Morgunblaðið - 02.04.1959, Page 4
4
MORGUNBLAOIÐ
Fimmtudaerur 2. apríl 1959
I dag er 92. dagrur ársins.
Fimmtudagur 2. apríl.
Árdegisflæði kl. 0:34.
Síðdegisflæði kl. 13:24.
Heilsuverndarstöðin er opin all
an sólarhringinn. Læknavörður
L.R. (fyrir vitjanir) er á sama
stað frá kl. 18—8. — Sími 15030.
og Glasgow. Flugvélin fer til
Glasgow og Kaupmh. kl. 08:30
I fyrramálið. — Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til Ak-
ureyrar, Bíldudals, Egilsstaða,
ísafjarðar, Kópaskers, Patreks-
fjarðar og Vestmannaeyja. — Á
Næturvarzla vikuna 29. marz
til 4. apríl er í Lyfjabúðinni
Iðunni, sími 17911.
Holts-apótek og Garðs-apótek
•ru opin á sunnudögum kl. 1—4
eftir hádegi.
llafnarf jarðarapótek er opið
•lla virka daga kl. 9—21. Laugar-
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
dag kl. 13—16 og kl '9—21.
Næturlæknir í Hafnarfirði er
Kristján Jóhannesson, sími 50056.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga
kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
Iaugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Sími 23100.
□ GIMLI 5959427 — 1 Fr. Atk.
RMR — Föstud. 3. 4. 23. — VS
— Mt. — Htb.
morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Fagurhólsmýrar,
Hólmavíkur, Hornafjarðar, fsa-
fjarðar, Kirkjubæjarklausturs,
Vestmannaeyja og Þórshafnar.
HEB Skipin
Skipadeild S.Í.S.:
Hvassafell fer á morgun frá
Rieme. — Arnarfell fer frá Rott-
erdam í dag. — Jökulfell er í
Reykjavík. — Ðísarfell fór frá
Porsgrunn 31. f.m. — Litlafell
er í olíuflutningum í Faxaflóa.
— Helgafell fer væntanlega frá
Rostock í dag. — Hamrafell fór
frá Batum 28. f.m.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla er væntanleg til Reykja-
víkur seint í kvöld. — Askja
lestar saltfisk á Norðurlandshöfn
um.
I.O.O.F. 5 = 140428% s Spkv.
S Helgafell 5959437. IV/V.
c- AFMÆLI o
Ymislegt
Orð lífsins: — Komandi kynslóð
um rmm sagt verða frá Drottni,
og lýð sem enn er ófæddur, num
boðað réttlæti hams, að hann hefur
framkvæmt það. (Sálm. 22, Sl-32).
Frá Kvenfélaginu Bylgjunni:
— Konur loftskeytamanna eru
minntar á fundinn í Garðastræti
8 í kvöld kl. 8:30.
Þakkir: — Af alhug þakka ég
ykkur öllum, vinum mínum og
kunningjum nær og fjær, fyrir
allan hlýhug og vináttu, sem þið
sýnduð mér á fimmtugsafmælinu
29. f.m. (páskadag), með ýmsunn
gjöfum, blómum, skeytum, pen-
ingum o. fl. Fyrir þetta allt þakka
ég ykkur öllum. Sömuleiðis vil ég
þakka stjórn Þjóðleikhússins og
starfsfólki, Leikfélagi Reykjavík-
ur, siökkviliði Reykjavíkur, Lúðra-
sveit Reykjavíkur, Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, löregluliði Rvikur,
ásamt mörgum str.rfsmönnum
ríkig og bæjar, fyrir sýnda vin-
semd og hlýhug. — Með féiags-
kveðju. — Jón G. Eyjólfsson,
Laugavegi 53B.
15? Pennavinir
Fjórtán ára gömul japönsk
skólastúlka óskar eftir bréfa-
sambandi við jafnaldra á ís-
landi, pilta og stúlkur. Hún
kveðst hafa sérstakan áhuga á
að kynnast íslandi eftir föngum,
en annars ver hún frístundum
sínum til frímerkjasöfnunar og
lestrar. — Nafn hennar og heim-
ilisfang er: Ayako Matsushita,
48-3 Iamagawa, Okuzawa Seta-
gaya-ku, Tokyó, Japan.
Sextugur er í dag Gísli Krist-
Jánsson, ýtustjóri, Samtúni 8,
Reykjavík.
Fimmtug verður á morgun, 3.
apríl, frú Fanney Friðriksdótt-
ir Velding, Njálsgötu 50, Rvík.
SpjBrúókaup-
Á skírdag voru gefin saman í
hjónaband í Neskirkju af séra
Jóni Thorarensen, ungfrú Mar-
grét Eyþórsdóttir, Spítalastíg 4,
og Eirikur Garðar Gíslason, raf-
virki, Marargötu 2. Heimiíi ungu
hjónanna er að Marargötu 2.
Á skírdag voru gefin saman í
hjónaband af séra Jóni Auðuns,
ungfrú Gunnhildur Ólafsdóttir,
Marargötu 2, og Svavar Einars-
son, lögregluþjónn, Marargötu 2.
Heimili ungu hjónanna er að
Marargötu 2, Reykjavík.
Hjónaefni
Á páskadag opinberuðu trúlof-
un sína Guðrún Narfadóttir, skrif
stofumær, Nýlendugötu 23, og
Ásgeir Lúðvíksson, verzlunar-
stjóri, Grenimel 33, Reykjavík.
Sl. laugardag opinberuðu trú-
lofun sina ungfrú Eyþóra Valde-
marsdóttir, íþróttakennari, Miklu
braut 54, og Magnús Vignir Pét-
ursson, verzlunarmaður, Þver-
vegi 12.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína Jakobína Þ. Pálmadóttir,
Lönguhlíð 21 og Guðmundur M.
Jónsson, Nökkvavogi 44.
Flugvélar
Flugfélag íslands h.f.:
Millilandaflug: Hrímfaxi er
væntanlegur til Reykjavíkur kl.
16:35 í dag frá Kaupmannahöfn
Þegar skemmtiferðaskipið Santa Rosa var á leið frá Nassau til
New York með 247 farþega, kom fyrir atvik, sem ekki var gert
ráð fyrir í hinni glæsilegu ferðaáætlun. Nálægt Atlantic City
rakst það á olíubát, sem hvarf skjótlega í bylgjur hafsins —
nema reykháfurinn, sem sat kyrr á stefni skemmtiferðaskipsins
eins og myndin sýnir. Enginn farþeganna á Santa Rosa slasað-
ist, en af áhöfn olíubátsins lét einn lífið og sextán særðust. —
Bandarískur gagnrýnandi sagði
svo um listmálarann Churchill:
— Ef Sir Winston hefði helg-
að sig listinni, hefði hann aflað
sér meiri orðstírs sem listmálari
en nokkur listmálari hefði getað
aflað sér sem stjórnmálamaður!
★
Hinn þekkti kvikmyndafram-
leiðandi Otto Premiger var ný-
lega fundinn sekur um að hafa
beitt konu sína andlegum mis-
þyrmingum. Hafði frúin sótt um
skilnað á þeim forsendum. Verð-
ur hann að sjá konu sinni fyrir
öllu uppihaldi og greiða henni
álitlega fúlgu í vasapeninga á ári
hverju.
Frúin lýsti þvi nákvæmlega
fyrir rétti, hvernig ofsafengið
skap eiginmanns hennar hefði
lýst sér í því, að hann hefði
hlaupið fram og aftur um íbúð-
ina, kastað sér í gólfið og barið
höfðinu í ósvikna persneska gólf-
teppið.
Þegar öðrum enn frægari
kvikmyndaframleiðanda, Alfred
Hitchcock, var sagt frá þessu,
hrópaði hann skelfdur:
— Hamingjan góða, ég vona,
að konan mín lesi ekki um þessi
réttarhöld og fái alls konar und-
arlegar hugmyndir í kollinn.
Þetta er mjög eðlileg hegðun,
þegar um kvikmyndaframleið-
anda er að ræða. Ég ber svo
sannarlega höfðinu líka í tepp-
ið, þegar ég glími við mjög erfið
vandamál.
Mognús Rognar Pétursson iró
Malarrili — rainningarorð
ÞEGAR sú harmafregn barst að
vitaskipið Hermóður hefði farizt
við Reykjanes með allri áhöfn
12 manns, aðfaranótt 18. febr.,
þá kom mér þessi spurning í
hug. Skyldi Maggi minn frá
Malarrifi hafa verið þarna með?
Því ég vissi að hann var oft á
Hermóði að vetri til þegar ekki
var vinna til úti á landi við hina
ýmsu vita.
Þegar ég heyrði lesin upp í út-
varpinu nöfn hinna föllnu sæ-
garpa þá komst ég að hinu sanna.
Og mér fannst það svo ótrúlegt
að ég ætti ekki oftar að fá að
taka í hönd hans hér á jörðu.
„En bilið er mjótt“ — og augu
manna eru skammsýn. Síðast
liðið sumar var hann hér hjá
mér, sem þessar línur rita við
lagfæringu á vita og húsum á
vegum vitamálastjórnarinnar, því
hann var einn af þeim fágætu
mönnum sem allt lék í höndun-
um á hvort heldur var til lands
eða sjávar og hamhleypa var
hann til vinnu, hlífði sér í engu
eða þeim sem með honum unnu.
Allt sem hann vann var unnið
með stakri samvizkusemi og með
það eitt fyrir augum að það gengi
sem bezt og væri að öllu leyti vel
af hendi leyst.
Magnús Pétursson var Snæfell-
ingur alinn upp undir jöklinum,
var því snemma kunnugur út-
hafinu sem þarna skellur óbrotið
að ströndinni. En hafið lokkar,
og þeir sem alast upp við það,
eru venjulega með sjómannsblóð
í æðum. Og þannig var það með
Magnús heit. Þó hann ynni öll
verk á landi, sem tíl féllu þá
heyrði ég það á honum að hann
kynni betur við sig á sjónum.
Þar sem brimaldan rís,
þar sem brimgnýr er vís,
veltist báran við úthafsins lönd.
þar sem bylgjurnar kveða
sitt banvæna la«
varstu borinn við úthafsins strönd.
Þú varst fæddur við úthafsins ölduslAtt
þú varst unnusti sjávar og brims
þú hafðir svellandi sægarpa-mátt
þú varst sonur hins norræna kyns.
Enda fórstu í sjó hann þór banaráð bjé
bylgja kveður þinn líksöng
og þakkar sem fyrr
þinn dugnað og mátt
þinn hugdjarfa hátt
þinni heim skilar kveðju út á Malar-
rif.
Farðu í friði drottins, þökk fyr-
ir kynninguna.
Sigwrjón Ólafsson.
Hár^reiðslustofa
skemmist af cldi
UM miðnættið á skírdag kviknaði
í litlu húsi á Vitastíg 18, en þar
er hárgreiðslustofan Perla til
húsa. Er þetta steinhús, timbur-
klætt að innan, tvö herbergi og
eldhús. Var talsverður eldur í
öðru herberginu, þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang, og skemmd.
ist það mikið af eldi og vatni.
Hitt herbergið og eldhúsið
skemmdist talsvert af reyk. Talið
er að kviknað hafi í út frá raf-
magni, því skömmu áður en elds-
ins varð vart, voru nokkrar trufl-
anir á rafmagninu og Ijós siokkn-
uðu.
FERDIIM AND
Tengdamamma vill vera með
Slökkviliðið var nokkrum sinn-
um kvatt út um páskana. Síð-
degis á skírdag kviknaði í skúr
við Miklubrautina og var hann
alelda er slökkviliðið kom á vett-
vang. Jrann skúrinn, sem var
garðskúr eða kartöflugeymsla, tii
ösku.
Á föstudaginn langa var slökkvi
liðið kvatt á Suðurlandsbraut
87 A, en j ar hafði kviknað i mið.
stöðvarklefa. Á laugardag var
kallað á slökkviliðið, til að
slökkva í .nótorhjóli sem _stóð á
móts við Rauðarárstíg 11. Á ann_
an páskadag kviknaði í bíl við
Gunnarsbraut 38. Var bíllinn al-
elda, er slökkviliðið kom á vett-
vang og brann allt innan úr hon-
uoi. Var þetta gamail ti'L