Morgunblaðið - 21.01.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.01.1960, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 21. jan. 1960 Stjórnarkjör í Dagsbrún fer fram um næstu helgi Fjölsóttur Dags- brúnarfundur í fyrrakvöld SL. ÞRIÐJUDAGSKVÖLD var haldinn fundur í Verkamanna- félaginu Dagsbrún. Var þetta mjög fjölmennur fundur og urðu þar miklar og harðar umræður. Var til fundarins efnt í tilefni stjórnarkosninga í félaginu um næstu helgi. Framsögu fyrir lista kommún- ista í Dagsbrún hafði ritari fé- lagsins, Eðvarð Sigurðsson. Var nú allur annar tónn í ræðu hans heldur en þegar hann talaði á Dagsbrúnarfundum í tíð vinstri stjórnarinnar. Þá heyrðist ekki talað um kjör verkamanna né kjarabaráttu. Þá héldu kommún- istar um stjórnarvölinn og allir urðu að sýna umburðarlyndi. Nú kvað við nokkuð annan tón. En aðalinnihald ræðu Eðvarðs var þó að segja mönnum allar helztu gróusögurnar, sem um bæinn ganga þessa dagana um efnahags ráðstafanir ríkisstjómarinnar. Framsögu af hálfu B-listans, sem er listi lýðræðissinna í Dags- brún, hafði Jón Hjálmarsson. Kom Jón víða við í ræðu sinni. Hann ræddi nokkuð þátt Lúðvíks Jósefssonar í kjaradeilunni 1958, þegar hann gaf yfirlýsingu um að atvinnurekendum skyldi heim ilt að hækka verðlag tilsvarandi við hið hækkaða kaup. Jón tal- aði um þau vandræði, sem nú steðja að í efnahagsmálum þjóð- arinnar og taldi óhjákvæmilegt að efnahagskerfið yrði endur- skoðað frá grunni. Þá ræddi Jón og félagsmál Dagsbrúnar og minntist sérstaklega á innheimtu mál þess, en þau hafa verið í megnasta ólestri nú um langt skeið. Jóhann Sigurðsson talaði einn- ig af hálfu B-listans. Jóhann kvað kommúnista kvarta sáran undan því að minnzt væri á vinstri stjómina, þegar efnahags- málin í dag væru rædd. Þetta er óhjákvæmilegt, sagði Jóhann, við erum I dag að berjast við arfinn frá þeirri stjórn. Hún skildi þannig við að allt var á heljarþröm — og hvernig á þá að vera mögulegt að minnast ekki á hana. Hann ræddi nokkuð hinn breytta tón í ræðu Eðvarðs. í september 1956 sagði Þjóðvilj- inn, að launþegar hefðu fallið frá 6 stiga vísitöluhækkun gegn því að verðhækkanirkæmuekkifram. Launþegar voru sviknir um þetta því eins og öllum er ' kunnugt urðu þá geysimiklar verðhækk- anir. Nú á ekkert að gefa eftir enda kommúnistar ekki í ríkis- stjórn landsins. Gengislækkun var framkvæmd í tíð vinstri stjórnarnnar, en var þá nefnd verðstöðvun. Nú var en af gróu- sögum Eðvarðs sú að lækka ætti gengið um 130—135%. í tíð vinstri stjórnarinnar voru lagðir 1200 millj. kr. nýir skattar á þjóðina. Nú boðaði Eðvarð stór- kostlegar nýjar skattaálögur og sitthvað fleira. Sannleikurinn er hins vegar sá að Eðvarð hefur ekki hugmynd um það sem hann er að tala um. Hann stóð hér á fundi í janúar 1959 og sagði okk- ur að afrek vinstri stjórnar- innar: vísitölufölsun, kaupbind- ing, skattaálögur og gengislækk- un væru kjarabætur. Hann stóð þá með arfinn frá vinstri' stjórn- inni í höndunum og var að reyna að gera gott úr öllu. Honum var ekki trúað þá og honum verður heldur ekki trúað nú. Einar Ol- geirsson, form. Alþýðubandalags ins sagði í Þjóðviljanum um síð- ustu áramót að kjör launþega hefðu heldur versnað síðan 1947. Ég spyr þá: á hvaða grundvelli hefur kjarabarátta okkar verið rekin undanfarin ár ef svo er Jóhann Sigurðsson. komið? Og í öðru lagi: hvers vegna kippti stjórn hinna vinn- andi stétta þessu ekki í lag? Manni skildist þegar vinstri stjórnin tók við stjómartaumun- um, að nú myndi allri kjarabar- áttu lokið. Hinar vinnandi stéttir áttu sína fulltrúa í öllum ráð- herrastólum, þessu yrði komið á rétta leið. Reyndin varð öll önnur, því miður. Og svo er það hámark niðurlægingarinnar: verð bólgan hrakti þessa stjórn frá völdum. Um gróusögur Eðvarðs sagði Jóhann, að þær myndu sanna sig í tímans fyllingu. En við höfum fyrir okkur orð for- sætisráðherra við síðustu ára- mót, er hann sagði að allt yrði gert sem mögulegt væri til þess að þær ráðstafanir, sem gerðar yrðu kæmu sem léttast niður á launþegum. Aðrir sem tóku til máls voru Tryggvi Gunnlaugsson, Pétur Lárusson, Halldór Briem, Pétur Hraunfjörff, Árni Ágústsson, Guff mundur J. Guðmundsson, Hannes Stephensen og Gunnar Erlends- son. Fundurinn samþykkti eftirfar- andi tillögu: „Fjölmennur fundur í Verkamannafélaginu Dagsbrún, haldinn 19. janúar 1960, álítur að kaup verkamanna sé það lágt miðað við verðlag að það þoli enga skerðingu. Fundurinn varar þess vegna alvarlega við öllum þeim ráðstöf- unum í efnahagsmálunum, sem miða að því að rýra kjör verka- manna.“ Afli Akranesbáfa AKRANESI. 20. janúar — Afli bátanna hér í gær var samtals 82 lestir. Aflahæstir voru Asbjörn með 9,6 lestir og Sveinn Guð- mundsson með 9 lestir. Margir bátar eru á sjó í dag, en þó ekki allir. — Oddur Hraðskákmót og bridge keppni Heimdallar Trépinnum hnuplað NÝLEGA var brotizt inn í geymsluskúr frá heildverzlun Magnúsar Kjarans við Grensás- veg 16. Var þar stolið ýmsum vörum, svo sem tekökudufti, 2—3 kössum af bóndósum, tjörupappa O. fl. Eftir að búið var að brjóta skúrinn upp, munu krakkar hafa komizt í hann og haft á brott með sér heilmikið af trépinnum, sem notaðir eru I ís. Þarna var um mörg þúsund stykki af tré- pinnum að ræða og munu þeir nú vera talsvert dreifðir meðal barnanna í nálægu hverfi. Ættu foreldrar, sem verða varir við pinna þessa í fórum barna sinna, að sjá um að þeipi verði skilað og láta börnin gefa rannsóknar- lögreglunni upplýsingar. Heitt vatn — en borað dýpra STÓRI borinn er nú kominn nið- ur á 1000 m dýpi í holu við Sig- tún í Reykjavík, en þangað var hann fluttur úr Mosfellssveitinni eftir áramótin, til að dýpka 750 m djúpa holu, sem áður hafði verið boruð þarna. Á þessu dýpi kom nokkuð heitt vatn, eða 5 1. á sek., en það þótti svo lítið að æðinni var lokað og haldið áfram að bora dýpra. Fá- ist þarna meira vatn, þegar dýpra er komið, má bæta vatninu úr fyrrnefndri æð þar við. Haldið verður áfram að bora þarna allt niður í 2000 m, ef ekki fæst góð æð fyrr. Töpuðu 5-18 bjóðum uf línum ÍSAFIRÐI, 20. jan. — f vetur eru gerðir út héðan frá ísafirði 9 línu bátar, og voru þeir allir á sjó í gær. Höfðu bátarnir flestir lagt línu sína í álnum og á Grunnhal- anum. Fengu bátarnir versta veður á sjónum, og urðu þeir flestir að yfirgefa línuna og töp- uðu þá frá 5 og upp 118 bjóðum af línu. Fengu margir bátanna smááföll, gluggar brotnuðu í stýr ishúsi og skjólborð, en enginn bát ur skemmdist alvarlega. Land- lega er hjá öllum í dag og versta veður. Einmuna tíð var fyrri- partinn af janúar og gæftir góð- ar. Hefir aflinn yfirleitt verið góður, frá 5 og upp í 15 tonn í róðri og talsvert ýsuborið. — J. HEIMDALLUR, FUS efnir tU hraffskákmóts yrir félagsmenn sína n.k. sunnudag, 24. janúar. Öllum Heimdelllngum er aff sjálf sögffu heimil þátttaka í mótinu. Vegleg verðlaun verffa veitt þeim, sem fer meff sigur af hólmi í mótinu. Væntanlegir þátttakendur til- kynni skrifstofu félagsins í Val- höU viff Suðurgötu þátttöku sína á eftirtöldum tímum: í dag, fimmtudag kl. 3—7, föstudag kl. kl. 3—7 og laugardag kl. 2—4. Sími skrifstofunnar er 17102. Þá hefst tvímenningskeppni í Bridge á vegum Heimdallar n.k. mánudagskvöld, 25. janúar. Stendur keppnin yfir þrjú næstu mánudagskvöld, 25. janúar, 1. febrúar og 8. febrúar. Þeir, sem hæstir verða eftir þessi þrjú kvöld, hljóta góð verfflaun. Væntanlegir þátttakendur tU- kynni skrifstofu félagsins í Val- höll við Suffurgötu þátttöku sína á eftirtöldum tímum: í dag, fimmtudag kl. 3—7, föstudag kL 3—7 og laugardag kl. 2—4. Sími skrifstofunnar er 17102. Súlskinsblettur HAFLIÐI Stefánsson, vélstjóri á Akranesi, vann nýlega 250 þús. kr. í Happdrætti Háskóla Islands. Fréttamaður blaðsins á Akranesi átti í því tilefni stutt viðtal við hann á heim- ili hans á Vesturgötu 154 á Akranesi. Hafliði er 53 ára gamall, ættaður úr Flóanum, en fædd- ur á ÓlaSsfirði. Kona hans er Anna Sigríður Guðmunds- dóttir. ættuð úr Fljótum, og eiga þau 7 uppkomin börn. Hann hefur verið vélstjóri á Akranesbátum í 25 ár, en vinnur nú í Sementsverksmiðj unni. Eftir að fréttamaðurinn hafði óskað Hafliða til ham- ingju með þetta happ, spurði hann hvernig honum hefði orðið við. — Ég varð alveg undrandi — gat varla trúað því, þegar vinur minn einn kom og sagði mér að góður vinningur hefði fallið á nr. 6426. — Þú stendur í byggingum? — Já, húsið er fullbúið að innan, en eftir að ganga frá því að utan? — Og heilsufarið — hjá þér og dótturinni? — Hún er nýkomin heim Sandgerðisbátar afla vel. SANDGERÐI, 20. jan. — 15 bátar voru á sjó í gær og fengu 110 lestir. Víðir II var hæstur með 13,1 lest, Helga með 10,8 og Mun- inn með 9 lestir. Allir Sandgerðis bátar eru á sjó í dag. — Axel. í gipsi frá Snorra Hallgríms- syni, eftir að hafa gengið und- ir fimmta uppskurðinn vegna lömunar, sem hún hlaut á öðru ári af völdum lömunar- veiki. Hvað sjálfum mér við- víkur, þá sprakk meginn í mér einn góðan veðurdag og tók Halldór Hansen hann nær all- an úr mér. Margar hryðjur gerir á sæ, enda þurfti meira en meðalmaga til að þola gamla bitakassafæðið. Það er reginmunur á, eins og nú tíðkast að hafa lærða kokka um borð og fá heitar máltíð- ir. Fréttamaðurinn þakkaði, endurtók hamingjuóskir sínar og kvaddi. Z*' NA /5 hnúiar ¥: Snjókoma \7 Skúrir ///ýfogn- KuUasbi H Hcti y/ SV50hnútar * Úti K Þrumur Wy/tvaH Hiiaskil L LagS KLUKKAN 11 í gær var lægð um 300 km SV af Reykjanesi. Olli hún A- og SA-átt hér á landi og nokkurri snjókomu um suðvestanvert landið. Á veðurskipinu Alfa var N-rok, eins og á kortinu má sjá. Önnur mjög kröpp lægð var á landamærum Danmerkur og Þýzkalands og olli miklu norðanveðri á Norðursjó. Enn var hæð yfir Grænlandi. Veffurhorfur kl. 22: SV- land til Breiðafjarðar, SV- mið til Breiðafjarðarmiða: Allhvass austan, snjókoma, léttir víða til í dag. Vestfirðir og Vestfjarða- mið: NA-stinningskaldi, sums staðar snjókoma. Norðurland og Norðurmið: A- og SA-kaldi, víða snjó- koma. Norðausturland, Austfirðir, NA-mið og Austfjarðamið: Hæg austlæg átt, úrkomulítið. Suðausturland, SA-mið: A- stinningskaldi, snjókoma vest antil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.