Morgunblaðið - 02.04.1959, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 2. apríl 1959
MORCVNBLÁÐIÐ
17
Héraðsskólanum
í Reykjanesi slitið
ÞÚFUM, N.-ís. — Undanfarna
daga hafa próf staðið yfir við
Héraðsskólinn í Reykjanesi. Nem
endur sem eru víðs vegar af
landinu halda nú heimleiðis.
Samkvæmt venju var mikið
smíðað af alls konar mun-
um og stúlkurnar saumuðu, prjón
uðu og ófu í vefstólum. Efni
til handavinnu var keypt fyrir
rúmlega 100.000 krónur.
í skólanum dvöidust 21 stúlka
og 28 drengir. Hæstu einkunn
við próf hlaut Benóný Eiríksson
úr Skorradal, í eldri deild 8,96
og Margrét Karlsdóttir frá Birnu
stöðum í Ögurhreppi hlaut 7,86
í yngri deild. Kennarar voru
Páll Aðalsteinsson skólastjóri,
sr. Baldur Vilhelmsson, Vatns-
firði, bóknámskennari, Guðrún
Hafsteinsdóttir og Alda Friðriks-
dóttir úr Reykjavík handavinnu-
kennarar og Ingimundur Magn-
ússon frá Bæ, smíðakennari.
Heilsufar í skólanum var yfir-
leitt gott, þó mislingar gengju
þar. — P.P.
Reglusamur ungur maður
Getur fengið góða atvinnu við vöruafgreiðslu og út
keyrslu á vefnaðarvörum hjá þekktri innflutnings
verzlun, þarf að hafa bílpróf. Umsókn ásamt með-
mælum sendist á afgreiðslu blaðsins merkt: „Vöru-
afgreiðsla — 5812“ fyrir 10. þ.m.
Allt á sama stað
Jeppakörfur
Höfum fyrirliggjandi jeppakörfur með framgólfi.
Verð kr. 4500.
Sendum gegn kröfu hvert sem er.
Egill Vilhjálmsson
Sími 22240.
Ölvaður maður
stclur frá aldraðri
konu
AÐFARNÓTT páskadags barði
ölvaður maður upp hjá aldraðri
konu hér í bænum. Hann hafði
einhverntíma leigt hjá henni. —
Erindið við hana nú virtist vera
að biðja hana um mjólkurglas að
drekka. Konan lét það í té.
En það kom í ljós skömmu eft-
ir að hann var farinn, að erindið
hafði verið annað og meira. Varð
konan þess vör, að þessi fyrrum
leigjandi hennar, hafði skotizt
inn í íbúðina og í hizlur hennar
og tekið þar handbært fé kon-
unnar, 5500 krónur. Þegar lög-
reglan komst í málið og hafði
handtekið manninn, var hann bú
inn að sóa öllum peningunum.
Einhverja von mun konan hafa
um það, að hún fái peningana
endurgreidda.
Selveiðari dreginn
til Akureyrar
AKUREYRI, 31. marz. — Norsk-
ur dráttarbátur kom hingað inn
til Akureyrar á skírdag með
norskan selfangara, er verið
hafði að veiðum úti í ísnum NA
af landinu. Var hann staddur um
300 mílur undan landi er skrúfan
bilaði. Það var talið borga sig
betur að draga skipið hingað til
viðgerðar, en að fara með það
til Noregs. Er viðgerð um það bil
að ljúka hér, en selfangarinn var
tekinn í slippinn. Skipstjórinn
hefur skýrt frá því að ísinn sé
óvenjulega sunnarlega um þess-
ar mundir, á þeim slóðum, sem
hann var að selveiðum.
— Magnús.
'jermínfftir
gj*?«
Fjölbreytt úrval af
dömu- og herraúrum
Silfuirvörur
Skartgripir
★ Verð við allra hæfi
Kaupið úrin hjá úrsmið
Ársábyrgð.
VESTURVER
FERMINGAÚR
Gefið unglingunum goti úr i ferminga-
fjjöf. — Þá gefið þér þeim um leið þann
laerdóm að virða slundvísi
FERMINGAÚR
ávalll í úrvali. - Eins árs ábyrgðaskír-
leini fylgir hverju úri
Magnús E. Baldvinsson
úrsmiður — Laugaveg 12
- Póstsendum um allí land -
Ef yður vantar vandaða
fermingargjöf, þá veljið
fallegan lampa.
íjf; Höfum nú fyrirliggjandi
úrval af fallegum lömpum
á hóflegu verði.
Gólflampar
verð íiðeins kr. 695
Borð- og vegglampao* í úrvali.
Verð frá kr. 175,00.
Skrifborðslampí
er nytsöm og vönduð fermingargjöf
Verð kr. 295,00
Júhk
Austurstræti 14,
sími 11687
Gólfdúkur
Línolíeum nýkomið
Helgi Hfagnusson & C.o
Hafnarstræti 19.
Símar: 13184 og 17227.
Vönduð
Mstofuhúsgögn
*
i
miklu úrvali
Að gefnu tilefni viljum við láta
væntanlega viðskiptavini vita,
að við höfum ávalt selt hús-
gögn okkar með afborgunar-
kjörum síðastliðin 40 ár.