Morgunblaðið - 20.02.1959, Side 10
1
MORGUNBLAÐIÐ
Fðstudagur 20. febr. 1959
Utg.: H.í. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigi
Einar Ásmundsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480
Askriftargald kr. 35,00 á mánuði innan±ands.
I lausasölu kr. 2.00 eintakið.
NÝ HARMAFREGN
NÝ HARMAFREGN hefur
borizt íslenzku þjóðinni.
Tólf sjómenn á bezta
[ aldri hafa farizt með vitaskipinu
[ Hermóði, sem einnig hefur tekið
þátt í landhelgisgæzlunni und-
anfarna mánuði. Að þessu sinni
[ varð slysið uppi undir strönd Is-
; lands, aðeins örfáar mílur frá
landi.
S, Á rúmri viku hafa íslend-
ingar þannig misst 42 dugandi
menn í sjóinn. Það er mikið og
hörmulegt áfall, sem skilur
eftir mörg sár og djúp.
Sautján börn misstu feður
sína með vitaskipinu Her-
móði en 39 börn urðu föður-
laus, er togarinn Júlí fórst.
Samtals standa því 56 börn
uppi föðurlaus, eftir þessi tvö
miklu sjóslys. Svo miskunn-
arlaust hefur Ægir vegið í
knérunn okkar litlu þjóðar.
Fjöldi heimila er í sorg og
þjóðin öll harmar hina skelfi-
legu atburði.
Hamfarir
náttúruaflanna
fslendingar hafa undanfarnar
vikur horfzt í augu við miklar
hamfarir náttúruafla. f þessu
norðlæga landi er að sjáifsögðu
ævinlega allra veðra von um há-
vetur. En það er tiltölulega sjald
gæft að hamslausir stormar og
óveður geisi svo að segja sam-
fleytt vikum saman, eins og raun
in hefur verið á undanfarnar
þrjár vikur. Segja má, að varla
hafi -gefið á sjó hér sunnan og
suðvestanlands allan þennan
tíma. Bátaflotinn hefur legið í
höfnum og vinna í hraðfrystihús-
um og fiskiðjuverum hefur dreg-
izt saman og víða stöðvast.
Þungbærasta tjónið
En þungbærasta tjónið er þó
hinn mikli missir, sem þjóðin
hefur orðið fyrir við það að tvö
glæsileg skip með samtals 42'
tnönnum hafa farizt. Mannslíf er
dýrasta verðmæti hverrar þjóð-
ar, ekki sízt smáþjóðar eins og
fslendinga. Það tjón verður
aldrei bætt. Það er hægt að sefa
þjáningu sorgarinnar, en það er
ekki hægt að bæta eiginkonu,
litlu barni eða öldruðum foreldr-
um missi eiginmanns, föður eða
sonar.
Þetta siys er enn ein ógn-
þrungin aðvörun gegn of-
trausti á tæknina. Ekkert skip
er svo fullkomið eða vel bú-
ið tækjum, að hættur hafsins
vofi ekki yfir því. Þess skul-
um við fyrst og fremst minn-
ast nú, er þjóðin öll vottar
syrgjandi ástvinum horfinna
sjómanna djúpa samúð og
hluttekningu.
KAUP BÓNDANS
SÍÐASTLIÐINN sunnudag
hinn 15. febrúar ritaði
Jón Sigurðsson, alþingis-
maður og bóndi á Reynistað,
mjög glögga grein um afurða-
verðið og áhrif þess á kaup-
gjald bóndans. Benti hann þar
m.a. á það, að samkomulag hefði
orðið um það í framleiðsluráði
landbúnaðarins á sl. hausti, við
fulltrúa neytenda að ákveða
bændum 6% grunnkaupshækk-
un, eins og mörg verkalýðsfé-
lög höfðu þá fengið samþykkta.
Þessi hækkun á kaupi bóndans
hefur svo verið tekin með, þegar
reiknað var út, hvað bóndinn
þyrfti að fá fyrir afurðir sínar,
Samkvæmt þeim verðlagsgrund-
velli, er fulltrúar bænda og
neytenda höfðu orðið sammála
um.
i En nokkru eftir að þessi verð-
lagning landbúnaðarafurða var
ákveðin, samdi verkamannafélag
ið Dagsbrún um 9,5% kaup-
hækkun. Var það 3 14 % meiri
hækkun en bændur höfðu samið
um og mörg félög og starfs-
mannahópar höfðu fengið.
Bændur fengu mikils-
veirðar réttarbætur
Jón á Reynistað minnist síð-
an á það, að samkvæmt þágild-
andi lögum hafi bændur ekki átt
rétt á því að fá afurðaverði sínu
breytt til samræmis við kaup-
hækkunina fyrr en 1. september
næsta haust. Hins vegar hefðu
þeir fengið þá mikilsverðu rétt-
arbót í sambandi við setningu-
niðurfærslulaga núverandi rikis-
atjórnar, að framleiðsluráði skuli
^framvegis heimilt að hækka af-
urðaverð til framleiðenda, ef
hækkun verður á vísitölu eða
grunnkaupi.
Jón á Reynistað kemst m.a. að
orði um þetta á þessa leið:
„Með lögunum um niðhir-
færslu kaupgjalds og verðlags
Sengu bændur mikilsverðar
réttarbætur, sem voru þeim
mörgum sinnum meira virði
í framtíðinni en þó þeir
fengju nokkurn frádrátt á
þeirri afurðaverðslækkun,
sem lögin mæla fyrir um, og
því óréttmætt að setja kröf-
una um kauphækkun á odd af
þeirri ástæðu“.
Hrekur staðhæfingu
Framsóknar
Þessi grein Jóns á Reynistað
varpar Ijósi yfir þær staðreyndir,
sem henni er ætlað að skýra. Hún
hrekur til dæmis gersamlega þá
staðhæfingu Framsóknarmanna,
að réttur bænda hafi verið fyrir
borð borinn með niðurfærslu-
lögunum. Samkvæmt lögum, sem
Framsóknarflokkurinn ber fulla
ábyrgð á og hefur ekki sýnt til-
burði til þess að breyta undan-
farin ár, gátu bændur ekki hækk
að afurðaverð sitt eftir kaup-
hækkun Dagsbrúnarmanna fyrr
en 1. sept. n.k. Samkvæmt nið-
urfærslulögunum skal fram-
leiðsluráði hins vegar heimilt að
hækka afurðaverð til framleið-
enda, ef vísitöluhækkun verður,
eða hækkun á grunnkaupi frá
því sem var, þegar lögin voru
samþykkt. Eins og Jón á Reyni-
stað bendir á, er hér um að Væða
þýðingarmikla réttarbót fyrir
bændur og mikilsverða breyt-
ingu.
UTAN UR HEIMI
Hlaupið er nýbyrjað. Húsmæðurnar koma hlaupmdi niður götuna með pönnukökupönnurnar
sínar í hendinni. Keppnin í pönnukökuhlaupi hefur verið háð í litla bænum Olney í yfir 500 ár.
Milliríkjakeppni húsmæðra í
pönnukökuh/aupi
Á HVERJU ÁRI fer fram
skemmtileg íþróttakeppni í
markaðsbænum Olney, skammt
frá Northampton í Englandi. Þar
keppa húsmæður staðarins í svo-
kölluðu pönnukökuhlaupi.
Fyrsta kapphlaupið var háð 1445
Siðurinn er gamall, talið er að
fyrsta pönnukökuhlaupið hafi
farið fram árið 1445. Tilefni þess
var upphafiega það, að áður en
sjö vikna fastan, frá öskudegi til
páska, byrjaði gerði fólk sér
margt til gamans, þar sem það
átti von á að þurfa að sitja á sér
í sjö vikur á eftir. Þá vildu
menn gjarnan borða eitthvert góð
gæti, og hentugt þótti að baka
pönnukökur, til að nota upp egg
og smjörbirgðir heimilisins, en
ekki mátti borða slíkt á föstunni.
Þetta leiddi svo til pönnuköku-
hlaupsins, sem enn fer fram á
sprengidag ár hvert.
Kl. 11,30 byrjar hátíðin með
Karen Blixen og Marilyn
Monroe voru fyrir skömmu heið-
ursgestir hjá bandarísku skáld-
konunni Carson McCulIers, sem
hafði tekizt það á hendur að kynna
því að embættismaður í skarlats-
rauðum einkennisbúningi og með
gljáfægðan hjálm á höfði hring-
ir bjöllu. Upphaflega átti þessi
bjölluhringing að kalla fólk til
messu, en þegar húsmæðurnar,
sem nú búa í Olney, heyra í
bjöllunni, fara þær að baka
pönnukökurnar sínar. Stundar-
fjórðungi seinna heyrist önnur
hringing, þá þjóta þær eins og
þær standa, með svuntu, skuplu
um höfuðið og pönnuna í annari
hendinni, út á aðaltorgið í bæn-
um.
Hringjarinn kyssir
sigurvegarann
Kl. 11,55 er hringt í þriðja
sinn, og þá hefst hlaupið. Sam-
kvæmt skipun frá tímaverðinum,
sem mættur er með klukkuna
sína og reiðhjólið sitt, eiga kon-
urnar þá að a) kasta pönnukök-
unni upp í loftið, láta hana snú-
ast og grípa hana aftur, b) taka
hina frægu dönsku skáldkonu og
bandarísku fegurðardísina. Hér
sést húsfreyjan bjóða gesti sína
veLkomna.
sér stöðu c) og hlaupa af stað.
Keppendur hlaupa svo sem mest
þeir mega hina 380 m vegalengd
að kirkjudyrunum, þar sem
hringjarinn tekur á móti sigur-
vegaranum í hlaupinu með kossi
og presturinn með orðunum
„Friður Drottins sé ætíð með
þér“. En sú, sem fyrst kemur
í mark, ber þó ekki sigur úr
býtum nema hún geti endað
sprettinn með því að kasta pönnu
kökunni sinni hátt á loft og
grípa hana aftur á pönnuna.
Árið 1950 skoruðu húsmæður
í bænum Liberal í Kansas í
Bandaríkjunum á konurnar í
Olney að keppa við sig og síðan
hefur farið fram árleg milliríkja-
keppni í pönnukökuhlaupi milli
Breta og Bandaríkjamanna, því
þótti nauðsynlegt að fá tíma-
verðinum reiðhjól svo öruggt
væri að hann hefði við konunum
og gæti mælt tímann nákvæm-
lega. Konurnar í Olney hafa unn
ið fimm sinnum, en húsmæðurn-
ar í Liberal fjórum sinnum.
Síðara sundmót
skólanna verður
í marzmánuði
SÍÐARA SUNDMÓT skólanna
veturinn 1958—99 fer fram í
Sundhöll Reykjavíkur 19. marz
n.k. kl. 20,30. Þar fer fram sund-
keppni stúlkna og sundkeppni
drengja og verður keppt um bik-
ar, sem Vélsmiðjan Hamar h.f.
gaf.
í stúlknaflokki verður keppt í
skrið-boðsundi, bringusundi,
skriðsundi,_ baksundi og björgun-
arsundi. í piltaflokki verður
keppt í skrið-boðsundi, skrið-
sundi, björgunarsundi, baksundi,
bringusundi og flugsundi.
Stigaútreikingur er þannig: a)
Hver skóli sem sendir sveit í boð-
sund hlýtur 10 stig. b) Sá ein-
staklingur eða sveit sem verður
fyrst, fær 7 stig, 2. 5 stig, 3. 3
stig og 4. 1 stig. Leikreglum um
sundkeppni verður stranglega
fyigt. Tilkynningar um þátttöku
eiga að sendast sundkennurum
skólanna fyrir laugardaginn 14.
marz.
Handhafi bikarsias, sem keppt
verður um, er Verzlunarskóli fs-
lands, en hann hefur unnið hann
tvisvar í röð. Menntaskólinn í
Reykjavík vann hann einu sinnL