Morgunblaðið - 24.12.1959, Síða 14

Morgunblaðið - 24.12.1959, Síða 14
62 MORGUNfíTAfílÐ Fimmtuclagrur 24. des. 1959 Þrautir og leikir Vandræði í baðherberginu Baðkerið fyilist á 6 mínútum og 40 sekúndum, ef látið er renna fullt úr kalda krananum. Úr heita krananum gæti það fyllzt á 8 mínútum. Pullt baðker mundi tæmast á 13 mín og 20 sek., ef tappinn væri tekinn úr. Hve lengi er kerið að fyllast, ef báðir kranarnir eru alveg opn- ir, og enginn tappi er í kerinu? hver þátttakandi skrifar á blað lengsta orðið, sem hann man eft- ir, sem byrjar og endar á stöf- unum í viðkomandi línu. — í dæminu hér á undan yrði í efstu línu orð, sem byrjar á L og end- ar á I, í annarri línu orð, sem byrjar á A og endar á K o. s. frv. Sá sem hefur fengið flesta stafi samtals út úr þessum 10 orðum hefur sigrað í leiknum. Hvernig flytzt krafturinn? Mundir þú toga í spottann eða sleppa honum, ef þú stæðir í sporum mannsins á myndinni? Reynið bæfni ykkar í að reikna út hvernig krafturinn flyzt frá hjóli til hjóls, sem hugsast tengd ýmist með reimum eða tönnum. Orðaleikur Veljið 10 stafa orð, sem hver þátttakandi skrifar lóðrétt á blað. Aftan við það er það svo skrifað aftur á bak, þannig að fyrsti og síðasti stafurinn eru í sömu línu. Ef orðið er t. d. Lands banki verður L og I í efstu línu, A og K í annarri o. s. frv. Leikurinn er í því fólginn að Reynið hæfni ykkar að muna tölur Leggið blað yfir tölurnar. Fær- ið síðan blaðið þannig að tala A sjáist. Horfið a hana í nokkrar sekúndur, færið blaðið yfir aftur, og skrifið hana á blaðið. Farið eins að við tölurnar B, C o. s. frv. Ef þið komist aftur að tölu L án þess að gera villu eruð þið snillingar. A 12792 B 16485 C 974865 D 8467525 E 45873602 F 647835504 G 1736914092 H 6741936028 I 65478390261 J 75568103780 K 52873510479 L 655374012967 M 748331029785 N 53662498013881 O 43992710993645 P 563429784013514 DÆMI I. TOP Setjið tölur í stað staf- -----= H anna þannig að dæmið HAT verði rétt. — T = 9. DÆMIII. Ef deilt er í tölu með tveim, útkomunni snúið á hvolf, síðan deilt í með þrem, og aftur með tveim, þeirri útkomu snúið á hvolf, verður talan orðin 911. Hver var hún upphaflega? Gátur 1. Hvað er það, sem enginn ósk- ar sér, en enginn vill samt missa? 2. Nefnið fjóra samliggjandi daga án þess að nefna mánu- dag eða fimmtudag. 3. Hvers vegna kyssast stúlkur en karlmenn ekki? 4. Hvernig er hægt að strika út tvo stafi úr sex stafa orði þannig að einn verði eftir? 5. Hvað er það tilheyrandi þér, sem vinir bínir nota meira en þú sjálfur? Jólafriðurinn tryggður JÓLAGJÖF i hættu, það er að segja, ef jólasveinninn kemst ekkj að húsinu. Getið þ i ð hjálpað honum? Bróðir Jóns Sex menn sátu við hringborð og spiluðu. Einn þeirra var bróð- ir Jóns. Raðið mönnunum kring- um borðið í samræmi við eftir- farandi upplýsingar og finnið út hver var bróðir Jóns. Pétur, sem ekki er skyldur Jóni, sat við hliðina á Daníel. Maðurinn, sem sat næstur manninum, sem sat gegnt Jóni, Að gera sér grein fyrir stórum tölum Hér sjáum við þrjá ferninga með 10, 100 og 1000 punktum. Það mun auðvelt að sannfæra — Sjáðu, amma, þú ert orðin langa-langamma! sat gegnt bróður Jóns. Friðrik sat gegnt Pétri, sem sat næstur manninum, sem sat næstur manninum, sem sat gegnt Jóni. Halldór sat á móti manninum, sem sat næstur manninum, sem sat næstur manninum, sem sat gegnt bróður Jóns. ........................ % * • • • % % % * * • » * » • t • * * • . . . *• . - . • . . . • /oo sjálfan sig um það, að 100,000 punktar myndu þekja 100 sinn- um stærri reit en 1000 punktar, ef þeir eiga að geta kallast punkt ar og ekki renna saman í klessu. Sömuleiðis myndu milljón punkt- ar þekja 1000 sinnum stærri reit, eða um 63,5x101,5 sm stóran reit. Það tók 12 mínútur að fylla reitinn 1000 punktum, og varð að halda vel áfram. Væri nú með sama hraða reynt við milljón punkta mundi það taka 12000 mínútur eða 200 klukkustundir, án matarhlés og svefns. Segjum að einhver væri nú svo vitlaus að leggja í þessa þrælavinnu í níu sólarhringa og næði örþreyttur hinu langþráða marki, milljón- asta punktinum, hvernig væri þá að byrja á næstu milljón, svang- ur og örmagna. Það mætti elja hámark brjál- semi að reyna við billjón punkta, ef það væri mögulegt, að vera án svefns og matar. Mundi slíktvarla taka meir en 20 ár og yrði að halda stanzlaust áfram, án þess að hvíla sig brot úr sekúndu. Auðvitað er petta óhugsandi og væri nær að reikna með yfir 60 árum í starfið, og yrði þá að sýna iðni og ástundun. Hugsið ykkur bara einhvern eyða 60 árum af ævi sinni í að þekja milljónum punkta yfir rúma 2 hektara af pappír. En hvað nú um áframhald og enn stærri tölur. T. d. 1000 sinn- um fleiri eða trilljón punktar, sem mundi taka 60 þúsund ár. Þetta ætti að gefa einhverja hug- mynd um hvað stórar tölur eru raunverulega. Spurningar og svör Hver þátttakandi í leiknum fær 2 miða. A annan miðann skrifar hann einhverja spurn- ingu, en á hinn miðann skrifar hann eitt orð Síðan er spurn- ingamiðunum safnað í bunka og sömuleiðis orðamiðunum, og hvor um bunka um sig ruglað. Þá er hver þátttakandi látinn hafa eina spúrningu og eitt orð. Þriðja miðanum er siðan útbýtt, og skal hver þátttakandi skrifa á hann fullnægjandi svar við spurning- unni, sem hann dró. I svarinu verður hann að nota orðið á orða- miðanum. □- ------------□ LAUSNIR FINNIÐ ÞI» „EIN- HVERSSTA»AR“ í JÓLABLAÐ- INU. □-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.