Morgunblaðið - 24.12.1959, Side 2

Morgunblaðið - 24.12.1959, Side 2
V 50 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. des. 1959 4 — Afeð Valtý Framh. af bls. 49. Jón Hjaltalín tók við íslenzku kennslu í M.v. skóla, voru stíl- arnir mínir ekki annað en rauð strik, svo varla mátti greina nokkurt orð. Ég hafði ekki vanizt því, að stílarnir væru leiðréttir, en nú horfði öðruvísi við, t. d. var strikað í j í jeg og kunni ég því held- ur illa, enda komst j-ið alla leið inn í Morgunblaðið og réð þar ríkjum um nokkurra ára skeið, setjurum blaðsins til mikillar hrellingar. Áhugi minn beindist mjög snemma að náttúrufræðinni, einkum grasa- og jurtafræði, eftir því sem ég hafði þolinmæði til. Mér fannst það heyra til, að ég legði sérstaka rækt við þetta fag, en þó var ég ekki sterkari en svo í grasafræð- inni, þegar ég tók fyrrahluta prófið við landbúnaðarháskól- ann í Höfn hjá U. G. Peder- sen, að hann neyddist til að gefa mér „temmelig godt, mínus“. Ég var mjög leiður yfir þessari frammistöðu. Mér var ljóst, að faðir minn var brautryðjandi í grasafræði- rannsóknum hér á landi og vildi ekki vera eins og álfur út úr hól, þegar hana bar á góma. Ég varð því að herða á kunnáttunni. Eg vissi að flest- allar íslenzkar jurtategimdir voru varðveittar í grasasafni föður míns, og þegar ég kom heim í sumafrí eftir þessa lé- legu frammistöðu, ræddi ég málið við föður minn og spurði hvort hann gæti ekki kennt mér grasafræði, kunn- átta mín væri í molum og gæti ég ekki unað því. Hann tók málaleitan minni vel og lánaði mér grasasafnið sitt, svo ég gæti hreinskrifað etik- etturnar í safninu. Ég lagði mig mjög fram um námið og vissi nú, að grasafræðiþekk- ingu minni yrði ekki við bjargandi, ef þessi fyrirhöfn bæri ekki tilætlaðan árangur. Faðir minn fylgdist vel með þessu námi, en þegar hann sá, að það gekk sómasamlega, sleppti hann af mér hendinni. Lærði ég svo grasafræði upp á eigin spýtur eftir það. Þeg- ar ég fór að fást við nafn- greiningu á ættum og læra latnesku nöfnin, kannaðist ég við þau og bóttist þess þá full- viss, að það væri erfð frá föð- ur mínum, því öll þessi nöfn voru honum handgengin, en mér alókunnug áður. Ég eyddi samt ekki tímanum í hugleið- ingar um þetta mál, heldur hrósaði happi yfir því, hve námið var mér auðvelt. Þegar ég kom til Reykjavíkur nokkru síðar, hafði ég gaman af að slíta upp allskonar tún- grös, á Arnarhóli og sýna það kunningja mínum Tryggva Þórhallssyni og spyrja hann, hvaða tegund þetta væri. Vallarsveifgras er auðþekkt á blöðunum, en Tryggva tókst ekki að þekkja það frá öðrum grösum á Arnarhóli, hann hristi höfuðið og sagði: „Þetía er bara taða!“ Gafst ég svo upp á þessari „vísinda- mennsku". II. „Náhljóð” Nú heldur Valtýr Stefáns- son áfram að lýsa fólkinu á Möðruvöllum: — Ég hafði afskipti af mörgum á Möðruvöllum, bæði skólapiltum og heimilisfólki. En samt hafa foreldrar mínir nú sennilega haft mest áhrif á mig, því næst Stefán gamli afi frá Heiði í Gönguskörðum og ömniur mínar báðar, Guð- rún og Jórunn. Ólöf gamla á Hlöðum og Halldór, maður hennar, komu oft heim að Möðruvöllum og þekkti ég þau vel. Daginn eftir að Steindór (d. 1902) var jarðaður, brann skól- inn á Möðruvöllum. Fað- ir minn sagði að það hefði verið einskonar líkbál yfir honum. Ég saknaði Stein- dórs fjarskalega mikið og naut hans ekki eins lengi og ég hafði óskað. En svo ég snúi mér að foreldrum mínum, þá var móðir mín óvenjusterk og þrekmikil kona og án áhrifa hennar hefði ég vel getað orð- ið eins og reyr af vindi skek- inn. Þó lét hún ekki mikið yf- ir sér á heimilinu, en það sóp- aði einhvernveginn að henni, án þess að maður tæki bein- línis eftir því. Hún lagði afar- mikið kapp á að gera úr mér nýtan mann, gat t. d. ekki þol- væru unnin og annað þess háttar og þótti mér það bæði fróðlegt og skemmtilegt. Og þegar voraði, lét hann mig fara með sér til lambfjárins að athuga, hvaða ær væru bornar og hvernig þeim hefði reitt af við burðinn. Þetta var hentugt fyrir hann, því ég var svo viljugur að hlaupa á eftir ánum. Allt glæddi þetta áhuga minn á bústörfum og hef ég búið að uppfræðslu Steina ráðsmanns æ síðan. Snemma vors 1904 man ég t. d. vel eftir því, að ég hafði það starf á Möðruvöllum að vera með honum við lambféð. Það spar- aði honum mikla snúninga, að ég skyldi vera með honum í fjallshlíðinni ofan við Möðru- velli að athuga, hvernig sauð- burður hefði gengið. Mér þeir sjónum mínum. Var engu líkara en þeir kæmu frá kirkjugarðinum. Steindór var glaðlegur, en Ólafur virtist alvarlegur á svip með slút- andi roðhattinn fram á ennið, svo trauðla mátti greina and- litið. Fannst mér þeir félagar hafa einhver persónuleg áhrif á mig og þótti sem Steindór leiddi Ólaf á minn fund. Dag- inn eftir fór ég aftur að gæta lambfjárins með Steina og sagði honum alla söguna, en yfirleitt var ég ófús að flíka fyrirburðum sem þessum. Ég man að Steini ráðsmaður sagði eitthvað á þessa leið, þegar ég hafði skýrt honum frá atburðinum: „Ef gamla fólkið vissi þetta, héldi það að það mundi vita á stórtíð- indi“. settur á Akureyri en ekki á Möðruvöllum. Þó hafði hann aldrei látið þessa skoðun í ljós opinberlega. Sumir þoldu ekki létta lund föður míns, þennan gáska og þetta odd- hvassa háð. — Hann gat verið svo meinhæðinn, að margir þoldu hann ekki í daglegri umgengni og vanmátu hann, og fram eftir öllum aldri átti ég sjálfur erfitt með að þola hann með köflum vegna hæðni hans, en samt elskaði ég hann heitt og innilega og virti hann öðrum fremur. Með háðinu særði hann fólk, stundum svöðusár- um, sem voru lengi að gróa. Guðmundur Ólafsson (dáinn 1957), sem var einn bezti nemandi hans á fyrstu árun- um eftir að skólinn var flutt- ÞESSI mynd er tekin af há- tíðargestum sunnan við kirkju garðinn á Möðruvölium (í Barnalautinni). Myndin er tekin á 20 ára afmæli Möðru- vallaskóla. Skólahúsið er lengst til vinstri, þá kemur „Ieikhúsið“ og gamli Möðruvallabærinn, (sést ógreinilega) íbúðarhúsið nýja og kirkjan lengst til I hægri á myndinni. (Ljósmyndari séra Bjarni Þorsteinsson á Siglufirði). að að ég léki mér í ljánni í túninu. Ég minntist á Ólaf Davíðs- son áðan. — Hann var mikill Brandesarsinni. Hann kom aldrei í kirkju að hlýða messu hjá föður sínum. Hann kallaði föður sinn alltaf „séra Davíð“. Það fannst mér ein- kennilegt, barninu, að hlusta á þessa kaldhæðni Ólafs í samskiptum við föður sinn. Ég skildi ekki afstöðu hans, fannst hún ekki til fyrirmynd- ar. Ólafur skrifaði m. a. um „náhljóðið í Möðruvallar- kirkjugarði". Jón Hjaltalín skólastjóri, sem var mjög myrkhræddur, fór að athuga, hvað þetta væri, og kom þá í ljós, að það var marr í sálu- hliðinu og hafði Ólafur gaman af hræðslu Hjaltalíns og reyndi að stríða honum með sögunni. Hann var mikill grín- isti er svo bar undir. Ég held ég hafi verið sam- týmdastur Steina ráðsmanni. Þegar ég var kominn á legg var ég alltaf utan í honum. Ég fór á fætur fyrir dagrenn- ingu til að komast í fjár- húsin méð honum. — Hann gat sagt mér Svo iríargt um bústörfin, í hvaða röð þau þótti upphefð að því að hann skyldi trúa mér fyrir þessu starfi og rækti það eftir beztu getu. Um pað bil sem sauð- burður var hálfnaður á þessu vori, voru nokkrir krakkar gestkomandi á Möðruvöllum seinni part dags og lékum við okkur úti í leik, sem kallaður var „Ásgrímur snoðinkollur", en það var uppáhaldsleikur okkar. Það var hægur and- vari og ljónslappadrífa, en samt ekki svo að tæki fyrir skyggni. Olafur Davíðsson var nýlátinn og hafði ég treg- að hann mjög en var nú að ná mér. Ég var einn „inni“ í leiknum og var tilbúinn að fara út úr Vesturdyrunum á íbúðarhúsinu á Möðruvöll- um, en þá allt í einu sá ég góða kunningja mína tvo koma gangandi fyrir suðvest- urhornið á húsinu. Það voru þeir Ólafur og Steindór, báðir látnir. Ég stóð í suðvestur- skúrnum og horfði fram á hlaðið. Ég varð svo undrandi yfir þessari sýn að mér féll- ust hendur, ekki sízt vegna þess hve þeir voru einkenni- lega búnir, Ólafur, sem drukknaði i Hörgá öndverðan september haustið áður, í blá- um grófum fötum, eins og í lifanda lífi og með roðhatt á höfði, en Steindór í viðhafnar- fötum, hvítum og bar breitt band yfir hægri öxlina, eins og ég hafði séð á myndum, þegar stórmenni voru með heiðursmerki. En Ólafur virt- ist mér haltur, því hann studd ist við Steindór og eins og lá fram á öxlina á honúm. Þeir gengu í átt til mín óg sá ég þá nokkur aUgnablik, en þeg- ár þeir vorú miðja vegu milli mín og hússhornsins hurfu Siðasta veturinn sem Ólafur Davíðsson lifði dreymdi hann að Steindór kæmi til sín og byðist til að sýna honum kirkjugarðinn á Möðruvöllum, hvernig þar væri umhorfs neðanjarðar. Ólafur féllst á það. Eftir lýsingunni að dæma sem ég fékk nokkrum árum síðar hjá fólki sem til þekkti, ferðuðust þeir í garðinum neðanjarðar og sáu kist- urnar, sem þar voru. Þótti þetta fyrirboði þess, sem gerðist um haustið, þegar Ól- afur drukknaði í Hörgá og var það trú manna að Stein- dór hefði viljað vara vin sinn við því, sem í vændum var. Allt í hófi Möðruvallaheimilið hafði sérstöðu á uppvaxtarárum mínum, vegna þess hve fjöl- mennt það var. Þar voru 40 nemendur í tveimur bekkjum, 20 í hvorri kennslustofu. Þeir höfðu með sér matarfélag og kusu sér „matarstjóra". Hann var alltaf kosinn úr röðum efri bekkinga. Ég heyrði oft talað um, að húsnæði skólans væri óhentugt. Það var reist á grunni „Friðriksgáfu" gömlu og því of lítið, en eld- urinn réð bót á þessum vand- kvæðum. Skólinn brann néfnilega í marzmánuði 1902 til kaldra kola. Um það leyti bar á því, að menn sem höfðu horn í síðu föður míns kenndu honum um brunánn, því þeir vissu sem var, að hann vildi flytja skólann til Ákureyrar. Þar þótti honum bétra að nafa sambánd við mértntamenn og vissi að auð- veldara ýrði um Öll áðföng áð skólanum, ef hann væri stað- ur til Akureyrar, síðar kenn- ari á Laugarvatni, hefur sagt mér að hann hafi aldrei getað gleymt því, þegar faðir minn hæddist að skóbúnaði hans. Fyrstu árin sem Möðruvalla- skóli var á Akureyri, var hann til húsa í barnaskólan- um og þá einungis kennt seinni part áags. Guðmundur átti heima í Fnjóskadal og eina helgina fékk hann heim- fararleyfi, en þegar hann kom aftur lenti hann í illri færð og þurfti að fara Eyjafjarðará á ís. Þegar hann kom í barna- skólann, höfðu íslenzku leður- skórnir, sem hann gekk á, snúizt upp á ristina. Fyrst í stað sagði faðir minn ekkert, en síðar um daginn hittust þeir. Þá lítur faðir minn á fæturna á honum og segir ertnislega: „A skónum enn!“ Þetta sagði Guðmundur að sér hefði sviðið lengi á eftir. Faðir minn hrinti á þennan hátt frá sér þeim mönnum, sem voru viðkvæmir að eðlis- fari og móðgunargj arnir og reyndu þeir oft að ná sér niðri á honum, þó síðar væri. Þeir gátu hugsað sér að losna við hann úr nágrenninu og þá var bruninri hentugt tækifæri til að rægja hann burt. Ég man eftir því, þegar Jón Arn- firinssori, bóndi í Litla-Dun- haga, sem er ftæsti bær við Björg, sem faðir minn lagði undií* Möðruvelli á seinustu árum sínUm þár, trúði hórium fyrir því skömmu áðúr en við fluttumst til AkUreyrar, að hann hefði aldrei gleymt því, þégar hann sagði við hann í glensi: „Það er leiður galli á þér Jón, að þáð érú eintómár kvarnir í hausnum á þér“ -— en Jón þessi var enginn orð-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.