Morgunblaðið - 10.03.1959, Qupperneq 19
Þriðjudagur 10. marz 1959
19
MORCinsnr. 4ðið
Brezkur ráðherra rœðir
fiskveiðadeituna
LANDBÚNAÐAR- og sjávarút-
vegsmálaráðherra Breta hélt
ræðu á sunnudaginn í Great Yar-
mouth og sagði þá m.a.:
„Great Yarmouth á sér merki-
lega fiskveiðasögu, og það er
eðlilegt að við hugleiðum í kvöld
brezka sjávarútveginn, sem á sér
merkilegan feril bæði í stríði og
friði. Þetta er atvinnugrein sem
á sér merkilegan feril bæði í
stríði og friði. Þetta er atvinnu-
grein sem tekur karlmannlega á
vandamálum sínum. Sum þeirra
eru ekki auðveld viðureignar.
Nefna má síldveiðivandamálið
við Austur-Anglíu og fiskveiði-
vandamálið við strendur fslands.
Hin mikla vorvertíð við ís-
land er nú að hefjast, og togar-
ar okkar, sem sækja á fjarlæg
mið, munu stunda þar veiðar
undir vernd konunglega brezka
sjóhersins innan 12 mílna mark-
— írak
Framh. af bls. 1.
sambandið var að nokkru ó-
virkt. Lögreglan hefur lokað
öllum landamærum og gerir
það sem hún getur til að hylja
uppreisnina þoku og reyk, svo
það er engin leið að fá rétta
mynd af því sem er að gerast
í landinu.
Hvor segir satt?
Um svipað leyti og Bagdad-
útvarpið skýrði frá því, að Shaw
waf ðfursti hefði verið tekinn
fastur af íbúunum í Mogul, var
sagt frá því í útvarpi uppreisn-
armanna, að Kassem væri nú um
kringdur og höfuðborgin muni
falla í hendur uppreisnarmanna
á hverri stundu.
Einn af leiðtogum júlí-
byltingarinnar.
Shawwaf ofursti er 45 ára gam-
all ©g var einn af leiðtogum bylt-
ingarinnar í júlí í fyrra. Hann
var einn þeirra þriggja herfor-
ingja, sem skipulögðu herinn fyr-
ir uppreisnina. Hinir voru Kass-
em núverandi forsætisráðherra og
Naji Taleb, fyrrverandi félags-
málaráðherra, sem sagði af sér
ásamt fimm öðrum ráðherrum í
síðasta mánuði í mótmælaskyni
við vaxandi áhrif kommúnista á
■tjórn landsins.
Sá armur byltingarmanna, sem
Shawwaf stjórnaði, var talinn
fyigjandi skoðunum Arefs
ofursta, fyrrverandi aðstoðarfor-
sætisráðherra, sem nú hefur ver-
ið dærndur til dauða fyrir þær
sakir, að hann hafi reynt að
drepa Kassem. Aref vildi að írak
sameinaðist Arabiska sambands-
lýðveldinu, en þar er kommún-
istaflokkurinn bannaður.
Shawwaf hefur sakað Kassem
um svik við júlí-byltinguna og
tilhneigingar til einræðis.
Koðnar hún niður?
ÞaS er álit sérfróðra manna, að
uppreisnin í írak muni koðna
niður nema því aðeins að Arab-
iska sambandslýðveldið skerist i
leikinn og veiti uppreisnarmönn-
um lið. Kassem á mikinn styrk í
flughernum, sem hefur reynzt
honum tryggur, og svo i götu-
lýðnum, sem lætur stjórnast af
vigorðum velþjálfaðra æsinga-
manna, sem hamra á sjálfstæði
Iraks.
Kommúnistum fengin vopn.
Útvarp uppreisnarmanna skýrði
frá því í kvöld, að setuliðið í
Kirkuk hefði gengið þeim á hönd.
Samkvæmt fregnum sem borizt
hafa til Kairó hafa yfirmaður flug
hersins og yfirmaður brynvagna-
deildar hersins lýst yfir fullum
stuðningi við Kassem. Flokkar og
félög, sem lúta stjórn kommún-
ista, fá nú afhent vopn í birgða-
stöðvum hersins í Bagdad.
anna, sem fslendingar hafa sett
með einhliða aðgerðum og reyna
að knýja fram. Ég sé að orðið
„ögrun“ er notað á íslandi. Ég
vil lýsa yfir því, að sízt af öllu
höfum við í hyggju að ögra. Skip
okkar eru einfaldlega að veiða á
sömu miðum og þau hafa veitt
á frá því á öldinni sem leið. Við
erum aðeins að gera það sem hef-
ur verið árleg venja okkar. Við
viljum skynsamlega lausn deil-
unnar og höfum margsannað fs-
lendingum það. Við viljum ekki
árekstra og við munum reyna
að forðast þá, en við getum ekki
orðið við einhliða kröfum, og
við hljótum að vona að skynsem-
in sigri og lausn fáist á þessari
leiðindadeilu".
— Krúsjeff
Framh. af bls. 1.
nýja „styrjöld“ sagði Ollenhauer.
Hann neitaði að segja nánar frá
sjálfum viðræðunum, enda hefðu
þeir Krúsjeff komið sér saman
um að láta ekki annað uppi en
það : em fram kæmi í sameigin-
legri yfirlýsingu þeirra. Ollen-
hauer tók skýrt fram, að ekki
hefði verið rætt um ráðstefnu
vestur-þýzkra sósíaldemókrata
og austur-þýzkra stjórnmála-
manna, og ekki hefði heldur ver-
ið minnzt á viðræður Krúsjeffs
við Willy Brandt.
Víðtækar umræður
í dag sagði Krúsjeff leiðtogum
austur-þýzkra kommúnista, þeim
Grotewohl forsætisráðherra og
Ulbricht framkvæmdastjóra
flokksins, frá samtali sínu við
Ollenhauer. Jafnframt sat Ollen-
hauer fund stjórnar vestur-
þýzkra sósíaldemókrata og gerði
þar grein fyrir samræðum sínum
við Krúsjeff. Á þeim fundi var
einnig ætt um boð Krúsjeffs til
Willy Brandts, en hann var við-
staddur fundinn.
Hin opinbera yfirlýsing hefur
ekki að geyma neitt annað en
það sem Ollenhauer hafði þegar
látið uppi um viðræðurnar. Þær
fóru íram í rússneska sendiráðinu
í Austur-Berlín, en þar mun Krú-
sjeff líka hitta Brandt.
Sundmót
í Hafnarfiði
SUNDMÓT skólanna í Hafnar-
firði fer fram kl. 8 í kvöld. Á
mótinu eru keppt um bikara er
Sundhöll Hafnarfjarðar gaf í til-
efni af 100 ára afmæli skóla-
iþrótta.
Þátttakendur I mótinu í kvöld
verða um 130 frá Flensborg og
barnaskóla Hafnarfjarðar.
Einnig fer fram keppni um
Hlifarbikarana og í 500 m bringu
sundi kvenna og í 1000 m bringu
sundi karla.
Dímncbrog
nmiist sextugs*
afmælis Friðriks 9.
NÆSTKOMANDI miðvikudags-
kvöld heldur félagið Dannebrog
skemmtun í Framsóknarhúsinu í
tilefni af sextugsafmæli Friðriks
Danakonungs. Þar mun Karlakór
Reykjavíkur syngja og ýmislegt
fleira verður til skemmtunar.
Skemmtunin hefst kl. 7 með
borðhaldi fyrir þá sem vilja, en
öðrum er heimilt að koma eftir
matinn.
Aðalfundur Hall-
grímssafnaðar
AÐALFUNDUR Hallgrímspresta
kalls í Reykjavík var haldinn í
kirkjuhúsi safnaðarins 22. febrú-
ar síðastliðinn. Á dagskrá voru
venjuleg aðalfundarstörf. For-
maður minntist í upphafi máls
þeirra miklu sjóslysa, sem orðið
hefðu nýlega og lýsti samúð safn
aðarmanna með aðstandendum
hinna látnu, Því næst færði hann
ýmsum velunnurum safnaðarihs
þakkir fyrir störf í þágu safnað-
arins og gjafir, sem honum hefðu
borizt. Þar á meðal voru Guð-
brandsbíblía frá þeim hjónum
Frú Guðrúnu og Carl Rydén, svo
og kr. 10,000,00, sem Fr. Sigríður
Bjarnadóttir hafði gefið í líknar-
sjóð safnaðarins til minningar um
bróður sinn Gísla Bjarnason.
Loks gaf formaður yfirlit yfir
starf sóknarnefndar á árinu 1958
og framkvæmdir við kirkjubygg
ingu, en eins og kunnugt er hefir
nú verið hafizt handa með að
byggja kirkjuskipið.
Féhirðir safnaðarins, Gísli
Jónasson, skólastjóri, las reikn-
inga safnaðarins fyrir árið 1957
og gerði grein fyrir þeim. Þá las
hann og reikninga líknarsjóðs
Hallgrímsprestakalls. Reikning-
arnir voru samþykktir.
Meðal tillagna, sem samþykkt-
ar voru á fundinum voru:
.Safnaðarfundur þakkar Ara
Stefánssyni, meðhjálpara, fyrir
störf, er hann hefir unnið í þágu
safnaðarins af mikilli trú-
mennsku og samvizkusemi og
biður honum blessunar Guðs í nú
tíð og framtíð. Jafnframt býður
fundurinn eftirmann hans, Ólaf
Guðmundsson, velkominn til
starfsins“.
„Safnaðarfundur Hallgríms-
sóknar sendir einlægar samúð-
arkveðjur til allra inann safnað-
arins og utan, sem orðið hafa fyr-
ir þeirri sorg að missa ástvini
sína í sjóslysum þeim, sem átt
hafa sér stað á undanförnum vik-
um og hvetur safnaðarfólk til að
leggja sinn skerf til samskota
þeirra, sem boðað er til í þágu
þeirra heimila, sem hjálparþurfi
eru“.
Umræður urðu um nokkur mál,
sem vörðuðu söfnuðinn og kirkju
líf í landinu.
Síra Jakob Jónsson endaði
fundinn með lestri Guðs orðs og
bæn.
Frá Alþingi
FUNDIR voru settir í báðum
deildum Alþingis á venjulegum
tíma í gær. Á dagskrá efri deild-
ar voru tvö mál. Frv. um kosn-
ingar til Alþingis var til 1. umr.
og afgreitt samhljóða til 2. umr.
og allsherjarnefndar. Frv. um
fasteignagjöld til sveitarsjóða var
til 3. umr. Breytingartillaga frá
Páli Zóphóníassyni, þess efnis, að
aldrei megi innheimta hærri
gjöld af einstakri fasteign en þau
gátu hæst orðið fyrir 1. maí 1957,
var samþykkt með 7 atkv. gegn
3 og frv. með áorðinni breytingu
samþykkt að viðhöfðu nafnakalli
með sjö samhljóða atkv.
Þrjú mál voru á dagskrá neðri
deildar. Frv. um lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins var til 3.
umr. og afgreitt sem lög. Frv. um
ríkisreikninginn 1956 var til 1.
umr. og vísað til 2. umr. og fjár-
hagsnefndar samhljóða. Frv. um
tekjuskatt og eignarsktt var til
1. umr. og vísai til 2. umr. og
fjárhagsnefndar með samhljóða
atkvæðum.
Innilegar þakkir sendi ég öllum, sem glöddu mig
með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 70 ára afmæli
mínu 6. marz s.l.
Guð blessi ykkur öll.
ÓLlNA STKFÁNSIÍOT'TIK,
Árgötu 2 — Iíúsavík.
SKATTSTOFA
REYKJAVÍKtR
verður lokuð frá kl. 1 í dag vegna
jarðarfarar
SKATTSTJÓRINN
Eiginmaður minri, faðir okkar og tengdafaðir
ÞÓBÐUR JÓHANNESSON
járnsmiður, lézt í Bæjarspítalanum 7. marz.
Sveinbjörg Halldórsdóttir, börn og tengdabörn
Hjartkær eiginkona mín og móðir okkar
SIGURBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
JJesturgötu 68 andaðist 8. þ.m.
Sigurður Sigurðsson og börn
Jarðarför konunnar minnar
GUÐRlÐAR ÁRNADÖTTUR
Meðalholti 10, fer fram frá Fossvogskirkju, miðviku-
daginn 11. marz.
Þórður Gíslason
Móðir okkar og systir
GUÐNÝ EGILSDÓTTIR
verður jarðsett frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 12.
marz. n.k. kl. 1,30 eh.
Ástríður Ólafsdóttir,
Guðrún Ágústsdóttir,
Árni Ágústsson,
Guðrún Egilsdóttir.
Við þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu við fráfall elskulega sonar okkar og bróður
ÁNDRÉSÁR hallgrímssonar,
er fórst með b.v. Júlí.
Foreldrar og systkyni
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð
við fráfall mannsins míns, föður og dóttursonar
RAGNARS KARLSSONAR,
sem fórst með b.v. Júlí.
Siðríður Konráðsdóttir, börn og Guðný Björnes.
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð
við fráfall sonar míns, eiginmanns og bróður
BJÖRGVINS JÓHANNSSONAR
sem fórst með b.v. Júlí.
Ragnheiður Bjarnleifsdóttir, Kristín Eyfeld,
Aruheiður Magnúsdóttir og börn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
KATRlNAR BÖÐVARSDÓTTUR
Hagamel 43
Aðstaniendur
Hjartkærar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur
samúð, við fráfall ástkærs sonar okkar, stjúpsonar og
bróður
MAGNÚSAR GUNNARS SVEINSSONAR
er fórst með b.v. Júlí 8. febrúar s.l.
Sigríðnr Jónsdóttír,
Ael Eyjólfsson,
Anna Guð jónsdóttir,
Sveinn Sveinsson,
Dóra Guðjónsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát. og
jarðarför föður okkar,
GUÐMUNDAR HELGASONAR
Þökkum sérstaklega öllum þeim, sem hjúkruðu lionum
og glöddu í hinni löngu sjúkdómslegu hans
Börnin