Morgunblaðið - 10.09.1959, Qupperneq 10
10
MORCVIVBL AÐ1Ð
Fimmtudagur 10. sept. 1959
Utg.: H.t. Árvakur Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsscn.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsirigar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
ÓTTAST EIGID ÚTSVARSFRELSI
AÐ hefur löngum þótt
merki taugabilunar og
lélegrar samvizku, ef
maður óttaðist sinn eigin skugga.
Ótti Framsóknar vegna útsvars-
frelsis SÍS hér í bænum er af
svipuðum rótum sprottinn.
Altítt er, að mönnum gremjist,
hversu skattaálögur eru háar.
Hitt er miklu fágætara, að þeir
missi stjórn á sjálfum sér, vegna
þess að allt of lítið eða ekkert
sé á þá lagt. Svo hefur þó nú
farið fyrir forsvarsmönnum SÍS.
Tíminn telur það til ofsókna
„íhaldsmeirihlutans í Reykjavík“
á sam^innufélögin, að SÍS sku.i
nú ekkert útsvar greiða!
En það er ekki „íhaldsmeiri-
hlutinn í Reykjavík", sem ræður
útsvarsfrelsi SÍS. Að vísu er það
niðurjöfnunarnefnd Reykjavík-
ur. sem að þessu sinni komst að
þeirri niðurstöðu, að ekki væri
unnt að leggja neift útsvar á SÍS.
Þar hafa Sjálfstæðismenn meiri-
hluta, en þeir voru ekki einir um
þessa ákvörðun. Fulltrúar allra
flokka í nefndinni voru henni
sammála. Nefndin átti einfaid-
lega ekki annars kost. Hún verð-
ur að fara eftir landslögum, svo
sem hæstiréttur segir, að þau
skuli skilin
★
Allt þangað til 1955 var taiið
að leggja mætti veltuútsvar á SÍS
eins og önnur kaupsýslufyrir-
tæki. Á meðan svo var, vildu
Framsóknarmenn ólmir, að veltu
útsvörin væru afnumin eða a.m.k.
settar væru um þau ákveðnar
reglur, er takmörkuðu mjög þá
álagningarheimild. Sérstök netnd
vann þá að endurskoðun skatta-
laga og var vel komin á veg með
að finna lausn þessa vandamáls.
En skyndilega misstu Fram-
sóknarmenn allan áhuga á nýrri
löggjöf um þetta efni. Það var
þegar Hæstiréttur kvað upp dóm
sinn hinn 29. nóvember 1955 í
máli SÍS gegn Reykjavíkurbæ.
Með þeim dómi var viðurkennd
sérstaða SÍS í þessum efnum og
dæmt, að veltuútsvar mætti ein-
ungis leggja á viðskipti við utan-
félagsmenn. í dómnum segir orð-
rétt:
„Ber því að leggja veltuútsvar
á samvinnufélag í Rvík á skipti
þess við utanfélagsmenn, auk
tekjuútsvars á arð af þeim við-
skiptum. En útsvar má hvorki
beint né óbeint leggja á eign
samvinnufélags né skipti þess við
félagsmenn. Tekju- og veltuút-
svar má því alls eigi fara fram
úr hreinum arði samvinnufélags
af skiptum þess við utanfélags-
menn.“
Á árinu 1958 taldi SÍS sig hafa
tapað rúmum 5 millj. kr.
nákvæmlega 5.052.550,47 — á ut-
anfélagsviðskiptum sínum. Niðhr
jöfnunarnefnd taldi SÍS að vtsu
hafa gert meira úr tapinu en rétt
væri, en viðurkenndi þó, að tapið
hefði numið hátt á fjórðu millj.
kr. — nákvæmlega 3.765.311,71
★
Að svo vöxnu máli er gersam-
lega óheimilt að leggja útsvar á
SÍS hér í Reykjavík. Ætla hefði
mátt, að Tíminn tæki með fögn-
uði þessari viðurkenningu niður-
jöfnunarnefndar á þessari góð-
gerðastarfsemi SÍS við utanfélags
menn. Þegar niðurjöfnunarnefnd
birti greinargerð sína, tók Tím-
inn henni með fjandskap og tai-
aði með lítilsvirðingu um „alls
konar tölur og vífillengjur, þar
sem reynt er að afsaka það, að
íhaldið lætur S. í. S. vera útsvars
frjálst að þessu sinni.“ l>á þótci
Tímanum ólíkt betur að SÍS búið
í Kópavogskaupstað, því að hann
hafi „lagt 20 þús. kr. útsvar á
S. í. S. vegna verkstæðis, sem
það rekur í Kópavogi og varð þó
enginn hagnaður á rekstri þess
fyrirtækis.“ Sannast hér enn, að
gott er að eiga góða að og aldrei
bregst Finnbogi Rútur Fram-
sókn! Hann gerir það meira að
segja fyrir hana að leggja út-
svar á SÍS, svo að ranglæti lög-
gjafarinnar verði ekki eins auð-
sætt og ella!
★
Meginatriði þessa máls er, að
útsvarsfrelsi SÍS að þessu sinni,
þrátt fyrir nær milljón kr. tekjr.-
afgang — réttara sagt 882.000,00.
— sannar hversu skatta — og út-
svarslöggjöfin er gersamlega úr-
elt orðin. Með því að segja þenn-
an nær millj. kr. gróða vera af
innanfélagsviðskiptum gerir SÍS
sjálft sig útsvarsfrjálst. Þeir, sem
svo fara að, eru óneitanlega snjall
ir fjármálamenn, eða kunna að
minnsta kosti að telja „rétt“
fram.
Það er hins vegar ánægjulegt
vitni þess, að gagnrýni Morgun-
blaðsins á misnotkun SÍS að und-
anförnu hefur þegar borið nokk-
urn árangur, að Tíminn skuli nú
kippast við og skilja, að of langt
er gengið.
Almenningur sættir sig ekki
lengur við aðfarir SÍS-herranna.
Með þeim er einungis verið að
auka álögur á fólkið sjálft. í
stað þess að stærsta verzlunar-
fyrirtæki landsins taki á sig rétt-
mætan hluta af skattbyrðinm,
safna SÍS-herrarnir í sjóði, sem
þeir síðan verja, eins og þeim
sjálfum þóknast og gleyma þa
aldrei hinni „vissu samstöðu" við
valdabraskarana í forystuliði
Framsóknar.
NÓG KOMIÐ
UTAN UR HEIMI
Hæfileikaskortur
milljóna virði
ItöEsk kvíkmynd, sem engínn
vildi líta við í fyrstu, reynist nú
mesta tekjulindin á markaðinum
ALLT getur gerzt í Ameríku
— segja sumir að minnsta
kosti. — Til dæmis það, að
kvikmynd, sem helzt ekkert
kvikmyndahús upphaflega
vildi kaupa, kvikmynd með
óþekktri „stjörnu“ í aðalhlut-
verki — sem auk þess er alls
ekki kvikmyndaleikari —
verði „aðstandendum“ sínum
meiri tekjulind en áður hefur
þekkzt.
>v
Umrædd kvikmynd hefir þeg-
ar verið gerð í 600 eintökum. Hún
er um þessar mundir sýnd í ekki
færri en 135 kvikmyndahúsum í
New York-borg einni — og er i
þann veginn að verða „tekju-
hæsta“ kvikmynd á bandaríska
markaðinum. — Og allt er það
vegna þess, að einn sniðugur ná-
ungi sér peningana velta, þar sem
aðrir sjá ekki neitt, og hikar ekki
við að eyða nokkrum milljónum
í auglýsingastarfsemi, í þeirri
bjargföstu trú, að hánn fái þær
aftur — margfaldar.
Sem sagt — ,,spennandi“
♦ Maðurinn heitir Joseph E. Lev-
fne, 53 ára gamall Bandaríkja-
maður, sem fengizt hefir við hin
margvíslegustu störf um dagana.
Hann hefir verið blaðasali, söiu-
maður, veitingaþjónn og öku-
kennari — svo að nokkuð sé
nefnt. Og loks tók hann að fást
við dreifingu kvikmynda. —-
Fyrir nokkru sá Levine ítalska
kvikmynd, sem nefnist „Herkúl-
es“. Myndin þykir gersneydd list-
rænum hugmyndum, en aftur á
móti er þar gnótt litríkra atburða
— og fjöldi fagurra kvenna. Sýnd
ir eru skipstapar, landskjálftar
og aðrir æsandi viðburðir — sem
sagt „spennandi". — Og síðast
en ekki sízt, að dómi Levines, er
aðalhlutverkið, Herkúles, „leik-
ið“ af Steve nokkrum Reeves,
sem á sínum tíma var kjörir.n
„Herra Ameríku", en það þýðir,
að hann hefir óvenjulega vöðva-
stæltan líkama.
Tvö hjörtu !
MOSKWJ, 8. sept. (Reuter).
— Rússneskur vísindamað-
ur lét svo um mælt hér í
dag, að þess verði e. t. v.
ekki langt að bíða, að
skurðlæknar gæti fjarlægt
sjúkt hjarta eða lungu úr
mönnum og grætt heilbrigt
líffæri í staðinn, sem tek-
in væru úr látnu fólki, er
dáið hefði af öðrum orsök-
um en hjarta- eða lungna-
sjúkdómum.
Ennfremur sagði vísinda-
maðurinn, Vladimir Domi-
kov, að það væri „vísinda-
legur möguleiki“ að búa
sjúkling tveim hjörtum,
sem störfuðu samtímis.
Framleiðendur kvikmyndarinn
ar höfðu um nokkurra ára skeið
reynt að koma henni á framfæri
við bandaríska umboðsmenn —
án árangurs. Þeir vildu ekki við
henni líta. — En Levine þóttist
viss um, þegar hann sá hana, að
I einmitt slíka mynd mundi al-
menningur flykkjast til að horfa
á, ef hann aðeins fengi um hana
að vita. Hann keypti því kvik-
myndina, lét setja í hana enskt
tal — og hóf einhverja hina mögn
uðustu auglýsingaherferð, sem
um getur í Bandaríkjunum — og
er þá nokkuð sagt.
☆
Vinsæll hrærigrautur
♦ Talið er, að auglýsingakostnað-
urinn nemi til þessa sem svarar
20—25 milljónum ísl. kr. — Lev-
ine auglýsti í útvarpi og sjón-
varpi, hann gaf út litmyndahefti
um Herkúles, og hanh fékk mat-
sölustaði til þess að selja „Her-
kúles-hamborgara“ — svo nokk-
uð sé nefnt. Brátt var talað um
hann Herkúles um gervöll Banda
ríkin — og svo kom kvikmyndin,
þegar búið var að vekja nægi-
legan áhuga á efninu. — Hún er
,Herra Ameríka“ sem Herkúles
— „vöðvaleiklist"
þegar orðin einhver mesta tekju-
lind, sem um getur, á sínu sviði
— enda þótt „efni“ hennar sé
nánast ekki neitt, eða a. m. k.
einstæður hrærigrautur. Þar er
t. d. hvað eftir annað ruglað sam-
an sögunum um Herkúles pg
Samson, og annað eftir því. Og
Steve Reeves, sem virðist ger-
samlega sneyddur leikhæfileik-
um — notar vöðvakraftinn í stað
inn. Áhorfendum virðist hins
vegar líka sá „leikmáti“ ágæt-
lega.
„Vöðvafjallið" Reeves, sem var
kjörinn „Herra Ameríka" árið
1947 — en var löngu fallinn í
gleymsku — er nú skyndilega
kpminn í tölu tekjuhæstu kvik-
myndaleikara heimsins — þó svo
honum sé fyrirmunað að gsta
sýnt af sér nokkuð, sem kalla má
leiklist.
☆
Meira af svo góðu
♦ Og nú ætlar ítalsk-amerískt
kvikmyndafélag að gera fram-
hald af myndinni um Herkúles —
og auk þess á Reeves að „leika'*
í tveim öðrum myndum, sem að
líkindum verða af svipuðum
gæðaflokki og hin fyrsta. Mynd-
irnar eru „Síðustu dagar Pomp-
eii“ og „Orrustan við Marathon“.
„Ef t. d. annar hvor þeirra
Victors Matures eða Clarks
Gables hefði verið látinn leika
aðalhlutverk í slíkum myndum,
hefði ekki nokkur lifandi sál
viljað sóa fjármununum í að sjá
þær.“ er haft eftir Levine. „En
nú er það Reeves — allir vilja
sjá vöðvana hans, og satt að segja
kemur fjöldi manns aðeins til
þess að forvitnast um, hvort
myndin sé raunverulega eins ié-
leg og af er látið. En það gerir
ekkert til — það, sem skiptir
máli, er að fólkið sæki myndina,
af hvaða ástæðum sem það er.“
„Mótmæladogur" n Möltu
☆
STÖÐUGT berast nýjar
fregnir af yfirgangi og
lögbrotum varnarliðs-
manna á Keflavíkurflugvelli.
Tíminn og Þjóðviljinn gera nú
raunar mun meira úr árekstrum
við varnarliðsmenn en á meðan
V-stjórnin sat. Þá þótti henta að
reyna að draga dul á það, sem
miður fór í því skyni, að fremur
gleymdust svik Framsóknar og
kommúnista á loforðinu um brott
rekstur hersins. En óheilindi þess
ara flokka í varnarmálunum
skipta hér minnstu máli.
Sá yfirgnæfandi meirihluti ís-
lendinga, sem enn telur þörf á
vörnum íslands, krefst þess hik-
laust, að varnarliðsmenn virði
íslenzk landslög. Tafarlaust verð
ur að bæta úr því, sem misfarið
hefur í þessum efnum. Þeir, sem
af sér hafa brotið verða að hljóta
þá refsingu, sem þeir hafa
unnið til. Umfram alt ber að
tryggja, að sams konar hneyksli
endurtakist ekki héðan í frá.
VALETTA, Möltu, 8. sept. —
(Reuter) — Dom Mintoff, foringi
verkalýðsflokksins og fyrrver-
andi forsætisráðherra, hélt ræðu
á fjölmennum útifundi, sem hann
hafði boðað til í dag til þess að
mótmæla brezkum yfirráðum á
Möltu. Nefndi hann daginn í dag
„Mótmæladaginn“. — Mintoff
kvaðst hafa gert uppkast að „mót
mælabréfi“ til Macmillans for-
sætisráðherra. Las hann það upp
fyrir mannfjöldanum og óskaði
■ eftir samþykki við því, að hanu
sendi það. MikiII meirihluti við-
staddra rétti upp hönd til sam-
þykkis.
I bréfinu segir m. a, að Möltu-
búar muni hafna allri samvinnu
við 3reta „í friði og stríði“, þar
til þrezkum yfirráðum á Möltu
sé lokið. Einnig er í bréfinu vís-
að til stofnskrár og mannréttinda
yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna
og Bretar beðnir að halda þær
í heiðri „með því að veita Möltu-
búum sjálfsákvörðunarrétt“.
Og fólkið streymir til þess að
horfa á „vöðvafjallið“ — i
milljónatali. En Josep Levine
mokar upp peningum fyrir kvik-
myndina, sem enginn vildi sja í
fyrstu. —
í allri auglýsingaherferðinni
hefir hann vandlega forðazt emn
hlut. Hann vill alls ekki sjá
Reeves í Bandaríkjunum. „Hann
lítur ósköp hversdagslega út full-
klæddur," segir Levine, „og það
gæti spillt fyrir „businessinum“,
ef fólk fengi að sjá hann þannig."