Morgunblaðið - 10.03.1959, Síða 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 10. marz 1959
Loftleiðir fimmtán ára í dag
HINN 10. marz 1944 komu nokkr-
ir menn saman í Reykjavík til
þess að stofna formlega nýtt
[blutafélag, sem þeir nefndu Loft-
Seiðir. f dag eru því liðin fimm-
’n ár frá því er þetta gerðist.
Nokkrum mánuðum áður en
ákveðið var að stofna félagið
höfðu þrír ungir íslenzkir flug-
menn horfið heim frá Kanada,
þar sem þeir luku flugnámi og
síðar störfum á vegum kanadiska
flughersins. Þeir höfðu keypt
litla flugvél, sem átti að vera því
til tryggingar, að þeir fengju at-
vinnu hér heima, en er augljóst
varð, að af því gat ekki orðið,
þá virtist ekkj nema um tvennt
að velja fyrir þá, að hætta við
flugstörf eða hverfa úr landi. Ein-
hverjum kom þá til hugar, að
kanna þriðja möguleikann, stofn-
un nýs flugfélags, og upp úr þeim
ráðagerði.m óx svo framkvæmd-
farþega-afgreiðslan í Reykjavík
var við Lækjargötu 10 B, en síðar
Hafnarstræti 4, og nú er farmiða.
greiðsla í Lækjargötu 2, en aðal-
skrifstofu'rnar við Reykjanes-
braut 6.
Sívaxandi flutningaþörf olli
því, að félagið jók starfsemi sína
mjög fyrstu árin með kaupum á
nýjum tegundum flugvéla og
fjölgun áætlunarferða. Keyptar
voru flugvélar af Grunman —
Anson — Catalina — og Douglas-
gerð. Ttil dæmis um flutningana
má geta þess, að fyrsta árið
fluttu Loftleiðir 246 farþega milli
ísafjarðar og Reykjavíkur en
síðar urðu þeir 2300. Árið 1946
fluttu Loftleiðir rúmlega 500 far-
þega milli Vestmannaeyja og
Reykjavíkur, en árið 1951 var
farþegatalan á þeirri flugleið orð
in rúmar 6 þúsundir.
Um skeið hélt félagið uppi
áætlunarflugferðum með ýmsum
frá öndverðu verið augljós anuð-
syn á að íslendingar reyndu að
hasla sér öll á hinum alþjóðlega
leikvangi flugstarfseminnar, en
fyrir því voru kaupin á milli-
landaflugvél strax gerð og telja
mátti, að skynsamlegur grund-
völlur væri fyrir þeim. Til
Reykjavíkur kom hin nýja flug-
vél félagsins „Hekla“ 15. júní
1947 og tveim dögum síðar — á
þjóðhátíðardaginn — fór hún í
fyrstu áætlunarferðina til Kaup-
mannahafnar.
Saga fyrstu ára millilandaflugs
ins geymir minningar um marga
skemmtilega áfanga, en hún
varðveitir einnig endurminning-
ar um margvíslega örðugleika,
einkum fjárhagslega, sem áttu
vitanlega ekki sízt rætur að rekja
til þeirrar staðreyndar, að félagið
var alltof fjárvana í öndverðu til
þess að geta lagt það af mörkum,
sem nauðsynlegt var til að greiða
Flugfreyjan og flugvélin áður en lagt er af stað.
Hófleg fargjöld - öryggi - traust þjónusta
in, stofnun Loftleiða 10. marz
1944.
Að stofnun félagsins unnu, auk
flugmannanna þriggja og vanda-
manna þeirra, ýmsir áhugamenn
um flugmál. Einn helzti forystu-
maður félagsins á fyrstu árum
þess og formaður stjórnarinnar
um langt árabil var Kristján Jó-
hann Kristjánsson, en auk hans
átti Alfreð Elíasson, núveranai
framkvæmdastjóri félagsins, sæti
S stjórninni frá öndverðu. Stjórn
félagsins skipa nú Kristján Guð-
laugsson formaður, Alfreð Elias-
son, E. K. Olsen, Ólafur Bjarna-
son og Sigurður Helgason.
Innr.nlandsflug
Upphaflega var að því stefnt
að koma á föstum áætlunarferð-
um milli Reykjavíkur og þeirra
byggðarlaga, sem örðugt áttu um
samgöngur við höfuðborgina, t. d.
Vestfjarða, en þaðan hafði verið
lagt fram nokkurt hlutafé til
félagsstofnunarinnar, til trygging
ar því, að reynt yrði að koma á
fót föstum flugsamgöngum.
Flugvéiin, sem flugmennirnir
þrír, Alfreð Elíasson, Kristinn
Olsen og Sigurður Ólafsson,
höfðu haft með sér út hingað frá
Kanada varð fyrsti — og til að
byrja með — eini vélakostur hins
nýja flugfélags, en henni var flog
ið í fyrstu áætlunarferð félagsins
frá Vatnagörðum í Reykjavík til
iVestfjarða 7. apríl 1944.
k' Nokkru síðar festi félagið kaup
á annarri Stinson-sjóflugvél og
sumarið 1944 var auk áætlunar-
ferðanna haldið uppi síldarflugi
frá Miklavatni í Fljótum.
> Meðan eingöngu var unnið með
sjóflugvélum var aðalbækistöð
félagsins við Vatnagarða í Reykja
vík, en eftir að aðrar tegundir
komu til sögu færðist starfsemin
út á Reykjavíkurflugvöll. Fyrsta
Stjórn Loftleiða, talið frá vinstri: Ólafur Bjarnason, Kristinn Olsen, Sigurður Heigason, Kristján
Guðlaugsson, formaður og Alfreð Elíasson, framkvæmdastjóri.
tegundum flugvéla milli Reykja- reksturshalla, meðan unnið var
víkur og 15 flughafna innan-
lands, en í febrúarbyrjun árið
1952 ákvað félagið að hætta inn-
anlandsfluginu, er flugleiðunum
hafði þá erið skipt milli Loft-
leiða og Flugfélags íslands og
LoftleiCir töldu fjárhagsgrund-
völl ekki nægilega tryggan fyrir
hagkvæmum rekstri á þeim leið-
um, er félaginu hafði verið heim-
ilað að fá. Því var ákveðið að
hverfa eingöngu til millilanda-
flugsins og selja allar þær flug-
vélar, er notaðar höfðu verið til
flugrekstursins innanlands.
Millilandaflug hefst
Saga millilandaflugs félagsins
hefst með kaupum þess á fyrstu
Skymasterflugvélinni árið 1946.
Forystumönnum Loftleiða hafði
að öflun nýrra markaða.
Örlagaríkasti áfanginn er tvi-
mælalaust sá, sem varðar leyfið
til Ameríkuflugsins, er veitt var,
árið 1948, en það hefir alla tíð
síðan verið eitt helzta lífakkeri
félagsins og á grundvelli þess var
ákveðið ú.ið 1952 að endurskipu-
leggja alla starfsemina og freista
þess að koma á föstum og reglu-
bundnum flugferðum milli
Bandaríkjanna og Norður-Evrópu
með viðkomu á íslandi.
Leiguflug
Um tíma var leiguflug verulegur
þáttur í starfsemi félagsins. Farn-
ar voru í.rðir með farþega frá
Evrópu til Suður-Ameríku, flug-
vélar félagsins voru í förum
milli íslands og Grænlands á veg-
Þetta er fyrsta flugvél Loftleiða
um franska vísindamannsins Dr.
Paul-Emile Victor og danska
landkönnuðarins Dr. Lauge Koch.
Allt varð þetta til þess að veita
flugmönnum félagsins og öðrum
starfsmönnum þess dýrmæta
reynslu, sem síðar hefir komið
að góðu haldi. Þess má geta, að á
þessu árabili voru flugvélar fé-
lagsins stundum í leiguferðum
til Austurlanda.
S'-staða Loftleiða
Þó að þær ákvarðanir, sem
teknar voru um endurskipulagn-
ingu millilandaflugsins árið 1952
hafi fyrst og fremst mátt rekja tilj
hins takmarkaða flugvéiakosts
félagsins og þrönga fjárhags, þá
hafa meginatriði þetvra orð ð
til þess að skapa Loftleiðum sér-
stöðu í samkepninni á flugleiðun-
um yfir Norður-Atlantshafið og
munu, ef að líkum lætur, halda
áfram að tryggja félaginu ör-
uggan fjárhagsgrundvöll. Er hér
einkum átt við hin iágu targjöld,
sem ákveðin voru með sérstöku
samkomulagi milli ríkisstjórna
Bandaríkjanna og íslands og rök-
studd með skírskotun til þeirrar
staðreyndar, að enda þótt flug-
vélar .Loftleiða væru af einni
þeirri traustustu gerð, sem nú er
kunn, þá reyndust þser ekki jafn
fljótar í förum og nýrri tegundir
en fyrir því væri réttmætt, að
gera farþegum að greiða lægri
gjöld með þeim en hraðfleygari
flugvélum. Nú er svo komið, að
enginn treystir sér lengur til að
finna frambærilegar röksemdir
gegn þessari stefnu Loftleiða.
Það er nú opinberlega viður-
kennt af ýmsum hinna sérfróð
ustu þeirra, er um flugmál rita,
að hér sé ekki einungis um mikið
sanngirnismál að ræða, heldur
hafi starfSemi Loftleiða fært
heim sanninn um það, að með
því að stilla fargjöldunum í hóf
verði mögulegt að ná til fjöl-
margra þeirra, sem annað hvort
hefðu ekki ferðast eða valið skip
til ferðanna yfir hafið, en af þeún
sökum sé samkeppni Loftleiða
ekki jafn hörð við stóru flug-
félögin og raun virðist berá vitni
við fyrstu sýn.
Fargjaldabarátta Loftleiða hef-
ir ekki einungis vakið verðskuld-
aða athygli á litlu flugfélagi, sem
býður hinni voldugu flugfélaga-
samsteypu IATA birginn, heldur
hefir hún einnig orðið til þess að
ýmsir eru nú teknir að hugleiða,
hvort hyggilegast muni ekki vera
að bæta nýjum fargjaldaflokki
við, „Loftleiðafargjöldunum“ á
flugleiður.um yfir Norður-Atlants
hafið og fari svo, þá mun þáttur
Loftleiða aldrei reynast ómerkur
í flugsögunni, hvað sem verða
kann um framtíð félagsins að
öðru leyti.
Öruggur vöxtur
Við árslok 1952 var tala fluttra
farþega frá stofnun félagsins
ekki orðin nema rúmar 95 þús-
undir, en síðan hefir hún farið
sívaxandi og er nú alls orðin um
205 þúsundir. Farpegafjöldinn
reyndist á sl. ári 26.702, en það
er hæsta farþegatala félagsins á
einu ári og mjög athyglisverð,
þegar þess er gætt, að um mesta
annatímann, sumarið 1958, var
ferðafjöldinn nokkru minni en
sumarið 1957. Þetta verður aug-
ljóst, þegar horft er til yfirlits-
ins um sætanýtingu flugvélanna,
sem hefir farið s' r.xandi og var
hún á sl. ári 70% að meðaltali,
en það er, miðað við niðurstöðu-
tölur annarra flugfélaga, mjög
góður árangur.
Til gamans má geta þess
að samanlagður flugstundafjóldi
vélakosts félagsins frá upphafi
starfseminnar er nú orðinn
68. 248, en það jafngildir tæplega
8 árum og floginn kílómetrafjöldi
(20.328.533) samsvarar rúmum 26
ferðum fram og aftur milli tungls
og jarðar.
Mikil eftirspurn ílugfara veld-
ur því, að-Loftleiðir ráðgera nú
verulega aukningu flugferða
sinna á sumri komanda. Áætlað
er, að yfir mesta annatímann,
eða frá maílokum, verði farnar
níu ferðir í viku hverri milli
meginlam’s Evrópu og íslands og
níu ferðir milli fslands og Amer-
íku og munu flugvélar félagsi.t
því verða 36 sinnum í viku á
ReykjavíkurflugvelH á leiðinni
austur eða vestui yfir Atlants-
hafið, gert er ráð fyrir að félagið
muni, auk tveggja Skymaster.
flugvéla sinna, nota til þessa tvær
leiguflugvélar. Viðkomustaðir
verða hinir sömu og nú, New
York, Glrsgow, London, Stafang-
ur, Oslo, Gautaborg, Kaupmanna
höfn og Hamborg, en auk þess
Framh. á bls. 18.