Morgunblaðið - 05.07.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.07.1959, Blaðsíða 11
Sunnudagur 5. júlí 1959 MORCUNBLAÐLÐ II ^J^venj/yjóÉin lieimiíiÉ Sjúkdómur í munni algeng- asta orsök tannmissis — segir Guðrún Gísladóttir tannlæknir NÝLEGA er komin til landsins frú Guðrún Gísladóttir, tannlækn ir, en hún hefur undanfarið ár stundað framhaldsnám í tann- holdssjúkdómum í Bandaríkjun- um, og lauk prófi í þeirri grein við Tufts-háskólann í Boston fyrir skömmu. Þar sem við vit- um ekki til að neinn stUndi hér lækningar í þessari sérgrein, snerum við okkur til Guðrúnar og báðum hana um að segja okk- ur eitthvað um þetta efni. — Já, það er rétt, þessi grein er lítt kunn meðal almennings hér á landi, hefur aðeins verið kennd bóklega í tannlæknadeild Háskólans hér. I Bandaríkjun- um er það sifellt að færast meira í vöxt, að tannlæknar leggi fyrir sig einhverja sérgrein, alveg eins og læknar, og almennir tann- læknar vísi til þeirra eða þeir hver til annars. Við Tufts-háskól- ann, sem er einn af kunnustu lækna- pg tannlæknaskólum Bandaríkjanna, eru t. d. sérstak- ar framhaldsdeildir fyrir tann- réttingar, rótaraðgerðir, barna- tannviðgerðir og krónu- og brú- argerð. Það er þó tiltölulega nýtt í Bandaríkj unum að kennd sé í háskólum verkleg meðfarð tann- holdssjúkdóma eða periodontia, eins og það heitir á erlendum málum. Þetta er í rauninni ekki sérgrein, heldur aðeins fullkomn- ari tanntækni. Þessi grein af tannlækmngum fjallar um sjúkdðma, sem eiga sér stað í umhverfi tannanna, í holdinu, beinunum og slímhúð- inni. Þar er auðvitað um fjöl- marga sjúkdóma að ræða, og oft Það er sjaldan hægt aff nota svona flíkur hér á íslandi, en fyrir þær sem ætla í sumarfrí suður á einhverja baðströnd- ina er þetta snotur skyrtujakki til að bregða sér í utan yfir sundbolinn. sjúkdóma, sem geta borizt frá umhverfi tannanna út í aðra líkamshluta. Bakteríur eru þar í raka og hæfilegri hlýju og eiga auðvelt með að komast þessa leið inn í blóðið, t. d. ef tannsteinn nuddar holdið og opnar leiðina. Okkar verkefni er að lækna sjúk- dóma í munni með meðulum eða uppskurði, ef á þarf áð halda. — Er einhver sérstakur sjúk- dómur í munni algengari en aðr- ir? — Já, langalgengasti sjúkdóm- urinn er það sem á erlendu máli nefnist pýorrhea ég kann ekkert nafn á honum á íslenzku. Hann lýsir sér í ^jólgum í tannholdi og pokamyndunum, sem getur orðið útferð úr, og þegar til lengdar lætur eyðist festing tannanna. Þetta er langvarandi sjúkdómur, sem gerir lítt vart við sig, fyrr en hann er kominn á það hátt stig, að tennurnar hafa misst festingu sína að mestu eða öllu léyti. Þetta er langalgengasta or- sök tannmissis eftir 38 ára aldur, en ekki tannskemmdirnar, eins og margir halda. — Og hvað þá? — Þá getur svo farið að ekki sé lengur hægt að bjarga tönn- unum. Aðalatriðið er að fyrir- byggja að svo langt gangi með tannhreinsun eða öðru, en þá verður sjúklingurinn að vinna með tannlækninum og fara eftir leiðbeiningum hans. — Ög hvað á maður helzt að gera sjálfur til að halda í tenn- urnar sem lengst? Tennurnar á að bursta 10 mín. eftir máltíð — Aðalatriðið er að bursta þær vel og það ekki seinna en 10 mín. eftir hvei’ja máltíð. Okkar fæða er orðin svo fíngerð og breytt frá því sem áður var, að tennurnar Guðrún Gísladóttir slitna ekki eðlilega og ekki reyn- ir nægilega á gómana. Tannlækn- arnir verða því nú að slípa af það sem fæðan sleit áður og einstaklingarnir verða að kunna að bursta tennurnar og upp á gómana, til að örva blóðrennslið, en það verður þó að gera á þann hátt að það ekki særi. A tann- viðgerðarstofu skólans í Boston kenndum við sjúklingunum að bursta tennurnar rétt. Hirðing gómanna er ekki síður nauðsyn- leg en tannhirðingin sjálf. Ef rétt er með farið, getur einstakling- urinn tryggt sér það að halda öllum sínum tönnum. Eitt langar mig til að nefna í þessu sambandi. Þó fólk sé búið að fá „falskar" tennur, er málið alls ekki afgreitt fyrir fullt og allt. Það þarf að láta fvlgjast með því að gómarnir erti ekki, því allt sem ertir, getur orsakað bólgur. Ég hef t. d. fengið til mín á stofuna í tannlæknaskólanum, konu, sem var búin að ganga með tennur, sem ekki fóru nægilega vel, í 19 ár. Slímhúðin var öll orðin þrútin. Þegar þannig er ástatt er hætta á í.ð þetta geti orðið illkynjað. — Þú minntist áðan á upp- skurði. Þarf fólk að leggjast inn í sjúkrahús, ef skera þarf í tann- holdið? — Nei, það eru yfirleitt ekki neinir stórskurðir. Við fram- kvæmdum slíka uppskurði á við- gerðarstofunum. Sjúklingurinn getur verið á fótum og í vinnu. Hann fær aðeins úmbúðir, sem þurfa að fá tíma til að harðna, og síðan getur hann farið sinna ferða. Við fengum að sjálfsögðu æfingu í slíkum uppskurðum í tannviðgerðarstofu skólans, en þar unnum við alla daga frá kl. 8—12 og 1—4, og áttum svo að sækja tíma og undirbúa okkur undir þá þar fyrir utan. Kennar- arnir voru ákaflega strangir og vinnúharðir. En ég var mjög ánægð með þann undirbúning, sem ég hafði fengið hér heima í tannlæknadeild Háskólans. Mér reyndist það haldgóður og al- mennur undirbúningur undir f r amhaldsn ám. Frú Guðrún hefur í hyggju að nota þá sérmenntun í tannholds- sjúkdómum, sem hún hefur nú aflað sér, og ætlar að opna stofu í þeirri grein hér í Reykjavík í haust. E. Pá. Tívolígarðurinn — Opnað kl. 2 í dag — — Fjölbreytt skemmtitæki — Kl. 5 skemmta listamennirnir Lott og Joe Anders Kynnir: Baldur Georgs sem jafnframt sýnir töfrabrögð. TVÖ , , K L O V N 1 ‘ skemmta börnum á Tívolí-sviðinu og útbýta gjafapökkum. í kvöld skemmta Lott og Joe kl. 10. Útidanslekurr á palli Stratos.quintettinn leikur Söngvari: Jóhann Gestsson. Strætisvagn ekur frá Miðbæjarskólanum í Tívolí 110 feta fiskibátur Getum einnig útvegað fiskibáta úr stáli og eik í öllum stærðum frá einni þekktustu skipasiníðastöð Noregs í fiskibátum. Fiskibátar úr stáli Getum útvegað um næstú áramót — ef samið er nú þegar — nýsmíði á einum stálfiskibát ca. 110 smálestir (85 fet). Teikningar, smíðalýsingao* og aðrar upp- lýsingar á skrifstofu okkar. BJÖRN & HALLDÓR Síðumúla 9 —Sími 36030.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.