Morgunblaðið - 02.04.1959, Page 18
1S
MORGVNBLADIB
Fimmtudagur 2. apríl 1959
Fjöldi gesta á skíða
vikunni á ísafirði
Haukur Sigurðsson sigraði i 15 og
20 km. göngu
ffSAFIRÐI, 31. marz. — Fjöldi
gesta kom hingað á skíðavikuna
sem skíðafélag ísafjarðar gengst
fyrir árlega um páskaha. Strand-
j ferðaskipið Hekla kom hingað
| fyrrihluta skírdags og er talið
Stúdentar og ÍR
í úrslitum
KöRFUKNATTLEIKSMÓTI fs-
lands var haldið áfram á þriðju-
dagskvöldið. Léku þá í 2. fl. karla
Ármann A-lið gegn KFR og unnu
Ármenningar með 19:16.
í m.fl. karla léku Stúdentar
j E^gn KFR. Var sá leikur hörku-
j spennandi og vel leikinn. Unnu
l stúdentar með 49 stigum gegn 43.
í Verður því um hreinan úrslita-
1 leik að ræða í mótinu milli ÍR og
: Stúdenta.
Sundmeistaramót
íslands
Sundmeistaramót Islandg 1959,
í Terður haldið í Sundhöll Reykja-
1 víkur 27. og 28. apríl.
Keppnisgreinar fyrri daginn:
f 100 m skriðsund karla; 400 m.
' bringusund karla; 100 m skrið-
sund drengja; 50 m bringusund
telpna; 200 m baksund karla; 100
m baksund kvenna; 100 m bringu-
sund drengja; 200 m bringusund
kvenna. 4x100 m fjórsund karla.
? Seinni dagur: 100 m flugsund
karla; 400 skriðsund karla; 100
m skriðsund kvenna; 100 m bak-
sund karla; 50 m skriðsund teipna
100 m baksund drengja; 200 m
; bringusund karla; 3x50 m þrísund
í kvenna; 4x200 m skriðsund karia.
j Þátttökutilkynningar, ásamt
læknisvottorðum keppenda, send-
ist Sundráði Reykjavíkur c/o
Pétur Kristjánsson, Kirkjuteig 25,
fyrir 14. apríl.
að á annað hundrað farþegar
hafi verið með skipinu hingað
til ísafjarðar. Auk þess komu
allrrrargir flugleiðis.
Snjór er nógur fram til dala, en
autt á láglendi. Veður var milt,
en ekki ákjósanlegt til skíðaiðk-
ana. Bæði á skírdag og föstu-
daginn langa rigndi nokkuð, en
á laugardaginn stytti upp og
snerist til norðlægrar áttar með
þurrviðri.
Á skírdag var keppni í 15 km.
göngu frammi á Seljalandsdal.
Fyrstur var Haukur Sigurðsson
á 1 klst. 12 mín. 30 sek., Oddur
Pétursson var annar og Gunnar
Pétursson þriðji. Á páskadag var
hið svonefnda Fossavatnshlaup,
en það er um 20 km. vegalengd.
í því sigraði Haukur Sigurðsson
einnig. Tími hans var 1 klst. 13
mín. og 23 sek.
Þá hélt skíðafélagið einnig
kvöldvökur í skíðaskála félags-
ins og gekkst fyrir dansleikjum
í samkomuhúsum í bænum. —
Flestir skíðavikugestirnir fóru í
gær, annan páskadag, með Heklu
eða með flugvél. — Guðjón.
— Tibet
Á þessu svæði bjó herskáasti og
harðgerasti ættflokkur Tíbets,
hinn svonefndi Khamba-ætt-
flokkur. Reis hann nú, árið 1956,
upp í vopnaðri uppreisn gegn
hinum kínversku kúgurum. 1
fyrstu voru vopn þeirra frum-
stæð, helzt lagvopn og í mesta
lagi nokkrir' afgamlir rifflar.
Þeir leyndust á daginn en réðust
á hestbaki að næturlagi að Kín-
verjum, hvar sem þeir náðu
þeim. í fyrstu eirðu þeir engum
Kínverja, en eftir eitt ár komust
þeir á lagið með að láta kín-
verska fanga kenna sér meðferð
á smávélbyssum, sem þeir tóku
herfangi. Eftir það hafa þeir orð-
ið miklu hættulegri en áður.
Þessi uppreisn hefur smám sam-
an breiðzt út um sunnanvert
Tíbet og Khamba-ættflokkurinn
hefur nú komið sér upp skipu-
lögðum, fjölmennum hersveitum,
sem hafast við í fjöllunum kring-
um Lhasa.
Mimang-sjálfstæðishreyfingin
hefur ekki beitt vopnum, heldur
unnið aðallega að því að styrkja
þjóðernislegt viðnám Tíbeta og
sjá uppreisnarmönnum fyrir vist-
um. Breyting kann þó að verða
á því eftir flótta Dalai Lama.
Síðastliðið haust gerðust þeir
atburðir í fjalllendinu fyrir
sunnan Brahmaputra, að stóror-
usta tókst milli Kínverja og
Khamba-uppreisnarmanna og
urðu Kínverjar gersigraðir. í
þeirri orustu er sagt að um 20
þúsund Kínverjar hafi fallið.
Eyðilögðu uppreisnarmenn ferj-
ur yfir Brahmaputra-fljótið og
hafa síðan verið allsráðir á þess-
um slóðum.
Kínverjar hafa svarað þessum
uppreisnum með alls konar
hefndarráðstöfunum. Þeir hafa
tekið gísla og aflífað þá, þeir hafa
farið í hefndarferðir til tíbetskra
bæja, lagt þá í rústir og líflátið
alla íbúana og þeir hafa gert loft-
árásir á klaustur og bæi af
handahófi. Fer beiskja og hatur
vaxandi í réttu hlutfalli við
grimmdaræði Kínverja.
Svípmynd af ástandinu
í Tíbet
Fyrir nokkru átti brezkur
blaðamaður viðtal við einn af
foringjum Khamba-hreyfingar-
innar, Wang-due hershöfðingja,
á landamærum Nepals og Tíbets.
Má nokkuð ráða ástandið í Tíbet
af frásögn hans, þó sumir telji
hana nokkuð ýkta.
Khamba-foringinn sagði m. a.,
að í hernámsliði Kínverja í Tíbet
væru nú 750 þúsund manns en
í uppreisnarliðinu væru’um 200
þúsund frelsishetjur. Hann taldi
að 4V2 milljón kínverskra land-
nema hefði nú flutzt til Tíbets.
3 þúsund öryggislögreglumenn
héldu öllu í heljarklóm. Hann
sagði að fram til þessa hefðu
fallið í Tíbet 50 þúsund Kínverj-
ar og 22 þúsund tíbetskar frelsis-
hetjur. Mörg af klaustrum lands-
ins hafa verið skotin í rústir,
munkar drepnir við bænahald,
loftárásir gerðar á klaustur og
bæi, en Kínverjar hafa komið
sér upp 7 flugvöllum í Tíbet. —
Taldi hann að 17 þúsund almenn-
ir borgarar hefðu látið lífið á
undanförnum árum í hefndarað-
gerðum Kínverja.
Þá gat uppreisnarforinginn
þess að Kínverjar hefðu sett
ákveðnar reglur á landnáms-
svæðum sínum um það, hvernig
tíbetska þjóðin skyldi hverfa til
hinnar kínversku fósturjarðar.
Er tíbetskum konum rænt og svo
kveðið á, að sérhver tíbetsk kona
gift sem ógift skuli að minnsta
kosti eiga eitt barn með kínversk
um manni. Skal tekið fram í því
sambandi, að vegna lausara kyn-
ferðissambands sem tíðkast í
Tíbet en öðrum löndum, er hér
ekki um eins mikla goðgá að
ræða sem vera mundi t. d. á
Vesturlöndum.
★
Þannig heldur „frelsun" Tíbets
áfram. Hún líkist óneitanlega
mikið þeirri „frelsun" sem Rúss-
barátta Tíbeta vera hin vonlausa
barátta smáþjóðar gegn ofurefl-
inu.
— Jenny Sandholt
Framh. af bls. 8
þar var oft fagnað björtum gleði-
stundum.
Stefán Sandholt var meðal
hinna nýtustu borgara Reykja-
víkur. Öllu dagfari hans fylgdi
hressandi blær traustrar vináttu.
Orðum hans og athöfnum mátti
treysta, enda var oft til hans leit-
að, og eðlilegt, að hann væri í
fremstu röð stéttarbræðra sinna.
Voru honum því að sjálfsögðu
falin trúnaðarstörfin. Góður
drengur hvarf sjónum vorum, er
Stefán andaðist í sept. 1953.
Sameiginlega vöktu þau hjónin
yfir fögru heimili og börnunum.
Með dugnaði og brosandi áhuga
var gengið að hinum aðkallandi
skyldustörfum. En þau áttu bæði,
hin eldlegu hjón, sameiginlega
gleði, er helgaðist af þeirri trú,
sem er starfandi í kærleika. Um
mörg ár var Stefán í stjórn
K. F. U. M., og frú Jenny fór ekki
í felur með trú sína. Trúin bjó
í hjartanu, og í ljósi trúarinnar
voru blessunarrík störf unnin.
f K. F. U. K. átti hún margar
samverustundir með félagssystr-
um sínum. Um fjöldamörg ár hef-
ir frú Jenny átt sæti í stjórn
Kristniboðsfélags kvenna, verið
þar með lífi og sál, fagnandi í
Drottni.
Þetta tvennt átti hug hennar
og hjarta, heimilið og hið kristi-
lega starf. Það vita börnin henn-
ar, tengdabörn og barnabörn, að
umhyggjan fyrir heimilum þeirra
var þeim í té látin með þeirri
gleði, sem stjórnast af fórnandi
kærleika.
Norski þjóðsöngurinn byrjar
með orðinu já. Ja, vi elsker dette
landet. ± „ð er stutt orð, en sterkt.
Það er hin sterka játning kær-
leikans. Þessi játning bjó í hjarta
góðrar konu. Henni var eðlilegt
að segja já er á hana var kallað
til hinna mörgu starfa. En það
var henni hin mikla gleði að
segja já. er á hana var kallað til
þátttöku í kristilegu starfi.
Rúmlega tvítug að aldri kom
frú Jenny hingað. Sjötug að aldri
leit hún yfir hóp ástvina sinna og
með þakklæti bar hún fram játn-
inguna: „En hve mér og mínum
hefir vegnað vel á íslandi."
Börnin minnast elskulegrar
móður og vinir þeirra votta þeim
innilega samúð. Ég hugsa um vin-
áttu og tryggð, er ég nefni nöfn
þeirra.
Hanna, gift Jóhanni Sigur-
geirssyni pípulagningameistara,
Camilla kona Guðlaugs Þorláks-
sonar skrifstofustjóra, Egill
gjaldkeri kvæntur Sigríði Magn-
úsdóttur, Ásgeir bakarameistari
kvæntur Þóru Kristjánsdóttur,
Marta gift Karl Sörheller hús-
gagnabólstrara og Valborg, sem
alltaf hefir verið með móður
sinni. Einn dreng misstu þau
hjónin. Var hann jarðsunginn 25.
marz fyrir 48 árum, en 25. marz
nú í ár andaðist frú Jenny.
Fagurt var samfélag elskandi
vina, og fögur er sagan um norsku
konuna, sem ásamt manni sínum
vann göfugt starf á íslandi.
Þess vegna skal minning henn-
ar í heiðri geymd.
________ Bj. J.
Árshátíð
HVOLSVELLI, 30 marz. — Ars-
hátíð héraðsskólans að Skógum
var haldin þriðjudaginn 24. þ.m.
og var mjög fjöibreytt að venju.
Hátíðin hófst með því að skóia-
stjórinn Jón R. Hjálmarsson flutti
stutta setningarræðu. Þá hófst
fimleikasýning drengja og að
henni lokinni fimleikasýning
stúlkna. Báðar þessar sýningar
tókust ágætlega, þó einkum sýn-
ing stúlkna. Margt fleira var til
skemmtunar svo sem þjóðdansasýn
ing, söngur með gítarundirieik og
leikrit. Skemmtun þessi fór fram
ein,s og bezt verður kosið. Fjöl-
menni var mikið eða 360—400
manns. — Fréttaritari.
Ármenningar við skíðaæfingar í svonefndu „Ilimnaríki" í Blá-
fjöllum á páskadag. (Ljósmynd: Árni Kjartansson)
Yfir 100 manns í Jósefs-
dal yfir páskana
í SKÍÐASKÁLA Armanns í Jó-
sefsdal dvöldust rúml. 100 manns
yfir páskahátíðina. 1 Jósefsdal var
lítill snjór, en nægur snjór í Blá-
fjöllunum og suður um Heiðina
Búðarvogir
5 — 8 — og 10 kg.
Fyrirliggjandi
Ludvig Storr & C.o
Atvinna
Reglusamur maður vanur vélabókhaldi óskar
eftir góðri atvinnu.
Atvinnutilboð óskast send afgreiðslu blaðsins fyrir
n.k. laugardag, merkt: Atvinna — 5119.
Les með nemendum undir ails konar próf.
Frönsku - Þýzku - Ensku
Sími 34404
aðeins kl. 12—2.
Dr. Melitta Urbancic.
há, enda fóru Ármenningar á
hverjum degi í lengri og skemmri
ferðir um Bláfjöllin. Á laugardag
inn fyrir páska snjóaði nokkuð
efra, og á páskadagsmorguninn,
þegar skíðafólkið kom í Bláfjöllin
til þess að taka þátt í hinu áriega
páskamóti, var glampandi sólskin
og silkifæri.
Keppt var í 4 flokkum og 26 þátt
takendur. Úrslit í kvennaflokki
urðu þau, að Ásthildur Eyjólfs-
dóttir sigraði á 58,6 sek. 2. Hall-
dóra Árnadóttir 69,4. 3. Margrét
Óiafsdóttir 93.6. 1 telpnaflokki
urðu úrslit: 1. Guðrún Björnsdótt
ir 81,6 sek. 2. Kristín Björnsdótt-
ir 101,4 §ek. Þessir flokkar kepptu
í sömu braut. Brautarleng 200 m.
og 12 hlið.
Úrslit í karlaflokki: 1. Ingóifur
Árnason 82,4 sek. 2. Elías Her-
geirsson 85,3 sek. 3. Eiríkur Krist
insson 88,7 sek. Brautariengd 350
metrar, 25 hlið.
í drengjaflokki urðu úrsiit: 1.
Björn Bjarnason 72,1 sek. 2.
Brynjólfur Bjarnason 86,2 sek. 3.
Guðmundur Sigurjónsson. Brautin
var um 250 m með 15 hliðum.
Verðlaunin voru afhent sigur-
vegurunum á kvöldvökunni á
páskadagskvöldið. Kvöldvökur,
með leikþáttum, upplestrum og ým
iskonar leikjum, voru haldnar á
hverju kvöldi í skáianum, og full-
yrða má, að fátt sé holiara ungu
fóiki, en að dveljast í frístundum
sínum í góðum félagsskap upp til j ar veittu Ungverjum haustið
f jaila. ‘ 1956. Og alveg eins og þar virðist