Morgunblaðið - 10.09.1959, Síða 1
20 sföur
46. árgangur.
197. tbl. — Fimmtudagur 10. september 1959
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mannlausa geim-
farið ndð/sf aftur
WASHINGTON, 9. se'pternber.
— Bandaríkjamenn skutu í
dag á loft Atlasflugskeyti, en
í því var hylki sams konar
því, sem Bandaríkjaménn
hafa smíðað fyrir fyrsta
geimfarann. Þetta tilrauna-
skot misheppnaðist að nokkru
leyti, en þó eru vísindamenn
ánægðir með þessa fyrstu til-
raun. —
Eldflaugin átti að flytja geim-
hylkið austur yfir Brezku V-
Indíur, um 3520 km leið frá
Canaveralhöfða. Tæknilegir gall-
ar voru því hins vegar valdandi,
að hylkið kom inn í gufuhvolf
jarðar miklu fyrr en ráðgert
hafði verið og féll í sunnanvert
Atlantshaf.
Flotaflugvélar fundu það
skömmu síðar og herskip hafði
fiskað það upp fjórum stundum
eftir að því hafði verið skotið.
Fremsta þrep eldflauginnar
hafði ekki losnað frá hylkinu,
sem er 3 metra langt.
Þessi tilraun var fyrst og
fremst gerð til þess að reyna hita
einangrunarefni það, sem notað
er utan á hylkið til þess að verja
geimfarann hinum ofsalega hita,
sem loftmótstaðan veldur, þegai
komið er inn í þéttari loftlög
jarðar úr geimfluginu. Mælitæki
í hylkinu munu leiða í ljós hvort
einangrunin hefur brugðizt. I
hylkinu átti að haldast 27—37
stiga hiti, það er einangrað með
„fiberglas".
Eftirlitsnefndin mun
eiga erfiða daga í Laos
VIENTIANE, Laos, 9. september. — Stjórnarvöldin í Laos búa
sig nú undir að taka á móti eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna,
sem væntanleg er til Laos innan fárra daga. Stjórnarvöldin eru
áhyggjufull vegna þess, að erfitt mun reynast að koma nefndinni
til víglínunnar, því um mjög illgreiðfæran veg er að fara, frum-
skóga, sem margar hættur leynast í.
★ • ★
Er því þess vegna ekki að
leyna, að Laosstjórn óttast að
geta ekki sannað nefndinni kær-
ur sínar á hendur stjórn N-Viet
nam þess efnis, að meginhluti
herliðs kommúnista sé skipaður
hermönnum þaðan.
Talsmaður Laosstjórnar sagði
i dag, að för éftirlitsnefndarinn-
ar til Laos yrði með öllu gagns-
laus, ef hún kæmist ekki til
Moetainous landamærahéraðsins,
en það er mikið skóglendi og
ógreiðfært.
★ • ★
Samtímis var tilkynnt í bæki-
stöðvum hersins, að hersveitir
Laosstjórnar hefðu náð á sitt
vald mjög hernaðarlega mikil-
vægum stað í Muongson dalnum,
en þar er mikill fjöldi kommún-
iskra skæruliða. Þetta virki hef-
ur fjórum sinnum unnizt ávíxl
af Laosher og kommúnistum síð-
an átökin hófust — og er talið,
að kommúnistar leggi nú ailt
kapp á að ná því aftur, en þetta
I Dalai Lama biður
| SÞ ásjár
NEW YOEK, 9. sept. —
í kvöld var Hammar-
skjöld afhent bréf frá
Dalai Lama þar sem
þess var farið á leit, að
Sameinuðu þjóðirnir
tækju Tíbetmálið upp
þegar í stað. Sagðist
Dalai Lama fara þess á
leit í von um að á þann
hátt mætti draga úr hin-
um miklu þjáningum
tíbetsku þjóðarinnar.
er í skóglendi miklu um 30 míl-
ur frá landamærunum við
N-Vietnam.
Dalurinn er morandi af skæru-
liðum — og þeir hafa líka búið
vel um sig í Sam Neua héraðinu
og talið er, að þar sé yfirvofandi
stórsókn af þeirra hálfu.
★ • ★
Bandaríkjamenn eru nú að
hefja flutninga vopna og vista
til Laos, aðallega frá Japan. Þeir
hafa heitið Laosstjórn mikilli að-
stoð, sem aðallega er fólgin í
sendingu léttra vopna «g skot-
færa til landsins.
★ • ★
Utanríkisráðherra kínversku
kommúnistastjórnarinnar lét svo
um mælt í dag, að afskipti Sam-
eínuðu þjóðanna af Laosmálinu
yrðu aðeins til þess að gera mál-
ið erfiðara og alvarlegra. Gagn-
rýndi hann harðlega málsmeð-
ferð Öryggisráðsins og sagði, að
bandarískir ráðamenn stæðu að
henni — og þessir sömu menn
vildu líka senda hersveitir Sam-
einuðu þjóðanna til Laos.
Þetta er fyrsta opinbera yfir-
lýsingin af hálfu Pekingstjórnar
ínnar um Laosmálið.
Mannslífi
bjargað
PARÍS, 9. sept. — Sérstakur
plastútbúnaður til þess að ná
vatni út úr höfuðkúpunni var i
dag sendur með þotu frá Wash-
ington til Lundúna. Á flugvellin-
um þar beið skrúfuþota, sem sam
stundis flaug með lækningatæk-
in til Parísar, en á flúgvellinum
þar beið hjúkrunarlið og lögregla,
sem óku á 80 mílna hraða um göt-
ur Parísar — til sjúkrahúss eins
— þar sem sex mánaða gamall
dauðvona drengur lá. Skömmu
eftir fæðingu var drengurinn
skorinn upp á höfði til þess að
fjarlægja vatn, sem safnazt nafði
í heilabúinu. Fyrir skemmstu
tóku foreldrar litla drengsins svo
eftir þvi, að höfuð hans tók að
gildna óeðlilega mikið. Læknir
gaf þann úrskurð, að skurðaðgerð
yrði þegar í stað að fara fram,
en nauðsynleg tæki skorti og var
beðið um þau frá Philadelphiu 1
Bandaríkjunum. Líðan drengsins
hefur nú batnað.
Þessi litli drengur (til hægri) með vélbyssuna flúði undan
kommúnistaherjunum, sem nú sækja á í Laos. Faðir hans
særðist, þegar kommúnistar gerðu árás á þorpið Xieng Kho
í nánd við landamæri Laos og N-Vietnam. Faðirinn lét litla
son sinn hafa vopn sitt og bað hann að reyna að komast undan
og bera hvatningarorð til hermanna stjórnarinnar. Drengur-
inn brauzt 60 km leið gegn um frumskóginn með félaga sín-
um, sem er með honum á myndinni — og fleiri flóttamönnum.
Vill Mao spilla fyrir
vesturför Krúsjeffs?
LONDON, 9. september. — Ráðstjórnin hefur farið þess á leit við
stjórnir Indlands og hins kommúníska Kína að jafna landamæra-
deilur sínar á friðsamlegan hátt til þess að valda ekki of miklum
viðsjám á alþjóðavettvangi svona rétt áður en þeir Eisenhower
og Krúsjeff skiptast á gagnkvæmum heimsóknum. Hefur þessi
afstaða Rússa vákið mikla athygli.
★
1 opinberri tilkynningu, sem
TASS-fréttastofan gaf út í dag
sagði, að leiðtogar Ráðstjórnar-
ríkjanna væntu þess, að þessi
stærstu ríki Asíu héldu ekki
áfram erjunum, sem ýmis öfl
á Vesturlöndum notuðu til þess
að blása upp nýja stórsjóa í sam-
skiptum austurs og vesturs.
Á Vesturlöndum væri nú meiri
hljómgrunnur en áður fyrir
samningum við kommúnistarík-
in — og ekki mætti gefa and-
róðursmönnum þessarar nýju
stefnu tækifæri til andróðurs.
★
Yfirlýsing þessi hefur vakið
áthygli á Vesturlöndum — fyrst
Maria Callas og Onassis?
MÍLANO, 9. sept: — Herskari
lögfræðinga vinnur nú að því að
jafna reikninga þeirra Mariu
Callas og Giovanni Meneghini og
gera út um skipti fjármuna, því
að nú eru þau að skilja. Bæði
hafa þau undanfarna daga ráðg-
azt mikið við lögfræðinga sína —
og bíða nú í sitt hvoru hótelinu
eftir því að lögfræðingarnir ljúki
störfum, en hvorugt hefur viljað
ræða við blaðamenn um ástandið.
Skipakóngurinn Onassis hefur
verið Mariu Callas mjög hjálp-
legur í skilnaðarmálinu — og
sumir segja, að hann hafi bein-
línis verið valdur að skilnaðin-
um, því Maria fór í langa
skemmtisiglingu með honum
ásamt fleiri gestum á snekkju
Onassis á dögunum. Onassis fór
með Mariu Callas til Mílano
henni til aðstoðar, en í dag hélt
hann þaðan til Feneyja, fór þar
um borð í snekkju sína og sigldi
með konu sinni úr höfn. Neitaði
hann með öllu, að um einhverja
ást væri að ræða milli hans og
Callas. — Síðar fréttist, að
Onassis hefði hætt við siglinguna
— og farið aftur til fundar við
Callas.
og fremst vegna þess, að Ráð-
stjórnin styður ekki opinberlega
kröfu Kínverja, sem sett er
fram í bréfi Chou En-lai til
Nehru, en þar krefst hann þess,
að indverskar landamærasveitir
verði dregnar til baka, því að
þær hafi tekið sér bólfestu á
ákveðnum „kínverskum“ land-
svæðum.
★
Ýmsir telja ljóst, að Kínverja
og Rússa greini á um afstöðuna
til Bandaríkjanna — og enda
þótt leiðtogar kínverskra komm-
únista hafi opinberlega fagnað
Bandaríkjaför Krúsjeffs, bendir
margt til þess, að þeir séu sár-
óánægðir. Ýmsir stjórnmálafregn
ritarar hafa meira að segja vilj-
að halda því fram, að Kínverjar
efni nú til þessara erja með Ind-
verjum til þess að reyna að
spilla fyrir Krúsjeff í Banda-
ríkjaförinni.
Styðja Verka-
mannaflokkinn
BLACKPOOL, 9. sept. — í dag
felldi ársþing brezku verkalýðs-
samtakanna með miklum meiri-
hluta að taka upp aðra stefnu i
kjamorkumálum en þá, sem
Verkamannaflokkurinn berst
fyrir. Forseti flutningaverka-
mannasambandsins bar fram til-
lögu, þar sem gert er ráð fyrir að
Bretar hætti öllum tilraunum
með kjarnorku- og vetnisvopn
og einnig framleiðslu á þeim.
Var tillaga þessi felld með at-
kvæðum rúmlega 5 milljóna
verkamanna, en fulltrúar 2,8
millj. verkamanna samþykktu
hana. Aftur á móti var sam-
þykkt að styðja stefnu Verka-
mannaflokksins í málum þessum,
en hún er sú, að öll ríki afsalí
sér kjamorku- og vetnisvopnum
nema Bandaríkin og Sovétrikin.
Samþykkti þingið með naum-
um meirihluta að mótmæla þeirri
fyrirætlan ríkisstjórnarinnar að
koma upp flugskeytastöðvum fyr-
ir bandarisk flugskeyti.
JMiprgumlilaííi^
Fimmtudagur 10. september.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Sápa borin tvisvar í Geysl.
— 6: Stóraukin útlánastarfsemi bóka
safnanna.
Skákbréf frá Júgóslavíu.
— 10: Ritstjórnargreinar: Óttast sltt
eigið útsvarsfrelsi — Nóg kom-
ið.
— 11: í vondri veröld er ekkert frið-
lýst land. Rætt við Thor Thors
sendiherra.
— 18: íþróttir.
De Gaulle boðar nýja stefnu
PARÍS, 9. september: — De
Gaulle sagði í dag, að fundir
hans og Eisenhower hefðu verið
mjög vel heppnaðir í alla staðl.
Jafnframt var upplýst, að de
Gaulle mundi 16. þ. m. gefa ná-
kvæma skýrslu um Alsírmálið og
boða stefnu stjórnarinnar j því
máli. Alsírmálaráðherrann lét
þess getið við þetta tækifæri, að
Frakkar ættu nú betri skilningi
að mæta meðal bandamanna
sinna á þeim erfiðleikum, sem
við væri að etja í Alsír. Ekkert
var upplýst um þáð, hver helztu
atriði hinnar nýju Alsírmála-
stefnu væru, en fullvíst er talið,
að hér sé um nýja stefnu að ræða.