Morgunblaðið - 02.04.1959, Blaðsíða 1
20 siðc'
-
Indverjar særðir af
falsrökum kommúnista
Myndin sýnir nokkra hermenn af Khamba ættflokknum i Tíbet, sem er herskáasti ættflokkur
landsins og hefur verið í vopnaðri uppreisn gegn kínverskum kommúnistum í þrjú ár.
Dalai Lama eltur af fallhlíf-
arliði og jbyrilvængjum en
þegnar hans beitfir harðræði
NÝJA DELIII 1. apríl. (NTB-
Reuter). — Miklar umræður
standa enn yfir í indverska þjóð-
þinginu um atburðina í Tíbet. I
dag lýstu tveir rá'ðherrar ind-
versku stjórnarinnar yfir undr-
nn sinni vegna framkomiu Kín-
verja, þar sem þeir halda áfram
að saka Indverja um að stuðla
að uppreisninni og segja að bær-
inn Khalimpong í Indlandi við
tíbetsku-landamærin hafi verið
miðstöð heimsvaldasinna og það-
an hafi uppreisninni verið stjórn-
að.
Varautanríkisráðherra Indlands
Lakhsmi Menon sagði i ræðu, að
þessar ásakanir Kínverja væru
svo fáránlegar að undrun sætti.
Nehru forsætisráðherra hefði þeg
ar tekið af öll tvímæli um að
ekkert slíkt hefði getað átt sér
stað í Khalimpong. Þegar Kín-
verjar héldu áfram rógburði um
þetta væri því um leið um að
ræða móðgun í garð hins ind-
verska forsætisráðherra.
Goving Ballabn innanrikisráð-
herra Indlands lét einnig í ljós
undrun yfir því að Kínverjar
skuli ekki taka gilda neitun
Nehrus á þessum ásökunum. Þessi
framkma sýndi bezt sannleiksást
kínverskra kommúnista. Hér
þyrftu þeir á því að halda að út-
skýra fyrir kínversku þjóðinni,
hversvegna uppreisn hafi brotizt
út í Tíbet. Þeir vildu ekki viður-
kenna það sem rétt er að öll tí-
betska þjóðin hefur risið upp
gegn kúguninni, heldur gripu þeir
til falsraka, sem í þessu tilfelli
væru vægast sagt fáránleg.
TAIPEI á Formósu 1. apríl. NTB.
Stjórn þjóðernissinna á Formósu
lýsti því yfir í dag, aS hún væri
reiðubúin, að veita öllum tíbetsk
um flóttamönnum hæli. Var yfir
lýsing þessi gefin að gefnu tilefni,
þar sem Nehru forsætisráðherra
hafði sagt í indverska þinginu, að
ekki yrði hægt að taka á móti
öllum tíbetskum flóttamönnum ef
t.d. hálf þjóðin flýði undan komm
únistum. Stjórn þjóðernissinna er
reiðubúin að taka á móti hverj-
um þeim mannl sem neyðist til
að flýja grimmdaræði kommún-
Kommúnískur
leiðtogi sakaður
um óJugnað
MOSKVU, 1. apríl. — Forsætis-
ráðherra Hvíta-Rússlands, Niko-
lai Avkhimovich, hefur verið
sakaður um hæfileikaskort og ó-
dugnað við framkvæmd sjö ára
áætlunarinnar í héraði sínu. —
Fyrir nokkru játaði forsætisráð-
herrann brot sín á fundi í mið-
stjórn kommúnistaflokks Hvíta-
Rússlands. Auk forsætisráðherr-
ans hefur flokksstjórnin öll ver-
ið sökuð um ódugnað við að
koma sjö ára áætluninni í fram-
kvæmd.
Rússneska stjórnarblaðið
Pravda skýrir frá þessu um viku
eftir að miðstjórnarfundur komm
únistaflokks Hvíta-Rússlands var
haldinn. Auk ódugnaðar er
flokksstjórnin sökuð um hirðu-
leysi, skort á framtakssemi og að
virða einskis sósíalískt uppeldi
æskunnar.
Hvíta-Rússland er lands-
svæði vestast í Sovétríkjunum,
næst fyrir austan Pólland.
ista. Þar á meðal eru þeir 2900
tíbetsku flóttamenn, sem þegar
eru komnir til Indlands velkomn
ir til Formósu.
Stór ormur sem
gleypir lítinn orm
NEFND tibetskra flóttamanna í
Indlandi hefur birt dreifibréf
sem uppreisnarmenn í Tíbet
sendu fyrir nokkru um byggðir
lands síns. Dreifibréfið er svo-
hljóðandi:
„Við þjóð Tíbets höfum lifað í
friðsæld undir stjórn trúarlegs-
og veraldlegs leiðtoga okkar. Við
vitum hvað er synd og hvað er
dyggð. Tíbet var áður friðsælt
ríki. Nú kveinum við vegna þess
að óvinur trúarinnar. hið komm-
úníska Kina hefur hernumið Tí-
bet með valdi, eins og stór orm-
ur sem gleypir lítinn orm. Kín-
verjamir eyða landi okkar með
svikum og vægðarleysi. Þeir
reyna að útrýma saklausum prest
um og bændum. Enginn á að fá
að eiga, það sem hann hefur unn
ið sér inn með þvi að vinna baki
brotnu. Kínverjar vörpuðu her-
liði niður úr loftinu og réðUst inn
fyrir landamærin að nauðsynja-
lausu. Þeir hafa drepið marga
presta og óbreytt almúgafólk
með fallbyssukúlum og flug-
sprengjum.
WASHINGTON, 1. apríl (NTB) —
Utanríkisráðherrar Vesturveld-
anna og Vestur-Þýzkalands héldu
áfram viðræðum í dag og var bú.
izt við að fundir stæðu langt
fram á kvöld. Fulltrúi bandaríska
utanríkisráðuneytisins sagði í dag
að ráðherrarnir hefðu í dag farið
yfir allt Þýzkalandsvandamálið
frá rótum, þar á meðal rætt hugs-
anlegar leiðir til að koma á frið-
arsamningum við Þýzkaland.
Sagt er að ráðherrarnir hafi
orðið sammála um að Vestur-
veldin ættu að leggja fram nýjar
tillögur um friðarskilmála sem
Kalimpong og Nýju Delhi,
1. apríl. — (NTB-Reuter)
ENN í dag hafa kínverskir
kommúnistar haldið uppi víð-
tækri leit úr lofti að þjóð-
þeir ætli að leggja fyrir Rússa á
hinni fyrirhuguðu ráðstefnu utan-
ríkisráðherranna í Genf 11. maí
nlt. Er þó álitið að slíkar gagn-
tillögur verði aðeins um megin-
atriðin sem leggja beri til grund-
vallar friðarsamningi við Þýzka-
land.
Mun það vera ætlun ráðherr-
anna að ná samkomulagi um þessi
grundvallaratriði í kvöld og ef
það tekst munu þeir leggja þau
fyrir Atlantshafsráðið, en fundur
þess mun hefjast í Washington á
morgun á 10 ára afmæli Atlants.
hafsbandalagsins.
höfðingja Tíhets, Dalai Lama.
Sést greinilega frá indversk-
um landamærabæjum, að
fjöldi leitarflugvéla er á stöð-
ugu sveimi yfir fjalllendinu
norður af Indlandi. Frá sjálfu
Tíbet berast hins vegar frétt-
ir um að kínverska hernáms-
liðið hafi gripið til harðýðgis-
legri hefndaraðgerða en
nokkru sinni fyrr. Meðal ann-
ars er sagt, að kínverskir lög-
reglumenn beiti marga harð-
ræði til að þvinga þá til að
gefa upplýsingar um ferðir
Dalai Lama.
Smám saman eru að berast
ýtarlegri fregnir af uppreisninni
í höfuðborginni, Lhasa, og eftir-
köstum hennar. Bardagar í borg-
inni hafa verið miklu harðari en
fyrst var álitið. Heil borgar-
hverfi liggja í rústum og komm-
únistar jöfnuðu við jörðu með
fallbyssuskothríð sumarhöll Da-
lai Lama rétt fyrir utan borgina.
Eftir að kunnugt varð um
flótta Dalai Lama hófu kommún-
istar ofsafengna leit að honum í
öllum nálægum klaustrum. Munk
arnir í tveimur klaustrunum,
Sera og Drepung, í nágrenni
Lhasa veittu þeim viðnám. —
Klaustrið Sera var svo að segja
jafnað við jörðu með fallbyssu-
skothríð og loftárásum og Drep-
ung stórskemmt.
Af 13 þúsund munkum, sem
bjuggu í þessum tveimur klaustr
um, lifðu 8 þús. af bardagann og
voru þeir fluttir til Lhasa í vöru-
bílum, sumir í þrælkunarbúðir
en aðrir skotnir. Hafa þúsundir
og tugþúsundir Tíbeta verið líf-
látnir síðustu sólarhringa.
Svo virðist sem kommúnistar
hafi ekki hugmynd um, hvar
Dalai Lama er. En þeir leita hans
alls staðar, í klaustrum, borgum
og í fjalllendunum. Virðast þeir
leggja meginkapp á það að hann
komist ekki undan til Indlands.
Kínverjar hafa varpað fallhlífar-
liði niður í fjalllendinu milli
Brahmaputra og indversku
landamæranna.
Indversk blöð segja í dag, að
Dalai Lama eigi aðeins fáa kíló-
metra eftir ófarna til smáríkisins
Bhutan, en þessar fréttir fást
ekki staðfestar af opinberri hálfu
í Indlandi. Hins vegar telja þeir
sem kunnugastir eru staðháttum
líklegast, að Dalai myndi koma
inn í Bhutan, ef hann kæmist
undan.
Fulltrúar tíbetskra flótta-
manna í Nýju Delhi skýrðu í dag
frá því, að Dalai Lama hefði
sent boðskap út frá felustað sín-
um til tíbetsku þjóðarinnar. I
boðskap þessum heitir hann á
þjóð sína að unna sér aldrei
hvíldar fyrr en hinir kínversku
landræningjar eru hraktir brott
af heilagri jörð Tíbets.
Nú fjölgar stöðugt flóttafólki,
sem sleppur yfir landamærin til
Indlands og Nepals. Er svo að
heyra að það geri sér miklar
vonir um að þjóðhöfðingi þeirra
komist undan Kínverjum. Telur
það að Dalai Lama muni sleppa
suður yfir landamærin innan
fárra daga og er eftirvænting
þess mikil.
Flóttamenn segja að Kínverjar
ofsæki sérstaklega munkana i
Tíbet. Hafi þeir ráðizt á hvert
klaustrið á fætur öðru og tekið
þau í sínar hendur. Síðan mis-
þyrmi þeir munkunum og jafnvel
séu þess mörg dæmi, að þeir loki
þá inni í klefum matarlausa, og
þar megi þeir svelta til bana. —
Hernaðarástand ríkir enn í höf-
uðborginni, Lhasa.
*--------------------------*
Fimmtudagur 2. apríl.
Efni blaðsins er m.a.:
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 3: Vilja skila íslandi handritunum*
— 6: Sjálfstæðismenn á Austurlandl
fylgjandi kjördæmabreyting-
unni. — Bridgeþáttur.
— 8: Friðriks J. Rafnar minnzt.
— 10: Forystugreinin: Gerningaþok*
unni mun létta. — TrapezulíA-
an í herratízkunni (Utan tr
heimi.
— 11: Með Churchill hjá Stalín.
— 13: Tíbetar hafa varizt kommúnlit-
um í aldaraðir.
— 18: íþróttafréttir.
★--------------------------*
-<s>
Nær 3000 tíbetskir flóttamenn eru komnir til Indlands. Hefur
indverska stjórnin lítil tök á að taka við flóttafólkinu og dvelst
það í fátæklegum tjhldbúðum í skorti og allsleysi. Myndin er
tekin í einni af tjaldbúðum tíbetskra flóttafólksins.
Vesturveldin með gagn-
tillögur að friðarsamningi