Morgunblaðið - 20.10.1959, Blaðsíða 22
22
MOnCTlTVni. 4Ð1Ð
T>riðiudaEur 20. okt. 1959
Ríkhar&ur skritar trá London:
Pl Hér er það harkan
og hraðinn er gildir
iÞRÓTTASÍÐUNNI hfeur borizt
bréf frá fyrirliða ísl. landsliðs-
ins, Ríkharði Jónssyni, sem nú
dvelur hjá hi*iu fræga enska
knattspyrnuliði Arsenal í Lon-
don, en svo samdist um fyrir
brottför hans, að hann mundi
lofa ísl. knattspyrnumönnum að
fylgjast með Englandsdvöl sinni
fyrir milligöngu íþróttasíðunnar.
Kaflar úr bréfi Ríkharðs fara
hér á eftir.
'A’ Ekkert gauf
„Ég bý hér með þremur leik-
mönnum Arsenal, tveimur frá
Glasgow og einum frá Dublin.
Ég hugsa að um helmingur leik-
manna Arsenal séu Skotar og
írar. Við æfum á hverjum
morgni frá kl. 10 til 12. Þessar
æfingar eru svipaðar og undir-
búningsæfingar sem ég hef van-
izt, og álíka erfiðar. En munur-
inn er sá að þetta er á hverjum
degi. Aðrar æíingar með knött-
inn miða allar að sama marki,
en það er að hlaupa í auða rúm-
ið. Ef menn eru of svifaseinir að
hlaupa í eyðuna, bíður ekki sá
er boltann hefur, heldur gefur
þangað eigi að síður — því þar
á að koma maður.
Svona er þetta hér, og það
þýðir ekkert gauf. Hér gildir
ekki hálf ferð. Og það þarf hörku
líka — já ég sagði hörku, hún
er mikil hér, bæði hraði og
harka. Þetta tvennt mótar hverja
hreyfingu á hverri æfingu. Mér
finnst harkan full mikil. Hér
sjást varla innanfótarsendingar,
ekki þetta stutta spil frá manni
til manns, heldur langar sending
ar og hraðari hlaup, sneggri
augnablik og stundum skemmti-
legri.
-A Sjón er sögu ríkari
Af því sem ég enn hef séð af
leikjum ber hæst leikur Úlfanna
við Tottenham í Tottenham, en
þetta eru tvö efstu liðin í deild-
arkeppninni. Fyrri hálfleikurinn
var mjög jafn, en Úlfarnir sem
eru frægir fyrir hörku, ætluðu
sér auðsjáanlega að vinna á
henni, en Tottenham svaraði í
sömu mynt, og bættu spili við,
og var staðan 2—1 í hléi. í síð-
ari hálfleik réði Tottenham öllu
um gang leiksins og léku snilld-
arlega á köflum og unnu 5—1.
Bobby Smith skoraði 4 mörk —
gráðugur leikmaður það. Eitt
markið kom þannig að Úlfunum
var dæmd aukaspyrna á Totten-
ham rétt við sinn eigin vítateig.
Fyrirliði Úlfanna ætlaði að gefa
til markvarðar síns — og gerði
— en ekki betur en það að
Smith komst á milli og skoraði.
Ekki þætti það gott heima?“
Síðan horði ég á Arsenal sigra
„Grasshoppers" lið frá Zurich í
Sviss, 8—2 á Highbury. Sá leik-
ur fór eins og aðrir kvöldleikir
fram í flóðljósum. í gær sá ég
f Millwall leik Portsmouth gegn
Millwall (2. deild) og endaði sá
leikur sem var mjög lélegur með
2—2. Miðherji Portsmouth slas-
aðist illa á fyrstu mínútum
leiksins, er honum var hrint út
af vellinum og á steinkant sem
er umhverfis völlinn. Lenti
höfuð hans á steinkantinum.
Honum var vart hugað líf í gær-
kvöldi. Hart það.
Með áhugamannaliði
í kvöld verður svo á High-
bury leikur Arsenal og Chelsea
og að sjálfsögðu fer maður þang-
að. Svo þú sérð að það er nóg
að gera.
Nú var alveg búið að taka fyr-
ir að áhugamenn leiki með þess-
um atvinnuliðum hér. Það var al
gengt að Norðurlandaleikmenn
léku hér, sem áhugamenn, en
hér fær enginn atvinnuleyfi. En
svo tíðkaðist það að borga þeim
bak við tjöldin, og það vissu all-
ir, þó enginn sæi. Fyrir þetta var
alveg lokað.
En mér hefur boðizt að leika
með áhugamannaliði hér J Lon-
don, nokkuð góðu segja þeir hér.
Ég reikna með að úr því verði.
Með enska landsliðinu
En svo hljóp heldur betur á
snærið hjá mér í gær. Það er
búið að velja enska landsliðið
sem leika á gegn Wales á laug
ardag (17. otk.) Er enska
landsliðið almennt talið lélegt
og landsliðsnefndin versla
nefnd í heimi — sko, svona
alveg eins. Ég frétti ekki af
því fyrr en í fyrradag að
Winterbottom sem hefur með
landsliðið að gera, hafði óslc-
að eftir að fá leik við Arsenal
á móti landsliðinu og þáði ég
það að sjálfsögðu. Arsenal
hafði kvöldið áður leikið við
„Grasshoppers“ cg notaði þá
helming úr varaliðinu. Á móti
landsliðinu léku 6 úr A-liðinu,
3 úr B-liðinu og 1 úr C-Iiðinu.
En allt fannst mér þetta
„topp“-menn. — En ég fékk
að fljóta með. Og við unnum
landsliðið 3—1 og skoraði ég
þriðja markið framhjá út-
hlaupandi markverði. Leikur
inn fór fram á Highbury og
verður eflaust fyrsti og síðasti
leikurinn minn þar og jafn-
framt fyrir Arsenal.
— Rikharður.
Þannig segir Ríkharður í bréf
inu til íþróttasíðunnar. Því má
við bæta að Arsenal bað ekki um
keppnisleyfi fyrir hann fyrr en
eftir að bréf hans er skrifað svo
það lítur helzt út fyrir að þeim
háu herrum hafi litizt vel á leik
hans gegn enska landsliðinu og
viljað fá hann fyrir Arsenal en
ekki áhugamannaliðið sem áður
er nefnt.
Danska blaðið „Ekstrabladet"
skýrir frá leiknum við landslið-
ið og segir að „íslendingurinn
Richi Johanson“ hafi skorað
þriðja markið, en hann dvelji nú
í London og „muni leika fyrir
áhugamannaliðið Kingstonian.
Þetta segir Ekstrabladet —en við
fáum vonandi fljótt að heyra
aftur frá Rikharði. — A.St.
Giæsií&ff sundutreik
í iandskeppni
r trm rm m ,
m SvMpjao
SVÍÞJÍÆ) og Austur-Þýzkaland
efndu um helgina til landskeppni
unglinga í sundi. Fór keppnin
Svíþjóð vann
Noreg 6:2
í FÖGRU haustveðri léku Svi-
þjóð og Noregur knattspyrnu
landsleik á Ulleval leikvangin-
um í Gautaborg á sunnudaginn.
50 þús. áhorfendur voru að leikn
um sem lauk með sigri Svíþjóðar
6 gegn 2. Staðan í hálfleik var
3 gegn 0.
Það voru liðnar 66 mínútur af
leik er Norðmönnum tókst að
skora en við það jafnaðist leik-
urinn. Fram að því var mikil
ringulreið í norsku vörninni og
leit út fyrir stórsigur Svía —
skrifað með tveggja starfa tölu.
fram í Gautaborg og lauk með
sigri Svíþjóðar 101 stig gegn 89.
Ný sænsk met voru sett í 100
m baksundi kvenna þar sem Bibi
Segerström synti á 1:12,8 mín
(gamla metið var 1:13,8 mín.),
í 4x100 skriðsundi kvenna 4:25,5,
í 100 m flugsundi kvenna þar
sem Kristina Larson synti á
1:12,5 (gamla metið var 1:12,8),
í 400 m skriðsundi kvenna þar
sem Bibi Segerström synti á
4:56,6 (gamla metið var 4:57,4)
og loks í 4x100 m fjórsundi
kvenna þar sem sænsku stúlkurn
ar syntu á 4:55,4 mín.
Eitt A-þýzkt met var sett —
í 100 m skriðsundi kvenna þar
sem Giesela Weiss synti á 1:04,9
mín. Heide Menge, upprennandi
stjarna synti 200 m bringusund
kvenna á 2:49,9 mín., sem er
einhver bezti tími sem náðst hef-
ur í heiminum í ár.
— Fréttaritari.
ÍR sígraði í hraðkeppni
leik eftir fvísýnan leik
Og KR-stúlkurnar sigruðu í kvennaflokki
ÞRÓTTUR gekkst fyrir hrað-
keppni í handknattleik um helg-
ina og var keppni fjörug og
skemmtileg. í karlaflokki fór ÍR
með sigur af hólmi, sigraði Ár-
mann f úrslitaleik eftir tvífram-
lengdan leik. í kvennaflokki sigr
uðu KR-stúlkurnar eftir harða
og jafna keppni við Ármann.
Sex lið tóku þátt í keppni
kvenna og fóru leikarnir svo:
Ármann vann Þrótt með 8—1.
KR vann Víking með 11—4.
Og í úrslitaleik á sunnudags-
kvöld sigraði KR lið Ármanns
með 5 mörkum gegn 4.
í keppni karla tóku þátt 9 lið.
Á laugardaginn fóru leikar svo:
Fram — KR 11:9.
Ármann — Afturelding 8:6.
ÍR — Þróttur 7:6.
FH — Valur 11:6.
Víkingur sat yfir.
Mynd þessi birtist í ýmsum þýzkum blöðum daginn eftir að
FH lék fyrsta leik sinn í Þýzkalandsferðinni. Þá vann FH lið
Lúbeck með 28 gegn 19. A myndinni sést er Árni Ziemsen
ræðismaður afhendir Valgarð Thoroddsen, form. FH, gjöf.
FH mjög hrósað fyrir
góða leiki í Þýzkalandi
ÍSLANDSMEISTARAR FH í
handknattleik hafa nú leikið
4 leikiíÞýzkalandsför sinni. Hafa
íslandsmeistararnir ávallt farið
með sigur af hólmi.
Ekki er kunnugt um hvaða lið
Hafnfirðingarnir hafa sigrað en
blaðaklippur hafa borizt með
umsögnum um fyrsta leikinn við
Lubeckers Turnerschaft. Þann
leik vann FH jneð 28—19.
„Lúbecker Morgen" segir: ísl.
liðið var fyrsta flokks lið og
staðan eftir skamma stund. vhr
8—0 því í vil og í hlei stóð 18
gegn 6. í síðari hálfleik náðu
Lúbeck-menn betri tökum á
leiknum sem lyktaði 28—19.
ísl. liðið sem telur 7 landsliðs
menn sýndi kunnáttu í innan-
húshandknattleik í sínu æðsta
veldi. Sérstaklega snjall var
Ragnar Jónsson og einnig sýndi
Birgir Björnsson framúrskar-
andi leik. Allir aðrir leikmenn
féllu vel í ramma liðsins og var
liðið í heild að minnsta kosti
einum flokki ofar og betra hinu
þýzka. Blaðið hrósar og Hjalta
Einarssyni markverði mikið.
„Lúbecker Nachrichten“ segir
m.a. Yfirburðamaður á vellinum
var Ragnar Jónsson sem skoraði
16 mörk. Blaðið hrósar og Birgi
Björnssyni og Hjalta markverði
og segir að hæfileikar hans hafi
verið undraverðir og hann hafi
með frábærum leik gert Lúbeck-
menn höggdofa.
Ragnar skoraði 16 mörk, Birgir
5, Pétur Antonsson 3, Birgir
Jónsson, Einar Sigurðsson og
Sigurður Júlíusson sitt hvert.
Togararnir afla nú dável
HAFNARFIRÐI. — Tveir togar-
ar héðan, Röðull og Surprise,
hafa siglt með afla sinn á Þýzka-
landsmarkað, en hinir enn sem
komið er lagt aflann á land hér.
Röðull hefir selt tvívegis, án
þess að koma við í heimahöfn, og
í bæði skiptin náð mjög góðum
sölum. Surprise seldi fyrir nokkr
um dögum — fyrir tæp 90 þús.
mörk — og er nú á heimleið, en
hann heldur beint á miðin án
þess að koma hér við. Hafa tog-
ar þeir, sem siglt hafa með afla
sinn, einkum verið að veiðum
fyrir austan land, en hinir út af
Vestfjörðunum, á Halanum og
víðar. Ágúst. sem kom í síðustu
viku með 265 tonn af karfa, var
t.d. á Nýfundnalandsmiðum, —
og Júní kom af sömu miðum í
gær, og mun hann vera með um
220 tonn. — Bjarni riddari er nú
á veiðum fyrir erlendan markað.
Af bátunum er það að frétta,
að þeir hafa verið í „klössun“
hér i slippnum eða við bryggj-
urnar eftir síldveiðarnar í sum-
ar, en eru nú að búa sig á rek-
netjaveiðar. Engin síldveiði hef-
í handknatt-
Á sunnudag mættust fyrst Vík-
ingur og Fram og vann Fram
10:6. Þá mættust ÍR og FH og
sigraði lið ÍR með 10 gegn 7. Ár-
mann og Fram mættust síðan og
sigraði lið Ármanns óvænt með
13 gegn ll og mættust þá í úr-
slitaleik lið ÍR og Ármanns. Var
sá leikur afar jafn og tvísýnn, og
varð tvívegis að framlengja til
þess að fá úrslit. Fyrir aðra
framlengingu hafði Ármann
náð 1 marks forskoti en á síð-
ustu sekúndu var dæmd víta-
spyrna á Ármann sem ÍR tókst
að jafna úr — og síðan að sigra
12 mörk gegn 11.
ir verið fram að þessu, en nú gera
sjómenn sér vonir um að síldin
fari að láta sjá sig. — G.E.
— Gjöf F. í. I.
Frh. af bls. 3.
ustu, samtímis því að veita þeim
sem við hann starfa bezta lífsaf-
kOiiiu. Því takmarki teljum við að
bezt verði náð með aukinni verk-
fræðslu, sem tímarnir krefj.
ast. Okkur þótti því viðeigandi
að sýna starfsfólkinu nokkurn
virðingarvott á 25 ára afmæli fé-
lags þess, sem jafnframt gæti
orðið til gagns fyrir alla aðila um
ókomna framtíð.
— Er mikið samstarf milli fé-
lags iðnrekenda og félags verk-
smiðjufólksins?
— Eins og gefur að skilja hef-
ur alltaf verið mikið samstarf
milli þeirra sem starfa fyrir fyrir
tækin og þeirra sem stjórna þeim.
Og alltaf hefur þurft að vera
nokkuð samstarf milli félaganna.
— f tillögunni um sjóðsstofn-
unina er talað um að markmið
hans sé að stuðla að aukinni
menntun og þjálfun iðnverka-
fólks. Er gert ráð fyrir að sjóð-
urinn verði notaður á einhvern
ákveðinn hátt?
— Nei, það verður ákveðið fé-
lagslega af hálfu Iðju og Félags
iðnrekenda hvernig þessu máli
verði skynsamlegast ráðið, sagði
Sveinn Valfells að lokum.
BAGDAD, 16. okt. — Almennt er
álitið í Bagdad, að Nasser haíi
staðið á bak við banatilræðið við
Kassem. Skýrt hefur verið frá
því, að afhjúpað hafi verið enn
eitt samsæri gegn Nasser og
stjórninni. Alþýða manna í Bag-
dad undirbýr nú miklar sauða-
fórnir og hátíðahöld í sambandi
við komu Kassems úr sjuxra-
húsinu.