Morgunblaðið - 02.04.1959, Síða 2

Morgunblaðið - 02.04.1959, Síða 2
2 Fimmtudagur 2. apríl 1959 MORCUNBLAÐ1Ð Ekkert svar komið frá brezku stjórninni Nýjasta landhelgisbrotið rœtt á Alþingi ER fundur hafði verið settur í sameinuðu Alþingi í gær, kvaddi Eysteinn Jónsson sér hljóðs utan dagskrár. Hóf hann mál sitt með þvi, að síðan Alþingi hefði komið taman síðast hefðu nýir atburðir gerzt í landhelgisdeiiunni við Breta. Samkvæmt opinberri til. kynningu hefði brezkur togari verið staðinn að broti innan fjögra míina markanna. en brezkt herskip hefði komið í veg fyrir að hann yrði tekinn og veitt hon- um vernd tíl að ná heim tU Eng- lands. Kvaðst Eysteinn Jónssoa vilja spyrjast fyrir um það hjá ríkis- stjórninni hvort nokkuð hefði gerzt í málinu eftir að síðasta opinber tilkynning var gefin út, •n nauðsynlegt væri fyrir þing- menn, að fá sem fyllstar upplýs- ingar um það, sem gerzt hefði. Æskilegt væri, að ríkisstjórnin hefði samráð við utanríkismála- nefnd um þetta mál svo að sem bezt samriaða næðist um það. Guðmundur í. Guðmundsson, utanrikisráðherra, varð fyrir svörum af hálfu ríkisstjórnarinn- ar. Skýrði hann svo frá, að strax og ríkisstjóminni hefði borizt Athugasemd AÐ gefnu tilefni skal það tekið fram í sambandi við frétt blaðs- ins í gær, um átök lögreglunnar í Keflavík, við skotmann, að mað- urinn er ekki frá Bergi í Gerða- hreppi, híldur er hann úr hverf. inu, sem almennt er kallað Berg- ið. Badmintonmót Reykjavíkur REYKJAVÍKURMÓT i badmin- ton fór fram laugardaginn 21. marz í íþróttahúsi Vals að Hlíð- arenda. Þátttakendur voru 23, allir frá Tennis- og badmintonfé- lagi Reykjavíkur. Reykjavíkurmeistarar urðu sem hér segir: Tvíliðaleikur kvenna: Hall- dóra Thoroddsen og Júlíana Ise- barn sigruðu Sigríði Guðmunds- dóttur og Jóninu Nieljohnius- dóttur með 17:13, 9:15 og 15:13. Einliðaleikur kvenna: Hall- dóra Thoroddsen sigraði Júlíönu Isebarn með 9:11, 11:7 og 11:1. Tvendarkeppni: Halldóra Thor oddsen og Wagner Walbom sigr- uðu Sigríði Guðmundsdóttur og Pótur Nikulásson með 15:12 og 15:3. Tvíliðaleikur karla: Einar Jóns son og Óskar Guðmundsson sigr- uðu Wagner Walbom og Þorvald Ásgeirsson með 15:4, 17:18 og 15:11. Einliðaleikur karla: Óskar Guð mundsson sigraði Lárus Guð- mundsson með 15:3 og 18:13. Dagskrá Alþingis I DAG er boðaður fundur í sam- einuðu Alþingi kl. 1,30 miðdegis. Eitt mál er á dagskrá: Rannsókn kjörbréfs. Að loknum fundi í sameinuðu þingi eru boðaðir fundir í báðum deildum. Á dagskrá efri deildar eru þrjú máL 1. Verkstjóranámskeið, frv. — 1. umræða. 2. Happdrætti háskólans, frv. — 2. umræða. 3. Almanna'tryggingar, frv. — 2. umræða. Tvö mál eru á dagskrá efri deildar. 1. Skipun prestakalla, frv. — Ein umræða. 2. Rithöfundaréttur og prent- réttur, frv. — Frh. 2. umr. skýrsla um atburðina sl. miðviku dag hefði vei-ið gengið í að mót. mæla þeim við sendiherra Breta hér og þess jafnframt krafizt, að brezki togarinn sneri til hafnar svo hægt væri að dæma hann samkvæmt islenzkum lögum. Jafnframt hefði þjóðinni verií birt skýrsla um atburðinn strax sama dag. Síðan hefði verið beðið svars frá brezku stjórninni. Guðmundur kvað Breta með þessu hafa gerzt seka um mjög alvarlegt brot á sjálfstæði lands- ins, er þeir hindruðu islenzkt varðskip í að halda uppi löggæzlu innan fjögra milna markanna, sem þeir hefðu þó sjálfir viður- kennt áður a. m. k. á borði. Bæri því að fylgja mótmælunum eftir með þeirri festu, sem tök væru á. Utanríkisráðherra kvaðst hefði kosið að hafa samráð við utan- ríkismálanefnd sl. miðvikudag, en þá hefðu þingmenn verið farnir i páskaleyfi og því ekki auðvelt að ná til þeirra. Hins vegar hefði hann viljað, að krafan kæmi til Bretastjórnar áður en eltingaleik varðskipsins við togarann yrði hætt. Svar brezku stjórnarinnar mundi eitthvað hafa tafizt vegna páskahelginnar, en nú mundi þess krafizt. Að sjálfsögðu mundi haft samráð við utanríkismálanefnd um frekari ráðstafanir, ef Bretar yrðu ekki við þeim sjálfsögðu kröfum, sem settar hefðu verið fram. Eysteinn Jónsson þakkaði ráð- herra svörin. FKS~ wm m " "w Þetta er hinn nýi áætlunarbíll, seu ekur leiðina Reykjavik — Stykkishólmur og sagt var frá í gær. Á rúmri klst. frá Akri til Alþingis JÓN PÁLMASON, forseti sam- einaðs Alþingis, fór heini til sín i páskaleyfinu, en hann býr á Akri í Austur-Húnavatnssýslu svo sem kunnugt er. f gær hafði hann boðað fund í sameinuðu Al- þingi kl. 1,30 miðdegis. í fyrra- dag var hann enn norður á Akri og ekki flogið þangað þann dag vegna veðurs. Það var ekki fyrr en undir há- degið í gær, að flugvél frá Flug- íélagi íslands lenti á Akursflug- velli og hóf sig á loft þaðan fimm tán mínútur yfir tölf á hádegi. Hér á Reykjavíkurflugvelli lenti vélin svo kl. 1,15 og fyrir lipurð og fyrirgreiðslu starfsmanna flug félagsins var Jón mættur í sali Alþingis fyrir kl. hálftvö og setti fundinn í sameinuðu þingi stund- víslega. Var hann þá með sínu venjulega jafnvægisyfirbragði og ekki á honum að sjá, að hann hefði háð tvísýnt kapphlaup við klukkuna til að geta sett þing- fund á réttum tíma. Jón Pálmason hefur áður setið á 31 þingi og mun ferðin frá Akri til Alþingis oitast endranær hafa tekið lengri tíma. Örlæti Bandaríkjamanna leysir samgönguvandomál DANSKA blaðið BT segir að vandamálið mikla um flugsam- göngur milli Danmerkur og Græn lands sé að leysast með því að Bandarikjastjórn gefi danska flug hernum fjórar flugvélar af teg- undinni Globemaster DC7. Flug- vélar þessar sem bandariski flug- herinn hefur notað eru innréttað- ar fyrir farþegaflug og munu vera samtals um 100 milljón danskar krónur að verðmæti. Blaðið segir að danska flug- hernum verði gefnar þessar flug- vélar og þær ætlaðar sérstaklega til Grænlandsflugs. Með notkun þeirra verður hægt að draga veru lega úr vetrarsiglingum til Græn. lands, en Danir eru orðnir ragir við vetrarsiglingar þangað eftir Hans Hedtoft slysið. Flugvélar eiga að hafa bæki- stöð í Syðra-Straumfirði, en ú er talið að heppilegt kunni að Slys í bílaárekstri í gærkvöldi SJÚKRABÍLARNIR voru tvíveg- is á ferðinni í gærkvöldi, vegna slysa. í fyrra skiptið var um að ræða fótbrot inni á Suðurlands- braut, á móts við Lækjarhvamfh. Hálka var og mun maðurinn hafa dottið á götuna af þeim sökum. Hann heitir Einar Ásgeirsson, Norðurbraut 25 B í Hafnarfirði og var hann fluttur á læknavarð- stofuna. í síðara skiptið var um að ræða harðan bílaárekstur á Snorra- braut, fyrir utan Skátaheimilið. Guðmundur Ástráðsson Ægisgötu 1 sem er skáti, sat þar í bíl utan við heimilið, ásamt nokkrum öðrum. Bíll sem kom akandi eftir götunni, : kst aftan á bílinn af miklu afli. Mun Guðmundur sem sat í afturjæti bílsins, hafa slegið höfðinu cfaná bak fremra sætis- ins. Báðir bílarnir höfðu orðið fyrir allmiklum skemmdum. All- mikil hálka var á götunni. Togarinn kom með 70-80 tonn STYKKISHÓLMI, 1. apríl. — Hér hefuT landað í dag togarinn okkar, Þorsteinn þorskabítur, en hann er kominn inn eftir hálfs- mánaðar útivist. Er togarinn með sáralítinn afla, aðeins 70—80 tonn. í marzmánuði stunduðu 6 bátar héðan róðra og voru þeir kommr með net eftir 10. marz. Heildar- aflinn í mánuðinum varð 869 tonn í 125 róðrum, á móti 660 tonnum í 100 róðrum í marzmánuði í fyrra. Hæstur í marz varð Tjaldur með 195,6 tonn, þá Straumnes með 162,6 tonn. Meðalafli bát- anna var um 7 tonn í róðri í marz- mánuði. — Áxni. reynast að opna að nýju flug- völlinn í Narssarssuak, sem ligg- ur auður og mannlaus eftir að Bandaríkjamenn fluttu lið sitt brott frá honum. í þessu sambandi er danska stjórnin enn á ný farin að beina sjónum sínum að flugvellinum í Færeyjum, sem Englendingar komu sér upp þar á stríðsárunum. Að visu er þröngt um þennan flugvöll og ein flugbraut hans liggur upp að háum klettavegg, auk þess sem á honum miðjum er nokkur upphækkun sem gerir hann óhæfan til lendinga. Færey- ingar hafa lengi þráð að flugvöll- ur þessi yrði lagfærður og endur- bættur, svo að stórar flugvélar gætu lent á honum. Fylkir farinn í fiskileit 1 GÆRKVÖLDI klukkan um 10 lagði togarinn Fylkir af stað í fiskileitarleiðangur á fiskimiðin við Austur-Grænland. Þeir verða leiðangursstjórar Sæmundur Auð- unsson akipstjóri og dr. Jakob Magnússon fiskifræðingur. Gert er ráð fyrir að Fylkir verði í þess- um leiðangri i hálfan mánuð. Það er þorskleit sem er höfuðtilgang- urinn með leiðangri þessum. Togarar, sem verið hafa á veið- um við A-Grænland, hafa seinni- partinn í maímánuði fengið fisk sem þá var nýhrygndur. Með leið- angri þessum á Fylki á að reyna að fá úr því skorið, hvort verulegt magn sé af hrygnandi þorski á þessum tima við A-Grænland. Jón Jónsson, forstöðumaður Fiskideildarinnar, hefur í fræði- legum greinum sínum Um ísl. þorskinn, bent á að það sé hugs- anlegt að hluti af islenzka þorsk- stofninum hrygni við A-Græn- land. Þegar Fylkir lét úr höfn í gær kvöldi, var skipið búið venjulegri botnvörpu, en einnig flotvörpu. Útsvör í Keflavík 12.5 millj. kr. KEFLAVÍK, 1. april. — Fjárhags áætlun Keflavíkurbæjar fyrir yf- irstandandi ár, var samiþykkt á fundi bæjarstjórnar sl. þriðjudag. Heildarniðurstöðutölur áætlunar- innar eru 12,5 miilj. kr. Útsvör eru áætluð 11,7 millj. kr. Helztu gjaldaliðir eru: Til verklegra framkvæmda 3,5 millj.; lýðtrygg- ingar og lýðhjálp 1,9 millj.; skóla- og menntamál 1,3 millj.; til af- borgana af lánum fer 1 millj. kr. Framfærslumálin kosta bæinn kr. 700.000 og aðrir smærri liðir eru t.d. löggæzlukostnaður 615 þús. kr.; viðhald og lýsing gatna 616 þús. kr.; til skipuLagsmála verður varið 700,000 kr.,; bæjarstjórnar- kostnaður er 590 þús. Úts varsgjaldendum fer ört fjölgandi og eru nú 1500 og hefur fjölgað um 100 frá síðustu niður- jöfnun útsvaru, — Helgi S. I. apríl gabb FREGNIN um stofnun félags til menningartengsla milli Tíbets og íslands, var að sjálfsögðu 1. april gabb blaðsins. Flóðin ná yfir 40 þús. ferkílómetra á Madagaskar TANANARIVE 1. apríl. (NTB). Ríkisstjórn Madagaskar tilkynnti í dag að tala drukknaðra í flóð- unum á eynni að undanförnu væri mjög há, en þó væri hún miklu lægri en þær þrjár þúsundir, sem blöð og fréttastofur segja, að drukknað hafi. Það var opinberlega upplýst i dag, að enginn hvítur maður hefði látið lífið vegna flóða í höfuðborginni Tananarive. Fram til þessa hefur ekki verið hægt að skapa sér heildarmynd af ástand inu á flóðasvæðinu né fá heildar- tölu drukknaðra, þar sem heil héruð hafa einangrazt. Flóða- svæðið nær yfir 40 þús. ferkílóm. í gær og í dag fóru flóðin nokk uð að sjatna og er nú únnið að því að koma samgöngum í samt lag, ryðja vegi og bæta skemmd- ir á járnbrautarlínum. Fregnir frá París herma, að franska stjórn- in muni beita sér fyrir víð- tækum hjálparaðgerðum. Hefur hún þegar tryggt um milljón ísl. kr. framlag til brýnustu hjálp- arstarfsemi á flóðasvæðinu og eru fyrstu flugvélarnar með hjálpar- gögn ýmiskonar lagðar af stað frá Frakklandi. AMarafmæli á Grund í dag EIN af vistkonum elli- og hjúkr- unarheimilisins Grundar, Sigríð- ur Jónsdóttir frá Siglunesi í V- Barðastrandarsýslu, verður 100 ára í dag, 2. apríl. Gamla konan, sem nú er rúmföst, er þó við sæmilegustu heilsu. Hún er þriðji vistmaðurinn á Grund, sem þar er nú, og náð hefur svo háum aldri. Aldursforseti Grund- ar er Guðmundur Jónsson, fyrr- um baðvörður, 102 ára, fæddur 1. okt. 1856, og er enn við góða heilsu, hress og kátur, en er blind ur orðinn. Elzta konan er Ingi- björg Halldórsdóttir, sem fædd er 5. febrúar 1858, að Austur- völlum í Kjalneshreppi. Fara til Moskvu Á MORGUN, föstudag, fer Frið- rik Ólafsson, stórmeistari, austur til Moskvu, til þátttöku í miklu alþjóðlegu skákmóti, sem þar hefst á mánudaginn kemur, 6. apríl. Með honum fer héðan sem aðstoðarmaður hans, Arinbjörn Guðmundsson, sem er meðal kunnari skákmanna bæjarins. Þeir Friðrik og Arinbjörn fara héðan til Kaupmannahafnar. Þaðan fara þeir svo með rúss- neskri þotu á laugardaginn beint austur til Moskvu. Þar eystra er við nám Freysteinn Þorbergsson, sem einnig er kunniu: skákmað- ur. Þetta mikla skákmót mun standa yfir í hálfan mánuð. Bridgekeppni í sveitakeppni Bridgefélagsin* er enn efstur eftir 7 umferðir Ólafur Guðmundsson með 12 stig og önnur í röðinni er sveit Jóns Guðmundssonar með 10 st. Spilað er í Alþýðuhúsinu á mið- vikudagskvöldum. Á skírdag fór fram hin árlega bridgekeppni milli Hafnfirðinga og Selfyssinga og var að þessu sinni spilað hér í bænum. Hafn- firðingar unnu á þremur borðum og hinir síðarnefndu á tveimur. — G. E.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.