Morgunblaðið - 06.11.1959, Síða 17
Föstudagur 6. nóv. 1959
MORCVNTÍL4ÐIÐ
17
Frú Elísabet
SSgurÖar-
dóttir Hagen
Minning
ÞANN 14. október andaðist í Ála-
sundi í Noregi, frú Elísabet Sig-
urðardóttir Hagen, eftir erfiðan
sjúkdóm, og oft sárþjáð, sem hún
bar með stillingu og þolinmæði.
þar til yfir laulc. Elísabet ólst
upp á ísafirði, hjá foreldrum sín-
um, Guðbjörgu Eyjólfsdóttur og
Sigurði Þórðarsyni, sem bæði eru
látin. Tvö systkini Betu eru á
lífi, því svo var hún kölluð í dag-
legu tali. Þau eru Eiður, og frú
Helga, búsett í Reykavík. — Ég
sem þessar línur rita man hana
sem barn í glöðum systkinahóp,
og einnig, þegar hún var ung
stúlka, trygg og vinföst. Við Beta
stunduðum sömu atvinnu í mórg
ár, og hef ég ekki átt betri vin-
konu en hana. En síðan skiidu
leiðir, því að Beta sigldi til Nor-
egs og ílengdist þar. Hún giftist
norskum pilti, Harald Hagen, að
nafni, stofnuðuþausitt eigið heim
ili, er bæði var hlýlegt og myndar
legt. Tvo syni eignuðust þau,
annan drenginn misstu þau ung-
an, en hinn lifir móður sína, og
á eflaust um sárt að binda, því
h«nn hefur misst mikið, enda þótt
fáðirinn sé góður, þá er móður-
höndin betri. Ég veit að sökn-
uðurinn er sár hjá peim feðg-
um. Bið ég guð að styðja þá og
styrkja, sömuleiðis systkini henn
a-. — Beta k^..i kkrum sinnum
til fslands, að hitta systv.r sína
og frændfólk. Nú er hún horfin
af sjónarsviðinu, sem allir verða
að hlýða, þegar kallið kemur.
Bvo kveð ég þig, vina mín og
þakka þér fyrir allt, fyrr og
síðar.
Belssuð sé minning hennar.
Vinkor.a.
Hvað líðisr lygg-
ingu „Ævikvölds44?
JÓHANN heitinn Jóhannesson,
kaupmaður (d. 1914), óskaði þess
eindregið ,að kjör ellimæddra
einstæðinga yrðu betri en þau
voru í æsku hans. Af þeim sök-
um ánafnaði hann í því skyni
álitlegri upphæð að þeirra tíðar
mælikvarða, er skyldi ávaxtast.
Um þetta hefur nokkuð verið rætt
og ritað fyrr og siðar, og hefi ég
áður minnzt á þetta í dagblaðinu
Vísi og hirði ég ekki um að rifja
það upp fyrir lesendum.
Aðalatriðið er, að nú verði haf-
izt handa um að hrinda í fram-
kvæmd þessu hugsjónamáli Jó-
hanns heitins Jóhannessonar, er
varð honum jafn hjartfólgið og
raun ber vitni (sbr. skipuiags-
skrá „Ævikvölds", s6m prentuð
er í Stjórnartíðindum). Leyfi ég
mér því að beina þeirri áskorun
til forráðamanna ,,Ævikvölds“, að
nú verði hafizt handa um bygg-
ingu elliheimilisins, sem stofn-
andi sjóðsins ætlaðist til að yrði
að veruleika.
Á hundrað ára afmæli látmnar
eiginkonu Jóhanns heitins, frú
Sigurbjargar Guðnadóttur eða 13.
apríl 1973, skyldi elliheimilið
opnað til afnota. Og tíminn líður
fljótt, fyrr en oss varir. Sand-
kornunum fækkar i stundaglasi
tímans. Mér vitanlega hefir erm
ekkert verið gert í málinu, hvað
sem því veldur. En þannvg má
ekki lengur verða í þessu nauð-
synjamáli. Því verður nú að hefj-
ast handa. Einkasonur þeirra
látnu hjóna, sem ég hefi minnzt
á, hr. Óskar J. Jóhannsson starfs
maður í vélsmiðjunni Hamri,
myndi óefað verða fús til þess að
starfa í þessu hugsjónamáli föð-
ur síns, sem enn virðist eiga langt
í land að verða að veruleika, því
að hann hefir lifandi áhuga á því,
að þetta komist hið fyrs'.-. til fram
kvæmda og að nú verði hafizt
handa um byggingu elliheimilis-
ins.
Atvinna
Oss vantar lagtækan mann til að annast viðhald,
endurnýjun og eftirlit á farþegarými flugvéla félags-
ins. Væntanlegir umsækjendur sendi skriflegar um-
sóknir er greini aldur og fyrri störf, fyrir 15. nóv.
næst komandi.
Alit á sama stað
C H AIVIP10 H
kRHFTKfRTIH
fáaiileg í alla bíla
Það er sama hvaða tegund bifreiðar þér
eigið, það borgar sig að nota það bezta —
CHAMPION-KRAFTKERTIN
Skiptið reglulega um kerti
Egill Vilhjálmsson hf.
Laugavegi 118, sími 22240
BILLINN
Simi 18-8-33
Til sölu og sýnis í dag
F O R D 1954
Ný komin til landsins. Lítil keyrður og
allur í mjög góðu lagi.
B í L L IIV IM
VARÐARH ÚSIIMU
Sími 18-8-33
Hef opnaA'
tannlœkningastofu
að Skjólbraut 2, Kópavogi. Skoðun og viðgerð á tönn-
um skólabarna í Kópavogskaupstað fer fram
kl. 9—12 f. h. og er sá tími ekki ætlaður öðrum. I
Almcnnur viðtalstími er kl. 2—7 e.h., nema laugar-
daga. Sími 11998.
tiI.l'AK HELGASON, tannlæknir
SKRCFUVIFTUR
300—600 mm í þvermál
dæla allt að 11000 ten.m.
lofts á kist.
Í'KVS’ITBLÁSARAR
Dæla allt að 15600 ten.m.
lofts á klst. þrýstiorka allt
að 180 mm WS.
Til loftræstingar
„THURM“
loftblásarar
smiðjublAsarar
Dæla atlt að 400 ten.m. lofts
á klst. þrýstiorka allt að
125 mm WS.
Uínboðsnienn. K. Þorsteinsson & Co., Tryggvag. 10
Reykjavík — Sími: 1-93-40
Þessi bók örlaganna
er hin merkilegasta spádómabók, sem mannlegur heili hefur
framleitt — Það þarf því enginn að óttast nein vonbrigði,
þegar hann spyr þessa merkilegu véfrétt til ráða. — Hún mun
svara afdráttarlaust, ótvírætt og nákvæmt.
Til þess að skemmta mönnum í samkvæmum er hún tilvalin, og mun þar þykja
bæði eftirtektarverð og skemmtiieg. —
Fæst hjá bóksölum og kostar aðeins 50 kr. — Utgefandinn, pósthólf 462. Rvík.
Ragnar Benediktsson.