Morgunblaðið - 21.01.1960, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.01.1960, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 21. jan. 1960 MORGVTSHLAÐIÐ 3 STAKSTEIWI! Öðrum hröppun? að hneppa íslenzkir kommúnistar senda eins og kunnugt er fulltrúa á flokksþing er kommúnistaflokkar Evrópu héldu I Ungverjalandi sL haiust. Þá flökraði ekki við því að ganga á fund með Janosi Kadar og öðrum böðlum ung-’ verskrar alþýðu og verkalýðs ör- stuttu eftir að þeir höfðu kæft byltingu ungverskra frelsissinna í blóði þeirra. Gefur þetta nokk- uð til kynna um eðli og raunveru legt innræti íslenzkra kommún- ista. En í haust var einnig haldinn sameiginlegur fundur kommún- istaflokka í Vestiur-Evrópu í Róm. Hefur það vakið mikla athygli að íslenzkir kommúnist- ar sendu ekki fulltrúa þangað. Hins vegar liggja fyrir upplýs- ingar um það, að þeim var boðið til Rómar. a flaggskipinu Oöni HÉR getur að líta fyrstu liðs- könnunina á hinu nýja flagg- skipi íslenzka varðskipaflot- ans, Óðni. Milli fylkinga skips hafnarinnar má sjá Pétur Sig- urðsson, forstjóra landhelgis- gæzlunnar (t.h.) og Eirík Kristófersson, skipherra. — Skipsmenn eru staddir á báta þilfari Óðins, einmitt á þeim stað er þyrla myndi verða staðsett. Yfir reykháf skips- ins er komið fyrir útsýnis- tunnu með sjóngötum í brjóst- hæð. Þar getur vaktmaður verið, ef þurfa þykir. Eru önnur varðskip hér ekki þann ig búin. Bátsuglurnar (ein sést lengst til hægri á mynd- inni) eru þannig gerðar að hægt er að leggja þær beint út frá skipinu og er þá nægi- ægt rúm fyrir þyrluna. Einmitt nú er verið að leggja síðustu hönd á skipið og mun það í dag fara í síð- ustu reynzluferð sína áður en það heldur heim á ieið, sem að öllum líkindum verður n. k. laugardag, að því er Gunn ar Bergsteinsson sjómælinga maður, fulltrúi landhelgis- gæzlunnar, tjáði blaðinu í stuttu samtali í gærkvöldi. Enn hefir ekki fengizt upp- gefið hve siglingahraði Óðins er mikill, en heyrzt hafa nefnd ar 18,6 sjómílur, svo að ekki verður hið nýja skip þá mjög lengi á leiðinni heim. Allir munu fagna heimkomu hins glæsilega skips. Líklegasta orsök SAS-slyssins: Of lágt aðflug Allir fórust, sem í flugvélinni — 42 talsins voru ÓSLÓ og ANKARA, 20. jan. — (NTB-Reuter) — ÞEIR tveir, sem lifðu af flug- slysið við Ankara í gær- kvöldi, er Caravelle-þota frá SAS fórst rétt fyrir lendingu, létust í sjúkrahúsi í dag. Hafa því 42 menn af ýmsum þjóð- um látið lífið í slysi þessu. — Tálsmaður SAS upplýsti í kvöld, að allar líkur bentu til þess, að orsök slyssins hefði verið sú, að flugvélin hefði farið of lágt í aðfluginu og því rekizt á hæð eina nálægt flugvellinum, en ekki, að hún hefði „misst hæð“ skyndilega -— það á ekki að geta komið fyrir Caravelle, sagði tals- maðurinn. Flugið hafði gengið í alla staði vel, allt frá því að „Ormur vík- ingur“ lagði upp frá Kaupmanna- höfn. en flugvélin var á leið til Kaíró. — Flugmaðurinn hafði stöðugt samband vði flugturn- inn á flugvellinum í Ankara á meðan á aðfluginu stóð, og nefndi ekki að neitt væri í ólagi hjá sér. Því höfum við enga ástæðu til að ætla, að um bilun hafi verið að ræða, að sprenging hafi orðið í vélinni eða neitt slíkt, sagði tals- maðurinn# • Blossi — talstöðin þagnaði Flugmaðurinn hafði fengið all- ar nauðsynlegar leiðbeiningar um aðflugið og var búinn að taka stefnuna á flugbrautina, þegar menn sáu skyndilega sterkan ljósblossa á að gizka 80 til 100 metra frá flugvellinum — og á sama andartaki þagnaði tal. stöð flugvélarinnar. — Björgun- ar- og slökkvilið flugvallarins fór þegar á vettvang — og fann flak flugvélarinnar í tætlum í fyrrnefndu hæðardragi. Brakið var dreift um svæði, sem er um 900 metra langt og 200 metra breitt, og líkin lágu á víð og dreif í allt að 500 metra fjarlægð frá flakinu en þegar slysið varð, flaug flugvélin með um 225 km hraða á klst. 0 Rannsókn , Sérfræðinganefnd frá tyrkneska iianna ivuilllllUIUMHUiaOlO flughernum hóf þegar í dag rann sókn á slysinu. en samkvæmt al- þjóðareglum ber tyrknesku stjórninni að hafa yfirumsjón með slíkri rannsókn_ — Auk þess kom sérstök nefind manna frá SAS til Ankara í dag og tók þeg- ar til starfa við að rannsaka or- sakir slyssins. Einnig hafa Sud- Aviation-verksmiðjurnar, sem framleiða Caravelle-þoturnar, sent sérfræðinga sína á vettvang. Ekki er búizt við, að nein opin- ber tilkynning verði gefin út um þessar rannsóknir fyrr en að nokkrum dögum liðnum. Mörg líkanna eru mjög illa farin, og mun taka marga daga að greina sum þeirra sundur. — SAS 'nefir lýst því yfir, að félag- ið muni sjá urrrflutning líkanna, þangað sem aðstandendur óska — og að það muni einnig sjá um útfararkostnað. Einnig hefir fé- lagið lofað að flytja aðstandend- ur hinna látnu til og frá slys- staðnum, ef óskað er. Eins og frá hefir verið skýrt, er þetta fyrsta slysið í sögu SAS, þar sem manntjón hefir orðið — og þetta er jafnframt fyrsta slys- ið, sem Carfvelle-þota lendir í. Slæmur frógangur við Mývotn tulinn orsokn truilunino RAFMAGNSSKÖMMTUN áorku veitusvæði Laxárvirkjunarinnar lauk í fyrrakvöld og hafði þá verið skammtaö rafmagn í rösk- an sólarliring. Orkuveitusvæðið frá Dalvík til Húsavíkur. í gær var skýrt hér í blaðinu frá erfiðleikum Akureyringa vegna rafmagnsskortsins. Á Húsa vík var svipað ástand þennan dag. Var rafmagnslaust frá kl. 7 um morguninn til 12 á hádegi, en þá fékkst rafmagn í fjóra tima. Barnaskólinn starfaði ekk- ert og gagnfræðaskólinn mjög lítið. Vinna hjá flestum iðnfyrir- tækjum lagðist einnig niður, þar eð aðeins fáir hafa vararafstöðv- ar. Fréttaritari blaðslns símaði meðan rafmagnsskömmtunin stóð yfir: Menn eru mjög óánægðir með truflanirnar, sem oröiö hafa í vetur á rafmagni frá Laxárvirkj- un, því að í báðum þeim hriðar- veðrum, sem komið hafa á þess- um vetri, hefir orðið að taka upp rafmagnsskömmtun. í nóvember veðrinu var að miklu leyti raf- magnslaust í heila viku. Orsakir þessa ófremdarástands telja menn hér að megi rekja til þeirra aðgerða, sem verið er að gera við Laxárósa hjá Mývatni, þar sem áin fellur úr vatninu. Þar er verið að vinna að miklum mannvirkjum sem tryggja eiga í framtíðinni öruggara rennsli að orkuverinu. Talið er að svo hafi verið skilið við þetta verk í haust, að það, sem gert var í fyrrasumar, hafi spillt fyrir vatns rennslinu. Benda líkur til að svo sé, því aldrei hafa verið eins miklar truflanir á vatnsrennslinu eins og í vetur, þrátt fyrir hið góða tíðarfar. f hlýindunum nú eftir áramót- in tók mikinn ís af Mývatni og var þá rennslið úr því mjög mik- ið, en það rennsli hefði þurft að vera hægt að stöðva, því nú telja Mývetningar vatnsborðið með lægsta móti. — Fréttaritari. Unita skýrði frá því hinn 4. des. sl. í samtali við mann að nafni Mario Alicata, að íslenzka Komm únistaflokknum hefði verið boð- ið að senda fulltrúa á Rómar- ráðstefnuna. En síðan komst hann að orði á þessa leið um ástæður þess að félagarnir frá íslandi gátu ekki mætt á ráð- stefnunni: Þátttaka í ríkisstjórn „íslenzku félögunum fannst það ekki mögulegt að leyfa nokkrum af aðallciðtogum sín- nm að yfirgefa ísland strax að loknum hinum politísku kosn- ingum, sem staðfestu á glæsileg- an hátt flokksfylgi þeirra og vöktu á ný spurninguna um þátt- töku þeirra í ríkisstjórninni“. Þetta var ástæðan til þess, að | íslenzku kommúnistarnir sendu ekki fulltrúa á flokksþing kom- múnistaflokka Vestur-Evrópu í Róm. Það var væntanleg þátt- taka þeirra í nýrri ríkisstjórn á íslandi, sem hindraði þá i því að yfirgefa landið. Þá vildu þeii; heldur vera án þess að sækja Rómarráðstef nuna! Af þessu er augljóst að komm- únistar gerðu sér öruggar vonir um það að afloknum k'osningum í haust að þeim og Framsókn- arflokknum tækist að hnoða sam- an nýrri ríkisstjórn. En niður- staðan varð sú, að þeir fengu hvorki vinstri stjórn né komust til Rómar. Hvílíkur Paradísar- missir fyrir íslenzka kommúnista. Stirjálar samgöngur Það er alkunna að samgöngur við ýmis afskekkt sveitahéruð eru mjög strjálar á landi hér, ekki hvað sízt á vetrum. Við einna erfiðastar samgöngur mun þó fólk í norðanverðri Strandasýslu búa. Blaðið hitti fyrir skömmu að máli bónda þaðan að norðan. Kvað hann engan póst hafa komið í nyrsta hrepp Strandasýslu frá 17. des. til 7. janúar. Flóabátur Stranda- manna gengur aðeins fjóra til fimm mánuði, á sumrin. Á vetr- um fær fólk í nyrztu byggðum Strandasýslu yfirleitt ekki póst nema einu sinni og stundum tvisv ar í mánuði. Þannig hefur formaður Fram- sók narflokksins, sem segist vera mesti vinur strjálbýlisins gætt hagsmuna strjálbýlustu byggðar- innar í héraði, sem hann hefur verið þingmaður fyrir í rúm 25 ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.