
tekið fram að í slíkri áskorun
skuli tilgreint fundarefni, ekki
aðeins „félagsmál“; heldur um
sérstakar ástæður til fundarboð-
unar.
Svo sagði Guðni, að það hefði
gerzt hinn 5. nóv. sl. að stjórn
Trésmiðafélagsins hefði borizt
kæra. Þar var stjórnin kærð fyr-
ir sjálfri sér. En samtímis var
slík kæra send Alþýðusamband-
inu, sem hafði engar vöflur á
því, en lýsti því yfir, „að aug-
ljóst væri“ að stjórn Trésmiða-
félagsins hefði með þessu brotið
lög félagsins og að víta bæri
slíkt lagabrot.
Þessa samþykkt gerði mið-
stjórn ASÍ 8. nóv., eða þrem-
ur dögum eftir að kæra barst.
Hún gaf Trésmiðafélaginu
ekkert tækifæri til að bera
hönd fyrir höfuð sér og sagði
um ákæruatriðin: „Það er
augljóst mái“.
Guðni skýrði frá því að stjórn
í Trésmiðafélagsins hefði skrifað
- Hér sjást nokkrir fulltrúar úr
löglegir fulltrúar eftir nokkrar
miðstjórn ASÍ mótmælabréf þar
sem látin er í Ijós undrun yfir
þessari málsmeðferð miðstjórnar
ASÍ, m. a. að hún skyldi ekki
einu sinni gefa báðum málsað-
ilum kost á að gera grein fyrir
máli sínu.
Þessi skýrsla Guðna H. Árna-
sonar vakti mjög mikla athygli
meðal þingheims og er hún gott
dæmi um vinnubrögð kommún-
ista og misnotkun Alþýðusam-
bandsins.
★
Klukkan var nú orðin hartnær
tvö um nóttina. Voru að lokum
bornir upp reikningar sambands-
ins og þeir samþykktir í einu
hljóði.
★ ★
í FYRRAKVÖLD var kosið í nefndír
Alþýðusambandsþings. Voru nefndar-
menn kjörnir allir í einu hljóði skv.
uppástungu Nefndanefndar. Nefndir
þingsins eru þannig skipaðar:
Verkaiýðs og atvinnumálanefnd: Eð-
varð Sigurðsson, Rvk; Tryggvi Helga-
son, Akureyri; Sigurður Stefánsson,
Vestmannaeyjum; Hulda Sigurbjörns-
dóttir, Sauðárkróki; Alfreð Guðna-
son, Eskif.; Jón Sigurðsson, Rvk;
Ragnar Guðleifsson, Keflavik; Björg-
vin Sighvatsson, ísaf.; Sigurður
Kvennaskóíinn vill halda
lóð sinni
KENNARAFÉLAG Kvennaskól-
ans í Reykjavík er andvígt því,
að skólinn verði sviptur lóð þeirri
undir væntanlegt skólahús, er
honum var úthlutað við Suður-
götu, Fjallhaga og Hjarðarhaga
árið 1955. Hefur félagið nýlega
sent bæjarráði og bæjarfulltrúum
svohljóðandi mótmælabréf:
„Á fundi bæjarráðs 31. október
sl. var samþykkt, samkvæmt til-
lögu frá samvinnunefnd um
skipulagsmál að afturkalla fyrir-
heit um skólalóð á horni Suður-
götu og Hjarðarhaga, sem ætluð
var Kvennaskólanum í Reykja-
vík. Telur samvinnunefnd, að lóð
sú komi ekki til greina ' af um-
ferðar- og skipulagsástæðum.
Leyfir Kennarafélag Kvenna-
skólans sér að benda á, að vart
geti verið um meiri umferðaræð
að ræða en Fríkirkjuveginn, þar
sem skólinn hefur haft aðsetur
sitt um hálfrar aldar skeið, án
þess að umferðm hafi á neinn hátt
háð starfsemi hans.
Ennfremur vill kennarafélagið
taka fram, að það telur lóð á ofan
greindum stað: horni Suðurgötu
og Hjarðarhaga mjög ákjósanlega
og leyfir sér jafnframt að skír-
skota til bréfs yðar dagsett 7.
september 1955, en þar segir:
„Að fenginni umsögn nefndar-
innar (þ. e. samvinnunefndar um
skipulagsmál) dagsettri 24. fyrra
mánaðar samþykkti bæjarráð á
fundi sínum í gær að ætla skól-
anum lóð milli Suðurgötu milli
Fjallhaga og Hjarðarhaga eftir
nánari útvísun síðar“.
Af ofangreindum ástæðum leyf-
kennarafélagið sér að bera fram
einróma mótmæli gegn samþykkt
bæjarráðs, sem brýtur algjörlega
í bág við þau fyrirheit, sem áður
voru gefin, og telur, að um samn-
ingsrof gagnvart Kvennaskólan-
um sé að ræða verði hann svipt-
ur téðri lóð.
Reykjavík, 10. MÓvember 1958.
Kennarafélag Kvennaskólans
í Reykjavík“.
Aðgerðir gegn
EOKA
NÍKÓSÍU, 27. *óv. Reuter. —
Lokið er á Vestur-Kýpur víðtæk-
um aðgerðum gegn EOKA-sam-
tökunum. Handtóku Bretar um
20 menn, sem hafa verið mjög
athafnasamir innan samtakanna,,
og náðu verulegu magni af /opn_
um.
Frummæalandi brezku her-
stjórnarinnar sagði í dag, að þetta
hefðu verið víðtækustu aðgerðir
Breta í baráttunni gegn EOKA-
mönnum á þessum hluta eyjar-
innar fram að þessu .
JffMn
Landslið íslands í handknattleik mœta
liðum völdum at íþróttafréttamönnum
NÆSTKOMANDI þriðjudag
fara fram að Hálogalandi
tveir athyglisverðir leikir í
handknattleik. Eru það leikir
landsliða í karla- og kvenna-
flokki gegn liðum er félagar
í Samtökum íþróttafrétta-
manna hafa valið. Eru leikir
þessir háðir til ágóða fyrir
Handknattleikssamband Is-
lands, en það ráðgerir utan-
för karla- og kvennaflokks á
næsta ári til fjölmargra lands
leika. Þessi leikur, ef vel verð
ur sóttur, getur því lyft und-
ir með vinsælli íþrótt til að
ná merkum áfanga í þróun
handknattleiksins, sem skap-
aðist með opnun landsleika-
viðskipta við Norðurlönd,
eins og ráðgert er nú.
Liðin hafa verið valin og eru
þannig í karlaflokki:
Landslið: Guðjón Ólafsson KR,
Karl Benediktsson Fram, Einar
Sigurðsson FH, Hörður Felixson
KR, Ragnai Jónsson FH. Birgir
Björnsson FH. Reynir Ólafsson
KR, Pétur Sigurðsson ÍR, Karl
Jóhannsson KR og Gunnlaugur
Iljálmarsson ÍR.
Pressulið karla er þannig:
Kristófer Magnússon FH, Þor-
björn Friðriksson KR, Bergur
Adolphsson KR, Heinz Stein-
mann KR, Ágúst Þórarinsson
Fram, Rúnar Guðmundsson
Fram, Þórir Þorsteinsson KR,
Matthías Ásgeirsson ÍR, Geir
Hjartarson Val, Hermann Samú-
elsson ÍR.
Landslið kvenna er þannig:
Rut Guðmundsdóttir Á. Helga
Emilsdóttir Þrótti, sem er fyrir-
liði, Hrönn Pétursdóttir KR, Sig-
ríður Lúthersdóttir Á, Guðlaug
Kristinsdóttir KR, Gerða Jóns-
dóttir KR, Sigríður Kjartansdótt-
ir Á. Varakonur eru Perla Guð-
mundsdóttir KR, Katrín Gústafs-
dóttir Þrótti, María Guðmunds-
dóttir KR og Jóhanna Magnús-
dóttir Þrótti.
Pressuliðið er þannig skipað:
Erla Isaksen KR, Ingibjörg Pét-
ursdóttir Víking, Ólína Jónsdótt-
ir Fram, sem er fyrirliði, Inga
Magnúsdóttir KR, Inga Hauks-
dóttir Fram, Þórunn Erlends-
dóttir A, Liselotte Oddsdóttir Á.
Varakonur eru Erna Franklin
KR, Sigríður Sigurðardóttir Val,
Kristín Jóhannsdóttir Á og Erla
Sigurðardóttir Fram.
Leikirnir verða á þriðjudags-
kvöldið 2. desember.
Arsenal vann Juventus 3:1
ARSENAL, Lundúnaknattspyrnu
liðið fræga, sigraði ítölsku meist-
arana Juventus, á flóðlýstum
Highbury vellinum í fyrrakvöld
með þremur mörkum gegn einu.
í hálfleik var staðan 1:1, mörkin
skoruð af John Charles, sem
vakti mikla ’ athygli, fyrir Ju-
ventus og John Barnwell fyrir
Arsenal. Charles sem er af mörg-
um álitinn bezti knattspyrnu-
maður Bretlands er af welskum
ættum, var seldur til Juventus
fyrir tveimur árum frá Leeds
Utd. fyrir 65 þús. sterlingspund.
í seinni hálfleik náði Arsenal
meiri tökum á leiknum og tvö
mörk skoruð af Jimmy Bloom-
field tryggði þeim sigurinn.
Markvörður Arsenal Jack Kels-
ey, lék fyrr um daginn fyrir
Wales gegn Englandi, lék einnig
með í þessum leik og þykir vel
af sér vikið. Þetta er álitinn mik-
ill sigur fyrir enska liðið, en
Juventus er eitt sterkasta „klúbb
lið“ heimsins.