Morgunblaðið - 02.04.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.04.1959, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 2. apríl 1959 MORGUNBLAÐIÐ 11 Með Churchill hjá Stalín ástríðsárunum Úr dagbók Alanbrookes lávarðar Churchill og Stalin. ALANBROOKE lávarður, sem í síðari heimsstyrjöldinni var m.a. forseti brezka herforingjaráðs- ins, skrifaði á stríðsárunum á hverju kvöldi stuttorða og gagn- orða frásögn af atburðum dags- ins í vasabók sína. Þegar vasa- bókin var orðin útskrifuð, af- henti hann konu sinni hana. Ný- lega hefur Sir Arthur Bryant farið í gegnum þessar vasabæk- ur með höfundinum, og gefið út endurminningar hershöfðingjans. Það sem hér fer á eftir, sýnir hve fróðlegar og skemmtilegar þessar endurminningar lávarðar- ins eru. Fundurlnn byrjaði ekki friðsamlega í ágústmánuði árið 1942 hélt Churchill frá Kairó til Moskvu með viðkomu í Teheran, ásamt hermálaráðunautum sínum, eftir að hann hafði skipað Montgomery yfir 8. herinn. Kl. 11 um kvöldið áttu Bretarn ir að hitta Stalin í Kreml. Við- staddir voru Molotov, Cadogan, Wavell, Tedder, Jacob og tveir túlkar. Um þennan fund skrifar Alanbrooke: „'Þó ég væri aðfram kominn af þreytu, hefði ég ekki viljað missa af þessum fundi Stalíns og Winstons hvað sem í boði hefði verið. Hvert smáatriði stendur mér enn ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Fundurinn var haldinn í herbergi í Kreml, sem var búið fáum húsgögnum og minnti á biðsal á járnbrautarstöð. Á veggnum hékk ein mynd, af Lenin, Stalin og Molotov. Túlkur inn kom inn og við tókum okk- ur sæti við langt borð. Ekki leið á löngu áður en hóf- ust ákafar umræður um nýjar vígstöðvar í V estur-Evr ópu. Winston útskýrði það hvers vegna ekki væri hægt að hefja þar sókn eins og á stæði, en að væntanlegar hernaðaraðgerðir í Norður-Afríku mundu bæta það upp. Þá fór að hitna í Stalín, og með aðstoð túlksins byrjaði hann að varpa fram hverri móðgandi spurningunni á fætur annarri, eins og: „Hvenær ætlið þið að fara að berjast? Ætlið þið að halda áfram að láta okkur hafa allt erfiðið og horfa bara á okk- ur? Ætlið þið þá alls ekki að berjast neitt? Þegar þið eruð komnir út í það, munuð þið sjá að það er alls ekki svo hræði- legt!“ o. s. frv. Það var eins og köldu vatni hefði verið hellt yfir Winston. Hann barði hnefanum i borðið og hóf eina af þessum stórkostlegu þrumuræðum sínum. Hann byrj- aði á því að hrópa: „Ef það væri ekki vegna dáða rauða hers- ins . . .“ og síðan sagði hann Stalín nákvæmlega hvaða skoðun hann, Churchill, hefði á stríðinu og ótal mörgu fleiru. Stalín reis á fætur, tottaði bognu pípuna sína, brosti út að eyrum og benti túlkinum að þagna. „Ég skil ekki orð af því sem þér segið“, sagði hann, „en mér líkar ákafinn í yður, það veit sá sem allt veit“. „Þegar ég rifja þennan atburð upp fyrir mér, skrifar Alan- brooke lávarður, þá er ég sann- færður um, að Stalín hefur móðg- að Winston i þeim tilgangi að sjá hvaða áhrif það hefði og til þess að átta sig á manninum. Hann komst fljótt að raun um hvað í honum bjó. Ég er viss um að þetta reiðikast Winstons vakti aðdáun Stalíns og að þetta hef- ur verið upphafið að þeirri virð- ingu sem hann að lokum bar fyrir manninum, sem nú hafði sannfært hann um baráttuhug sinn. Að minnsta kosti urðu sam- skipti þessara tveggja manna með mildari blæ upp frá þessu og þeir fóru að bera gagnkvæma aðdáun og virðingu fyrir ódrep- andi baráttuhug hvors annars. Ég átti eftir að sannfærast um það þegar fundum okkar bar saman seinna, að sú skoðun sem ég myndaði mér um Stalín á þess um fyrsta fundi okkar, var rétt. Atburðurinn var of nýafstaðinn, þegar ég skrifaði dagbókina mína, til að ég gæti gert mér fulla grein fyrir því hversu mikilvægt þetta var. Þegar mér verður hugs að til þessa kvölds í Kreml, þá er ég sannfærður um að þetta átti sinn þátt í gagnkvæmum skilningi milli þessara tveggja manna, sem auðveldaði samræm- ingu áætlana okkar. Samt sem áður fell ég ekki frá þeirri skoð- un, að við höfum farið rangt af stað í samningum okkar í Moskvu. Við létum allt af hendi án nokkurra skilyrða og fórum aldrei fram á neitt í staðinn. Við áttum þarna skipti við fólk, sem að hálfu leyti er af asíustofni og því í blóð borið að prútta. Gegn framlagi okkar af hergögnum hefði átt að koma nánari sam- vinna. Veizla i Kreml Að kvöldi 14. ágúst var hald- in veizla í sal Katrínar miklu í Kreml. f veizlunni voru um 100 gestir. ■ Þar voru næstum allir meðlimir Politburo og allir helztu hershöfingjar, sem ekki voru á vígstöðvunum. Um kvöldið skrif- aði Alanbrooke m.a. í dagbók sína: „Stalín sat fyrir miðju borði, með Churchill sér á hægri hönd og Harriman til vinstri. Þá komu túlkarnir og síðan ég og Vorosilov mér á vinstri hönd. Molotov sat beint á móti Stalín og áður en fimm mínútur voru liðnar, var hann farinn að lyfta glasi. Úr því var ekkert lát á drykkjunni. Ekki leið á löngu áður en sumir gestanna voru vart veizluhæfir lengur. Ég var brátt búinn að fá nóg, og mér flökraði við að sjá allan þennan mat. Bornir voru fram 19 réttir og við risum ekki upp frá borð- inu fyrr en klukkan að ganga tvö. . . . Áður en miðdegisverðinum lauk, var Stalín orðinn ákaflega fjörugur. Hann gekk í kringum borðið og skálaði við ýmsa af gestum sínum. Þetta er ákaflega athyglisverður maður, á því leik ur enginn vafi, en ekki er hann aðlaðandi. Hann er óþægilega kuldalegur, slægðarlegur og grimmdarlegur á svipinn. Þegar ég lít á hann, þá hugsa ég mér að hann sendi menn í dauðann án þess svo mikið sem að depla aug- unum. Aftur á móti er hann sýni lega snarpgáfaður og hefur hald- góða þekkingu á öllu sem að hernaði lýtur. Það vakti athygli mína, að á honum sáust þreytu- merki og honum virðist vera að fara aftur“. Stöðugt var skálað f æfiminningum sínum bætir Alanbrooke lávarður við þessa dagbókarfrásögn sína: „Ég hafði kviðið fyrir þessari veizlu allan daginn. Það fór hrollur um mig við tilhugsunina um að þurfa að eyða kvöldinu í að forðast áhrifin af vodkanu. Veizlan varð að reglu legu svalli ,eins og ég skrifaði í dagbókina mina. Álla máltíðina var stöðugt verið að skála og borðið svignaði undan þunga krásanna, en það voru mest fisk réttir og réttir í olíu. Fyrsta klukkutímann máttum við skála a.m.k. 12 sinnum. Til allrar ham- ingju stóð vatnsflaska fyrir fram- an mig og í hvert skipti sem eng- inn sá til, fyllti ég glasið með vatni í stað vodka. Þannig tókst mér að minnka um helming á- fengismagnið. Ég var einmitt að renna niður þessari eftirlíkingu af vodka, þegar Vorosilov sagði með aðstoð túlksins „Það er ekk- ert gagn í þessu hvíta vodka! Ég sendi eftir því gula“. Ég hélt að hann hefði séð í gegnum bragð mitt. Svo var þó ekki, hann vildi raunverulega heldur gult vodka. Þegar þessi nýi drykkur kom á borðið, flaut rautt krydd á stærð við gulrót í könnunni. Vorosilov hellti í glasið mitt og síðan sitt. „Ská:l í botn“, sagði hann, en ég svaraði: „Nei, ég hef aldrei smakk að gula vodkað ykkar og ég vil gjarnan fá að dreypa á því. Það reyndi ég líka að gera, en eftir nokkra sopa, reyndist mér ó- mögulegt að halda áfram. Það var alveg eins og ég væri að drekka rauðan pipar, það brenndi að innan munninn. Ég sagði Vorosi- lov að ég ætlaði að halda mig að hvíta vodkanu. Hann svaraði því til, að hann ætlaði að snúa sér að því gula, og að svo búnu hvolfdi hann í sig tveimur glös- um, hverju á fætur öðru. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa. Svitadropar perluðu á enni Vorosilovs, og brátt fóru þeir að renna niður yfir andlitið á honum. Hann varð þungbúinn á svip, þegjandajegur og augna- ráðið starandi. Ég var að velta því fyrir mér hvort hann mundi nú ekki velta undir borðið. Nei, hann hélt sér á stólnum, en hafði ekki lengur nokkurn áhuga fyrir því sem gerðist í kringum hann. Undir veizlulok tók Stalín við drykkjustjórninni af Molotov og byrjaði aftur að láta skála. Hann hlýtur að hafa haft augastað á Vorosilov, því að hann hellti vodka í glasið sitt og stefndi beint á hann. Hann lyfti glasinu og brosti breitt meðan hann hélt skálaræðuna. Vorosilov neyddist til að standa uppréttur allan tím- ann meðan Stalín talaði. Hann ríghélt sér með báðum höndum í borðbrúnina, ruggaði hægt fram og aftur og starði tómlega út í bláinn. Nú nálgaðist hættustund- in. Stalín lyfti glasinu að vörum sér. Vorosilov hlýtur að hafa séð a.m.k. hálfa tylft glasa, það færð ist skelfingarsvipur yfír ásjónu hans og hann reyndi að einbeita huganum, en tókst það sýnilega ekki. Þá tók hann þann kostinn að freista gæfunnar og steypti sér yfir eitt af þessum mörgu glösum, sem hann sá. Hann hafði heppnina með sér, því að hann hitti á rétta glasið. Stalín sneri frá, til að fylla glas sitt að nýju og skála við aðra, en Vorosilov andvarpaði og lét sig falla niður í sæti sitt. Kveðýustundin tók 6 tíma 15. ágúst eyddi Alanbrooke lávarður deginum í að ræða við Vorosilov og fleiri háttsetta Rússa íþróttafélagið Þróttur, Neskaup- stað gekkst fyrir dvöl æskufólks í skíðaskála félagsins í Oddsdal um páskahelgina. Fólkið dvaldist í skálanum um bænadagana og fram á annan páskadag. Auk þess fór margt annarra bæjar- búa inneftir, en Þróttarfélagar seldu veitingar alla dagana. Á páskadag var mjög gott veður, sólskin og hiti og fór fjöldi manna uppeftir þann dag og naut góða veðursins. Kl. 2 messaði séra Ingi Jónsson í skíða skálanum. Þann dag fór fram skíðakeppni I svigi og bruni. Keppt var um bikar, sem gef- inn hefur verið til minningar um Hörð Kristinsson, ungan sjó- mann, sem drukknaði af trillu- bát á Norðfirði fyrir nokkrum árum. Bikarinn vinnst ekki til eignar, en að þessu sinni vann Jens Pétursson bifreiðastjóri bik- arinn. Enginn snjór er í byggð hér nú og fór keppnin fram í brekku upp af Oddsdal, í 400 til 500 metra hæð. Er það einsdæmi að svo langt þurfi að fara í snjó um nýjar vígstöðvar, styrkleika Rússa í Kákasus og hergagnasend ingar til þeirra. Um kvöldið skrif aði hann í dagbók sína: „Nú er ég kominn heim i hótel- ið mitt, og ég ætla að fara snemma að sofa, til að búa mig undir brottförina í fyrramálið. Ég sakna þess ekki að fara frá Moskvu. Ef Moskva er tákn bolsiv ismans, þá leikur ekki vafi á því að við verðum að stefna að ein- hverju betra. Jafnvel þó tillit sé tekið til stríðsins og afleiðinga þess, þá vekur tilbreytingarleys- ið, og þessi algeri skortur á lífs- gleði mesta athygli manns". Á meðan Alanbrooke var að kveðja rússnesku hershöfðingj- ana og búa sig undir að fara snemma að hátta, var forsætis- ráðherrann staddur í Kreml. Hann hafði farið þangað klukkan 7, til að kasta kveðju á Stalín. Churchill lét líka í ljós áhyggj- ur sínar um varnir í Kákasus, en rússneski einvaldurinn svaraði að eins rólega og ákveðið: „Við stöðvum þá. Þeir fara ekki yfir fjöllin“. Forsætisráðherranum til undrunar bauð Stalín honum því næst inn í einkaíbúð sína, til að fá einhverja hressingu. Þar sátu þessir tveir menn í meira en sex klukkustundir. Aðeins einu sinni varð þeim sundurorða, af sömu ástæðu og áður, en annars eyddu þeir kvöldinu í að spjalla vin- samlega og glaðlega saman og glettast hver við annan. Molotov, sem hafði slegist í hópinn, tók þátt í því. Áður en þeir skildu, trúði Stalín gesti sínum fyrir því, að hann hygði á gagnárás fyrir veturinn. Þarna komst forsætis- ráðherrann ekki einungis á þá skoðun að Rússar mundu duga vel, heldur líka að hann og Stalín hefðu tengst varanlegum bönd- um þetta leyti árs. í fyrsta skipti síðan vegurinn var lagður, hefur Oddeskarðsvegur á þessu ári verið opinn til umferðar í febrú- ar og marzmánuði. Var hann opinn mestallan febrúar og síð- ari hluta marz. Vegurinn hefur undanfarna daga aðeins verið tal inn fær jeppum vegna aurbleytu. — FréttaritarL Aðalfundur Félags sýningarraanna í kvikrayndahúsum AÐALFUNDUR Félags sýningar- manna í kvikmyndahúsum var haldinn sl. fimmtudag. í stjórn félagsins voru kjörnir: Óskar Steindórsson, form., Ólafur Árna son, ritari, Gunnar Þorvarðarson gjaldkeri og meðstjórnendur: Stefán Jónsson og Róbert Bjarna son. Montgomery og Alanbrook um. Norðfirðingar eltu snjó- inn i 4-500 m. hœð Enginn snjór í hyggð, Oddskarðsvegur fœr NESKAUPSTAÐ, 31. marz.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.