Morgunblaðið - 28.12.1958, Side 15

Morgunblaðið - 28.12.1958, Side 15
Sunmidagur 28. des. 1958 MORGUNBLAÐIÐ 15 Frá aðalfundi Grœn- landsáhugamanna HINN 1. des. sl. héldu Græn- landsáhugamenn í Reykjavík árs- fund sinn, en Landssamband ís- lenzkra Grænlandsáhugamanna var, eins og kunnugt er, stofnað 1. des. í fyrra. Henry Hálfdánsson, form. sam- bandsstjórnar, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. — Hann minntist í upphafi máls síns eins af stofnendum lands- sambandsins, Þórhalls Þorgils- sonar, dómtúlks, sem látinn er fyrir skömmu. — Utan úr heimi Framh af bls. 8 þeirra dómi eru róttækar breyt- ingar á efnahagsskipulaginu nauð synlegar. Þeir vilja koma á frjáls um markaði, þar eð það sé eina efnahagsskipulagið, sem veiti tryggingu fyrir heilbrigðri þró- un iðnaðarmála landsins, þar sem jafnframt sé tekið tillit til þarfa neytenda. 'k-r'k Af þessu sést, að ný-bolsévika Og and-kommúnista greinir á um margt og mikið. En um eitt atriði eru þó allir hinir óánægðu, ungu menn í Sovétríkjunum sammála: þeir vilja lýðræði, þjóðfélagslega sinnaða þingræðisstjórn. — Reykjavikurbréf Framh. af bls. 9 á engan veg skilmálum stjórnar- skrár lýðveldisins um það hvert efni fjárlaga skuli vera. Hefði því mátt ætla, að fjármálaráð- herra legði kapp á að fá úr þessu bætt eftir að Alþingi kom sam- an. V-stjórnarflokkarnir höfðu meirihluta í fjárveitinganefnd og réðu þar öllum vinnubrögðum. En þeir hirtu alls ekki um með- ferð fjárlagafrumvarpsins. Fyrstu vikurnar var látið svo sem þeir væru eitthvað að glugga í frv., en þegar frá leið var jafnvel horfið frá þeirri sýndarmennsku. Fjárveitinganefnd hefur nú í margar vikur ýmist enga fundi haldið eða einungis til þess að fjalla um þingsályktunartillögur fjárlögum óviðkomandi, sem til hennar hefur verið vísað. Við fjárlagafrv. hefur ekki verið feng izt frekar en það væri ekki til. Mmnihlutastjórn Alþýðuflokks Hámark ábyrgðarleysisins birt- ist í því, að Framsókn hindraði, að fyrir jól væru afgreidd bráða- birgðaheimild til fjárgreiðslna úr ríkissjöði í janúarmánuði, sem stjórnskipuleg nauðsyn er að fá úr því að fjárlög hafa ekki 'feng- izt samþykkt. Þetta var fyrsta kveðjan, sem hinn gamli samstarfsflokkur Framsóknar, Alþýðuflokkurinn, fékk, þegar hann var að reyna að mynda ríkisstjóm og forða þjóðinni úr þeirri ófæru, sem V- stjórnin hafði leitt hana út í. Ólíklegt er þó talið, að Fram- sókn hafi kjark til þess að fylgja eftir því tilræði að stöðva greiðsluheimildarlögin. En ekki er við miklu góðu af henni að búast. Á sjálían aðfangadag var Tíminn með hótanir til Alþýðu- flokksins fyrir þá dirfsku að hann skyldi ekki una áfram í vinnumennskunni hjá Framsókn. Er auðséð af þeim skrifum og frásögn Þjóðviljans, að Hermann Jónasson hefur þótzt illa leikinn, að Alþýðuflokkurinn skyldi ekki veita honum brautargengi til að vekja upp V-stjérnina. Sjálfstæðismenn láta sig alla þá viðureign litlu skipta. — Þeir munu enn sem fyrr láta málefn- in ráða og leggja megináherzlu á að skýra þau fyrir almenningi svo að kjósendur geti kveðið upp dóm sinn við kosningamar næsta vor á réttum forsendum. Þá voru sýndar kvikmyndir frá Grænlandi, en síðan flutti Þor- kell Sigurðsson, gjaldkeri sam- bandsins, skýrslu um fjárhags- afkomuna á liðnu ári. Á fundi þessum voru ýmsar samþykktir gerðar. M. a. var sam þykkt að gefa út heildarkort af Grænlandi með fornum, íslenzk- um örnefnum. — Einnig var því beint til sambandsstjórnar, að hafizt yrði handa um útgáfu fræðslurits um Grænland að fornu og nýju og skorað á Al- þingi að veita styrk til útgáfunn- ar. — Sömuleiðis var skorað á Alþingi að veita á fjárlögum rif- legt árlegt framiag til Græn- landsmála. Gerð var ályktun varðandi handritamálið, um að skora á Alþingi að samþykkja fram komna tillögu frá Pétri Ottesen og Sveinbirni Högnasyni um skipun nefndar til þess að semja við Dani um endurheimt íslenzku handritanna frá Danmörku. Loks beindi aðalfundurinn þeim tilmælum til Alþingis, að tekin verði á fjárlög fjárveiting til þess að kosta útgáfu höfuð- vísindarits dr. Jóns Dúasonar á aðalheimsmálunum. Nokkrar umræður urðu um landhelgismálið á fundinum og voru samþykkt mótmæli gegn of- beldisaðgerðum Breta, sam- kvæmt tillögu frá Þorkatli Sig- urðssyni. Sú skoðun var ríkjandi á fund- inum, að leggja beri Grænlands- málið hið fyrsta fyrir alþjóðadóm til úrskurðar. Hláka á Akureyri um jólin AKURIÍYRI, 27. des. — Með Þor láksdegii tók að hlána, en fyrir var talaverður snjór og alil-þung færð á noklcrum leiðum í útsveitum. — Segja má, að nánaist hafi verið asahláka á jóladag og bloti bæði á aðfangadag og annan dag jóla. — 1 gærkveldi var komið frost á nýj an leik. All-mikimn snjó tók upp þössa daga, og bætti það mjög úr færð. — Jólarakl fór hér fram með stakri prýði. Jólaskreyting í bænum fer sífellt vaxandd og var óvenju mikiil á þessum jölum. — Allir togarar bæjarins lágu í höfn um jóliin að einum undantekn um, sem var á leið frá Þýzkalandd. Dállítið erfitt var um ferðir fyr ir jólin_ en úr því rættist á Þor- láksdag og aðfangadag. — Flogið var til Akureyrar báða þessa daga. Langferðir á Landi gengu hins vegar illa. Að öllu athuguðu verður ekki annað sagt, en Akureyringar hafi átt friðsæl jól að þessu sinnig. — vig. Miklar skipaferðir um R-víkurhöfn MIKIÐ „útfall“ var hér í Reykja- víkurhöfn í gærdag, en þá létu úr höfn milli kl. 2—4 síðd. 9 togar ar. Fóru flestir þeirra á veiðar vestur á Fylkismið við Ný- fundnaland, en aðrir á heimamið- in. Þá hafa Látið úr höfn Gullfoss og Reykjafoss. Hér hefur legið í höfninni síðan á aðfangadag þýzki togarinn KarL Kamp frá Bremerhaven. Hann kom hingað inn vegna bilunar, hafði svonefnt „sligbretti" losnað og einnig staðsetningartæki. Var togarinn á leið til Nýfundnalands miða á karfaveiðar. Þessi togari er nýlegur, mikið skip til að sjá. Skipstjórinn Lét þau orð falla, að skutbyggðir togarar væru fram tíðin, um það blandaðist engum hugur, sem verið hefði á slíku fiskiskipi og reynt það sjálfur. Togari þessi hafði kostað um 2,5 milljónir marka. Hann er mjög stór. Síðdegis í gær fór togarinn áfram áleiðis til miðanna. PILTAR. ef þHf'éfqfí idnnusHína p'ð 3 éq hringana. . ^ \ sfc’A/'sf/jie.V 6 Öllum þeim er heimsóttu okkur á sextugsafmælinu og heiðruðu okkur með gjöfum, skeytum og blómum, þökkum við innilega. Sérstaklega þökkum við börnum okkar og tengdabörn- um er gerðu okkur daginn ógleymanlegan. Gleðilegt ár! Pálína Guðjónsdóttir, Jón Guðjónsson. Lokoð mánudaginn 29. des. frá kl. 9—2 vegna jarðarfarar Fotopresson Venus Hverfisgötu 59. Lokað mánudaginn 29. þ.m. vegna jarðarfarar frá kl. 7,30 f.h. til kl. 1 e.h. Nýjn blikksmiðjon Höfðatúni 6. Hjartkæra konan mín ARNBJÖRG SIGMUNDSDÓTTIR andaðist að heimili sínu, Tunguveg 62, 27. desember. Fyrir hönd barna og tengdabarna. Daníel Daníelsson. Fósturfaðir minn JÖHANNES IIJARTARSON andaðist annan jóladag. Asta Jónsdóttir. Faðir minn SIGURJÓN STEINÞÖRSSON frá Króki, andaðist í Landakotsspítala á jóladag. Jarðarförin ákveðin siðar. Guðbjörn Sigurjónsson. Föðurbróðir minn KRISTINN GUÐNASON kvenkjólaframleiðandi í San Francisco, andaðist á heim- ili sínu 23. desember 1958. Björgvin Jónsson. Maðurinn minn og faðir okkar JÖN BACH Vatnsstíg 16a, andaðist 24. desember. Jónína Jónsdóttir, Olga Jónsdótir, Jón M. Jónsson, Héðinn Jónsson. Maðurinn minn KRISTJÁN GlSLASON vélsmiður, Öldugötu 45, Reykjavík, andaðist í Lands- spítalanum 25. desember. Ingibjörg Árnadóttir, Útför bróður míns SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR húsameistara fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 30. desember, kl. 10,30 fyrir hádegi. Athöfninni verður útvarpað ef unnt verður. Jenny Guðmundsdóttir. Jarðarför VALRÓSAR BALDVINSDÓTTUR Hjalteyri, fer fram frá Möðruvallakirkju, mánudaginn 29. desember kl. 2 e.h. Vandamenn. Útför MAGNtJSAR GfSLASONAR Þórsgötu 9, fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 30. þ.m. klukkan 13,30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Hallgrímskirkju í Reykja- vík. Ingibjörg Magnúsdóttir, Hermann Þorsteinsson. Jarðarför föður og tengdaföður okkar HELGA VIGFÚSSONAR blikksmiðs, fer fram mánudaginn 29. des. kl. 10,30 frá Fossvogskirkju. Börn óg tengdabörn. Jarðarför móður okkar og tengdamóður SIGURBORGAR JÓNSDÓTTUR sem andaðist 17. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 29. desember kl. 13,30. Halla Jakobsdóttir, Björg Jakobsdóttir, Árni Bjarnason. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug, við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar og bróður, ÓSKARS JÓNSSONAR Ásvallagötu 31, Reykjavík. Sigríður Stefánsdóttir, Ásdís Óskarsdóttir, Jón Óskarsson, Guðríður Jónsdóttir, Rögnvaldur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.