Morgunblaðið - 02.04.1959, Page 20
VEÐRIÐ
SV, hvöss él, bjart á milli.
0—3 stiga hiti.
7J. tbl. — Fimmtudagur 2. apríl 1959
Afeð Chutehill
hjá Stalin, sjá bls. 11.
Ef apríl verður votviðrasamur
munu vegir stórspillast
EF SVO færi að aprílmánuður
yrði votviðrasamur, er mjög hætt
við að vegakerfi landsins muni
verða fyrir miklum skemmdum.
Eyjólfur Jóhanns-
son forst jóri látinn
LÁTINN er Eyjólfur Jóhannsson
forstjóri, frá Sveinatungu. Lézt
hann í fyrrinótt í Landsspítalan-
um.
Eyjólfur var þjóðikunnur maður
•em einn af atkvæðamestu mönn-
um í viðskipta- og verzlunarmál-
um þjóðarinnaT. Einnig hafði
hann mikil afskipti af stjórnmál-
um og var hann um langt árabil
meðal forustumanna í Sjálfstæðis-
flokknum. Hann var formaður
Varðarfélagsins hér í Beykjavík
um nokkurt skeið og einnig átti
hann um tíma sæti í miðstjórn
flokksins og var lengi form. skipu
lagsnefndar flokksins.
Eyjólfur var lengi forstjóri
Mjólkurfélags Reykjavíkur. Und-
anfarin 10 ár hafði hann verið
forstjóri Innkaupastofnunar ríkis-
ins.
Fyrir nokkrum árum gerði
hjartabilun vart við sig og það var
'hjartasjúkdómur þessi sem dró
Eyjólf til dauða. Var hann flutt-
ur að heiman frá sér, Sveinatungu
í Garðahreppi í Landsspítalann á
föstudaginn langa. 1 fyrrinótt lézt
hann þar svo sem fyrr greinir, og
hafði hann fengið hægt andlát.
Hann var G3 ára að aldri.
KÓPAVOGUR
Arshálíð Sjálfstæðisfélaganna í
Kópavogi verður haldin í kvöld
kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu. Nánar
auglýst inni í blaðinu.
Skemmtinefndin.
Stjórnmálanám-
skeið Stefnis
HAFNARFIRÐI. — í kvöld kl.
8,30 heldur stjórnmálanám-
skeið Stefnis áfram í Sjálf-
stæðishúsinu. Þá flytur Matt-
hías Á. Mathiesen, frambjóð-
andi Sjálfstæðisflokksins við
næstu alþingiskosningar, er-
indi um atvinnumál. Á eftir
verður umræðufundur. Nám-
skeiðið hefir verið vel sótt og
mikill áhugi ríkjandi á þeim
málum, sem þar hafa verið
rædd. Fróðleg erindi hafa ver
ið flutt, og einnig hafa þátt-
takendur æft sig í mælsku-
list. — G. E.
Þetta vor virðist nefnilega ætla
að koma miklu fyrr en almanak-
ið segir til um. Þannig komst
Sigurður Jóhannsson vegamála-
stjóri, að orði við Mbl. í gærdag,
er það spurðist fyrir um ástand
veganna um þessar mundir.
Svo sem menn muna eflaust
ennþá, sagði Sigurður, kom í jan.
| langur frostkafli, á auða jörð,
með óvenjumiklum frostum.
Þetta hafði í för með sér að mik-
ill klaki myndaðist í jörðu og jafn
vel meiri en í venjulegu árferði.
f þeirri mildu og votviðrasömu
tíð, sem verið hefur um land allt
að undanförnu, hefur holklakinn
haft það í för með sér, að vatnið
hefur setzt fyrir á vegunum.
Vegna hins þykka klakabeltis,
hefur rigningavatnið ekki komizt
í gegn og þvi hefur slitlag veg-
anna blotnað upp.
Vegamálastjórnin hefur reynt
eftir megni að takmarka alla um
ferð bila um vegina, einkum
þungaflutningana um þá, meðan
svo er. Ef það færi saman, nú í
Þórir varð
skákmeistari
HAFNARFIRÐI — Nokkru fyrir
páska lauk skákmóti Hafnar-
fjarðar og að þessu sinni með
sigri Þóris Sæmundssonar, og
hlaut hann þar með titilinn
„skákmeistari Hafnarfjarðar
1959“. Næstur varð Stígur Her-
lufsen og í þriðja sæti Jón Krist-
jánsson. — G. E.
apríl, að menn tækju fyllsta til-
lit til þessarar viðvaranna vega-
málastjórnarinnar og veðurguð-
irnir yrðu okkur hliðhollir, er
sennilegt að vel geti farið, og
vegirnir verði ekki fyrir miklum
skemmdum. f sumum sveitum er
ástandið t.d. betra nú en á síðastl.
vori. Er hér um að ræða ýmsar
sveitir fyrir austan Fjall. Kvaðst
vegamálastjóri vilja nota tæki-
færið og ítreka óskir sínar til
ökumanna, um að fara í einu og
öllu eftir fyrirmælum vegamála
stjórnarinnar, varðandi þunga-
flutninga á þeim vegum, sem tak
marka verður umferð um vegna
aurbleytu, því á þann hátt mun
okkur takast að spara miklar
fjárfúlgur af almanna fé, sagði
hann.
Þetta er vélbáturinn Fram á strandstaðnum í Grlndavík. —
Myndin var tekin daginn eftir að báturinn strandaði, en eins
og myndin sýnir, þá var ekki að sjá miklar skemmdir á bátn-
um. En hann var þó talinn ónýtur. Sú hliðin, sem hann liggur
á, var úr honum að mestu, eftir fyrstu nóttina, eftir strandið.
(Ljósmynd: S. Rafnsson)
Talið víst að mœðiveiki sé í fé á
nœstu bœjum við M iðhús í
Reykhólasveit
Veikin hefur verið áberandi i Mið-
húsafénu siðan haustið 1957
EINS og skýrt var frá hér í blað-
inu fyrir páska, fór Guðmundur
Gíslason, læknir á Keldum, vest-
ur í Reykhólasveit í byrjun fyrri
viku til að rannsaka nánar féð
á Miðhúsum í Reykhólasveit og
næstu bæjum vegna mæðiveik-
Engar reglur um varnir
gegn olíumengun sjáv-
arins
Verður ísland aðili
að alþjóðlegri sam-
þykkt?
ÞAÐ GETUR vissulega haft slæm
áhrif á fuglalífið þar nyðra, sagði
dr. Finnur Guðmundsson, er Mbl.,
ræddi stuttlega við hann um olíu
þá sem nú liggur með ströndinni
norður við Hofsós, eftir að olíu-
geymir þar rifnaði og tæmdist.
Voru í geyminum 40 tonn af svo-
nefndri gasolíu, sem öll rann í
sjóinn.
Það er ekkert ráð tiltækilegt
til að eyða olíu sem flýtur á sjón
um. Háskinn sem fuglunum staf
ar af olíu í sjónum, er að lendi
þeir í henni, þá klessist fiður-
hjúpurinn og sjór og kuldi kemst
í gegnum hjúpinn og fuglarnir
drepast.
Það hefur stundum komið fyrir,
hér við Reykjavík, að olíuskipin
sem losa hér olíu við stöðvarnar,
hafi misst olíu í sjóinn. Hefur það
þá jafnan sagt fljótlega til sín
og fuglar drepist, stundum í all-
verulegum mæli af þessum sök-
um. Einna alvarlegast er þegar
svonefnd svartolía fer í sjóinn.
Keflavík
HIÐ vinsæla bingo verður spilað
í Vík kl. 9. Margðir og góðir vinn
ingar. Ókeypis aðgangur. Fjöl-
mennið í Vík. — Sjálfstæðisfélög
in í Keflavík.
því hún eyðist ekki fyrr en að
löngum tíma liðnum.
Hér á landi eru engar reglur til
eða lög varðandi ráðstafanir til
að koma í veg fyrir að olía renni
í sjóinn. En um það er þó til al-
þjóðleg samþykkt sagði dr. Finn
ur, og það er í athugun hér hvort
ísland eigi að gerast aðili að sam-
þykktinni, en hún fjallar um
varnir við olíumengun sjávar og
er m.a. sett til þess að koma í
veg fyrir fugladauða af völdum
olíu.
Að sjálfsögðu ætti að gera ráð-
stafanir til þess hér á landi svo
sem föng eru á, að þannig verði
frá olíugeymum gengið, að komi
að þeim skyndilegur leki, þá
renni olían ekki beinustu leið í
sjóinn. Þetta ætti að gera alveg
án tillits til þess hvort ísland
verður aðili að hinni alþjóðlegu
samþykkt eða ekki.
innar, sem þar er komin upp. —
Blaðið hafði tal af Guðmundi í
gær og spurði hann frétta af för-
inni. Sagðist honum svo frá, að
fátt nýtt hefði komið fram í þess-
ari för. í Miðhúsum virtist hafa
verið áberandi þurramæði í fé
síðan haustið 1957 og hefðu farið
um 20 til 30 kindur úr henni á
þeim tíma. Nú sæi á fáeinum
kindum þar á bænum en veikin
í þeim væri ekki á lokastigi.
Við venjulega skoðun sér ekki
á mæðiveikifé fyrr en það hefur
gengið með veikina í tvö til þrjú
ár, en við lungnaskoðun má
finna mæðiveikieinkenni í kind-
um, sem hafa verið sýktar í eitt
át.
Guðmundur Gíslason kvaðst
einnig hafa rannsakað féð á
næstu bæjum við Miðhús og á
nokkrum bæjum hefði gætt van-
þrifa í kindum, en við skoðun-
ina hefðu ekki komið í ljós skýr
mæðiveikieinkenni, en ganga
mætti að því sem vísu að féð á
þeim bæjum væri meira og
minna sýkt.
Náin samgangur er milli fjár-
ins í Reykhólasveit og í Gufu-
dalssveit. Þá koma ætíð saman
við þetta fé nokkrar kindur úr
Nauteyrarhreppi við ísafjarðar-
djúp austanvert og nokkurt sam-
band er við féð á Stað í Stein-
grímsfirði. Guðmundur kvað enn
ekkert upplýst hvernig veikin
hefði borizt að Miðhúsum.
Enn er ekki ákveðið hvaða ráð-
stafanir verða gerðar vegna
mæðiveikinnar, en það mál er nú
í athugun.
Ungur maður frá Sand-
gerði hvarf um páskana
Á vegum rannsóknarlögreglunn-
ar var í gærkvöldi lýst eftir ung-
um manni sunnan úr Sandgerði,
Gesti Gestssyni sjómanni. Til hans
hefur ekkert spurzt frá því á
páskadag.
Þann dag var báturinn sem hann
var á hér í Reykjavík, en það er
Vísundur RE 280. Hafði Gestur
sagt skipsfélögum sínum frá því,
að hann hygðist bregða sér suð-
ur í Sandgerði, þar sem hann bjó
Berlínarvandamálið og
örlög Austur-Þjóðverja
Dr. H. Köhler flytur fyrirlestur um það
annað kvöld t Háskólanum
.ER kom hingað á vegum fé- ■ an sem háskólakennari í Vestur-
Iagsins Fr jálsrar menningar þýzki Berlín.
Prófessor
professorinn dr. H. Kohler og
flytur hér fyrirlestur um Berlín-
arvandamálið.
Prófessor Köhler starfaði við
háskólann i Leipzig frá árinu
1934 til 1951 og kenndi þar guð-
fræði og heimspeki. Hann hvarf
frá Austur-Þýzkalandi í marz-
mánuði 1951 og hefur starfað síð-
Köhler flytur fyrir
Iestur sinn í fyrstu kennslustofu
háskólans á morgun, föstudaginn
3. apríl kl. 20.30. Nefnir hann fyr
irlesturinn Berlínarvandamálið
og örlög Austur-Þjóðverja. Auk
prófessors Köhlers tala á fund-
inum þeir séra Jón Auðuns dóm
prófastur og Kristján Albertsson
rithöfundur.
í húsþiu Þingholt með móður
sinni.
Hafði þetta verið um hádegis-
bilið á sunnudaginn. Er ekki vit-
að um ferðir hans eftir það. Hann
kom aldrei til Sandgerðis og eftir-
grennsian hefir leitt í Ijós að hann
hefur ekki komið á heimili ætt-
ingja sinna hér í bænum.
Gestur, sem er aðeins 25 ára
gamall, var klæddur dökkbláum
fötum og var berhöfðaður. —
Hann var í alla staði vel fyrir
kallaður er hann fór frá borði.
Þeir, er kynnu að geta gefið
upplýsingar um ferðir Gests eru
beðnir að gera rannsóknarlögregl-
unni viðvart hið fyrsta.
Páskaniót
KEFLAVÍK, 1. apríl. Á skírdag
fór hér fram „Páskamót 1 hand-
knattleik“. Fór þetta mót fram
í íþróttahúsinu hér í bænum. Úr-
slit urðu þau að Ármann úr
Reykjavík vann Aftureldingu i
Kjóí með 20:13, FH í Hafnar-
firði vann Þrótt Rvík., með 21:13
og Víkingur Rvík vann Keflavík
með 21:17. í undanúrslitum vann
FH Ármann með 25:19 og í úr-
slitum vann FH Víking með 20:10.
Þá fór fram leikur í III. flokkl
milli Víkings og Keflavíkur og
unnu Víkingar þann leik.