Morgunblaðið - 05.07.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.07.1959, Blaðsíða 6
e MOR WVTtT. AÐÍL Sunnudagur 5. Júlí 1969 Heyskaparút!if mjög gott um land allt Sláttur almennt hafinn eða að hefjast, en lítið hefur verið hirt af heyi til þessa Frásagnir fréttaritara Morgunhlaðsins HEYSKAPUR er hafinn eða í þann veginn að hefjast um allt land. Spretta er góð í öiium landshlutum og sumsstaðar mjög góð. Á Suðurlandi og Vesturlandi hafa verið þurrkar undan- farna daga og er þar eitthvað búið að hirða, en norðanlands og austan hefur sumsstaðar verið dumbungsveður að undanförnu en glaðnaði til nú fyrir helgina. Morgunbiaðið átti tal við ali- marga fréttamenn fyrir helgina og innti frétta af heyskapnum. Þegar skýjaflókar hrannast upp á himininn verður að hafa hraðar hendur við að korna heyinu í hlöðu. Fara frásagnir þeirra hér á eftir. Borgarfjarðarsýsla Akranesi, 4. júlí. — Pétur Þor- steinsson, bóndi á Miðfossum í Andakíl sagði mér í gær, að jörS væri nú sem óðast að spretta. Grasið, sem komið væri, gæfi vonir um að sprettan yrði sæmi- leg. Fáir bændur hér ofan heiðar, sagði Pétur eru byrjaðir að slá. Þeir hafa verið önnum kafnir við að smala og rýja og núna um helgina munu menn almennt reka fé á fjall. Hér utan Skarðsheiðar hófst sláttur fyrst á Innra-Hólmi fyrir hálfum mánuði. Þar var síðustu dagana fyrir kosningarnar verið að blása heyinu upp í súrheys- turninn. Notaður var saxblásari og unnið dag nótt. Um sama leyti var byrjað að slá á Eystra-Mið- felli og viku seinna á Ytra-Hólmi. Jón Bjarnason bóndi í Hlíð á Hvalfjarðarströnd bjóst við að spretta væri í meðallagi, eitthvað misjöfn eftir bæjum og kemur þar margt til greina. Sumir bændur beittu ánum á túnin sín vor og urðu þau seinni til fyrir bragðið. Notkun tilb'úins áburðar er alltaf að færast í vöxt. Gras- spretta vtr með ágætum upp úr sumarmálum, sagði Jón bóndi í Hlíð. Rétt á eftir gerði kuldakast sem kippti úr gróðri, en nú þýtur grasið upp. — Búið er að slá íúnið á Hvanneyri. Á Þverfelli í Lundarreykjadal var hálftommti klaki í flögum í síðasta kuldakasti fyrir % mán- uði og fennti þá alveg ofan að túni. — Oddur. Snæfellsnessýsla Stykkishólmi, 4. júlí. — Siáttur er um það bil að hefjast í sveit- um Snæfellsness og Hnappadals- sýslu og mun hefjast almennt í næstu viku. Vorið hefur varið kalt hér um slóðir eins og víðast hvar annars staðar og hefur það seinkað því að sláttur geti hafizt i sama tíma og oft áður. Undan- farna daga hefur verið gott veð- ur, logn og sólskin. — Á.H. Barðastrandarsýsla Patreksfirði, 4. júlí. — Túna- sláttur hófst almennt fyrir um það bil viku , Rauðasandshreppi og Tálknafjarðarhreppi, en er enn ekki almennt hafinn á Barða- strönd. Grasspretta virðist ætla Sð verða í góðu meðallagi. Undan farna daga hefur verið ágætistíð hér um slóðir, logn og sólskin. —TÁ. Húnavatnssýsla Hofi, Vatnsdal, 3. júlí. — Slátt- ur hófst hér um slóðir fyrir um það bil viku og hefur töluvert verið slegið. Tún eru mjög vel sprottin víða. Þoka og dumbungs- veður hefur verið síðustu viku en í dag er hér góður þurrkur og ef svo heldur fram má búast við góðri nýtingu.— Enn er eítir að rýja hér um slóðir og má gera ráð fyrir að eitthvert hlé verði á heyskapnum, meðan það stend- ur yfir. — ÁJ. Skagafjörður Sauðárkróki 4. júl. — Sláttur er fyrir skömmu byrjaður allvíða hér í Skagafirði, en menn hafa farið sér hægt að slá, því hér hafa verið eilífar þokur. í dag er fyrsti heiðríki dagurinn. Spretta virð- ist góð. Má gera ráð fyrir, að slátt ur hefjist almennt fyrir og eftir þessa helgi. — jón. Eyjafjörður Akureyri, 3. júlí. — Heyskapur er fyrir nokkru byrjaður í Eyja- fjarðarsýslu, en hefur ekki geng- ið meira en sæmilega til þessa. Nokkuð er síðan, að tún eða hlut- ar þeirra voru það vel sprottnir að hægt var að slá þau, enda mun á einstöku stað hafa verið byrj- að að slá kringum 20. f.m. Þurrkatíð hefur verið fremur léleg, en þó hefur tekizt að hirða upp hey óhrakið. Hins vegar hef- ur sprettutíð verið ágæt. Nær alsstaðar í Eyjafirði mun nú byrjað að slá og sums staðar er búið að slá allmikið. f gær og í dag hefur þurrkur verið góður. Að því er bezt verður vitað, hefur hvergi orðið vart kals í tún- um í vor, enda viðrað þannig að ekki var mikil hætta á því. Spretta mun því hafa verið nokk uð jafngóð á harðlendi og mýr- lendi. Úthagar spruttu snemma og eru hagar því yfirleitt góðir. Hretið, sem kom í kringum 17. júní mun ekki hafa valdið telj- andi tjóni á graslendi, lambatjón varð heldur ekki teljandi hér í Eyjafjarðarsýslu í hretinu. — vig. Þingeyjarsýsla Árnesi, Aðaldal, 3. júlí. — Hér gengur heyskapurinn ágætlega og er tíð mjög góð. Var almennt byrj að að slá í síðustu viku. En þeir fyrstu byrjuðu fyrir hálfum mán- uði. Hefur verið þurrviðri, það sem af er slætti, en ekki sterkir Nokkur orð til Hannesar ONA úr Hafnarfirði hefur beðið Velvakanda fyrir eftir- farandi orðsendingu til Hannesar á hominu: „Hannes skrifar nokkrar hug- leiðingar um kosningaúrslitin í dálkum sínum miðvikudaginn 1. júlí. Hann segir, að það eina sem hafi komið sér alveg á óvart séu kosningaúrslitin í Hafnarfirði. Hann hefur um það mörg orð og talar um „glórulaust pólitískt hatur“. Alþýðuflokksmenn virð- ast ekki vera farnir að átta sig á þvi enn, að Sjálfstæðisflokkur- inn er alltaf að vinna á hér í bæ, og var eftir síðustu bæjarstjórn- arkosningar stærsti flokkurinn í bænum, þó að Alþýðuflokkurinn sæi ekki ástæðu til að leita eftir samstarfi við hann, en vildi held- ur vinna áram með kommúnist- um, sem eiga sáralitlu fylgi að fagna hér og stór-töpuðu núna í alþingiskosningunum. Hannes virðist vera alveg for- viða á því, að allir Hafnfirðingar skyldu ekki kjósa frambjóðanda Alþýðuflokksins, „sem tók á sig eitt erfiðasta hlutverk, sem þjóð- in hefur nokkru sinni lagt nkkrr um manni á herðar“, eða svo er komizt að orði í Alþýðublaðinu. Hinn nýkjörna þingmann okkar Hafnfirðinga telur ham. óreynd- þurrkar. Eru margir bændur langt komnir að slá túnin og þeir sem hafa súgþurrkun eru búnir að hirða allmikið. Tún voru ágætlega sprottin hér um slóðir, áfellið mikla í fyrra mánuði olli ekki stórskaða, enda þótt það skemmdi gróður nokk- uð sums staðar. — H-G. Kópaskeri 3. júlí: — Tíðin leikur við okkur hér í Öxarfirð- inum og er ljómandi þurrkur í dag. Bændur rífa niður heyið og hirða það jafnóðum. Sláttur hófst almennt fyrir viku, spretta er vel í meðallagi og betri á þessum tíma en verið hefur lengi. Kuldakastið sem kom kringum 17. júní drap nokk ur lömb og einnig nokkuð af fullorðnu fé. Dýptkunarskipið Grettir er að grafa hér í höfninni og verður hér um hálfan mánuð til þrjár vikur. — J.Þ. Þórshöfn, 3. júlí: — Hér á Þórs höfn og í Þistilfirði hófst sláttur um 20. júní og er búið að slá mikið. Bóndi einn, sem hefur kúa bú hér I grennd við þorpið, er búinn að hirða 500 bagga og á mikið laust. Tíð hefur verið mjög góð að undanförnu, hitar og sólskin. Tún voru óvenju vel sprottin. — E.Ó. Austurland. Desjarmýri, Borgarfirði eystra, 3. júlí: — Sláttur er ekki almennt hafinn hér í Borgarfirði eystra, en þó hafa nýræktir, sem friðað- ar voru fyrir beit í vor, verið slegnar. Tún eru yfirleitt illa far in eftir vorbeit seinni helmings sr.uðburðar. Spretta er góð, þar sem friðað var fyrir vorbeit, en annars staðar heldur stutt á veg komin. Sláttur mun ekki almennt hefjast fyrr en undir miðjan þennan mánuð. — I.L EGILSSTÖÐUM, 4. júlí — Flestir eað allir bændur hér um slóðir eru byrjaðir að slá og margir búnir að hirða mikið. Heyskapar- tíð hefur verið mjög hagstæð að undanförnu. Einstaka bóndi byrj- aði sláttur um 20. júní. — A. B. an, og segir hann ekki hafa haft tækifæri til að sýna, hvað í hon- um býr. Satt er það, að Matthías á Mathiesen er enn ungur að ár- um, en yngri menn en hann hafa þó tekið sæti á Alþingi og starfað þar með miklum sóma. Ég þarf ekki að nefna nein nöfn í því sambandi, það mun flestum kunn ugt. Flestir þeir alþingismenn, sem mjög ungir hafa verið kosnir á alþingi, eru úr röðum Sjálf- stæðisflokksins. Sá flokkur hefur sýnt öðrum flokkum fremur, að hann ber traust til ungra manna, engu síður en til þeirra, sem eldri eru, og þessir menn sem ungir voru kjörnir á þing, hafa sannarlega ekki brugðist þeim vonum, s m við þá voru tengdar. Að lokum þetta: Þegar núver- andi forsætisráðherra tók að sér að mynda stjórn sl. vetur, má ekki gleyma því, að aðeins vegna hlutleysis Sjálfstæðisflokksins var mögulegt að mynda núver- andi ríkbstjórn og mun það vera öllum Ijóst, jafnvel Alþ.bl.—Sv“. Hver byrjaði? Úr því ummæli Hannesar á horninu undanfama daga eru til umræðu, langar Velvakanda sjálf an gegn venju sinni til að gera athugasemd við vangaveltur Hannesar um það, hvort það hafi Gilsárstekk, Breiðdal, 3. júli: Sláttur er aðeins byrjaður hér í Breiðdal, en bændur hafa ekki lagt kapp á að slá mikið niður, því hér hafa lengi verið þurrk- leysur, og dumbungsveður dag eftir dag. Tún eru ágætlega sprottin og einnig úthagi. — P.G. Höfn, Hornafirði: — 3. júlí: — Hér er sláttur í fullum gangi og hafa verið stöðugir þurrkar. Er nokkuð langt síðan þeir fyrstu byrjuðu,, en flestir eru nýbyrj- aðir. Grasspretta er all-góð víð- ast hvar. Gera má ráð fyrir, að nokkurt hlé verði á heyskapar- vinnu bráðlega, þar sem enn er ekki búið að rýja. — G.S. Suðurland Kirkjubæjarklaustri, 3. júli. — Sláttur er ekki almennt hafinn hér um slóðir. Hins vegar hafa margir bændur slegið nýræktir, sem voru orðnar vel sprottnar, því sprettutíð var ágmt fram yfir mánaðarmótin maí-júní. Fyrstu þrjár vikur júní-mánaðar fór grassprettu mjög mikið fram, en síðan hefur tíð mátt heita sæmi- leg. verið Heimdellingar eða ungir framsóknarmenn, sem urðu fyrri til að festa upp áróðurmiða á götum bæjarins fyrir kosningarn- ar. Það er auðvitað smekks- atriði hvort menn vilja yfirleitt láta banna það að festir séu upp slíkir miðar, og verður það ekki gert að umræðuefni hér. En Vel- vakandi man ekki betur en að það hafi einmitt verið Alþýðu- flokkurinn, sem fyrstur flokka byrjaði að festa upp áróðurs- miða í stórum stíl fyrir kosning- amar 1934. Talað hefur verið um, að í þetta sinn hafi verið meiri menningar- bragur á kosningunum hér en áð- ur hefur verið, og er hinum nýju reglum sem giltu á kjörstað þakk að. Þetta er álitamál, og ég er hræddur um að það hafi valdið fólki miklu meira ónæði en nauð- synlegt er, að flokkunum skuli nú vera bannað að fylgjast með því hverjir kjósa. Það varð að- eins til þess að hver flokkur fyrir sig lét spyrjast fyrir um það hjá fólkinu sjálfu, hvort það væri nú búið að sækja kjörstað. í mörg- um tilfellum var verið að marg- spyrja þá, sem seint fóru, allan daginn. Áður fyrr lá það alveg ljóst fyrir hverjir voru búnir að kjósa og þurfti þá ekki að ónáða þá framar. Þessa viku og þá síðustu voru menn almennt við rúningu sauð- fjár, en þegar henni er lokið, má búast við að tekið verði til óspilltra mála við heyskapinn. Eins og nú horfir, lítur vel út með grasvöxt. — G. Br. Bergþórshvoli, Landeyjum, 3. júlí. — Heyskapur er byrjaður víðast hvar hér og hefur yfirleitt verið öndvegistíð að undanförnu. Flestir bændur eru þó skammt komnir með slátt ,enda hafa þurrkar verið fremur daufir. Sprétta er betri en í meðalári. Það hefur einnig tafið fyrir slætci að menn hafa verið að rýja fé sitt. — E.H. Mykjunesi, Holtum, 3. júlí. — Heyskapur gengur hægt hér í Holtum, enda hafa ekki verið miklir þurrkar að undanförnu, enda þótt veður hafi verið gott og engar rigningar. Sumir bændur byrjuðu aðeins að bera niður upp úr 20. júni, en flestir hafa verið að byrja slátt síðustu dgaana. Lít- ið hefur verið hægt að þurrka ennþá. Spretta er nú vðast hvar orðin ágæt og því orðið mál að slá. Vantar nú ekki annað en góðan þuirk til þess að heyskapur hefj- ist að fullum krafti. Einstaka bændur hafa verið að setja í vot- hey undanfarna daga, en aðrir hafa verið að rýja og marka. — M.G. Útsvorsskrá í Kjósarhreppi ÚTSVARSSKRÁ í Kjósarhreppl yfir þá, sem bera 5000 kr. útsvar og þar yfir. Sr. Kristján Reynivöllum S.OOO Njáll í Ásgarði........ 7.500 Guðm. Möðruvöllum .... 7.000 Jón á Morastöðum....... 7.000 Hjörtur á Eyri......... 6.000 Lárus í Káranesi....... 6.000 Ólafur Á., Valdastöðum 5.500 Gylfi á Grímsstöðum ., 5.500 Jón í Blönduholti ..... 5.000 Bjarni á Þúfu ......... 5.000 Alls voru lögð kr. 258.850.00 á 100 gjaldendur. Helztu útgjaldaliðir eru þessir: 1. Sveitarstjórn...... 15.000 2. Framfærsla ........ 30.000 3. Tryggingar ........ 60.000 4. Menntamál ......... 70.000 5. Samgöngumál ....... 40.000 6. Landbúnaður ....... 25.000 7. Sýslusjóður ...... 14.000 8. Vextir og afborgun .. 13.000 9. Raforkusjóður...... 20.000 10. Til Barnaskólans .. 20.000 Valdast. 30/6 ’59. SL G. skrifar úr daglego lífinu ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.