Morgunblaðið - 24.12.1959, Page 9
Fimmtudagur 24. des. 1959
MORCVNBLAÐIÐ
57
verða grafin, og þér mun verða
fórnað fínustu klæðum, sem eftir
eru skilin á heimilum kvenna
þeirra, er látast af barnsburði."
Það kom í ijós að staðar-
ákvörðun hofsins er alveg rétt
hjá Evrípídesi og lýsing hans á
dýrkun gyðjunnar sannleikanum
samkvæm. Brauronnafnið reynd-
ist meira að segja enn til á þess-
um stað, lítið breytt.
Hofið hefur verið úr kalksteini
og súlnaröð framan við það. —
Inni hafa einnig verið tvær súlna
raðir, sem skiptu því í þrennt.
Ekki fundust þó nema brot af
súlunum. Rannsóknir hafa leitt
í ljós að hof þetta var byggt á
fyrsta hluta 5. aldar f. Kr. En
þá hefur annað eldra hof verið
þar fyrir, og er hluti af gólfi þess
enn sjáanlegur. Suðurhluti hofs-
ins hefur staðið á kletti, en norð-
urveggur hvílir á sterkbyggðum
undirstöðuvegg, og voru tröppur
niður þeim megin. Eru þrjú
þrep enn sjáanleg, en hin hverfa
niður í mýrina. Evrípídes hlýtur
að hafa haft þessi þrep í huga
þegar hann lýsir hofinu og talar
um heilögu tröppurnar í Braur-
on. —
Fórnargjafir frá barnshafandi
konum
Einnig hefur fengizt þarna
staðfesting á öðru atriði í leik-
riti Evrípídesar, þar sem hann
spáir um dauða og greftrun ífí-
geníu í Brauron („þar muntu
deyja og verða grafin“). Norð-
austur af aðalhofinu fannst lítill
lælgidómur og innar af honum
klefar, sem höfðu staðið inni í
helli, en loftið í honum brostið
og grafið allt undir grjóti. Við
uppgröftinn á þessum stað komu
fram í dagsljósið margar litlar
fórnargjafir og skrautmunir
kvenna, fjölmargir bronzspeglar,
dó þar sem meyprestur Artemis-
ar og vörður hofsins (sbr. frá-
sögn Evrípídesar). Seinna hlýtur
sá siður að hafa komizt á, að
grafa meypresta Artemishofsins
í námunda við hana. Því tæplega
verður því trúað, að skáldið og
heimspekingurinn Evrípídes hafi
ekki þekkt eða farið rétt með
hofsiðina og það hvar Ifígenía
átti að vera grafin, þegar hann
skrifaði fyrir samtíðarmenn sína
í Aþenu á árunum 414—412 f.
Kr. —
Af fjárhagsástæðum lagðist
niður vinna við uppgröft á Arte-
misarhofinu árið 1950. í fyrra-
sumar var svo byrjað þar af full-
um krafti aftur. Á staðnum hefur
verið reistur skáli. Þar standa
á hillum raðir af dýrmætum
fornum munum, sem komið hafa
upp úr jörðinni, leirskálum, litl-
um leirstyttum, marmarastytt-
um o. fl. Artemis í Brauron var,
eins og Evrípídes segir, gyðja
barnshafandi kvenna, Gengi
konu illa að fæða, var gyðjunni
fórnað öllu því fallegasta á heim
ilinu og dæi hún af barnsför-
um, var allt sem hún lét eftir
sig sent í hofið. Einhver merki
legasti fornleifafundurinn þarna
eru steintöflur, sem skráðar eru
á fórnargjafir til Artemis Ifí-
geníu. Eru einkum á listanum
gersemar kvenna, eins og dýr-
mæt klæði frá Taras og Amorg-
os, hálsmen, eyrnalokkar og
armbönd. Allt var þetta skráð
í hofinu en síðan flutt til Akro-
polis í Aþenu til öruggrar
geymslu. Þar hafa líka fundizt
samhljóða skrár, sem sanna að sá
háttur hefur verið hafður á.
Með uppgreftri þessum hefur
ýmislegt fundizt, sem staðfestir
gamlar heimildir um það, hvern-
ig gyðjan var tignuð og um há-
*
Það er ekki erfitt að ímynda sér að ífígenía sé þarna komin —
í síðbuxum — þegar þessi austurríski fornleifafræðingur geng-
ur um hofrústirnar.
gute9 jót! |
Hattabúð Soffíu Pálma
dásamlega fallegar leirstyttur og
vasar frá 6. og 5. öld f. Kr.
Heldur austar hefur verið graf-
inn upp hinn heilagi bústaður
meyprestsins, og þó einkennilegt
sé, fundust þar nokkrar grafir.
Til forna voru greftranir ekki
leyfðar á helgum stöðum í
Grikklandi, svo óhætt er að draga
þá ályktun að ífígenía hafi verið
grafin á þessum stað, þegar hún
Höfuð frá 5. öld
f. Kr., f u n d i ð
við hofið í Vra-
ena í september-
mánuði í haust.
tíðir, sem haldnar voru á ári
hverju henni til heiðurs. T. d.
má sjá litlu rúmbálkana, sem
8—11 ára telpur, þjónustumeyj-
ar gyðjunnar, sváfu á. Og gerð-
ar hafa verið af þeim styttur,
sem fundizt hafa brot úr. Af
öðrum heimildum er vitað, að
þessar ungu telpur voru kall-
aðar „birnur“. Þær klæddust
appelsínugulum kjólum og líktu
eftir björnum á hátíðum, en birn-
ir voru heilög dýr Artemisar.
Tortryggni á gamla sögu eytt
Sízt datt mér í hug, þegar ég
horfði á leikritið um Ífígeníu, að
ég ætti eftir að standa tfið gröf
hennar. Það virtist alltaf góður
skáldskap til þess, að hugsan-
leg tværi, að sagan gæti
nokkurn tíma verið raunveru-
leg. En það er ekki aðeins gröf
hennar, sem hefur fundizt, held-
ur líka fæðingarstaður hennar,
borgin Mykene. Þýzki fornleifa-
fræðingurinn Schliemann fann
borgina árið 1874—1879 eftir til-
vísun söguljóða Homers. Aðrir
fornleifafræðingar héldu síðan
áfram því verki að grafa Myk-
ene upp, og fundu ýmislegt sem
þar átti að vera skv. frásögnum
um atburði á öðru árþúsundinu
f. Kr. Þeir telja sig t. d. hafa
fundið gröf Agamemnons, föður
Ífigeníu og höggvið inn í klett-
inn í konungshöllinni er baðker-
ið, þar sem Klytemnestra að sögn
átti að hafa drepið eiginmann
sinn, Agamemnon.
A seinni árum eru menn farnir
að fara varlegar í að tortryggja
hinar gömlu grísku sagnir,' þar
eð alltaf er að koma í ljós að
margar þeirra a. m. k. eiga ein-
hverja stoð í veruleikanum, eins
og t. d. sagan um Ifígeníu.
E. Pá.
Kórinn leikur á framsviðinu í gömlu grisku leikjunum. ífigenía ásamt hirðmeyjum sinum á leik-
sviðinu. —■ ‘ '
w
*
Ur og klukkur
Heimilisklukkan hefir jafnan verið uppá-
haldsgripur heimilisins hjá háum sem
lágum. - Margar fornar klukkur gerð-
ar af list við hæfi síns tíma, þykja nú
merkir erfðagripir og safnmunir. ^
Við höfum undanfarið lagt okkur eftir að
flytja inn klukkur, sem að gerð og
formi samræmist húsbúnaði og heimil-
isháttum nútímans. Við höfum nú hið
fegursta og f jölbreyttasta úrval á boð-
stólum, — úrval, sem er alveg sér-
stætt hér á landi.
tJr flytjum við einungis inn, af traustum
og kunnum svissneskum merkjum. —
Við höfum umboð hér á landi fyrir
Mondia úrin, sem er velþekkt merki í
svissneska úraiðnáðinum. Það eru
gæðaúr á góðu verði. Við förum einnig
með umboð hér á landi fyrir hin dýru
og dýrmætu Rolex- og Tudor-úr.
Viðgerðastofa okkar fyrir úr og klukkur
veitir viðskiptavinum okkar greiða og
örugga þjónustu.
CJtektecj jótl
3ön Sipunílsson
Skarlpripaverziun
qripur
er œ
til ijnclis
u