Morgunblaðið - 02.04.1959, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 02.04.1959, Qupperneq 19
Flmmtudagur 2 aprfl MORGIJNBLAÐIÐ 19 Snœbjörn skipstjóri ÞAÐ MUN mála sannast, að hér hafi ungur maður skilað af sér óvenju miklu dagsverki. Að vera skipstjóri á togara 34 eða 35 ár samfleytt, er mikið starf eitt út af fyrir sig. En að skila því með Olafsson sextugur slíkum ágætum sem Snæbjðrn, er ekki allra færi. Með mörgum ágætum sjómanni hefi ég siglt um dagana, en þó held ég, að ég megi fullyrða, að Snæbjörn beri þar mjög af. Það má segja að * KVIKMY N Dl R * EINS og að venju þegar um stór- hátíðir er að ræða, hafa kvik- myndahúsin hér 1 bænum og i nágrenninu tekið til sýningar nýjar og athyglisverðar kvik- myndir. Ber að þessu sinni tölu- vert mikið á dans- og söngva- myndum eða gamanmyndum, en innan um, svo sem í kvikmynda- húsum Hafnarfjarðar, eru áhrifa miklar myndir alvarlegs efnis. Er þetta vissulega ágætt, hvað með öðru. * Nýja Bíó: KÓNGURINN OG ÉG Þessi víðfræga ameríska kvik- mynd, sem gerð er í litum og CinemaScope „55“, er byggð á söngleiknum „Anna og konung- urinn af Siam“, sem hvarvetna hefur hlotið geysimiklar vin- sældir. — Fjallar myndin um unga og fríða ekkju, Önnu Leonowens, sem árið 1862 kem- ur frá Englandi til Siam, ásamt ungum syni sínum, til þess að taka við kennslustörfum við hirð konungsins þar og þá einkum til að kenna börnum hans, sem eru æði mörg, því að hann lifir í fjölkvæni eins og aðrir póten- tátar austur þar. — Lífsskoð- anir og lífsvenjur manna í þessu framandi landi eru um flest gagn ólíkar því, sem kennslukonan hefur alizt upp við í Englandi Viktoríutímabilsins, enda kemur þegar til mikilla árekstra og átaka milli hennar og hins harð- vítuga einvalda. Áhrif önnu á allt hirðlífið, á börn konungsins og jafnvel hann sjálfan verða þó æ meiri eftir þvi sem hún dvelst þarna lengur og þrátt fyrir alla misklíðina þá metur konungurinn hana mikils. — En áður en lýkur fær konungurinn hjartaslag. Ætlar Anna þá að hverfa aftur heim til Englands. Hún fer þó áður á fund konungs, þar sem hann liggur helsjúkur, til þess að kveðja hann. En börn- in sárbæna hana að yfirgefa þau ekki og það verður úr, að hún ákveður að vera kyrr. Konungur- inn deyr og elzti sonur hans tek- ur við völdum og má heyra það á orðum hans að hann muni fyr- ir áhrif frá önnu, verða mildari konungur en faðir hans. Mynd þessi er frábærlega vel gerð. Ytri búnaður hennar allur íagur og glæsilegur og efni mynd arinnar bráðskemmtilegt og ágæt lega á því haldið. — Inn í mynd- ina er fléttað söngvum og fögr- um dönsum, þar á meðal „stíli- seruðum“ dansl að austrænum hætti, er segir söguna amerísku um kofann hans Tómasar frænda, sem flestir munu kannast við. Er sá dans stórkostlegt listaverk og verður mér ógleymanlegur. Má reyndar segja að myndin öll sé mikið listrænt afrek. Dregur sízt úr áhrifunum að leikurinn í myndinni er afburðagóður og þá fyrst og fremst leikur þeirra Deborrah Kerr, sem leikur önnu, og Yul Brynner, sem leikur kon- unginn af hreinni snilld. Þessa ágætu mynd ættu sem allra flestir að sjá. Tjarnarbíó: St. LOUIS BLUES Þessi ameríska söngva- og músikmynd er byggð á ævisögu negrasöngvarans og tónskáldsins W. C, Handy, sem fyrstur manna varð til þess að færa þjóðlög kynflokks síns í þann nýja bún- ing, sem þá hlaut nafnið „jass“, — og ölli með því gjörbyltingu 1 tónlistinni, ekki ósvipaðri því sem gerðist í málaralistinni þeg- ar abstraktmálararnir komu fyrst fram. Segir í myndinni frá þeim erfiðleikum sem hinn ungi og músikgáfaði Handy átti við að etja lengi framan af, ekki sízt vegna afstöðu föður hans, sem var negraprestur, og taldi tónlist- arstarfsemi sonar síns syndsam- legt athæfi. Handy sigraði þó glæsilega að lokum, og endar myndin á því að Filharmoniu hljómsveitin í New York leikur frægasta tónverk Handys, St. Louis Blues fyrir þéttskipuðu húsi, og að viðstöddum föður hans, unnustu hans og frænku. Hinn frægi negra-tónlistarmað ur Nat „King“ Cole, leikur aðal- hlutverkið, Will Handy af mestu prýði og syngur og leikur mörg þekkt „jass“-lög. Aðrir frægir negrasöngvarar koma þarna einn- ig fram svo sem Eartha Kitt og Ella Fitzgerald. Negramúsikin getur verið heill andi í sínum frumstæða innileik eins og glöggt kemur fram í þess- ari mynd. Einkum eru hrífandi hinar fallegu hymnur, sem sungn ar eru í kirkjunni hjá séra Handy. Mynd þessi er mjög aðlaðandi og segir vel og skemmtilega at- hyglisverða sögu. Ego. hamingjan hafi verið honum inn- anhandar, þar sem fáir eða engir hafa verið honum farsælli í starfi. Fór þar saman örugg skipstjórn, gætni, en þó kappsemi. Aflasæld, byggð á kunnáttu, dugnaði og eftirtekt. Gilti einu, hvort stund- að var, þorskveiði eða sildveiði. Snæbjörn er svo lánsamur að vera gæddur einhverri þeirri styrkustu og geðfelldustu skap-1 höfn, sem menn þekkja, enda man ég ekki, meðan ég var svo lánsamur að vera undir hans stjórn, eftir neinum skipsfélaga minna, sem ekki elskaði hann og virti. Mikils mun þessi valinkunni skipstjóri vera búinn að afla þjóðarbúinu ef til fjár væri met- ið, en þó mun hitt meira og ekki hægt að meta til fjár, en það er það veganesti, sem hann hefur lagt þeim ungmennum til sem með honum hafa siglt um dagana. Dýrmætari gjöf getur enginn gef ið þjóð sinni en að framkvæma, með fordæmi sínu og mannkost- um, þá ræktun, sem allri ræktun er æðri. Það er mannrækt. Nú að loknu þessu mikla dags- verki hefir Snæbjörn kvatt Ægi konung og haslað sér völl á þurru landi, en þess er ég fullviss, að eins og þessi sæmdarmaður hefir lengi siglt um úfinn sjó með miklum dugnaði og farsæld, svo mun hann einnig skila því verki, er hann hefir nú tekið að sér. Ég vil að lokum nota tækifærið til að óska Snæbirni til hamingju með afmælið og árna honum allra heilla í framtíðinni. Ragnar Þorsteinsson. VÖRUSÝNINGANEFND vill af gefnu tilefni og vegna margra fyr irspurna þar að lútandi taka fram að hún hafði engin afskipti af þátttöku íslenzkra fyrirtækja í kaupstefnu þeirri, er fór fram í Leipzig fyrstu dagana í marz sl., enda var aðstoðar nefndarinnar ekki leitað í því sambandi. Guð blessi ykkur öll, er glöddu mig á áttræðisafmælinu þann 22. f.m. og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Þórunn Þórðardóttir, Varmalæk. Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem með hlýhug, heimsókn, gjöfum og skeytum glöddu mig á áttræðis- afmæli mínu 23. marz sl. Einkum þakka ég tengdadóttur minni og sonum sem þarna áttu hlut að máli. Launi ykkur öllum sá sem launar bezt. Sigurður Pétursson, Hörpugötu 3, Reykjavík. Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda innilega vinsemd á 65 ára afmælinu með heimsóknum, heillaóskum, blómum og rausnarlegum gjöfum. Guð blessi ykkur. Guðmundur Nikulásson. Öllum þeim, er sýndu mér virðingu og vináttu, með því að senda mér heillaskeyti og gjafir í tilefni af 75 ára afmæli mínu, sendi ég mínar hjartanlegustu þakkir. Sérstaklega vil ég þakka stjórn og starfsmönnum bif- reiðastöðvarinnar Bæjarleiðir, sem af mikilli rausn héldu mér veglegt samsæti í tilefni dagsins. Hjörtur Guðbrandsson Meðalholti 11. Lokað allan daginn í dag vegna jarðarfarar. Húsgagnaverzlun Laugavegi 36. Karl Sörheller. Lokað í dag frá hádegi vegna jarðarfarar. Skrifstofa Einars B. Guðmundssonar Guðlaugs Þorlákssonar og Guðmundar Péturssonar Aðalstræti 6. Konan mín og dóttir okkar ANNA AÐALHEIBUR ÁRNADÓTTIR andaðist að heimili sínu að Fjallabaki í Mosfellssveit 23. marz. Útför hefur farið fram. Leifur Jónasson, Guðbjörg Jónsd., Árni Einarsson Eiginmaður minn EYJÓLFUR jóh ANNSSON framkvæmdastjóri frá Sveinatungu, andaðist á Landsspítalanum 1. þ.m. Helga Pétursdóttir. Faðir minn, afi og langafi SIGURÐUR ÓLAFSSON trésmiður Brekkustíg 7, andaðist 28. þ.m. Jarðarförin fer fram frá Fossvogs- kirkju föstud. 3. apríl kl. 1,30. Guðrún Sigurðardóttír, Sólveig Axelsdóttir, Sigurður Gunnarsson. Hjartkær eiginmaður minn og faðir ÞÓRÓLFUR INGÓLFSSON offsetprentari, lézt að Bæjarspítalanum þann 31. marz s.I. Jarðarförin ákveðin síðar. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda. Unnur Bergsveinsdóttir, Dagný Þórólfsdóttir. Þökkum innilega öllum ,er sýndu okkur ástúð og vin- áttu við fráfall EYJÓLFS J. HAFSTEIN stýrimanns á vitaskipinu Hermóði. Þórunn E. Hafstein og dætur. BJÖRN JÓNSSON frá Bala netagerðam., andaðst að morgni 26. marz. Jarðsett verður frá Foss- vogskirkju laugardaginn 4. aprfl kl. 10,30 f.h. Inga Þorkelsdóttir, Hafsteinn Björnsson Útför móður okkar ASTU EINARSSON sem lézt 27. f.m. fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 3. apríl kl. 2 e.h. Fyrir hönd aðstandenda. Guðrún Einarsson, Brgir Einarsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekn- ingu við andlát og jarðarför konu minnar MALFRtoAR JÓNSDÓTTUR Frakkastíg 14. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna. Theodór Magnússon. öllum þeim, sem auðsýndu mér samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður míns LUDVIGS ARNE EINARSSONAR málarameistara Vesturgötu 45, votta ég mínar alúðarfyllstu þakkir. Guðm. Ludvigsson og f jölskylda. Þakka auðsýnda hluttekningu við andlát og jarðarför GUÐMUNDAR HELGA ÓLAFSSONAR Guðrún Sigurðardóttir, börn og systkini hins látna. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa vilhjAlms ketilssonar frá Kirkjuvogi. Vilborg Vilhjálmsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Ingólfur Þorsteinsson, Andrés Björnsson, og dætraböm. Innilega þakka ég alla samúð og hluttekningu við fráfall eiginmanns míns sigurðar guðnasonar háseta á b.v. Júli. Einnig þakka ég alla hjálp og hlýhug í veikindum mínum. Sveinbjörg Eyvindsdóttir, Akranesi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.