Morgunblaðið - 21.01.1960, Blaðsíða 1
20 siour
Ofsaveöur á
Norðursjd
ÓSLÓ, London og Haag, 20. jan.
—• (Reuter-NTB) —
OFSAVEÐUR hefur geisað
í dag á Norðursjó og raunar
víðast hvar við strendur V-
Evrópu. Mörg skip hafa til-
kynnt að þau væru í hættu
stödd og beðið um aðstoð —
og í kvöld var Ijóst, að óveð-
ur þetta hafði krafizt a. m. k.
sjö mannslífa. — Mikil snjó-
koma er víða og samgöngur
mcira og minna tepptar af
þeim sökum — og loks
brotnuðu skörð í flóðgarða á
allmörgum stöðum í Hol-
landi, en bráðabirgðaaðgerð
tókst að framkvæma í tæka
tíð. —
• " farast
Síðdegis í dag hvolfdi holl-
enzka strandferðaskipinu Ber-
muda skammt undan ströndinni.
Sást til skipsins alllöngu eftir að
því hvolfdi, en þegar björgunar-
bátar komu á staðinn, var hvergi
maður sjáanlegur — og er talið
að áhöfnin, fimm manns, hafi
öll farizt. Einnig þykir fullvíst,
að hjón hafi farizt með litlum
belgiskum bát, er sökk seint í dag
uppi undir landsteinum.
Umhveifis jörð-
ino á 51 klst.
SAN FRANCISCO. — Nú er
hægt að komast í kringum
jörðina á rúmum tveimum sól
arhringum með því að ferðast(
þó aðeins með áætlunarferð-|
um farþegaflugvéla. Núnai
einn daginn sté bandaríski'
milljónamæringurinn Milton1
Reynolds út úr flugvél í San
Francisco eftir slíkt ferðalag,,
og tók ferðin 51 klukkustund,
og 22 sekúndur. — Að sjálf-i
sögðu ferðaðist hann í hinum
nýju þotum, sem ryðja sér.nú®
mjög til rúms á áætlunarleið-
um.
• Þýzkt skip í hættu.
Þýzkt mótorskip tilkynnti í
morgun, að það væri í nauðum
statt skammt suður af Líðandis-
nesi, syðsta odda Noregs. Hafa
björgunarskip leitað að því í
allan dag, en ekki fundið það á
þeim slóðum, sem upp var gefið,
en sambandslaust hefir verið við
skipið síðan það gaf staðar-
ákvörðun sína í morgun. Seint í
kvöld sást rauðmálað olíufat á
reki skammt frá fyrrgreindum
stað, og var talið, að það kynni
að vera úr hinu þýzka skipi.
Leit verður haldið áfram. Ekki
er enn kunnugt, hve margir
menn voru á skipinu.
• Fleiri í hættu
Hollenzkt skip, 7.250 lestir að
stærð, strandaði við eyju undan
Hollandsströndum. Skipshöfnin
er 25 manns, og auk þess er kona
eins skipverja um borð. Björg-
unarbátar eru á varðbergi í
Framh. á bls. 19.
HÉR sést hvar íslenzki fán-
inn er dreginn að hún i
fyrsta sinni á hinu nýja
flaggskipi íslenzku land-
helgisgæzlunnar, Óðni. —
Skipið leggur af stað heim
á leið n.k. laugardag.
Sjá nánar á bls. 3.
Óííklegt að nautaberklar
séu í gripum á Hólum
Greinargerð yfirdýralœknis og berkla-
ytirlœknis
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi greinargerð frá yf-
irdýralækni og berklayfirlækni
vegna fréttar um berklaveiki í
kúm á Hólum. Við lestur þessarar
greinargerðar kemur í ljós, að
ofdjúpt hefur verið tekið i ár-
inni, þegar talað hefur verið um
berklafár í gripum á Hólum.
Greinargerðin er svohljóðandi:
Jákvæð svörun
1 aprílmánuði sl. birtu blöð og
útvarp greinargerð frá berkla-
yfirlækni og yfirdýralækni um
berklarannsóknir að Hólum í
Hjaltadal, sem þar höfðu verið
framkvæmdar og náðu jafnt til
heimilisfólks sem nautgripa á
staðnum. Tilefni rannsóknanna
var það, að í janúarmánuði sl.
veiktizt starfsstúlka að Hólum
og um svipað leyti einnig einn
nemandi, er þar hafði dvalizt.
Var talið, að þau hefðu orðið
fyrir berklasmitun, en bæði
veiktust þau upp úr mislingum,
Þau fóru á Kristneshæli til lækn-
inga, en eru nú bæði farin af
hælinu og að því er virðist við
góða heilsu. Ekkert var hægt að
fullyrða um, hvar þau höfðu orð
Larsen og
Petrosjan eislir
BEVERWIJK (Hollandi) — Á
alþjóðlegu skákmóti, sem haldið
hefir verið hér undanfarið og
lauk sl. sunnudag, urðu efstir í
stórmeistaraflokknum þeir Bent
Larsen og Petrosjan með 614
vinning hvor. f síðustu umferð
vann Rússinn Larsen, sem þá þeg
ar hafði tryggt sér þennan vinn-
ingsfjölda með því að vinna
Donner á laugardaginn. — Þriðji
í röðinni varð júgóslavinn Alex-
ander Matanovic, sem fyrir sið-
ustu umferð hafði einnig mögu-
leika á að komast í efsta sætið.
ið fyrir þessari smitun, þar sem
stutt var um liðið, frá þvi þau
komu á skólasetrið, þegar þau
veiktust, en meðgöngutími sjúk-
dómsins er hins vegar langur.
Þá höfðu og nokkur ungmenni
að Hólum haft væga jákvæða
svörun við berklapróf í apríl,
en fyrr um veturinn annaðhvort
enga eða mjög vafasama. Engin
sjúkdómseinkenni komu í ljós
hjá þessu fólki, og enginn berkla
veikur maður fannst við rann-
sóknina.
Vart nautaberklar
I tilefni af þessari smitun og
berklasýkingu og samkvæmt ósk
héraðslæknisins á Hofsósi, Guð-
mundar H. Þórðarsonar, var enn
fremur gert berklapróf á öllum
nautgripum skólabúsins að Hól-
um. Við þetta próf svöruðu 12
gripir jákvætt af 66, sem voru
á búinu. Hin jákvæðu svör voru
þó eigi eins greinileg og vænta
mátti, ef um nautaberkla væri að
ræða, en nautaberklar hafa aldrei
fundizt hér á landi, svo að vitað
Framh. á bls. 19.
Bretar í örðugri aðstöðu
Vilja fá vopnahlé í „þorskastríðinu"
NORSKA blaðið Aftenposten
birtir þær fregnir frá Lund-
únafréttaritara sínum, að
Bretar vilji nú óðfúsir fá ein-
hverja átyllu til að gera
vopnahlé við íslendinga í
stríðinu um fiskveiðiland-
helgina.
Ástæðan til þess að Bretar
vilja komast að bráðabirgðasam-
komulagi telur Björn A. Bostrup
fréttaritari Aftenpostens, vera
þá, að þeir sjá fram á það, að
verða í mjög örðugri aðstöðu á
Genfarráðstefnunni, sem hefst
17. marz. nk., ef „þorskastríðið“
heldur áfram. Sé augljóst, að
það styrki ekki aðstöðu Breta á
slíkri alþjóðaráðstefnu, ef þeir
halda áfram að beita smáríki
eins og Island vopnavaidi.
Þá getur Aftenposten þess, að
orðrómur sé um það, að Banda-
ríkin og Kanada vilji stuðla að
því að koma á vopnahléi milli
Breta og íslendinga og segir
blaðið, að það gæti orðið liður í
slíku vopnahléi, að tryggðar
verði aðgerðir til verndar fiski-
stofninum.
Alþingi kvalt
saman 28. janúar
FORSETI íslands hefur, að til-
lögu forsætisráðherra, kvatt Al-
þingi til framhaldsfunda fimmtu
daginn 28. janúar, kl. 13.30.
Sovéleldflaug
á Kyrrahafi!
WASHINGTON, 20. jan.
— (NTB-AFP) —
GRUNUR leikur á, að
Rússar hafi þegar skot-
ið einni af „Kyrrahafs-
eldflaugum“ sínum, seg-
ir í tilkynningu frá höf-
uðstöðvum Bandaríkja-
hers í Washington í
kvöld. — Borizt hafa
fregnir af því, að fund-
izt hafi hluti af sovézkri
eldflaug á hafinu fyrir
vestan Hawaii.
Varnarmálaráðuneytið
tilkynnti, að það væri
að athuga óstaðfestar til
kynningar, sem því
hefðu borizt um þetta,
en hlutur sá, sem hér er
um að ræða, er sagður
hafa fallið í sjóinn á
svæði því, er sovétstjórn
in tiltók, þegar hún til-
kynnti væntanlegar til-
raunir sínar með lang-
drægar eldflaugar á dög
unum.